Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 55

Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 1994 55 VETRAROLYMPIULEIKARNIR I LILLEHAMMER Glæsileg endurkoma WHts en Kerrigan stendur best að vígi VonirTonyu Harding um gullverðlaun urðu að engu eftir skylduæfingarnar NANCY Kerrigan dansaði undir laginu „Desperate Love“ í skyldu- æfingum listhlaupsins á skautum í Hamar í gærkvöldi. Samúðin var með bandarísku stúlkunni, sem hefur verið íheimsfréttunum að undanförnu eftir að hafa orðið fyrir árás landa sinna tengdum helsta mótherjanum, Tonya Harding, og hún stendur best að vígi fyrir frjálsu æfingarnar á morgun, en Harding er úr leik. Helsta stjarna síðasta áratuginn, þýska stúlkan Katarina Witt, sýndi að hún hefur engu gleymt og er í sjötta sæti, en leið fyrir að vera á meðal þeirra fyrstu,sem sýndu æfingarnar. Heims- meistarinn Oksana Baiul frá Ukraínu var frábær og er í öðru sæti, en Evrópumeistarinn Surya Bonaly frá Frakklandi var ekki síðri þrátt fyrir þriðja sætið í gærkvöldi. Kerrigan fékk fyrsta sætið hjá sjö dómurum, en tveir tóku heimsmeistarann fram fyrir. „Þetta var stórkostlegt," sagði sú banda- ríska. „Ekkert vandamál kom uppá og þetta var gaman — ég var svo sannarlega ánægð með það sem ég gerði. Ég er enn aum í hnénu, en það kom hvorki í veg fyrir nauðsyn- legar æfingar né hindraði mig í keppninni." Kerrigan var einnig í fyrsta sæti eftir skylduæfingarnar í síðustu heimsmeistarakeppni, en féll síðan niður í níunda sæti. Þjálfari hennar, Evy Scotvod, var ánægður. „Æfing- arnar gengu samkvæmt áætlun og hún stóð undir væntingum. Áhorf- endur voru einnig frábærir. Þeir sýndu skilning á því sem á undan hefur gengið og stuðningur þeirra bar þess glögglega merki.“ Katarina Witt, sem sigraði í list- hlaupi á Ólympíuleikunum 1984 og 1988, sýndi gamla takta og var end- urkoma hennar glæsileg, þrátt fyrir að hún hefði tvisvar farið útaf lag- inu. Hún var fjórða í röðinni, en var í sjötta sæti að loknum skylduæfing- um kvöldsins. Hún fékk um 5,2 í einkunn að meðaltali fyrir tækni. Tveir dómarar gáfu henni 5,7 og aðrir tveir 5,6 fyrir listræna tján- ingu, en svo virtist sem dómararnir væru að spara hærri tölurnar til seinni tíma. Þýska stúlkan, sem er 28 ára, var ánægð með árangurinn, þó fyrir liggi að möguleikar á verð- launum séu ekki fyrir hendi, en markmið hennar var að standa sig og skemmta áhorfendum. „Eftir fyrsta snúninginn ieið mér mjög vel,“ sagði Witt. „Ég naut þess að dansa í takt við tónlistina — naut augnabliksins. Ég er mjög ánægð með æfingamar og það sem ég gerði, en það er erfitt að sannfæra dómarana. Enda var ég ekki að þessu fyrir þá, heldur vildi ég vera með sýningu fýrir áhorfendur. Ég gerði mitt besta og það eitt skiptir mig máli.