Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 12

Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Svar til útvarpsstjóra eftír Kristínu A. Jónsdóttur Ágætur útvarpsstjóri, Heimir Steinsson, varpaði fram nokkrum spurningum í grein í Mbl. 11. febr- úar sl., sem við teljum að hafí ver- ið beint til okkar í áhugahópnum um fijálsa áskrift. Þessum spurn- ingum vil ég svara í eftirfarandi máli, ásamt því að kasta fram nokkrum punktum um Ríkisútvarp- ið pg sjónvarp. í umræddri grein fer Heimir nokkrum orðum um eiginlegt hlut- verk ríkissjónvarpsins. Þar ræðir hann um hveijir ættu að tryggja afskekktum byggðum þessa lands aðgang að óruglaðri sjónvarpsrás ef ekki er boðið upp á ríkisrekna, óruglaða rás. Því er fljótsvarað, segja má að ríkissjónvarpið sé í raun ruglað í þeirri merkingu að þar eru innheimt föst afnotagjöld af öllum eigendum sjónvarpstækja á íslandi með ákveðnum undan- tekningum þó. Það má álykta að margir þeirra sem „njóta“ þjónustu ríkissjónvarpsins, myndu glaðir greiða öðrum fijálsum sjónvarps- stöðvum fyrir þessa þjónustu. Allir vita að fjárhagi margra heimila er þannig háttað að þau hafa ekki efni á nema einni sjónvarpsstöð. Með lögbundinni skyldugreiðslu af- notagjalda af ríkissjónvarpinu er búið að velja fyrir þetta fólk. Málið er að ef almenningur hefði fijálst val, má ætla að frjálsar sjónvarps- stöðvar sæju hag í að koma upp enn fleiri sendum en þeir bjóða upp á í augnablikinu. Þegar lögbundin afnotagjöld rík- issjónvarpsins ber á góma, koma alltaf upp raddir um það að þessi gjöld séu innheimt í skjóli þeirrar nauðsynjar að ríkissjónvarpið gegni mikilvægu öryggishlutverki. Þau rök eru afar léttvæg í dag, þegar fjöldi einkarekinna útvarpsstöðva er vafalítið tilbúinn. að axla þessa ábyrgð og líta aðeins á það sem aukna þjónustu við hlustendur sína. Það má því strax strika ríkissjón- varpið úr dæminu, því notkun sjón- varpstækja er það háð rafmagni og það væri aldrei hægt að treysta á fulla nýtingu þeirra. Við þetta er að bæta að forráðamenn ríkissjón- varpsins hafa verið óþreytandi að fullyrða að öryggið sé eingöngu tryggt með útvarpi RÚV og sjón- varpsins. Við í áhugahópnum bárum þessa fullyrðingu undir Guðjón Petersen, forstjóra Almannavarna. Hann svaraði því á eftirfarandi hátt. Sjón- varp er ekki öryggistæki, því að hamförum fylgir iðulega rafmagns- leysi. Útvarpið er því það verkfæri s.em við lítum til. Þá spurðum við Guðjón ennfrem- ur, í fyrsta lagi, hvemig er þessum málum háttað í dag, og í öðm lagi, hveijar væru óskir Almannavarna ef þær fengju alfarið að ráða því hvernig málum væri háttað? Svar- aði hann því á eftirfarandi hátt. í dag í minni háttar tilfellum, sendum við símbréf til útvarpsstöðvanna og þau lesa tilkynningar frá okkur. Ef um meiri hamfarir er að ræða er einfalt að tengja útvarpsstöðv- amar við útvarp Almannavarna og nýta þannig senditíðni þeirra. Það eina sem þarf að koma til er að stöðvarnar þurfa að hafa varaafl- stöðvar. í dag hafa RÚV og Bylgjan yfir þessum búnaði að ráða. Aðrar stöðvar era að hugleiða að bæta þessum búnaði við hjá sér. Til að mynda sögðu forráðamenn Aðal- stöðvarinnar að þeir litu á það sem þjónustu við hlustendur sína og ef ósk kæmi um það frá Almannavörn- um væri sjálfsagt að ganga þannig frá hlutum að þeir kæmust nánast fyrivaralaust inn í útsendingu þeirra. Það era ekki allir með út- varpið stillt á RÚV, ef Almanna- varnaflauturnar færu í gang yrði nóg að kveikja á útvarpinu, í því tilfelli að allar stöðvamar væra þá beintengdar við Almannavarnaút- varpið. Onnur öryggisatriði eru veður- fréttir. Nú stendur yfír endurskipu- lagning á allri þjónustu Veðurstof- unnar og er þar hugsað fyrir sér- þörfum fyrir t.d. flugmenn, sjó- menn, bændur og vegfarendur. Magnús Jónsson veðurstofustjóri Nefnd um almenna fullorðinsfræðslu Starfsmenntaráð Hvert ber að stefna í fræðslu fullorðinna? Almenn fullorðinsfræðsla og starfsmenntun, símenntun Borgartúni 6 mánudaginn 