Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
MÓTTÖKUSTJÓRINN I KRÓGINN I YS OG ÞYS UT AF ENGU
HOTHI
A KENNETH BftANACH FJLM
UN'TIL NOW.
chrístían si&m ?mm
/X_ Omw* HOPPIÍ
í* Val KILM<lt
á&Í i... • Coty OIDMAN
iHSferÍ >W- W B'BdPin
\ Chrijiophc'WAIKIN
' Sprenghlægileg grínmynd frá STEPHEN FREARS sem skrif-
aði handrit og var framleiðandi THE COMMITMENTS. Það
veldur miklu uppnámi í Curley fjölskyldunni þegar dóttirin
Sharon tilkynnir að hún sé ólétt en neitar jafnf ramt að gefa
uppfaðerni „krógans11.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
SÖNN ÁST
Sýnd kl. 7.05, 9 og 11.
Bönnuð innan 12ára.
connection*.
KNOW-HOW.
DEAL5.
IN NlWYORIC>
flNEST HOTEL
Hf AAAKES IT HAPPEN
fOR ÍVERYONE
EXCEPTHIMJELF.
Braðskemmtileg gamanmynd um mottokustjorann Doug
(Michael J. Fox) sem vinnur á hóteli í New York og reddar öllu
fyrir alla. Hann þarf að gera upp á milli framadrauma sinna
og stulkunnar Andy(Gabrielle Anwar - „Scent og a Woman“).
Leikstjóri Barry Sonnenfeld (Addams Family).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 9 og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
Sannkölluð stórmynd með urvals leikurum sem hefur fengið frá-
bæra dóma. „Fyrirtaks skemmtun, ærslafullt og hressilegt bió
sem svikurengan." + ~k A.l. Mbl.
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15.
BANVÆNT EÐLI
■ FYRSTI fræðslufund-
ur Hins íslenska náttúfu-
fræðifélags á nýju ári verð-
ur mánudaginn 31. janúar
kl. 20.30. Fundurinn verður
að venju haldinn í stofu 101
í Odda, Hugvísindahúsi Há-
skólans. A fundinum flytur
dr. Gunnar Ólafsson jarð-
fræðingur erindi sem hann
nefnir: Leyndardómar
hafsbotnanna afhjúpaðir.
Fræðslufundir félagsins eru
öllum opnir og aðgangur
ókeypis.
„Háskólinn á Geirs-
stöðum“ varðveitt-
ur á Akranesi
Akranesi.
BÆJARSTJÓRN Akraness hefur fest kaup á húseign-
inni Skólabraut 24 á Akranesi og hefur falið bæjar-
sfjóra að undirbúa flutning þess að Byggðasafninu í
Görðum. Húsfriðunarnefnd Akraness hefur Iýst ánægju
sinni og fagnar þeirri hugmynd að varðveita húsið, en
lýsir andstöðu við þá hugmynd að flytja það að Görð-
um, heldur beri að varðveita það í núverandi umhverfi.
Húsið Skólabraut 24 eða
Geirsstaðir er einna þekkt-
ast fyrir þá starfsemi sem
þar fór fram um árabil þeg-
ar Kristin heitin Jónsdóttir
sá um að koma ungum
Skagamönnum áleiðis
fyrstu sporin á mennta-
brautinni. Húsið gekk jafn-
an manna á meðal undir
nafninu „háskólinn á Geirs-
stöðum". Það var byggt af
Sigurgeiri Guðmundssyni
sem nefndur var „hinn
sterki“. Sá var faðir Odds
sterka af Skaganum sem
flestir uppkomnir Islending-
ar kannast við og skáldið
Örn Amarson gerði ódauð-
legan í kvæði.
Hugmynd um
fræðasetur
Hugmyndir eru uppi um
að í húsinu verði sköpuð
aðstaða fyrir fræðimenn og
rithöfunda og að þeir geti
dvalist þar um lengri eða
skemmri tíma gegn hóflegu
endurgjaldi. Ahugi fyrir
slíku fræðasetri virðist vera
nokkur og hafa nokkrir sýnt
því mikinn áhuga.
- J.G.
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Háskólabíó:
Króginn — „The Snap-
per“.
Leikstjóri Stephen Fre-
ars. Handrit Roddy Do-
yle. Aðalleikendur Tina
Kellegher, Colm Meaney,
Ruth McCabe, Eanna
MacLiam, Peter Rowen,
Joanne Gerrard. Bresk.
BBC Films 1993.
írska skáldið Roddy Do-
yle hefur sjálfur skrifað
kvikmyndagerð sam-
nefndrar bókar sinnar sem
er önnur í þrennu er hófst
á The Committments og
Alan Parker kvikmyndaði
með eftirminnilegum
árangri (einnig eftir hand-
riti Doyles). Það reynir svo
sannarlega á samheldni
stórrar, fátækrar ijöl-
skyidu í Dyflinni þegar
elsta dóttirinn (Kellegher)
verður ólétt og ekki bætir
úr skák að hún er ófáanleg
með öllu að segja frá fað-
erninu. Eftir mikij^ átök
innan og utan veggja heim-
ilisins taka foreldrarnir af-
stöðu með frumburðinum,
einkum er hjartað stórt í
pabbanum (Meaney) sem
tekst að halda öllum saman
þó bresti í böndum.
