Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 50

Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 „Sjáðu til, smíðar var ekki það sem ég kaus helst að leggja fyrir mig.“ Veist þú hvort við erum eitr- aðar? Eg beit mig nefnilega í tunguna. Ást er. . . \qJ . .. að vinna í spilakassa. TM Reg. U.S Pat Otf.—all rights reserved © 1993 Los Angeles Times Syndicate Hann bíður eftir ykkur... í Brasilíu. HOGNI HREKKVISI BRÉF TII. BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Hvalurinn - og falleinkunn fjölmiðla Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni: Seint hélt ég að ég ætti eftir að þurfa að veija blóði drifnu samkom- una sem kallast AIþjóðahvalveiði- ráðið. Rafn Geirdal kemur með óvana- lega fordómalausa grein um hvala- málið í bréfi sínu til blaðsins þ. 18. febrúar sl. Þó hnýtur hann eðlilega um þau ósannindi sem flestir ís- lenskir fjölmiðlar hafa linnulaust borið á borð fyrir íslensku þjóðina. Rétt er að benda Rafni Geirdal á að í nokkrum málaflokkum hér á Iandi búum við íslendingar við óvanalega sterkt „sovéskt" ástand í fjölmiðlum. Þetta eru mál sem í daglegu tali kallast „áfram-ísland“- málaflokkar. Langstærst þessara mála nú á síðustu árum er hvala- málið þar sem íslendingar hafa svo ótrúlega klúðurslega egnt flestar siðmenntaðar þjóðir á móti sér í krafti blindrar hagsmunagæslu og Shírínovskíjlegrar þjóðernisrembu. Flestir íslenskir fjölmiðlar, fyrir utan Morgunblaðið stundum og ein- staka sinnum Stöð 2, hafa enda- laust borið þau ósannindi á borð fyrir þjóðina að AIþjóðahvalveiði- ráðið sé hvalfriðunarráð, þótt slíkt sé algjör bábilja því miður. Betur að svo væri fyrir okkur hvalavini. Þótt vitað sé að mikill meirihluti ráðsins sé á móti óheftum hvalveið- um eða réttara sagt án vísindalegr- ar forskriftar slíkra veiða varðandi stærð hvalastofnanna og veiðiþol og annað í þeim dúr, þá er það því miður óhagganleg staðreynd í huga allra sæmilega heiðarlegra áheyrn- ar- eða sendinefndarfulltrúa sem setið hafa fundi ráðsins að Alþjóða- hvalveiðiráðið er hvalveiðiráð því miður, en ekki hvalfriðunarráð. Ég vildi svo sannarlega að þjóðar- og fjölmiðlalygin hefði rétt fyrir sér í þessu máli. En því er bara alls ekki að heilsa. Við Rafn Geirdal og aðra heiðar- lega sannleiksleitendur í málinu get ég aðeins sagt í tilefni fyrirspurna hans í blaðinu: A. Alþjóðahvalveiðiráðið hefur tekið mjög málefnalega afstöðu til langflestra mála varðandi hvalveið- ar sem ég þekki. Einu athugasemd- irnar sem ég gerði við störf þess lúta að endalausri þjónkun við ólundarsendinefndir á borð við þá japönsku, norsku og þá íslensku. B. Ráðið vinnur fullkomlega í samræmi við ákvæði Hafréttarsátt- málans og reyndar gott betur að mati flestra almennra alþjóðalög- fræðinga sem eitthvað hafa sett sig inn í þessi mál. C. Niðurstöður vísindanefndar ráðsins hafa í einu og öllu verið virtar af pólitíska ráðinu. En þjóðar- lýgisfjölmiðlunin hér heima hefur talið þjóðinni trú um að svo hafi ekki verið. Að sjálfsögðu hefur ekki eitt einasta dæmi verið nefnt um að svo hafi ekki verið, enda erfítt að finna slík dæmi. Ég skora á þá sem mest hafa borið þessi ósannindi inn í landið, þá félagana Jóhann Siguijónsson og aðra hlutdræga og hagsmuna- tengda vísindamenn í Hafrannsókn- arstofnun, ásamt hvalafréttamenn- ina á Sjónvarpinu, þá Pál Bene- diktsson og Olaf Sigurðsson, að benda á eitt einasta dæmi þess að Frá Björgvin Magnússyni: Ég Geirastaða geng á kletta glaður með skapið létta Fljótsdalshérað fysir mig að skoða fagurt í morgunroða. Er sólin dátt við Dyrfjöll hlær döggin glitrar kristalstær Bjamarey hefur brosin mildu björtu og sígildu. Snæfell ber heiðan himinn við heyri ég Lagarfossins nið milljónir fugla fljúga og syngja Fljótsdalshéraðið tekst að yngja. Sónata þessi sungin er sveitin kær til dýrðar þér við lækjarklið og lindanið langspilið stillir héraðið. Í tjömum speglast töframyndir tærar og bláar ótal lindir fífill og sóley faðmast glöð friskandi súpa daggarmjöð bláklukka með brosi ljúfu blasir við á hverri þúfu. Hér eru ótal höfuðból Á Hallfreðarstöðum Páls var skjól Alþjóðahvalveiðiráðið hafi ekki far- ið eftir samþykktum vísindanefndar ráðsins. Það hefur a.m.k. ekki átt sér stað þau sl. 