Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
11
og vitnað er til hér í upphafi. Sjónar-
mið þau, sem taka mið af sagnfestu-
kenningunni, eru svo langt frá að
vera í tísku um þessar mundir að
Bjama Guðnasyni hefur varla þótt
ómaksins vert að andmæla þeim. Það
eru önnur og »lærðari« viðfangsefni
sem fræðimenn eru að glíma við nú
á dögum.
»Heiðarvígasaga er saga einstakl-
inga, sem flestir eru fulltrúar ákveð-
inna hugsjóna og hafa því almennt
leiðsagnargildi fyrir mannlega hegð-
un,« segir Bjarni. Það er hans sjónar-
mið. Vissulega hefur hann nokkuð
til síns máls. Rökleiðsla hans er
bæði nákvæm og yfirgripsmikil.
Fyrst og fremst er hún þó skemmti-
leg. Eftir megni leitast hann við að
koma reglu á alfa þá flækju sem 13.
öldin sýnist hafa verið, skorða við-
fangsefnið innan ramma hinna ka-
tólsku miðalda jafnframt því að hann
ljær höfundinum vænan skammt af
friðarboðskap 20. aldar. Því kveður
hann söguna miklu yngri en hingað
til hefur verið talið. Að taka svona
skýra afstöðu hefur sína ótvíræðu
kosti. Aldrei þykir stórmannlegt að
slá úr og í né tryggja sig með enda-
lausum varnöglum. Að lestri loknum
má vel hugsa sér að skoðanir Bjarna
séu réttar — ef viðfangsefnið er skoð-
að og metið út frá sama sjónar-
horni! En sjónarhomin eru fleiri. Og
ekki þar með sagt að öll önnur séu
röng. Hvorir tveggja, sagnfestumenn
og bókfestumenn, hafa nokkuð til
síns máls. Trúin á sannfræði sagn-
anna ber ekki vitni um einskæran
barnaskap eins og margur hyggur.
Sú skoðun, að þær séu skáldskapur
einber, er ekki heldur fjarstæð með
öllu. Raunar tekur Bjarni fram að
saga sé »ekki annaðhvort sannleikur
eða skáldskapur, hún er hvort-
tveggja«. í þeim orðum felst mála-
miðlun sem flestir ættu að geta sætt
sig við. Allar kennisetningar eru
bæði réttar og rangar. Hver ný kenn-
ing fellur eins og steinn í hleðslu sem
sífellt hækkar. Það er einungis
mannlegt að hver ritskýrandi leggi
áherslu á það sem hann hefur sjálfur
fram að færa. Um ritskýring Nor-
dals var oft sagt að hún væri lífguð
af skáldlegu innsæi. Og var að sjálf-
sögðu sagt þeim mikla manni til lofs.
Þar sem Bjarni Guðnason er einnig
skáldritahöfundur má vafalaust
segja eitthvað svipað um þessa rit-
gerð hans. Hún kveikir hugmyndir
fremur en hún svari spurningum.
Túlkun Heiðarvígasögu er sem sagt
bæði yfirgripsmikil og þaulunnin
bók, og þar að auki ljós og skýr —
hvort sem hún nú færir mann nær
sannleikanum eður ei, það verður
tíminn að leiða í ljós.
undanförnu.“
Næsta sýning verður föstudaginn 25.
febrúar, 19. sýning sunnudaginn 27.
febrúar, næst síðasta sýning föstudaginn
4. mars og síðasta sýning sunnudaginn
6. mars.
Tónlist
Niflung-ahringurinn í
Óperuklúbbnum
Niflungahringurinn eftir Richard
Wagner verður sýndur á vegum Óperu-
klúbbsins um helgina og í næstu viku.
Um er að ræða uppfærslu leikstjórans
Patrice Chereau, sem sett var upp á
Wagner-hátíðinni í Bayreuth á aldaraf-
mæli hátíðarinnar árið 1976.
Þessi upptaka hefur verið sýnd f sjón-
varpi vfða um lond og f helstu hlutverk-
um eru Donald Mclntyre sem Óðinn,
Gwyneth Jones sem Brynhildur, Peter
Hoffmann sem Siegmund, Jeannine Alt-
meier sem Sieglinde, Manfred Jung sem
Siegfried, Heinz Zednik sem Loki og
Mímir, Matti Salminen sem Hunding og
Fasolt, Hanna Schwarz sem Frigg og
Fritz Hubner sem Fáfnir og Hagen.
Stjórnandi er Pierre Boulez.
Þar sem valdir kaflar úr Niflunga-
hringnum verða teknir til sýninga á lista-
hátíð í vor er tilvalið að kynnast verkinu
öllu á sýningum Óperuklúbbsins, segir
í kynningu.
Sýnt verður af mynddiskum með
enskum skjátextum sem hér segir: Laug-
ardag 26. febrúar kl. 15; Rínargullið.
Sunnudag 27. febrúar kl. 14; Vaikyijan.
Þriðjudag 1. mars kl. 19; Siegfried.
Fimmtudag 3. mars. ki. 19; Ragnarök.
Sýningarnar verða haldnar á Vest-
urgötu 36b og er aðgangur ókeypis og
öllum heimill.
HAGKAIJP
ff/Mf
Maj Britt WingS0
Ibióðleg fi/rirsœla
DAGBOK
RÁÐHÚSIÐ. Nú stendur yfir
ljósmyndasýningin „Island við
aldahvörf" í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur og lýkur henni nk.
sunnudag. Opið er virka daga
milli kl. 8.20 og 19 og laugardaga
og sunnudaga milli kl. 12 og 18.
LANDSSAMBAND aldraðra
hefur opna skrifstofu alla virka
daga frá kl. 13-16 og veitir jafn-
framt uppl. um utanlandsferðir í
s. 621899. ______
FÉLAG eldri borgara í Rvík
og nágrenni. Bridskeppni, tví-
menningur, kl. 13 í dag í Risinu,
Hverfisgötu 105.
EYFIRÐINGAFÉLAGIÐ er með
spilakvöld á Hallveigarstöðum í
kvöld kl. 20.30 og er það opið
öllum.
KVENFÉLAG Hafnarfjarðar-
kirlyu heldur aðalfund sinn
þriðjudaginn 1. mars nk. kl. 20.30
í safnaðarathvarfinu Suðurgötu
11. Jónína Steingrímsdóttir, for-
maður Bandalags kvenna, Hafn-
arfirði, kynnir Nordisk Forum.
Ostakynning, kaffiveitingar.
REIKI-HEILUN. Öll fimmtu-
dagskvöld kl. 20 er opið hús í
Bolholti 4.
FLÓAMARKAÐSBÚÐIN,
Garðastræti 2, er opin þriðju-
daga, fimmtudaga og föstudaga
frá kl, 13-18.___________
KIRKJUSTARF______________
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir alla
aldurshópa í dag kl. 14-17. Bibl-
íulestur kl. 20.30. Fyrsta Móse-
bók. Árni Bergur Sigurbjömsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Mömmu-
morgunn kl. 10.30.
HALLGRÍMSKIRKJA: Kvöld-
bænir með lestri Passíusálma kl.
18.
HÁTEIGSKIRKJA: Starf fyrir
10-12 ára börn kl. 17. Kvöldsöng-
ur með Taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð,
íhugun, endurnæring.
LANGHOLTSKIRKJA: Vina-
fundur kl. 14-15.30 í safnaðar-
heimilinu. Umfjöllun um efri árin.
Leiðbeinandi Sigrún Gísladóttir.
Aftansöngur kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12. Orgelleikur, altar-
isganga, fyrirbænir. Léttur máls-
verður í safnaðarheimili að stund-
inni lokinni.
NESKIRKJA: Hádegissamvera í
dag kl. 12.10 í safnaðarheimilinu.
Umræður um safnaðarstarfið,
málsverður og íhugun Orðsins.
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Mömmumorgunn föstudag kl.
10-12.
FELLA- og Hólakirkja: Æsku-
lýðsfundur 10-12 ára kl. 17 í dag.
KÁRSNESSÓKN: Starf með
eldri borgurum í safnaðarheimil-
inu Borgum í dag kl. 14-16.30.
SELJAKIRKJÁ: Frímerkjaklúb-
bur í dag kl. 17.
HJALLAKIRKJA: Opið hús fyrir
eldra sóknarfólk í dag kl. 14-17.
Umsjón: Anna Sigurkarlsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fræðslu-
kvöld kl. 20.30 í röðinni „Hvað
er kristið siðferði?". Dr. Siguijón
Árni Eyjólfsson. Kaffi, umræður.