Morgunblaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
47
ÁRNAÐ HEILLA
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 25. september sl. í Garða-
kirkju af sr. Braga Friðrikssyni,
Hrafnhildur L. Steinarsdóttir og
Gunnar Guðnason. Heimili þeirra
er í Miðtúni 34, Reykjavík.
Ljósm. Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband 9. október 1993 í Veg-
inum af sr. Stefáni Ágústssyni,
Berglind Magnúsdóttir og Victor
Harðarson. Heimili þeirra er í
Asparfelli 8, Reykjavík.
__________Brids______________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsdeild Barð-
strendingafélagsins
Þegar 1. umferð er eftir af aðal-
sveitakeppni deildarinnar er staða
efstu sveita eftirfarandi:
Sveit Þórarins Árnasonar 290
Sveit Leifs Kr. Jóhannessonar 259
Sveit Halldórs Svanbergssonar 258
Sveit Óskars Karlssonar 251
Sveit Bogomil Font 243
SveitKristjáns Jóhannssonar 238
Mánudagana 7. og 14. mars verður
spiluð firmakeppni með tvímennings-
formi.
Mánudaginn 21. mars hefst baro-
meter-tvímenningur sem verður spil-
aður 5 mánudagskvöld.
Félag eldri borgara í
Reykjavík
Fimmtudaginn 17. febrúar sl. var
spilaður 16 para tvímenningur:
Lokastaðan:
Halla Ólafsdóttir - Þórleifur Þórarinsson 252
Lárus Amórsson - Ásthildur Sigurgísladóttir 241
Gísli Guðmundsson - Eyjólfur Halldórsson 239
Elín Jónsdóttir - Lilja Guðnadóttir 238
Meðalskor: 210
Eftir fjórar umferðir í sveitakeppni
félagsins er staðan þessi:
Sveit Þorsteins Erlingssonar 97
Sveit Þórarins Ámasonar 82
Sveit Lárusar Arnórssonar 7 6
Sveit Júlíusar Ingibergssonar 62
Sveit Kristins Gíslasonar 45
Sveit Höllu Ólafsdóttur 40
Sveit Þórhildar Magnúsdóttur 38
Sveit Margrétar Bjömsson 28
Næst verður spilað í sveitakeppn-
inni 6. mars vegna aðalfundar félags-
ins 27. febrúar nk.
Bridsfélag kvenna
Sl. mánudag hófst parakeppnin hjá
félaginu með þátttöku 26 para, keppn-
in mun standa 5 kvöld og er með
butler-formi. Eftir 5 umf. er staða
efstu para þannig:
Guðrún Jörgensen - Þorsteinn Kristjánsson 529
Inga L. Guðmundsdóttir - Unnur Sveinsdóttir 403
María Ásmundsdóttir - Steindór Ingimundarson
338
AnneM.Kokholm-GuðbjömÞórðarson 304
Lilja Halldórsdóttir - Þórður Sigfússon 285
Sigrún Pétursdóttir - Sveinn Sigurgeirsson 232
Erla Sigvaldadóttir - Guðlaugur Karlsson 189
Vesturlandsmót í sveitakeppni
Vesturlandsmót í sveitakeppni, sem
jafnframt var úrtökumót fyrir undan-
keppni íslandsmóts í sveitakeppni, fór
fram á Akranesi dagana 19. og 20.
febrúar.
Sveitir frá fimm félögum tóku þátt
í keppninni. Sveit frá Bridsfélagi Út-
nesinga (Hellisandi/Ólafsvík) kom í
fyrsta skipti til keppninnar.
Eftir jafna og spennandi keppni
sigraði sveit Alfreðs Viktorssonar.
Aðrir í sveitinni eru Guðjón Guð-
mundsson, Ingi St. Gunnlaugsson og
Ólafur G. Ólafsson.
Röð efstu sveita:
Sv. Alfreðs Viktorssonar, Akranesi 182
Sv. Jóns Þ. Bjömssonar, Borgamesi 174
Sv.Bergshf.,Akranesi 158
Sv. Hallgríms Rögnvaldssonar, Akranesi 141
Sv. Guðna Hallgrímssonar, Grundarfirði 132
Sv. Þorvaldar Guðmundssonar, Akranesi 121
Þrjár efstu sveitir öðlast rétt til
þátttöku í undankeppni íslandsmóts í
sveitakeppni.