'átta ár sem ég hef verið viðloðandi flest ársþing þess. Það er svo aftur enn önnur hlið á sovéska ástandinu í fjölmiðlum hér á landi að hvergi nokkurs stað- ar á Vesturlöndum byðu fjölmiðlar lesendum sínum og áhorfendum upp á frásagnir og „unnin“ viðtöl eftir fréttamenn sem virðast hafa það eitt að markmiði sínu áð hatast út í allt sem lýtur að náttúrufriðun og dýravernd. En slíkt á sér því miður víða stað í hinni vanþróuðu fjölmiðlun hér á landi. Langverst er hin grímulausa hat- ursumræða fréttastofu Ríkissjón- varpsins á hendur öllu sem tengist okkur hvalavinum eða grænfrið- ungum. Þar er alltaf aðeins öðru sjónarmiðinu hampað í málinu. Framferði heillar fréttastofu sem þessarar á sér örugglega fáar ef nokkrar hliðstæður á norðurhveli jarðar, nema ef vera kynni í Færeyj- um. Hinir fáu og smáu og úthróp- uðu hvalavinir þar hafa víst svipaða sögu að segja og við hér i hinu bananalýðveldinu í NA-Atlantshaf- inu. Hlægi þeir sem hlæja vilja að því. Mér er samt ekki sama. MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON, meðlimur í Hvalavinafélagi ís- lands. á Héraði fjölmörg blómleg bú bæði var og eru nú. Heita sannir höfðingjar Héraðsbúar alls staðar. Hér eru yrkisefnin nóg einkum í Hallormsstaðaskóg. Guttorm lofar lerkiskógurinn líka birkið með ilminn sinn. Sigriin frú og bóndinn Blöndal bæði þóttu mannval. Héraðsbúar haust og vetur hylla Eiða menntasetur sem að unga fólkið fræðir fegrar lífið, andann glæðir. Landið er allt með létta brá Lagarfljót og Jökulsá. Héraðsfjöllin föpr og blá fagna gestum tigin og há velkomna segja vini alla vötn á meðan til ægis falla. Beinageit við Blönduhnúk brosir og segir tungumjúk Fljótsdalshérað fagra, bjarta famist þér fel, þú átt mitt hjarta. BJÖRGVIN MAGNÚSSON frá Geirastöðum. Flj ótsdalshérað Víkveiji skrifar Víkveija leiðist óskaplega sú beygingaleti, sem virðist þjaka æ fleiri. Það er afar algengt að á ritstjóm Morgunblaðsins berist símbréf, þar sem í yfirskrift segir til dæmis Til: Morgunblaðið, Frá: Jón Jónsson. Og þessi leti er svo sannarlega ekki bundin við ýmsa sendendur símbréfa. Víkveiji fór fyrir skömmu á veitingahús. Þar höfðu húsráðendur haft fyrir því að prenta spjöld á borðin, með text- anum: Þetta borð er frátekið fyr- ir: ... og að sjálfsögðu var nafn gestsins ritað í nefnifalli. Starfsmenn útvarpsstöðva eru margir slæmir að þessu leyti, en leti þeirra er helst bundin við eftir- nöfn kvenfólks. Þeir tilkynna blá- kalt að nú hafi verið spilað lag með Andreu Gylfadóttir, Sigríði Bein- teinsdóttir eða Sigrúnu Hjálmtýs- dóttir. Að feður þessara ágætu kvenna skuli fá að eiga dóttur er áf 6jr fr‘á,"þeirísltúru',eigá'dóttir. Skrifari sá á föstudag þátt í Rík- issjónvarpinu um nýbúa og framlag þeirra til íslenskrar menn- ingar. Slík þáttargerð er auðvitað allra góðra gjalda verð og þátturinn að mörgu leyti hinn athyglisverð- asti. Það vakti þó athygli Víkveija, að jafnvel þó nýbúarnir töluðu hina ágætustu íslensku, þá var tal þeirra þýtt. Svo var til dæmis með tal manns sem rekur veitingahús í Reykjavík. Hann talaði prýðilega íslensku, en það var vissulega hægt að heyra á mæli hans að íslenska er ekki hans móðurmál. Þýðing var hins vegar alveg óþörf og farið of- fari í henni. Þannig svaraði maður- inn til dæmis, þegar hann var spurð- ur hvers vegna hann hefði sest að hér á Iandi, að hann væri kvæntur íslenskri konu. Þarna þótti þýðand- anum greinilega ástæða til að bæta úr, því í textanum á skjánum sagð- ist maðurinn vera giftur íslenskri köiiuI'Þáð er gfeinilega á fleiri svið- um en matreiðslunni sem nýbúarnir geta kennt íslendingum eitt og annað. xxx Víkveiji ætlaði að bregða sér á skíði einn mánudaginn fyrir skömmu, enda var veður þá með miklum ágætum. Hins vegar kom á daginn að skíðasvæðið í Skála- felli var lokað þennan dag og í Blá- fjöllum var lokað kl. 18. Víkveija var gefin sú skýring, af manni sem til þekkir, að ávallt væri lokað í Skálafelli á mánudögum og lokun- artíminn í Bláfjöllum væri ákveðinn með löngum fyrirvara. Þetta þykir Víkveija með ólíkindum, ef satt er. Það sem eftir var þessarar viku var lokað á þessum skíðasvæðum vegna veðurs og því var búið að svipta fólk tækifæri til að skreppa á skíði þennan eina dag sem kom til greina, bara vegna þess að þetta hefur verið svona hingað til.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.