28. febrúar 1994 ki. 13-18. Kl. 13.00-13.15 Opnun málþingsins menntamálaráðherra Ólafur G. Eínarsson. Kl. 13.20-14.10 Fræðsla fullorðinna f Danmörku Erling Klinkby, deildarstjóri í danska menntamála- ráðuneytinu, skrifstofu fyrir fullorðinsfræðslu. Kl. 14.15-15.30 Hver er tilgangurinn með fræðslu fullorðinna? Jón Torfi Jónasson, dósent, Háskóla íslands. Hver á. að annast framboð og hverjir eiga að bera kostnað? Margrét S. Björnsdóttir, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra. Kl. 15.30-16.00 Kaffi. Kl. 16.00-17.00 Hvert á að vera samhengi almennrar fullorðinsfræðslu og starfsmenntunar í atvinnulífinu? Guðmundur Gunnarsson, Alþýðusamb. íslands, Halldóra J. Rafnar, Vinnuveitendasamb. íslands, Stefán Baldursson, skrifstofustjóri menntamálaráðu- neytinu. Kl. 17.00-17.45 Umræður. Kl. 17.45 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri: Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytis- stjóri í félagsmálaráðuneytinu. sagði nýlega í blaðaviðtali að könn- un Félagsvísindastofnunar hefði leitt í ljós að þessir aðilar væru því samþykkir að borga sérstaklega fyrir þessa þjónustu. Það er umhugsunarvert að um- ræðan um sjónvarp RÚV ijallar oftast um hluti sem skipta í raun engu máli. Því að tæknilega er haegt að leysa flesta þá þætti sem RÚV telur vera skyldu sína umfram aðrar stöðvar. Við í áhugahópnum erum einfaldlega að segja að skylduáskriftin að RÚV sé ekki forsendan fyrir að þessi þjónusta sé innt af hendi. Það er ekki sann- gjarnt að eigendur sjónvarpstækja borgi brúsann til að halda uppi sjón- varpi og tveimur útvarpsrásum inná markaði þar sem aðrar stöðvar þurfa að byggja afkomu sína alfar- ið á auglýsingatekjum og fijálsri áskrift. Það má hugsa sér og er í raun eðlilegra að taka þessa skyldu af RÚV og afhenda Pósti og síma. Skyldan sem slík er í raun sala á dreifingu útvarps- og sjónvarpsefn- is. Og allir aðilar ættu að geta set- ið við sama borð og keypt aðgang að dreifingunni. Að lokum þetta, nú þegar út- varpslaganefnd situr á rökstólum Kristín A. Jónsdóttir „Dytti einhverjum í hug að skylda bókakaup- endur til að greiða fyrir „ríkisútgefna“ bók fyrst?“ og er að reyna að semja ný lög, þá finnst okkur einkennilegt að for- maður hennar skuli segja í viðtali við fjölmiðla að þetta séu ekki að- eins viðskiptaleg rök sem þarna þurfi að koma til. Hann segir það líka vera spurningu um menningar- legt gildi. Er ekki eðlilegt að lista- menn hafi aðgang að ljósvakamiðl- um á sama hátt og rithöfundar hafa að útgáfufyrirtækjum? Dytti einhveijum í hug að skylda bó- kakaupendur til að greiða fyrir „rík- isútgefna“ bók fyrst, áður en þeir gætu keypt bók af óháðu útgáfufyr- irtæki? Það eru til mýmörg dæmi um sambærilega hluti þar sem við myndum telja fáránlegt að ætla að skylda kaupendur til að greiða fyrst fyrir ríkisútgáfuna áður en við gætum keypt það sem okkur langar í. Dæmið sem forsætisráðherra, Davíð Oddsson, sagði frá í viðtals- þætti hjá Stöð 2 þekkja allir. Við í áhugahópi um fijálsa áskrift að RÚV viljum eindregið hvetja nefndarmenn útvarpslaga- nefndar og alþingismenn alla til að opna nú hug sinn og veita sann- girniskröfu okkar brautargengi. Við viljum hvetja alla sem áhuga hafa á máli þessu til að mæta á stofn- fund samtakanna 24. febrúar á. Holiday Inn kl. 20.30. Höfundur er tnlsmaður áhuga- hóps um frjálst val á áskrift að RUV. Hver heimsækir kírópraktorinn? eftír Tryggva Jónsson Á starfsferli sem kírópraktor undanfarna tæpa tvo áratugi hefur oft komið upp sú spurning hvað hægt er að kanna í heimsóknum gigtsjúkra til kírópraktormeðferð- ar. Úndanfarin ár hefur sjaldnast verið tími áð sinna slíkum málefn- um. Að gefnu tilefni tók ég saman ákveðið úrtak einstaklinga í núm- eraröð til að sjá hvernig fólk dreif- ist í starfsflokka sem kemur til meðferðar á stofu mína vegna gigt- ar í hrygg. Niðurstöðurnar eru í samræmi við íslenskan starfalykil unninn af Hagstofu íslands. Flesta sjúklinga má flokka með