Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 48
48’
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
Mcð
morgunkaffinu
Skrifstofudyrnar mínar
standa alltaf opnar. Náðu í
skrúfjárn og lagaðu þær.
/>
Ast er...
... að sjá til þess að hann
taki eftir þér.
TM Reg. U.S Pat Ott.-all fights reserved
® 1994 Los Angeies Times Syndicate
Einhver annar í spilinu? Nei,
elskan, ekki í kvöld.
HÖGNI HREKKVÍSI
/y Þerra ukar rohum...£6m\jeiz$kt 8AO.“
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
AT VINNULE Y SIÐ
Frá Agli Sigurðssyni:
ÞAÐ telur nú tugi milljóna manna
og kvenna í OECD-löndunum. Sum-
ir telja það allt að 50 milljónir ef
svonefnt „dulið atvinnuieysi" er tal-
ið með. Það tekur til þeirra, sem
hafa hlutastarf aðeins eða hafa
ekki sótt um bætur eða hætt því í
bili. Ein meginorsök vaxandi at-
vinnuleysis er hömlulaus sam-
keppni, sem stefnt hefír að því að
framleiða meira og meira vörumagn
með færri og færri verkamönnum.
Einkavæðing síðustu ára hefir á
sama tíma skert getu ríkissjóðs til
að auka framkvæmdir á kreppu-
skeiði. Þetta er skoðun margra
merkustu hagfræðinga heims, svo
sem lesa má í erlendum tímaritum.
Nokkrir álíta fijálsa markaðskerfið
í hættu, nema gripið sé til róttækra
gagnráðstafana. Athyglisvert er
t.d. að tveir þriðju Svía vilja sam-
kvæmt nýlegri skoðanakönnun
hverfa til fyrri stefnu fullrar at-
vinnu og velferðarríkis, en einn
þriðji aðeins hefir til þessa verið
fylgjandi því. Enn merkilegra er,
að íbúar Austur-Þýskalands kjósa
gamla sameignarkerfið með göllum
sínum fremur en ástandið í dag.
Þetta hefir líka komið í ljós við
skoðanakannanir, og hefðu fáir trú-
að slíku fýrst eftir fall kommúnism-
ans. Að hafa atvinnu, í sig og á
er frumskilyrði mannlegrar tilveru.
Frá Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni:
MORGUNBLAÐIÐ miðvikudaginn
26. janúar birtir frétt um að fólkið
í Reykjavíkurborg hafi styrkt
íþróttafélagið Val um röskar fjöru-
tíu milljónir króna enda er félagið
alls góðs maklegt. Hitt er svo ann-
að mál að Morgunblaðið hefur jafn-
an birt ljósmyndir af þeim atburðum
þegar ungir skólakrakkar halda
hlutaveltur fyrir gott málefni og
þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarstjórn afhendir íþrótta-
félögum peninga frá Reykvíking-
um.
Atvinnuleysi á íslandi er meira
en áður hefir þekkst. Helsta ástæða
þess er samdráttur í sjávarútvegi,
sem stafar af minnkandi afla og
skerðingu veiðiheimilda af þeim
sökum. Sú hætta hefir færst nær
að kjarnorkuúrgangur Breta kunni
að skemma fiskimiðin eða að
minnsta kosti torvelda sölu afurð-
anna.
Við slíkar aðstæður er gerræði,
nánast vitfirring, að kollvarpa land-
búnaði með innflutningi niður-
greiddra búvara frá EB-löndum.
Slíkt myndi á skömmum tíma færa
okkur niður á stig Færeyinga —
og reyndar enn neðar. Japan er eina
OECD-ríkið með næstum ekkert
atvinnuleysi, eða aðeins yfir 2%,
Frá Jóhönnu Sigríði Sigurðardóttur:
MIG LANGAR að segja frá tveimur
tilvikum sem sýna að oft hittum
við fyrir gott og elskulegt fólk.
Fyrir jólin 1992 keypti ég vand-
aða Puffins-kuldaskó handa dóttur
minni. Þessa skó gaf ég henni í
jólagjöf. Skómir voru keyptir í Skó-
höllinni við Reykjavíkurveg í Hafn-
arfirði.
Fljótlega komu fram vissir gailar
á skónum. Eg hafði strax samband
Nú bregður svo við að enginn
ljósmynd af prúðbúnu íhaldsfólki
með vatnsgreitt hár fylgir fréttinni
um framlag okkar borgarbúa í þetta
skipti og sætir það víða furðu.
Spurning er því hvort Morgunblaðið
hefur gleymt að birta Ijósmyndina
af vangá eða hvort meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins- í borgarstjóm
Reykjavíkur er loksins farinn að
skammast sín.
ÁSGEIR HANNES EIRÍKSSON,
Klapparbergi 16,
Reykjavík.
sem telst „eðlilegt atvinnuleysi“.
Fyrirtæki eru ýmist að hætta eða
byija, og sumir verkamenn eru af
þeim sökum jafnan í biðstöðu. At-
vinnuleysi í EB-löndum er 17% eða
var svo sl. haust. Tvær ástæður eru
gefnar fyrir góðum árangri Japana.
Onnur er sú að þeir halda lífi í
smábændum, þó að þeir séu ekki
alltaf samkeppnisfærir í strangasta
skilningi. Hin er sú að Japanir hlúa
að kaupmanninum á horninu í stað
þess að láta stórmarkaði hirða alla
smásöluverzlunina.
EGILL SIGURÐSSON,
fv. forstjóri Sindra hf.
