Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Morgunblaðiö/Kúnar Pór Leikfimikennarinn geðþekki Kári Árnason og Gísli Jónsson eigandi Sjallans í syngjandi sveiflu ásamt gestum. Syngjandi skagfirsk sveifla í Siallanum Skemmtanir Margrét Þóra Þórsdóttir Látum sönginn hljóma heitir söngdagskrá sem frumsýnd var í Sjallanum á Akureyri nýlega og verður hún sýnd á laugardags- kvöldum í vetur. Það er árviss við- burður í Sjallanum að bjóða upp á slíkar skemmtanir á þessum tíma og nú verður það sveiflukóngurinn skagfirski Geirmundur Valtýsson sem hreiðrar um sig í þessu fom- fræga húsi það sem eftir lifir vetrar ef marka má viðtökur frumsýning- arkvöldið. Með Geirmundi stíga á svið valinkunnir hljómlistarmenn og söngvarar. Boðið er upp á þríréttaða máltíð fyrir sýningu, hvítvínsbætta sjávar- réttasúpu, sinnepsgljáðan lamba- hrygg með smjörsteiktum sveppum og hasselbackkartöflu og súkkulaði- frauð með Grand Mamiersósu. Kostar máltíðin ásamt sýningunni og dansleik með hljómsveit Geir- mundar 3.900 krónur. Gestir í námunda við undirritaða virtust á einu máli um að máltíðin hefði verið afar vel heppnuð og höfðu á orði að þeir hefðu aldrei fengið jafnbragðgóðan mat í Sjall- anum og þetta kvöld og þá var þjón- ustan einstaklega lipur. Súpan var matarmikil, full af rækjum og hörpuskel og bragðaðist afskaplega vel. Lambahiyggurinn reyndist Ijúf- meti og skammturinn svo vel úti látin að huhgraður bóndi nýkominn úr fjósi hefði án efa ekki torgað meiru. Súkkulaðifrauðið bráðnaði í munni rétt í þann mund sem ungl- ingnum Geirmundi Valtýssyni var varpað svart hvítum á tjald við svið- ið syngjandi hástöfum Bíddu við, fyrsta Iagið sem hann gerði vinsælt og þeir sem hvað oftast báðu um það í óskalögum unga fólksins fyrir margt löngu eru vist enn að biðja um það í þætti Hermanns Ragnars, Ég man þá tíð, eða svo sagði kynn- ir kvöldsins Bjarni Hafþór Helgason sem lék á alls oddi í kynningum sínum. 1 kjölfarið kom hvert lagið á fæt- ur öðru þar sem skagfirska sveiflan var í öndvegi; Nú er ég léttur, Með vaxandi þrá, Lífsdansinn og eftir því sem á leið magnaðist fyörið í salnum þar til svo var komið að dansfíklar gátu ekki hamið sig, stóðu á fætur og dönsuðu af innlif- un. Þá var þess ekki langt að bíða að Ieiðin lægi upp á stóla og allra mestu stuðboltarnir dönsuðu á borðum. Fram kom hjá kynni kvöldsins að gera mætti ráð fyrir að um 2,5 milljónir ís- lendinga hefðu verið á balli með Geir- mundi í gegnum tíð- ina, enda hefur hann leikið nánast í hveiju samkomuhúsi lands- ins þannig að ekki er að undra þó fólk þekki lögin og taki hraustlega undir. Þrír söngvarar koma fram með Geirmundi, Helga Möller, Ema Gunn- arsdóttir og Ingvar „ . . Grétarsson og áttu Ge.rmundur þau sinn þátt í hversu vel tókst til að ná upp ijörinu í salnum, það þarf einstök dauðyfli til að hrífast ekki með þegar fjórmenningamir fóru á flug. Magnús Kjartansson stjómar hljómsveit Geirmundar af sinni alkunnu snilld, en auk hans lögðu þeir Vilhjálmur Guðjónsson og Þorsteinn Kjartansson sveitinn lið. Þegar hafa nokkur starsmanna- í þjóðhátíðarstemmningu. félög, saumaklúbbur og fleiri hópar bókað sig á Geirmundarsýningu Sjallans og óhætt er að fullyrða að þessir hópar verða ekki fyrir von- brigðum. Helga Möller og Erna Gunnarsdóttir áttu góða spretti í sýningunni. Reuter Jim Sheridan með Gullbjörninn og Crissy Rock með Sifurbjörninn. Fyrir miðju stendur Terry George handritshöfundur „In the Name of the Father“. VIÐURKENNIN G Jim Sheridan hlaut Gullbjörnhm Árlega er þess beðið með mikilli eftirvæntingu hver hlýtur viður- kenninguna Gullbjörninn fyrir aðild sína að kvikmyndum. Að þessu sinni var það breski leikstjórinn Jim Sheridan sem hreppti verðlaunin fyrir myndina „In the Name of the Father“. Breska leikkonan Crissy Rock hlaut hins vegar Silfurbjörn- inn sem besta leikkonan í kvik- myndinni „Ladybird, Ladybird". Verðlaunaafhendingin fór fram 21. febrúar sl. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Nokkrir nemendur lærðu andlitsförðun eða -málun en aðrir nutu góðs af. Hér má sjá Svölu Dröfn Sigurjónsdóttur mála andlit Hebu Hannesdóttur, en Tinna Garðarsdóttir fylgist með. Fremst hægra megin er Hildur Hilmarsdóttir að mála Olaf Daða Eggertsson. Fyr- ir miðri mynd sést Lilja Sigurgeirsdóttir mála Ingu Kristinu Kjartans- dóttur, en Sandra Salvör Kjartansdóttir fylgist með. NEMENDUR Fjölbreytt starf- semi í Foldaskóla Nemendur Foldaskóla í Grafar- vogi héldu árlega þemaviku 14.-18. febrúar í samvinnu við fé- lagsmiðstöðina Fjörgyn. Um 330 nemendur mynduðu fjórtán hópa og fór verkefnavinna fram í Fjörg- yn, skólanum og úti í bæ. „Þetta er annað árið í röð sem við höldum þemaviku sem þessa. Þetta er mjög skemmtileg tilbreyting og tókst í alla staði mjög vel,“ sagði Steinþór Gestsson, forstöðumaður Fjörgynj- ar, í samtali við Morgunblaðið. Yfirskrift þemavikunnar var 50 ára afmæli lýðveldisins og því kynntu nemendur sér tískuna sl. 50 ár, íslenskar kvikmyndir, tækni- framfarir, íslenska tónlist og fleira. Einnig var nmendum kennd silki- málun, málm- og trésmíði, leiklist, myndlist, matreiðsla, förðun og myndbandagerð. Þar sem einn hóp- urinn var að undirbúa útvarpssend- ingar heimsótti hann flestar út- varpsstöðvamar til að kynna sér hvernig slik starfsemi færi fram. Verður sent út á fm 104,5 dagana 21.-25. febrúar. Þeir voru í málm- og trésmíðadeildinni, Hrafn Garðarsson, Kjartan Sveinsson, Brynjólfur Gísli Gíslason og Guðmundur Berg Hjaltason við líkön af húsum. Útbúin höfðu verið þjófavarnarkerfi sem flaut- uðu ef gluggi var opnaður eða dyr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.