Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
33
Leggjum áherslu
á sameigin-
lega hagsmuni
eftir Rósu
Matthíasdóttur
Tvö af brýnustu verkefnum borg-
arstjórnar Reykjavíkur á næsta
kjörtímabili verður efling atvinnu-
lífs í borginni og átak í málefnum
venjulegs fjölskyldufólks í borginni.
í prófkjörsbaráttu sjálfstæðis-
manna hefur einn frambjóðend-
anna, Gunnar Jóhann Birgisson,
sett fram hugmyndir sem ég tel
mjög athyglisverðar og frumlegar
og þess vegna styð ég hann eindreg-
ið og hvet sjálfstæðismenn í Reykja-
vík til þess að kjósa hann í ijórða
sæti framboðslistans.
Ég tel sérstaklega mikilvægt að
hjá honum hefur komið fram mikill
skilningur á því að í raun eiga at-
vinnurekendur, ekki síður en fjöl-
skyldufólk, mikið undir því að það
takist að stokka upp ýmsa hluti í
því kerfi sem við búum við í dagvist-
ar- og skólamálum og finna þar
lausnir sem gagnast öllum almenn-
ingi. Á hverjum degi verða flest
fyrirtæki í borginni fyrir beinum
og óbeinum kostnaði vegna þess
að fjölmargt fólk getur ekki gefið
sig óskipt að vinnu vegna óhjá-
kvæmilegra snúninga við að tryggja
umönnun barna sinna þar sem það
kerfi sem við búum við hefur því
miður ekki enn náð að taka mið
af þeirri staðreynd að í venjulegri
fjölskyldu í borginni eru tvær fyrir-
vinnur. Hagkvæmni þess að bæta
þetta kerfi blasir við og eins og
„Sem atvinnurekandi
og skattgreiðandi
fagna ég því að maður
sem er að beita sér fyr-
ir því að komast í hóp
kjörinna fulltrúa leggi
höfuðáherslu á að
fyrsta skylda sín sé að
sjá til þess að tekjum
borgarinnar sé vel var-
ið...“
Gunnar Jóhann hefur bent á þarf
lausnin ekki að felast í dýrum ný-
byggingum eða útgjaldafrekum
rekstri sem hleðst ofan á núverandi
kerfi heldur þarf að nálgast málin
á breiðum grundvelli og líta m.a. á
uppbyggingu grunnskólans, fæð-
ingarorlof og fjölbreyttara rekstrar-
form leikskóla, svo nokkur atriði
séu nefnd.
í atvinnumálum hefur Gunnar
Jóhann lýst andstöðu við sérstakan
skatt á verslunar- og skrifstofuhús-
næði og almennt lagt áherslu á
aðhald og varkárni í tekjuöflun og
fjármálastjórn borgarinnar þannig
að opinber rekstur leggi ekki byrðar
á einstaklinga og fyrirtæki sem
dragi úr getu þeirra til að mæta
erfiðum tímum og nýta ný tæki-
færi. Sem atvinnurekandi og skatt-
greiðandi fagna ég því að maður
sem er að beita sér fyrir því að
Rósa Matthíasdóttir
komast í hóp kjörinna fulltrúa leggi
höfuðáherslu á að fyrsta skylda sín
sé að sjá til þess að tekjum borgar-
innar sé vel varið og ekki til verk-
efna sem aðrir geta betur sinnt eða
sem mega bíða betri tíma. í því
sambandi bendi ég sérstaklega á
að hann hefur afdráttarlaust lýsl
því yfir að hann telji að éins og nú
standi á beri að fresta framkvæmd-
um við Korpúlfsstaði.
Ég er sannfærð um að það sjón-
armið að leggja höfuðáherslu á
sameiginlega hagsmuni Reykvík-
inga á mikinn hljómgrunn meðal
borgarbúa og ég tel að með því að
veita skeleggum talsmanni slíkra
sjónarmiða góða kosningu í próf-
kjörinu sendi sjálfstæðismenn í
Reykjavík kjósendum þýðingarmikil
skilaboð í upphafi kosningabarátt-
unnar.
Kjósum Gunnar Jóhann í 4. sæt-
ið.
Höfundur cr framkvæmdastjóri.