“ Tonya Harding missti stig í lend- ingu eftir fyrsta stökkið og síðan varð þrefaldur snúningur aðeins tvö- faldur, en fyrir bragðið urðu vonir hennar um gull að engu — og verð- launasæti reyndar ekki inní mynd- inni. Hún fékk 5 í einkunn að meðal- tali fyrir tækni og 5,4 og 5,5 fyrir útfærsluna. Harding var ekki eins og hún á að sér eða eins og Jill Trenary, Bandaríkjamaðurinn, sem sigraði á HM 1990, sagði: „Á útfærslu hennar gat heimurinn séð hvað hún hefur gengið í gegnum." Bandaríska stúlk- an var fámál og aðspurð um hvað hefði farið úrskeiðis svaraði hún: „Ekkert. Þetta var í lagi.“ Baiul, sem er aðeins 16 ára sigur- vegari frá HM í fyrra, sýndi mikla snilli enda gáfu sex dómarar henni 5,9 af 6 mögulegum fyrir útfærsluna og þulir Eurosport sjónvarpsstöðvar- innar sögðust ekki hafa séð aðra eins sýningu síðan hjá Witt á síð- asta áratug. Bonaly gerði heldur engin mistök, en einkunnir hennar voru frá 5,6 til 5,8. „Ég var stíf. Þetta Kerriganmál hefur sett aukinn þrýsting á mig,“ sagði stúlkan, sem sýndi listir sínar á svellinu í Laugardal fyrir Ólympíu- leikana í Albertville. Gull í augsýn NANCY Kerrigan frá Bandaríkjunum hafði ástæðu til að brosa eftir að úrslit voru ljós í skylduæfingum listhlaupsins á skautum í gærkvöldi. Hún fékk bestu einkunn hjá dómurunum og hér þakkar hún áhorfendum stuðninginn. Bonnie Blair sigraði glsesilega í 1.000 m skautahlaupi: Sigursælust bandarískra kvenna í sögu leikanna BONNIE Blair var í sérflokki f 1.000 m skautahlaupi kvenna í gær og sigraði örugglega með mesta mun í sögu leikanna á einni mínútu, 28,74 sekúndum, en heimsmetið, sem er sex ára, er 1.17,65. Blair, sem sigr- aði í 500 m skautahlaupi i síð- ustu viku, hefur þar með unnið til fimm gullverðlauna á Ólymp- íuleikum og er sigursælust bandarískra kvenna í sögu þeirra. Anke Baier frá Þýskalandi setti persónulegt met, bætti sig um 0,3 sek. og fór á 1.20,12, sem tryggði henni silfrið. Fyrrum heims- meistari, kínverska stúlkan Ye Qia- obo Ye, fékk bronsið og þar með voru fyrstu skautaverðlaun Kína á leikunum í höfn. Blair sigraði í Albertville, en. þá var hún aðeins 0,02 sek. á undan kínversku stúlkunni. „Þetta var mikill sigur fyrir mig,“ sagði banda- ríska stúlkan, „einkum síðustu 600 metrarnir, sem ég fór hraðar en á undanförnum sex árum. Þetta verð- ur stór stund í minningunni, en ég á eftir að koma aftur sem áhorf- andi,“ bætti hún við, en Blair hefur tilkynnt að hún ætli að hætta eftir heimsmeistarakeppnina í ár. Blair skaut þekktum löndum sín- um aftur fyrir sig eins og dýfinga- stúlkunni Pat McCormick, sundkon- unni Janet Evans og fijálsíþrótta- stjömunni Evelyn Ashford, sem all- ar sigruðu fjórum sinnum á Ólymp- íuleikum, og er eina bandaríska konan, sem hefur sigrað í fimm greinum á Ólympíuleikum. Hún fékk bronsið í 1.000 m skauta- hlaupi á leikunum 1988 og hefur unnið til fleiri verðlauna í skauta- hlaupi á Ólympíuleikum en nokkur Bandaríkjamaður, en Eric Heiden fékk fimm gull á leikunum í Lake Placid 1980. Valery Grishin frá Sovétríkjunum varði ólympíutitlana í 500 og 1.000 m skautahlaupi árið 1960 frá 1956 og er Blair fyrst til að endurtaka leikinn, en hún er sú eina sem hefur sigrað í 500 m skautahlaupi og varið titilinn í tví- gang. „Arangurinn er eitthvað, sem mig hefði aldrei dreymt um, en með tímanum geri ég mér ef til vill grein fyrir hvað ég hef gert,“ sagði 29 ára gamla konan frá Wisconsin. „Um leið er síðasti sigurinn líka dálítið sár, því ég keppi ekki fram- ar á Ólympíuleikum.“ Blair sagðist hafa farið fram úr björtustu vonum. „Á fyrstu Ólymp- íuleikum mínum, 1984. leið mér eins og ég hefði sigrað þegar ég varð í áttunda sæti. Mig dreymdi aldrei um að 10 árum síðar gengi ég af velli með fimm gull og eitt brons.“ Ye Qiaobo missti af síðasta tæki- færinu á gulli og hún gat ekki leynt vonbrigðum sínum. „Hún á svo mörg gull, ég veit ekki hvað mörg,“ sagði hún um Blair. „Ég vildi óska að ég hefði fengið eitt gull, en draumurinn er úti. Hún er alltaf heppin á ólympíuári og hún hefur verið mjög sterk hér.“ Kínverska stúlkan grét við verðlaunaafhend- inguna. „Ég grét vegna þess að ég gat ekki gert mitt besta. Mér þykir það leitt, en stundum er ég ekki mjög sterk andlega." Enda hefur óheppnin fylgt henni. Hún féll á lyfjaprófi og fékk því ekki að vera með á ÓL 1988, en sagðist sak- laus, kenndi liðslækninum um að hafa látið sig taka ólögleg lyf. í Albertville fyrir tveimur árum tap- aði hún fyrir Blair í 500 m hlaupi eftir að hafa verið hindruð í keppn- inni og ekki fengið að endurtaka hlaupið auk þess sem hún tapaði þá naumlega fyrir bandarísku stúlk- unni í 1.000 m hlaupinu. URSLIT Listhlaup kvenna Fyrrí hluti listhlaups kvenna fór fram í gær, en þá kepptu stúlkumar í skylduæfmg- unum. A föstudaginn keppa þær siðan í fijálsum æfmgum og þá ráðast úrslitin. Staða efstu stúlkna er þannig: Nancy Kerrigan (Bandarfkjunum).....0,5 Oksana Baiul (Úkrafnu).............1,0 Surya Bonaly (Frakklandi)..........1,5 Chen Lu (Kfna).....................2,0 Tanja Szewczenko (Þýskalandi)......2,5 Katarina Witt (Þýskalandi).........3,0 Yuka Sato (Japan)..................3,5 Josee Chouinard (Kanada)...........4,0 Anna Rechnio (Póllandi)............4,5 Tonya Harding (Bandaríkjunum)......5,0 Íshokkí 8-liða úrslit: Kanada - Tékkland..................3:2 Eftir framlengingu. (0:1, 1:1, 1:0). Brian Savage (26.40, 54.35), Paui Kariya (65.54) — Otakar Janecky (19.34), Jiri Kucera (35.42) ■Paul Kariya tryggði Kanada sigur rétt eftir að einn Tékki var sendur i „skammar- krókinn" fyrir að krækja í mótheija. Finnland - Bandaríkin..............6:1 (2:0, 2:1, 2:0). Saku Koivu (12.51), Mika Nieminen (16.08, 24.05), Hannu Virta (26.21), Marko Kipr- usov (46.59), Janne Ojanen (55.11) - David Sacco (20.54) ■Kanada og Finnland mætast í undanúi' slitum á morgun. Svíþjóð - Þvskaland................3:0 (0:0, 1:0, 2:0). Fredrik Stillman (34.14), Stefan Oemskog (47.42), Magnus Svensson (49.10). Slóvalda - Rússtand................2:3 (2:1, 0:1, 0:0). Peter Stastny (10.42), Miroslav Satan (19.41) - Pavel Torgaev (16.27), Andrei Nikolichin (39.25), Alexander Vinogradov (68.39). ■Rússar og Svíar maitast í undanúrslitum i á. morgun.. JÍil iisli.:l.iliiáiilíli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.