Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 35
35 ’
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
Hvað eru sterar?
Er hægt að setja alla stera undir
eftir Vilhjálm G.
Skúlason
Notkun lylj'a til þess að bæta
árangur í íþróttum er ekki ný af
nálinni. Sagnir af íþróttamönnum,
sem neyttu efna í því skyni að bæta
árangur rekja rætur sínar til upp-
hafs Ólympíuleika í Grikklandi árið
776 fyrir Krists burð. Misnotkun
lyfja á síðari tímum varð að við-
urkenndu vandamáli árið 1935 og
frá þeim tíma hefur misnotkun lyfja
meðal íþróttamanna og annarra vax-
ið jafnt og þétt svo að nú er misnotk-
un „anaból“ stera og annarra lyfja
orðin að alvarlegu vandamáli. Eins
og áður getur má rekja rætur þessar-
ar þróunar langt aftur í tímann og
var til dæmis að taka þremur kepp-
endum vísað frá keppni á Ólympíu-
leikunum árið 300 fyrir Krist fyrir
að neyta sveppa og prótínefna úr
dýraríkinu. Fyrsta dauðsfall á
íþróttavelli vegna lyíjatöku varð árið
1890, er breskur hjólreiðamaður sem
neytt hafði efedríns lést. Árið 1935
voru fyrstu „anaból“ sterarnir sam-
tengdir og misnotkun lyfja á síðari
tímum varð viðurkennt vandamál.
Fyrsta kerfisbundna notkun „ana-
ból“ stera, sem ekki var í lækninga-
skyni, var í síðari heimsstyrjöld, þeg-
ar þýski herinn notaði þá til þess að
auka árásarhneigð hermanna. Árið
1968 var misnotkun „anaból" stera
orðin svo alvarlegt vandamál að al-
þjóðaólympíunefndin hóf lyfjarann-
sóknir á íþróttamönnum og árið 1976
bannaði nefndin íþróttamönnum
notkun „anaból" stera. Árið 1983 var
nítján keppendum vísað frá á Amer-
íkuleikunum í Caracas vegna lyfja-
notkunar og margir aðrir íþrótta-
menn hættu þátttöku í leikunum af
frjálsum vilja fremur en að eiga lyfja-
próf á hættu og árið eftir varð
flæmskur hlaupari að skila aftur silf-
urverðlaunum á Ólympíuleikunum í
Los Angeles vegna misnotkunar
stera. Nýjasta og sennilegasta fræg-
asta dæmið er að árið 1988 varð
kanadíski spretthlauparinn Ben
Johnson að skila aftur gullverðlaun-
um á Ólympíuleikunum í Seoul eftir
að lyfjapróf hafi sýnt fram á „ana-
ból“ stera í þvagsýni hans.
Hvað eru sterar?
Á liðnum mánuðum og árum hafa
fjölmiðlar og opinberir aðilar flutt
frásagnir af misnotkun stera og í
sumum tilvikum þeirri hættu, sem
hún hefur í för með sér, án þess að
skilgreina þá nánar. í þessu hafa
verið fólgnar mjög villandi upplýs-
ingar, ef upplýsingar skal kalla, sem
hafa leitt til þess að sumir sjúklingar
sem nota stera gegn ýmsum sjúk-
dómum hafa fengið bakþanka og
dæmi eru um að þeir hafí viljað
hætta notkun steralyfja vegna þess
að „sterar væru svo eitraðir"! Þetta
gerist á sama tíma og rannsóknir
benda eindregið til að rétt notkun
vissra stera sé ennþá gagnlegri og
nauðsynlegri en áður var talið.
Sá flokkur stera, sem íjölmiðlar
og opinberir aðilar hafa átt við, eru
„anabóT' sterar, sem flestir mundu
vera mér sammála um að eru ekki
gagnlegasti flokkur þeirra stera sem
notaðir eru sem lyf enda þótt þeir
hafi sína kosti og notgildi, en aðeins
ef þeir eru notaðir á réttan hátt.