Akranesmót í sveitakeppni
Sveit Dodda Bé vann Akranesmót
í sveitakeppni, eftir að spilaður hafði
verið fjörutíu spila úrslitaleikur við
sveit Alfreðs Viktorssonar.
í sveit Dodda Bé eru Þórður Björg-
vinsson, Þorgeir Jósefsson, Karí Al-
freðsson og Tryggvi Bjarnason.
Fjórar efstu sveitir urðu:
. Sv. Dodda Bé
Sv. Alfreðs Viktorssonar
Sv. Jóns Ág. Þorsteinssonar
Sv. Böðvars Bjömssonar
Paraklúbburinn
Erla Siguijónsdttir og Sigurður Sig-
uijónsson sigruðu örugglega í tví-
menningnum sem nú er lokið. átján
pör spiluðu og urðu úrslit þessi:
Erla Siguijónsd. - Sigurður Siguijónsson 142
AnnaGuðrúnívarsd.-JónBaldursson 95
Esther J akobsdóttir - Sverrir Ármannsson 62
Kristín Þórarinsdóttir - Sturla Snæbjömss. 33
María Haradsdóttir - Jón Ingþórsson 28
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Erla - Sigurður 66
AnnaGuðrún-JónB. 53
GuðrúnJóhannesd.-JónHersirElíasson 36
Næsta þriðjudag hefst sveitakeppn-
in. Skráning hjá Dennu í síma 621599
eða hjá Erlu í síma 642450.
Bridsfélag Hreyfils
Mánudaginn 21. febrúar lauk baró-
meterkeppni félagsins. Úrslit urðu
þessi: _
Guðmundur Ólafsson/Eyjólfur Ólafsson 2051
Daniel Halldórsson/Ragnar Bjömsson 2032
Rúnar Gunnarsson/Eiður Gunnlaugsson 1991
BirgirKjartansson/Ámi Kristjánsson 1989
Næsta mánudag hefst Butler-tví-
menningur og ræðst fjöldi kvölda af
þátttöku. Spilað er kl. 19.30 og eru
menn hvattir til þess að fjölmenna.
B0DDÍHLUTIR
Bílavörubúðin
FJÖPRIN
Skeifunnu 2 - Sími 812944
GBC-Pappírstætarar
Þýsk framlel&sla
Ýmsar stærðlr og gerðir fáanlegar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavik
Símar 624631 / 624699
Enn um Silfurtún hf.
eftir Gest Gunnarsson
Laugardaginn 19. þ.m. birtist í
Mbl. athugasemd Friðriks R. Jóns-
sonar, forstjóra Silfurtúns hf., við
umsögn upplýsingafulltrúa Félags
ísl. hugvitsmanna, Sigurðar Bjama-
sqnar, um frétt af meintum umsvif-
um Silfurtúns hf. Hér var ekki um
að ræða mína umfjöllun, heldur upp-
lýsjngafulltrúans.
í þessu máli vil ég koma forstjór-
anum niður á jörðina, en hann er að
aðalatvinnu aðstoðarflugmaður hjá
Flugleiðum hf. og gegnir forstjórn
Silfurtúns hf. í hjáverkum.
í athugasemdum Friðriks R. Jóns-
sonar segir: „Ég vil aðeins benda á
að hugmyndin að vélbúnaði Silfur-
túns er alfarið mín ... “ Þetta er
alrangt. Þegar ég hóf störf hjá Silf-
urtúni hf. var þar aðeins ein vél til
að steypa eggjabakka í, en sú vél
hafði verið keypt ný frá Englandi
allmörgum árum áður. Keypt hafði
verið pressa frá Hollarídi til þess að
fá endanlega lögun á eggjaöskjur,
eins og þær sem við sjáum í verslun-
um. Sú pressa reyndist illa og var
önnur keypt frá Kanada. Loks hafði
verið búinn til hitakassi til að þurrka
eggjabakkana í, en hann virkaði ekki
fullnægjandi. Þessi búnaður og ekki
annar var til staðar í húsakynnum
Silfurtúns hf. til endurvinnslu á
pappír, þegar ég kom þangað í lok
ágúst 1991. Síðari búnaður og endur-
bætur eru mín hugverk.