Mávahlíð 29,
Reykjavík.
við verslunina og verslunarstjórinn
kom fram af þvílíkri prýði og elsku-
legheitum og vildi allt gera sem i
hennar valdi stóð. Þessu lyktaði svo
með því að framleiðendur skónna
ákváðu að dóttir mín fengi nýja skó.
Eg flyt verslunarstjóra í Skóhöll-
inni og framleiðendum skónna mín-
ar bestu þakkir og gangi þeim allt
í haginn.
Hitt tilvikið gerðist á svipuðum
tíma þegar ég keypti skólatösku
handa dóttur minni í Tösku- og
hanskabúðinni við Skólavörðustíg í
Reykjavík. Gallar komu fram í tösk-
unni og við fórum með hana marg-
ar ferðir í búðina og alltaf var
bætt úr því sem aflagaðist okkur
að kostnaðarlausu. Dóttir mín notar
enn þessa uppáhaldstösku.
Mínar kærustu þakkir til eigenda
og verslunarstjóra í Tösku- og
hanskabúðinni.
Það er gott að geta beint augum
fólks að slíkum verslunum sem
þessum tveimur. Megi þær blómg-
ast hér eftir sem endranær og eitt
er víst að'ég mun segja víða frá
þessu og halda áfram að versla við
þessar búðir eins og ég hef gert í
mörg ár.
JÓHANNA SIGRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR.
Hvar er ljósmyndin?
Gott fólk á íslandi
Víkverji skrifar
Skrifari átti heldur von á því að
ýmislegt myndi breytast um síð-
ustu áramót með gildistöku EES-
samningsins, meðal annars hvað
varðar verslun með bjórpg vín. Hann
hugði gott til glóðarinnar er hann
átti leið um Fríhöfnina í Keflavík á
mánudaginn og ætlaði að kaupa 24
dósir af erlendum bjór sem þar er
seldur, en reglan hefur verið sú að
aðeins er leyfilegt að kaupa toll-
fijálst 18 dósir af bjór framleiddum
í útlöndum, en 24 dósýr ef varan er
framleidd hér á landi. í verslun Frí-
hafnarinnar var skrifara vinsamlega
bent á að engin breyting hefði orðið
á reglunum, allt væri við það sama
og fyrir EES. Aðspurð um það hvort
breyting væri á döfinni sagði elsku-
leg afgreiðslustúlka að hún vissi ekki
til þess. Hvort þessi mismunun á
innlendri og erlendri vöru samræmist
reglum EES veit skrifari ekki.
Kannski þarf eínhvern Davíð til að
finna út úr því.
xxx
Happdrætti af ýmsum toga og
margvíslegar getraunir virðast
vera ær og kýr æði margra og al-
gengir vinningar eru flatbökur,
bíómiðar og geisladiskar og upp í
bíla og utanlandsferðir en vissulega
kennir þar margra grasa.
í vikunni rakst Víkveiji á litla frétt
í Sjómannablaðinu Ægi, riti Fiskifé-
lags íslands. Þar var greint frá úrslit-
um í áskriftargetraun blaðsins og
sagt frá því að heppinn áskrifandi
hefði fengið í vinning fjögur tonn
af fiski, leigukvóta að verðmæti um
100 þúsund krónur. Vinningshafinn
sagðist vera með 16 tonna kvóta, sem
væri að verða búinn og kæmi vining-
urinn sér því vel. Tonnin fjögur væru
eins og af himnum send, hafði biaðið
eftir manninum. Skrifara fínnst þessi
litla frétt sannarlega vera tímanna
tákn og gott dæmi um þetta kvóta-
rugl allt saman.
xxx
Víkveija hefur borist bréf frá
Hrefnu Ingólfsdóttur blaða- og
upplýsingafulltrúa Pósts og síma.
Hún segir í upphafi bréfs síns að
Víkveiji hafi „fjargviðrast yfir því í
síðustu viku að kunningi sinn hafi
þurft að bíða frá föstudegi fram á
þriðjudagsmorgun eftir því að fá
síma tengdan inn á nýja heimilið sitt.
Vissulega er mikill hraði á mörgum
í þjóðfélaginu en varla er það svo
að kunninginn hafi ekki vitað um
flutninginn með tveggja daga fyrir-
vara.“
Blaðafulltrúinn rekur svo þá vinnu
sem liggur að baki tengingum á
nýjum símum, sem getur verið mis-
mikil eftir aðstæðum. Ef vitað er að
sími hafi áður verið í húsnæðinu og
hvaða númer það var sé málið fljót-
afgreitt og oft sé slik tenging gerð
sama dag og beiðni berst á sölu-
deild. Sé þetta ekki vitað geti teng-
ing tekið lengri tíma og fólki sé því
ráðlagt að sækja um nýjan síma eða
flutning með tveggja til þriggja daga
fyrirvara. „Flestir sýna þá fyrir-
hyggju enda geta menn haldið sí-
manum á gamla staðnum í nokkurn
tíma þótt búið sé að tengja annan
síma í nýja húsnæðinu. Til gamans
■ má geta þess að oft sækja yfir 50
manns um nýjan Síma á einum degi
og beiðnir um flutning eru miklu
fleiri," segir í bréfi Hrefnu Ingólfs-
dóttur, blaðafulltrúa Pósts og síma.
Víkveiji þakkar Hrefnu bréf henn-
ar, en getur ekki stillt sig um að
bæta við, að kunninginn gaf einmitt
upp heiti fyrri íbúa íbúðarinnar og
símanúmerið svo fljótlega tengingin,
sem blaðafulltrúinn lýsir, hefði átt
að eiga við um hann. ■