Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 7 Prófessorsembætti í fiskifræði Dómnefnd að taka til starfa DÓMNEFND til að rncta hæfni umsækjenda um stöðu prófessors í fiskifræði við Háskóla íslands mun væntanlega taka til starfa um næstu mánaðamót. Að sögn Sveinbjörns Björnssonar rektors má búast við að starf nefndarinnar taki þrjá mánuði og prófessorinn taki til starfa í haust. Háskólinn hefur undanfarin ár óskað eftir heimild til að ráða í stöðu prófessors í fiskifræði og á fjárlög- um þessa árs fékkst til þess fjárveit- ing. Embættið verður við liffræði- skor raunvísindadeildar, auk þess sem samið hefur verið um að pró- fessorinn fái rannsóknaraðstöðu í Vestmannaeyjum. 5 erlendir umsækjendur Staðan var auglýst í maí, meðal annars í tveimur erlendum fagtíma- ritum, en það er mjög óvenjulegt því stöður við Háskólann eru yfir- leitt eingöngu auglýstar hér á landi. Umsóknarfrestur rann út í byijun júlí og sóttu ellefu um, 5 útlending- ar og 6 íslendingar. Tveir umsækj- enda hafa nú dregið umsóknir sínar til baka. Háskólinn staðfesti mót- töku umsóknanna síðari hluta ágúst og dómnefnd var skipuð 3. nóvem- ber. Hana skipa Agnar Ingólfsson prófessor, Norðmaður og Breti. Umsækjendum var veittur frestur til að skila inn gögnum og rennur síðasti frestur út næstkomandi mánudag. Eftir það getur dóm- nefndin tekið til starfa. Samkvæmt upplýsingum Háskól- ans tekur undirbúningur dómnefnd- arstarfanna langan tíma vegna þess Sex innbrot í Reykjavík SEX innbrot voru tilkynnt til lög- reglunnar í Reykjavík eftir að- faranótt miðvikudagsins. Oftast var ýmsu smálegu stolið, skiptimynt á einum stað, faxtæki á öðrum og sígarettum á þeim þriðja. Verðmætasta þýfið hefur að líkind- um verið hljómflutningstækið, sem hvarf úr bíl þessa nótt, en það er metið á um 100 þúsund krónur. -----------♦ ♦ ♦----- Ennþá heimt- ast kindur Borg í Miklaholtshreppi. ÞAÐ var einn morgun fyrir stuttu þegar frúin á Hallkells- staðahlíð í Kolbeinsstaðahreppi var á ferð til gripahúsa er hún heyrði kindajarm. Nokkra stund tók það hana að átta sig á hvað- an jarmið kom. Loks sá hún eina kind uppi í brattri hlíð. Heimamenn hugðust ná kindinni en vegna styggðar létu þeir hóp af ám fara í áttina til kindarinnar. Eftir skamma stund kom kindin til ánna sem út voru látnar og reynd- ist þetta vera lamb frá Breiðaból- stað á Skógarströnd. - Páll Stretsbuxur kr. 2.900 Mikib úrval af allskonar buxum Opið á laugardögum kl. 11-16 { i 12, sími 44433.. að þýða þarf reglur fyrir hina er- lendu umsækjendur og einnig er töluverð þýðingarvinna vegna starfa dómnefndarinnar þar sem dómnefndarmenn eru frá þremur löndum. Morgunblaðið/Sigurður Hjálmarsson Vegafrám- kvæmdir við Vík Eftir er að leggja um 1 km kafla yfir Skeifnadal hjá Vík í Mýrdal og þá verð- ur lokið við að leggja bundið slitlag á um 5,5 km langan kafla. Þegar verkinu verður lokið er komið bundið slitlag frá Vík til Reykjavíkur. Sigurður K. Jó- hannsson, tæknifræðingur hjá Vega- gerð ríkisins á Selfossi, segir að á kafl- anum sem eftir er verði lagður nýr vegur sem liggi neðar en gamli vegur- inn, en hann hafi verið snjóþungur, þröngur og hættulegur á veturnar. Hann segir að verkinu eigi að vera lokið í júlí en byrjað hafi verið á fram- kvæmdunum síðastliðið haust og bund- ið slitlag verið lagt á um 4,5 km kafla. Það hafi gengið mjög vel en nú undan- farið hafi - framkvæmdir gengið hægt vegna mikillar bleytu. mhöfumopnab í.i wetrshjjj saumastofu/heildverslun milliliöalaus vibskipti Við bjóðum fatnað úr fyrsta flokks hráefni, framleiddan af fagfólki með mikla reynslu á verði sem er öllum viðráðanlegt. Dæmi um verð: Herraföt frá kr. 15.900 Dömudragtir frá kr. 15.900 Stakir jakkar frá kr. 10.900 Stakar buxur frá kr. 4.900 Viö bjóðum okkar þjóðkunna ferminqarfatnab, en við saumuðum fyrir Karnabæ og fleiri. Gott úrval, gott verö. Verb á fermingarfatnabi: Stakir jakkar Buxur S ky rtu r Bi n d i Slaufur frá kr. 7.500 frá kr. 3.900 frá kr. 1.990 frá kr. 1.290 frá kr. 1.090 z uT T v Við bjóðum einnig innfluttan sportfatnað á milliliðalausu verði. Þetta fólk á þab sameiginlegt ab vera í fötum frá okkur - íslenskt -já takk! Við saumum á hópa, stóra sem smáa, á mjög hagstæðu, verði. Leitið tilboða. Það er óneitanlega hagkvæmt að taka sig saman og fá sérsaumub föt hjá okkur en við saumum líka eftir máli. Hjá okkur starfa klæðskerar með mikla reynslu. Það er minna mál en flestir halda að fá sér klæðskera- saumuð föt. Verð frá kr. 20.670. ( ( SAUMASTOFA-HEILDVERSLUN milliliðalaus viðskipti Nýbýlavegi 4 (Dalbrekkumegin), Kópavogi, sími 45800 NYBYL Toyota Jofur AUÐBREKKA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.