■ MYNDASÝNING Útivistar frá ferð serii
farin var í ágúst sl. um austurrísku alpana
verður í húsnæði Skagfirðingafélagsins,
Stakkahlíð 17, í kvöld, fimmtudag, og hefst
hún kl. 20.30. Innifalið í aðgangseyri er hlað-
borð kaffinefndar. í ágúst sl. fór 30 manna
hópur Útivistarfélaga í gönguferð um austur-
rísku alpana. Ferð þessi var skipulögð af austur-
ríska alpaklúbbnum ÖAV-Vorarlberg, en kynni
Útivistarfélaga við Austurríkismennina hófst
árið 1991, en þá var farin fyrsta Austurríkis-
ferðin. Ferðin, sem stóð yfir dagana 14.-28.
ágúst, var þannig uppbyggð að gengið var á
milli fjallakofa og á ýmsa alpatinda í nágrenni
þeirra en í kofunum var framreiddur matur og
þurfti göngufólk því einungis að bera með sér
fatnað og bakpoka. Hópurinn skiptist í smærri
einingar yfír daginn því boðið var upp á miserf-
iðar gönguleiðir, allt frá þægilegri göngu sem
flestir gátu tekið þátt í og upp í erfiðar klifur-
ferðir sem einungis voru fyrir þaulvana fjalla-
menn og fjallakonur.
Frá ferð Útivistar til austurríku alpanna.
„Að lokum vil ég lýsa
undrun minni yfir því,
hvers vegna Friðrik R.
Jónsson forstjóri Silf-
urtúns hf. slær svo
mjög um sig með full-
yrðingum sem eru
fjarri sannleikanum.“
Einnig segir Friðrik: „ ... eins og
hjá sams konar fyrirtækjum eru fjöl-
margir tæknimenn." Þetta er bara
fleipur. Á því tímabili sem ég starf-
aði hjá fyrirtækinu, alveg fram und-
ir það síðasta, var ég eini tækni-
menntaði starfsmaðurinn. Auk okkar
Friðriks voru þrír verkamenn og einn
fyrrv. stýrimaður sem sá um fjárreið-
ur fyrirtækisins milli þess sem hann
vann með verkamönnunum. Allt voru
þetta hinir bestu félagar og drengir
góðir.
Enn segir Friðrik: ... Sérstakir
fundir eru haldnir reglulega um end-
urbætur, þróun og nýjar hugmynd-
ir.“ Þetta er líka blekkingarhjal. Ég
varð aldrei var við neina slíka fundi,
en þegar Friðrik kom í verksmiðjuna
í fríum frá aðstoðarflugmannsstarf-
inu, ræddum við jafnan um verk
mín, framgang þeirra og stöðu. Þetta
voru ekki formlegir fundir.
Að lokum vil ég lýsa undrun minni
Gestur Gunnarsson
yfir því, hvers vegna Friðrik R. Jóns-
son forstjóri Silfurtúns hf. slær svo
mjög um sig með fullyrðingum sem
eru fjarri sannleikanum. Það hvarflar
að manni að hann sé að reyna að
blekkja einhvern í sérstökum til-
gangi, eða jafnvel sjálfan sig.
Það er annars kjarni þessa máls,
að ég er höfundur og hönnuður þeirra
véla sem Silfurtún hf. ætlar að flytja
út fyrir hundruð milljóna króna.
Þennan höfundarrétt minn mun ég
veija og nýta.
Höfundur er tæknifræðingur.
Viðbótargistingin okkar á Barbados seldis tupp í gær.
_ Sértilboð um
páskana til
^ Ktmarí
Bókaéu strax og tryggðu þér
stetí tneðan enn er laust
Nú er páskaferðin okkar að seljast upp og
við höfum tryggt okkur 8 viðbótarhús á
Parque Nogal gististaðnum á sértilboðsverði.
Glæsileg smáhýsi rétt við ensku stöndina og
einn vinsælasti gististaður okkar í vetur.
Veitingastaðir
2 sundlaugar
Bamaleiksvæði
Tennisvöllur
Mitúgolf
Matvörubúð
Þrif 5 sinum í viku
Verð frá kr. 52.800,-
pr. mann m.v. hjón með 2 böm, 2-14 ára.
Verð frá kr. 69-800, - pr. mann m.v. 2 í íb'
Flugvallaskattar: 3.660,- fyrir fullorðna, kr. 2405,- fyrir börn.
air europa
TURAUIA