Skulu nú færð rök að áðurgreindum
fullyrðingum, sem jafnframt eru
gagnrýni á áðurgreinda aðila fyrir
alvarleg mistök.
Síðan þýski vísindamaðurinn
Adolf Windaus (1876-1950) hóf
rannsóknir á sterum um 1914, hafa
hvorki fleiri né færri en 14 vísinda-
menn hlotið Nóbelsverðlaun fyrir
rannsóknir á efna- og líffræði stera
og segir það ef til vill sumum meira
en mörg orð um gagnsemi þeirra,
enda eru rannsóknirnar með þeim
merkilegri í gjörvallri sögu vísinda.
Ekki get ég staðist þá freistingu að
benda á að fjöldi bóka og tímarits-
greina hefur veríð ritaður um þennan
merkilega efnaflokk og má til dæmis
benda á mjög aðgengilega bók þýska
læknisins Rupert F. Witzmann
„Steroids Keys to life“, sem hugsan-
lega mætti útleggja „Sterar — lyklar
lífsins" og segir það einnig meira en.
mörg orð. Þá má benda á, að sterar
eru efnaflokkur sem í eru mörg
bæði náttúrleg og samtengd efna-
sambönd sem mörg hver eru notuð
sem mikilvæg lyf, t.d. gegn liðagigt,
astma og mörgum húðsjúkdómum,
en önnur eru hráefni til lyfjagerðar.
Þeir hafa allir líka byggingu, stera-
kjarnann, en frábrugðna líffræðilega
verkun. Ef vítamín eru tekin til
smanburðar sem flokkur, eru þau
almennt talin frábrugðin sterum að
því leyti að þau hafa bæði frá-
brugðna efnabyggingu og líffræði-
lega verkun. Nú vita flestir að skort-
ur á C-vítamíni veldur skyrbjúgi og
að skortur á D-vítamíni veldur
beinkröm og að þar af leiðandi kem-
ur C-vítamín ekki að gagni gegn
beinkröm né heldur D-vítamín gegn
skyrbjúg. Á hliðstæðan hátt verður
að velja ákveðinn stera gegn ákveðn-
um sjúkdómi og þegar af þeirri
ástæðu er ekki leyfílegt að setja alla
stera undir einn hatt.
Áður er bent á að sterar eru nátt-
úrleg efnasambönd og eru þeir í öll-
um lifandi verum nema bakteríum,
blágrænum þörungum og a.m.k.
sumum lindýrum og gegna þar mis-
munandi hlutverkum. En í sem stystu
máli er hægt að færa rök fyrir því
að án stera væri ekkert líf til í þeirri
mynd sem við þekkjum það, án stera
yrði fólksfjölgunarsprenging, án
stera yrði andlegur og líkamlegur
sársauki ennþá_ meiri og 'án stera
yrði engin ást. Ég tel því allar rang-
ar upplýsingar og vísbendingar um
þennan efnaflokk „vísindalegt guðl-
ast“, ef ég má orða það svo.