Frears kann betur við
sig í allsleysi Dyflinnar en
með fúlgur úr að moða í
Hollywood. Króginn ber
því vitni. Hér er þessi at-
hyglisverði leikstjóri
(Hættuleg sambönd, Fal-
lega þvottahúsið mitt,
Grifters, o.fl.) í góðu jarð-
sambandi og árangurinn
ólíkt betri en Accidental
Hero sem hann gerði vest-
anhafs. Myndin er bæði
gamansöm og alvörugefin.
Kjarni málsins, ólétta
stúlkunnar, er þungbært
áfall fyrir snautt verka-
fólkið en það bætir sér það
upp á kránni og með því
að einblína á jákvæðari
hliðar málsins. Samheldni
og ástúð ásamt temmilegu
kærúleysi er það sem held-
ur Curleyfjölskyldunni
gangandi í mótbyr.
Efnið er fjarlægt, vol-
æðið, lifistandardinn í lág-
lífinu á írlandi og Stóra-
Bretlandi er óravegu frá
því ógnarlega lífsgæða-
kapphlaupi sem við þekkj-
um. Enda er hér verið að
fjalla um fólk sem hefur
litlu öðru kynnst kynslóð
eftir kynslóð en eymd, ar-
mæðu og atvinnuleysi.
Frábærir leikarar, þau
Tina Kellegher og Colm
Meaney, færa þessar per-
sónur nær okkur og gera
vandamálin alþjóðleg þó
ramminn sé ókunnuglegur
og fráhrindandi. Það er t.d.
athyglisvert að bera saman
skemmtanamunstrið hjá
Kellegher og vinkonum
hennar á þorpsknæpunni
og diskótekinu og stall-
systrum þeirra íslenskum.
Að maður tali nú ekki um
útganginn á þeim og máln-
inguna. Frears dregur upp
minnisstæða svipmynd af
þessum hjartahlýju horn-
rekum í eigin landi sem eru
okkur framandi en gætu
engu að síður kennt okkur
svo margt.
Frá kaupfélagssljóraskiptunum. F.v. Hreiðar Karlsson,
fyrrverandi kaupfélagssljóri, Egill Olgeirsson, sljórnar-
formaður K.Þ. og Þorgeir B. Hlöðvarsson, núverandi
kaupfélagsstj óri.
Kaupfélagsstj óra-
skipti hjá Kaupfélagi
Þingeyinga
Húsavík.
Kaupfélagstjóraskipti fóru fram fyrir skömmu hjá
Kaupfélagi Þingeyinga, Húsavík. Hreiðar Karlsson lét
af störfum eftir rúmlega 14 ára starf hjá félaginu en
við tekur Þorgeir B. Hlöðvarsson frá Björgum.
Við þetta tækifæri ávarp-
aði stjórnarformaður Kaup-
félags Þingeyinga, Egill 01-
geirsson, fráfarandi og við-
takandi kaupfélagssstjóra.
Hann þakkaði Hreiðari vel
unnin störf á oft erfiðum tím-
um á þeim 14 árum sem
hann hefði dyggilega starfað
fyrir félagið og þá sérstak-
lega á sl. fimm árum. Þor-
geir bauð hann velkominn til
starfa og sagðist vænta góðs
af starfi hans. Hann hefði
undanfarin 6 ár starfað fyrir
félagið og nú síðustu árin
sem sláturhússtjóri og leyst
sín verkefni vel af hendi.
Hann sagði Þorgeir þekkja
vel til verka og vera nákunn-
ugan sögu félagsins. Egill
sagði ennfremur að meiri og
erfiðari verkefni byðu Þor-
geirs og sagðist hann vera
viss um að þau færust honum
vel úr hendi. Að lokum sagði
Egill vera þess fullviss að nú
sem áður væri Kaupfélag
Þingeyinga í góðra manna
höndum.
- Fréttaritari.
KENNETHBRANAGH
ROBERT SEAN LEONARD
EMMA THOMPSON :
MICHAEL KEATON
KEANU REEVES
DENZEL WASHINGTON
★ ★ ★ ★
w'/ éL nfav york post
jggɧ|p ★★★★
EMPIRE
* ★ ★ ★ ★ ★ ★
i< Rás 2 MBL.
þei
TI
mtl
*é
lk
Comitmts
mmnm
Þt
inticr
linnsl
SllUtl
m.
m Bimoion
ftmata
iuilu
im
uieui
Maúni
kemiir
llm
Baiens
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Geirsstaðir, húseignin á Skólabraut 24, Akranesi.