Sá veit er víða ratar
eftirGlúmJón
Björnsson
Þrátt fyrir að undirritaður hafi
að öllu jöfnu meiri áhuga á málum
en mönnum og hafi ítrekað sko-
rast undan því að segja í blaða-
greinum kost og löst á frambjóð-
endum til hinna ýmsu embætta
innan Sjálfstæðisflokksins á und-
anförnum árum er trauðla hægt
að sitja með hendur í skauti þegar
einn skeleggasti frambjóðandinn í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík verður fyrir jafn vægð-
arlausum árásum og raun ber
vitni.
Einnig hafa verið uppi kröfur
um að takmarka rétt íslenskra rík-
isborgara af erlendum uppruna til
framboðs í sveitarstjórnir og á
Alþingi! Með öðrum orðum verði
íslenskum ríkisborgurum skipt í
tvo hópa þar sem annar njóti allra
réttinda sem fylgja þeim skyldum
að hafa íslenskt ríkisfang en hinn
hópurinn beri aðeins skyldurnar.
Margir mætir íslendingar hafa
alist upp á erlendri grundu og
aðrir dvalið þar við nám og störf
án þess að efast sé um réttindi
þeirra þegar þeir snúa heim á leið.
Flestir þykja þeir hafa öðlast víð-
sýni og skilning á ijölbreytileika
mannlífsins eins og höfundur
Hávamála benti á: Sá einn veit
er víða ratar.
Amal Rún Qase hefur vafalítið
komið hingað til lands af sömu
ástæðu og þeir forfeður okkar sem
fyrstir námu hér land, í leit að
friði fyrir fólki sem óumbeðið tek-
ur að sér að ráðskast með líf ann-
arra. Hún hefur tekið virkan þátt
í íslenskri þjóðmálaumræðu að
undanförnu og framlag hennar ber
þess klárt merki að hún hefur
kynnt sér mál til hlítar og dregur
rökréttar ályktanir í anda einstakl-
ingsfrelsis. Ég held að á engan
sé hallað þótt ég segi hér að fersk-
ir vindar fylgi stjórnmálaþátttöku
Amal Rún Qase
„Amal Rún fær atkvæöi
mitt í 6. sæti framboðs-
lista sjálfstæðismanna í
Reykjavík í prófkjöri í
lok janúar.“
hennar og hún hafi til að bera þá
pólitísku skerpu sem svo oft gerir
gæfumuninn. Amal Rún fær at-
kvæði mitt í 6. sæti framboðslista
sjálfstæðismanna í Reykjavík í
prófkjöri í lok janúar.
Höfundur er efnafræðinemi, í
flokksráði Sjáifstæðisflokksins,
formaður umhverfismálanefndar
SUS og fyrrverandi stjórnar-
maður í Heimdalli, félagi ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík og
ritstjóri Gjallarhorns.
Nú er lag
eftir Ragnheiði
Kristjánsdóttur
Nú er lag fyrir okkur sjálfstæð-
ismenn að koma frá óstjórn og
ofríki alþýðuflokksmanna í Hafn-
arfirði
En forsenda þess að góður
árangur sjálfstæðismanna náist
er sterkur framboðslisti — einmitt
sá listi sem við nú með þessu próf-
kjöri erum að setja saman — listi
sem við veljum um þessa helgi.
Jafnvel þótt valkostir sjálfstæð-
ismanna í prófkjörinu nú snúist
um persónur, þá verða það málefn-
in sem öllu skiptir í vor. '
Efst í mínum huga eru mál sem
varða daglegt líf fólksins í bænum,
atvinnutækifæri foreldranna,
menntun og aðbúnað barnanna,
samverustundir fjölskyldunnar og
ævikvöld einstaklinganna.
Það er í verkahring sveitarfé-
laga að veita þá velferðarþjónustu
sem nær allt frá vöggu til grafar.
Mér er hins vegar ljóst að engin
raunveruleg framfaraspor verða
stigin á þeim vettvangi nema
böndum sé komið á almennan
rekstur og fjármál bæjarins.
Atvinna og húsnæði eru frum-
þarfir hverrar fjölskyldu og undir-
staða velferðar og öryggis barna.
Við hér í Hafnarfirði höfum ekki
farið varhluta af því erfiða ástandi
sem ríkir í atvinnumálum lands-
manna. Verktakaiðnaður hér í bæ
hefur átt undir högg að sækja og
í sjávarútveginum hefur undan-
haldið ekki verið minna. Fjölmörg
heimili í bænum búa við atvinnu-
leysi eða yfirvofandi missi atvinnu.