stoðkerf- iskvörtun í efra- eða neðrabaki. Hjá skjólstæðingum mínum eru helm- ingi fleiri kvartanir á vanda í neðra- baki en kvartanir á vanda í efra- baki. Algengasti starfshópurinn sem sækir mig heim á tímabilinu er þjónustu-, sölu- og afgreiðslu- fólk. Starfsfólk sem tilheyrir stétt- um tækna og sérmenntaðs starfs- fólks, sérhæfðs starfsfólks í iðnaði, sérfræðinga og skrifstofufólks eru algengir sjúklingar á stofu minni en kjörnir fulltrúar, æðstu embætt- ismenn og stjórnendur, bændur og fiskimenn, véla- og vélgæslufólk og ósérhæft starfsfólk kemur sjaldnar til meðferðar. Þá má einnig geta þess að ellilífeyrisþegar, skólafólk og öryrkjar heimsækja stofu mína. Er þá forvitnilegt að rýna í kyn- skiptingu allra einstaklinganna í úrtakinu. í ljós kemur að 63% eru kvenkyns og 37% eru karlkyns. Ekki fær þó greinarhöfundur séð skýringu á skiptingu kynjanna í þessu samhengi þar sem vinnuálag, svefnvenjur, áhersla á líkamsrækt og matarvenjur eru svipaðar hjá báðum kynjum. Aldursdreifing sjúklinga sem koma til kírópraktorsins bendir ein- dregið á þá staðreynd að algengast er að vinnandi fólk kemur til með- ferðar og er mikill meirihluti á aldr- inum 20-50 ára, eldri einstaklingar eru færri. Skjólstæðingar mínir lýsa gjarn- an stirðleika og spennu í efra- eða neðrabaki eða hvorutveggja, bólgu- verkjum í vöðvafestum eða liðbönd- um sem veldur sársauka í hrygg. Starfsfólk í álagsvinnu lýsir oft sársauka og óeðlilegri spennu og stirðleika í neðrabaki hvort sem er í hreyfingu eða kyrrstöðu, einnig segir það frá tímabilum af svefn- ieysi eða morgungigt. Skrifstofu- fólk lýsir gjarnan sársauka og strengjum í efrabaki sem koma af langsetum við vinnu, einnig höfuð- verkjum og jafnvel ógleði eða svima. Af þeim slitgigtareinkennum sem einstaklingar lýsa á ferli með- ferðarinnar og könnunin nær til er athyglisvert að flestir skjólstæðing- ar mínir lýsa á meðferðartímanum rénun á spennu og sársauka í hrygg. Vissulega gefur það vísbendingu um nánari rannsókn á þeirri end- ingu sem stutt meðferð nær til. Fleiri en helmingur skjólstæðinga minna eru aðeins um einn mánuð í meðferð. Útkoman úr kírópraktor- meðferð við slitgigtaeinkennum í hrygg er mjög viðunandi þegar litið er til tveggja þátta í meðferðarút- komu. Annars vegar þar sem á könnunni sést að rúmur helmingur skjólstæðinga minna er sæmilega góður við útskrift og rúmur þriðj- ungur er sæmilegur. Hins vegar koma sjúklingar að meðaltali í sjö skipti í meðferð. Meðferðarskiptin eru áberandi fá miðað við aðra gigt- arþjónustu á landinu. Vísir að end- urgreiðslukerfi er nú kominn í gagnið. Sumir sjúkrasjóðir verka- lýðsfélaga innan ASÍ greiða nú Tryggvi Jónsson „Hjá skjólstæðingum mínum eru helmingi fleiri kvartanir á vanda í neðrabaki en kvartan- ir á vanda í efrabaki.“ hluta meðferðar sambærilegum nið- urgreiðslum og við meðferð í sjúkraþjálfun. Enn sem komið er hefur enginn samningur verið gerð- ur á milli Kírópraktorafélags ís- lands og Tryggingastofnunar ríkis- ins. Höfundur er kírópraktor með takmarkað lækningaleyfi frá 1978 og starfar í Reykja vík. Einstaklingskeppni í norrænni skóla- skák hefst í dag HIN árlega einstaklingskeppni í norrænni skólaskák fer fram í Espoo í Finnlandi dagana 24.-27. febrúar. Keppni þessi er ein af fjórum árlegum Norðurlandamótum í skólaskák sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndunum. Að þessu sinni munu eftirtaldir Kjeld, TR, D-flokkur (f. skákmenn tefla fyrir Islands hönd: A-flokkur (f. 1974-76): Sigur- björn Björnsson, S.H., og Magnús Örn Úlfarsson. B-flokkur (f. 1977-78): Helgi Áss Grétarsson, TR, og Arnar E. Gunnarsson, TR, C-flokkur (f. 1979-80): Jón Vikt- or Gunnarsson, TR, og Matthías 1981-82): Bragi Þorfinsson, TR, og Bergsteinn Einarsson, TR, E-flokkur (f. 1983 og síðar): Sig- urður Páll Steindórsson, TR, og Hjalti Rúnar Ómarsson, TK, Far- arstjórar verða Ólafur H. Ólafsson og Ríkharður Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.