Flokkar stera
Áður er minnst á þann merka
mann og vísindamann Adolf Wind-
aus, sem er upphafsmaður rann-
sókna á þessu sviði, en hann rann-
sakaði meðal annars kólesteról sem
er í öllum dýrafrumum og tilheyrir
flokki steróla, en í þeim flokki er
einnig ergósteról, sem er í öllum
jurtafrumum. í huga almennings
hefur orðið kólesteról neikvæð áhrif
vegna þeirrar réttmætu áherslu sem
lögð hefur verið á hlut þess í ýmsum
hjarta- og æðasjúkdómum. En á
sama tíma hefur láðst að greina frá
lífsnauðsynlegu hlutverki þess í
frumuhimnum allra dýrafruma og
að það er forefni allra annarra flokka
stera sem myndast í líkama manna
og dýra. Sem dæmi má nefna að ein
athyglisverðasta og merkilegasta
breyting sem á sér stað í náttúr-
unni, hamskipti eða myndbrejúing
óásjálegra orma í litfögur fiðrildi,
verður fýrir milligöngu hormóns sem
myndast í dýrinu úr kólesteróli. Af
öðrum flokkum stera skal minnst á
barkstera sem eru í nýrnahettiberki,
en helstu hormónar þar eru hydró-
kortisón, sem er sykursteri og stjórn-
ar efnaskiptum kolhydrata, fítu og
próteínefna, og aldósterón, sem
stjórnar salt- og vatnsbúskap líkam-
ans. Þessir hormónar eru lífsnauð-
synlegir. Kynhormónar, karlhormón-
ar og kvenhormónar, eru einnig ster-
ar og myndast í kynkirtlum. Þeir
móta meðal annars ytri kyneinkenni
karla og kvenna og prógesterón, sem
stundum er kallað þungunarhormón,
er forsenda þess að kvenverur geti
gengið með og alið afkvæmi. Hjarta-
sykrungar, sem frá ómunatíð hafa
verið notaðir gegn hjartabilun, eru
sterar sem myndast í blöðum hins
undurfagra fíngurbjargarblóms.
Gallsýrur, sem eru nauðsynlegar fyr-
ir meltingu fítu og myndast í lifur,
eru sterar, D3-vítamín, sem myndast
í húðinni fyrir áhrif sólarljóss, er steri
einn hatt?
Vilhjálmur G. Skúlason
„En í sem stystu máli
er hægt að færa rök
fyrir því að án stera
væri ekkert líf til í
þeirri mynd sem við
þekkjum það, án stera
yrði fólksfjölgunar-
sprenging, án stera
yrði andlegur og líkam-
legur sársauki ennþá
meiri og án stera yrði
engin ást.“
(sekósteri) og síðast en ekki síst er
urmull af samtengdum sterum, en
líffræðilegir eiginleikar þeirra geta
fallið í sérhvern áðurnefndra flokka,
en aðeins einn flokkur þeirra er „ana-
ból“ sterar sem eru tilefni þessara
skrifa.
Misnotkun „anaból“ stera
„Anaból" sterar eru framleiddir
með testósterón, sem er karlhormón,
sem fyrirmynd og hafa þeir fjöl-
breytilega verkun sem líkist verkun
karlhormóna og kvenhormóna, eink-
um þegar þeir eru misnotaðir. Vefj-
auppbyggjandi verkun („anaból“
verkun) er einkum innifalin í verkun
karlhormóna, en einnig í verkun
kvenhormóna. Margir þeirra sem
misnota „anaból“ stera eru iðkendur
íþróttagreina, þar sem vöðvastyrkur
skiptir máli. En það sem veldur ekki
Formaður Sóknar vinn-
ur gegn eigin félögum
eftir Sigurbjörgu K.
Ingvarsdóttur
í október sl. var okkur starfsstúlk-
um í brauðstofu eldhúss Borgarspít-
alans tilkynnt að vinnutími okkar,
sem er frá kl. 7.30 til 15.30 eigi að
breytast og verða frá og með 1.
mars 1994 frá kl. 9.30 til 17.30.
Þessi vinnutími er mun óhéntugri og
urðum við því mjög óánægðar með
þessa væntanlegu breytingu.
Við höfðum því samband við skrif-
stofu félags okkar, Sóknar. Þar varð
fyrir svörum Guðrún Óladóttir og
sagði hún okkur að það væri ólög-
legt að breyta vinnutímanum án sam-
þykkis okkar. Eina leiðin fyrir vinnu-
veitanda okkar að koma þessari
breytingu í kring væri því að segja
okkur upp störfum með minnst
þriggja mánaða fyrirvara og endur-
ráða okkur svo, ef við kysum það,
frekar en að láta af störfum. Upp-
sögn vinnuveitanda myndi skapa
okkur rétt á avinnuleysisbótum
strax. Ef við hins vegar segðum sjálf-
„Framkoma hennar
gangvart okkur starfs-
stúlkum spítalanna,
sem lokið hafa prófi frá
húsmæðraskólanum, er
nánast svívirðileg.“
ar upp störfum vegna óánægju með
breytinguna yrðum við að bíða í tvó
mánuði eftir að fá bætur. Hún tjáði
okkur í framhaldi af þessu að Þórunn
Sveinbjörnsdóttir, sem er bæði for-
maður og aðalstarfsmaður Sóknar,
myndi hafa samband við ráðamenn
spítalans og sjá um að þessu yrði
kippt í lag, og ef með þyrfti yrði
haft samband við lögfræðing ÁSI,
Láru V. Júlíusdóttur, sem myndi þá
kæra þessi vinnubrögð.
Við vorum því eftir atvikum von-
góðar um árangur. Nú leið tíminn
og ekkert gerðist og þegar við höfð-
um samband við Þórunni var lítið
um svör og varð hún svo tvísaga í
svörum sínum. Það er því ekki annað
að sjá en að formaður okkar hafi
meiri áhuga á reka erindi Borgarspít-
alans en að starfa fyrir okkur.
Því miður er þetta ekki eina dæm-
ið um að ofannefndur formaður, og
fyrrverandi formaður reyndar líka,
hafi í raun barist gegn hagsmunum
okkar starfsstúlkna í eldhúsi Borgar-
spítalans. Sjálf mun hún áður fyrr
hafa starfað við barnagæslu, enda
er það hið eina starf, sem Sóknarkon-
ur gegna, sem hún telur einhvers
virði.
Hún hefur barist fyrir því að
starfsstúlkur við barnagæslu fái
námskeið á námskeið ofan í þeim
eina tilgangi að hækka laun þeirra
og breikka bilið milli þeirra og okk-
ar. Á nefndum námskeiðum eru aldr-
ei nein próf tekin og því er engin
sönnun fyrir því að nemendurnir
hafa lært neitt. Hún hefur jafnframt
barist gegn því að við starfsstúlkur
í eldhúsum spítalanna fáum að fara
á námskeið, en neyðst til að láta
undan, í litlum mæli þó.
Sigurbjörg K. Ingvarsdóttir
Framkoma hennar gangvart okk-
ur starfsstúlkum spítalanna, sem lok-
ið hafa prófi frá húsmæðraskólanum,
er nánast svívirðileg. Því til sönnunar
vil ég benda á að árið 1985 var í
gildi samningur þar sem við vorum
flokkaðar í 6. launaflokk. Þá voru
flokkarnir samtals 7, eða frá 2. fl.
til 8. fl. Nú árið 1994 eru launaflokk-
arnir 10, eða frá 32. fl. til 41. fl.,
en við erum aðeins í 35. fl. Ef flokk-
síður áhyggjum er að óharðnaðir
unglingar eru byijaðir að misnota
„anaból" stera og nýlegar skýrslur
frá Kanada og Svíþjóð benda til 'að
5-10% ungra drengja misnoti „ana-
ból“ stera „til þess að verða stórir
og sterkir". Hér er mikil hætta á
ferðum sem heilbrigðisyfirvöld ættu
að láta til sín taka.
„Anaból“ sterar eru teknir í inn-
töku eða dælt í vöðva. Stundum eru
báðar aðferðir notaðar samtímis.
Skammtar eru stærri en venjulega
og gjarnan eru notaðar fleiri en ein
tegund. Þetta fyrirbrigði er kallað
„stacking" á slangurmáli.
„Anaból" sterar kunna að minnka
þreytu og valda vægri vímu sem
gerir íþróttamönnum kieift að æfa
lengur, en þetta getur leitt til ofþjálf-
unar og lífshættulegra vöðvasjúk-
dóma, en einnig er aukin hætta á
sinaskemmdum við æfingar. Næst-
um allar aukaverkanir „anaból“ stera
eru skammtaháðar, sem merkir að
því stærri sem skammtur er því
meiri hætta á aukaverkunum. Sumar
af aukaverkunum „anaból“ stera eru
af skiljanlegum ástæðum kynbundn-
ar, en aðrar ekki. Hjá konum verða
truflanir á tíðablæðingum og fqo-
semi minnkar. Ýmis einkenni karla
svo sem aukinn hárvöxtur á bol og
andliti (skegg) og minni bijóstastærð
koma í ljós. Mjólkurmyndun minnkar
eða stöðvast með öllu. Hjá körlum
getur neysla leitt til minnkunar kyn-
hvatar, getuleysis, rýrnunar eistna
og hamningar sæðismyndunar og
ófijósemi. Ýmis einkenni kvenna svo
sem bijóstastækkun og hitakóf geta
komið í ljós, en skýring þess er að
hluti „anaból“ stera breytist í kyn-
'hormóna kvenna í lifur. „Anaból“
sterar geta haft afdrifarík áhrif á
skaphöfn og tilfinningalíf beggja
kynja. Mest ber á aukinni árásar-
hneigð, andþjóðfélagslegri hegðun
og geðrænum breytingum sem sem
geðdeyfð og geðbilun. Tímabundnar
ofsafengnar skapbreytingar („roid
rage“) geta komið í Ijós. Persónuleiki
einstaklinga breytist því og eru þau
einkenni oft mjög greinileg. Gelgju-
þrymlar og skalli eru einnig algengar
aukaverkanir. Vökvasöfnun, sem
getur gert hjarta- og nýrnabilun verri
og hækkað blóðþrýsting, áhrif á blóð-
storknun og fitumynstur í blóði geta
eftir langvinna misnotkun aukið líkur
á heilablóðfalli og hjartasjúkdómum.
Einnig er stíflugula, lífrarkrabba-
mein og aðrar myndir lifrarskemmda
í nánu samhengi við notkun stórra
skammta af „anaból“ sterum. Af
framansögðu er væntanlega ljóst að
sterar er mjög stór efnaflokkur sem
telur nokkur þúsund efnasambönd
og eru sum þeirra náttúrleg, en önn-
ur framleidd með efnafræðilegum
aðgerðum. Síðartalda flokknum til-
heyra „anaból" sterar og eru þeir
taldir vera um 70 talsins. Af þessum
staðreyndum verður umræða um
stera að taka mið.
Höfundur er prófessor í
lyfjaefnafræði í Háskóla íslands.
arnir hefðu sitt eðlilega númer, eða
frá 1. fl. til 7. fl. árið 1985 og frá 1.
fl. til 10. fl. í dag, er greinilegt að
við vorum i 5. fl. af 7 árið 1985, en
erum nú í 4. fl. af 10. Það fer því
ekki milli mála að við höfum verið
lækkaðar mikið í launum. Þessi
skollaleikur með númerabreytingu
virðist því aðeins gerður svo minna
beri á launalækkun okkar.
Þegar Þórunn neyddist til að fall-
ast á að starfsstúlkur eldhúsanna
fengju að fara á námskeið, kom hún
því þannig fyrir að okkur, sem höfð-
um húsmæðraskólapróf, var meinað
að sækja þau, en námskeiðin látin
gefa öðrum starfsstúlkum rétt á að
hækka í sama flokk og við höfðum.
Nú er það svo að ekkert er sameig-
inlegt með umræddum námskeiðum
og námi í húsmæðraskólum. Ef aðrar
starfsstúlkur hafa eitthvert gagn af
þeim þá höfum við það eflaust líka.
Það er því helst að sjá, að Þórunn
líti þannig á málin að námskeiðin
þjóni þeim eina tilgangi að hækka
launin en hafi ekkert fræðslugildi.
Ég vil því að endingu skora á
Þórunni að gefa ekki framar kost á
sér til formennsku í félaginu okkar
og jafnframt á alla Sóknarfélaga að
veita henni ekki brautargengi ef hún
fer ekki að mínum ráðum.
Höfundur er starfskona á
Borgarspítala.