Við þurfum þess vegna tafarlaust
að gera raunverulegt átak í at-
vinnumálum. Traust heimilislíf er
mikilvægasta kjölfesta í lífi hvers
einstaklings. Það er því mikilvægt
að uppeldisþáttur heimila og skóla
sé samstilltur og náinn og þess
eðlis að skila þjóðfélaginu hæfum
og nýtum þegnum. Með aukinni
þátttöku sveitarfélaga í rekstri
skólanna opnast okkur ýmsar leið-
ir til úrbóta.
Verklega menntun, sérfræði-
þjónustu og aðstoð til þeirra sem
á brattann eiga að sækja þarf stór-
lega að auka. Með auknum metn-
aði í þjónustu við börnin og heimil-
in erum við að leggja grunninn
að dýrmætri fjárfestingu til fram-
tíðar.
Öldruðum Hafnfirðingum fjölg-
ar sífellt. Öll viljum við vera þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að vera sjálf-
stæð og sjálfum okkur næg eins
lengi og auðið er. Nauðsynlegt er
að tryggja öldruðum aðgang að
eftir Val Júlíusson
Þegar SÁÁ var stofnað í október
1977 voru þar fyrst og fremst að
verki alkóhólistar em höfðu farið í
meðferð til útlanda eða biðu eftir
að komast í meðferð. Satt að segja
var þessi hópur alkóhólista ekki
mjög trúverðugur í augum margra
og ljóst að það var á brattann að
sækja til að öðlast traust stjórnvalda
og almennings.
Til að bæta úr þessu fengum við
ungan lögfræðing, Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson, til að verða fram-
kvæmdastjóri hinna nýstofnuðu
samtaka. Gott orð fór af honum,
hann var sagður röskur, úrræðagóð-
ur og hafa tiltrú. Ekkert af því
reyndist ofmælt. Hann reyndist
einnig hafa góða þekkingu á fjár-
málum og var góður talsmaður
þessa merkilega átaks í heilbrigðis-
málum þjóðarinnar.
Við í SÁÁ nutum krafta Vilhjálms
Ragnheiður Krisfjánsdóttir
„Grundvöllur hvers
bæjarfélags er gott
mannlíf í heilbrigðu og
skemmtilegu um-
hverfi.“
íbúðum á viðráðanlegu verði þar
sem þægindi og einfaldleiki eru í
fyrirrúmi.
Grundvöllur hvers bæjarfélags
er gott mannlíf í heilbrigðu og
skemmtilegu umhverfi. Við verð-
um að hlúa að unaðsreitum og
náttúruperlum í bæjarlandinu og
varast að eyðileggja svip bæjarins
með skipulagsmistökum.
Við þurfum að sinna því sem
við eigum, halda því við — og vinna
að fjölmörgum framfaramálum
fyrir fólkið í bænum án þess endi-
lega að hvert spor í þeim efnum
sé í sviðsljósi stóru fjölmiðlanna.
Ég er bjartsýn. Tími sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði er framund-
an. Ég er sannfærð um að með
stefnuföstum flokki karla og
kvenna fáum við sjálfstæðismenn
umboð til breytinga á stjómun
bæjarins.
Öflugur framboðslisti okkar er
fyrsta skrefið í þessa t átt. Þess
vegna skulum við öll vanda okkur
í prófkjörinu sem nú er framundan
og fylkja okkur síðan af einhug á
bak við það fólk sem valið verður
í framvarðarsveit Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði.
Höfundur erkennari og þátt-
takandi íprófkjöri Sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði.
Styrkur Reykjavíkur
Valur Júlíusson
þegar mest lá við. Við reistum Vog
og hófum starfrækslu göngudeildar
og meðferðarheimilanna að Sogni
og Staðarfelli.
„Við í SÁÁ nutum
krafta Vilhjálms þegar
mest lá við.“
Frá SÁÁ lá leið Vilhjálms inn í
borgarmálin. Hann hefur samt
áfram verið okkur í SÁÁ haukur í
horni. Nú er hann varaformaður
stjórnar samtakanna.
Vegur Vilhjálms hefur farið vax-
andi í störfum hans fyrir borg-
arbúa. Nú er komið að því að sjálf-
stæðismenn ætla að velja sér fólk
til forystu næsta kjörtímabil borgar-
stjórnar. í mínum huga leikur eng-
inn vafi á því að styrkur borgar-
stjórnar og hagur borgarbúa felst í
þvi að Vilhjálmur skipi þar eitt efsta
sætið.
Höfundur er heimilislæknir í
Reykjavík og læknir á Vogi,
sjúkrahúsi SÁÁ.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLADASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI