Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 21 Fríkirkjan í Reykjavík 90 ára eftir Cecil Haraldsson Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja- vík var stofnaður rétt fyrir alda- mótin síðustu. Þegar í stað fór söfnuðurinn að halda uppi opinber- um guðsþjónustum. Fyrst um sinn voru þær haldnar í Góðtemplara- húsinu. Ekki töldu frumherjar safnaðarins það vera nema til bráðabirgða, enda húsið lánað og leigt til ýmiss konar annarrar starfsemi. Mörg ljón voru í vegi. Söfnuður- inn var fámennur og fátækur, en mönnum þótti ljóst að ætti hann að lifa og dafna, væri frumskilyrði að hann kæmi sér upp kirkju. Því var fljótlega farið að huga að kirkjubyggingu og var fyrsta byggingarnefndin kosin á aðal- fundi árið 1901. Lóðir undir kirkju buðust á fleiri en einum stað. Sú lóð, sem fyrir valinu varð, við austanverða Tjörnina, var keypt af Oddfellow- reglunni fyrir 600 krónur og er kvittun greiðslunnar undirrituð af Birni Jónssyni, ritstjóra. Mörgum þótti seint þoka, þótt ekki þætti tiltökumál nú tæpri öld síðar, að bygging kirkju tæki einhver ár, en fyrir einbeittan áhuga og stað- fasta þrautseigju var smíði kirkju lokið í ársbyrjun árið 1904. Yfir- smiður kirkjunnar var Sigvaldi Bjarnason, snikkari. Kirkjan var vígð á sunnudegi í föstuinngangi, 22. febrúar árið 1904, af séra Ólafi Ólafssyni, presti safnaðarins. Um vígsluna segir séra Ólafur í minningarriti á tuttugu og fimm ára afmæli safn- aðarins: „Gat engum manni bland- ast hugur um það, að þessi nýja kirkja bætti úr mikilli þörf hér í Reykjavík; því að svo taldist mönn- um til, að ekki ætti nema tíundi hver maður eða þar um bil kost á, að komast í sóknarkirkju bæjar- ins, þótt feginn vildi; ...“ Sú kirkja, sem þá var vígð, var ekki nema hluti þeirrar kirkju, sem nú stendur og strax í desember kom fram á safnaðarfundi tillaga um að stækka kirkjuna og var hún samþykkt í einu hljóði. Húsa- gerðarmeistari Rögnvaldur Ólafs- son gerði alla uppdrætti er lutu að stækkun kirkjunnar, en Jó- hannes snikkari Jósefsson tók að sér smíði og var yfirsmiður. Verkið hófst snemmsumars árið 1905 og var lokið í október og var kirkjan hin nýja vígð hinn 12. nóvember árið 1905. Var þá kom- in kirkjan eins og við þekkjum hana útlits að frátöldum kór og viðbyggingum við turninn. Þegar leið að 25 ára afmæli Fríkirkju- safnaðarins var enn farið að ræða stækkun kirkjunnar og samþykkt var á safnaðarfundi haustið 1923 Fríkirkjan í Reykjavík „Yígsluafmælis Frí- kirkjunnar í Reykjavík verður sérstaklega minnst við guðsþjón- ustu sunnudaginn 27. febrúarkl. 14:00. Að guðsþjónustunni lok- inni verður boðið til kaffiborðs í Safnaðar- heimilinu við Laufás- veg 13.“ að auka enn við. Var þá byggður kórinn og kirkjan þannig gerð vígð hinn 21. desember árið 1924 af séra Arna Sigurðssyni. Uppdrætti að breytingunni gerði Einar Er- lendsson, húsameistari, en yfír- smiður var Sigurður Halldórsson. í tengslum við byggingu kórsins ákvað kvenfélag safnaðarins að gefa kirkjunni altaristöflu. Leitað var til Jóns biskups Helgasonar og hjá honum leitað ráða um val á altaristöflu. Segir svo í Fimmtíu ára stafssögu kvenfélagsins: „Jón biskup brást skjótt við og lofaði að útvega hana hjá þekktum dönskum málara. ... Myndi taflan verða eins vönduð og framast væri kostur á.“ Altaristaflan er fagur og vandaður kirkjugripur. Myndefnið er fengið í Mattheusarguðspjalli: Til sölu lítið hús á baklóð við Laugaveg Ýmsir möguleikar. Upplýsinpar gefur Sigríður Asgeirsdðttir, hðraösdðmslögmaður, sími 610133. A' Alfa Laval FORYSTA I ÁRATUGI VARMASKIPTAR F Y R I R : • MiSstöövarhitun - engin tæring • Neysluvatnshitun - ferskt vatn • SnjóbræSslur - til frostvarnar I (orjá áratugi hafa húseigendur á Islandi sett traust sitt á ALFA LAVAL plötuvarmaskipta. Reynsla sem enginn annar býr aS. ÞaS þarf þvi ekki aS leita annaS. Heildarlausnir á varmaskiptakerfum: Dælur, þensluker, lokar, mælar. SINDRI -sterkur i verki BORGARTÚNI31 ■ SÍMI 6272 22 antískra verka, en flest stærri org- el á Islandi eru fyrir barrokkverk. Árið 1985 var orgelið endurnýj- að og stækkað. Það er nú 38 radda, pípurnar eru 2.730. Vígsluafmælis Fríkirkjunnar í Reykjavík verður sérstaklega minnst við guðsþjónustu sunnu- daginn 27. febrúar kl. 14:00. Að guðsþjónustunni lokinni verður boðið til kaffiborðs í Safnaðar- heimilinu við Laufásveg 13. Höfundur er prestur Frí- kirkjunnar í Reykja vík. „Komið til mín, allir þér sem erf- iði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt. 11:28). Skírnarfontur kirkjunnar er einnig gjöf kvenfélags safnað- arins, fenginn frá Ítalíu í ársbyrjun 1930, gerður úr ítölskum marmara af bestu tegund. Á stríðsárunum voru byggðar viðbyggingar við tuminn norðan og sunnan. Var kirkjan þá komin með það útlit, sem nú er og prýðir austurenda Tjarnarinnar í miðborg höfuðstað- arins. í tilefni afmælisins var síðastlið- ið sumar skipt um alla klæðningu utan á kirkjunni, nema á þaki, sem endurnýjað var 1975. Sú klæðn- ing, sem nú er á kirkjunni, er sú þriðja frá því byggt var upphaf- lega, enda hefur alla tíð verið vel að verki staðið bæði með byggingu og viðhald. Má þar nefna að eini fúi, sem komist hefur í þessa virðu- legu og miklu timburbyggingu, var í gólfbitum og orsök þeirra var að lokast hafði fyrir loftop við jarðrask þegar næsta hús var gert að listasafni. Ekki er hægt að skrifa svo um kirkju að ekki sé getið orgels hennar, enda oft höf- uðprýði. Orgelið var sett upp árið 1926 og var þá talið eitt hljómfegursta og fullkomnasta á Norðurlöndum. Forystu um þá framkvæmd alla hafði þáverandi organisti kirkj- unnar, Páll ísólfsson. Orgelið er fyrst og fremst til flutnings róm- Cecil Haraldsson Vorgolf I Algarve 13.-21. apríl. GOLFFERÐ FYRIR ALLA Fínpússaðu sveifluna fyrir sumarið við bestu hugsanlegu aðstæður. Við höfum þegar tryggt okkur bestu rástima á öllum helstu völlunum! Verðdæmi langt undir pari! 37.900 m.v. tvo í stúdíói. 32.200 kr. m.v. fjóra í stúdíói. Ferðinni lýkur á OPNA ÚRVALS-ÚTSÝNAR mótinu þar sem í boði eru glæsileg verðlaun. 39.500 m.v. tvo í stúdíói. 36.700 kr. m.v. fjóra í íbúð. VILAR DO GOLF 53.700 m.v. tvo í raðhúsi. 49.800 kr. m.v. sex í raðhúsi. kr. ! Ae»»ó»«rA © ^ Frábær ^ aðstaða á CQ sérhönnuðum byrjendavelli „Frábær golfaðstaða fyrir alla kylfinga." Heimir Karlsson í VISA-SPORTI22. feb. Fáið allar nánari upplýsingar um vorferðina og golf i Portúgal hjá golfráðgjafa okkar á skrifstofu Úrvals Útsýnar, Peter Salmon. Kynningarmyndband á staðnum. Innifalið i verði: Flug, gisting, ferðir til og fra flugvelli erlendis ásamt islenskn golffararstjórn. MÚRVAL-ÚTSÝN RYggin? tvrir gæðum | fim Lágmi/lu 4. sími 699 300. nd í Hafnarfirdi: sfmi 65 23 66. tuRA ±41 p/4 Rdðbúslorg á Akureyri: stmi 2 50 00 I; | - og bjú umboósmðnnum um land alll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.