Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 14

Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 1994 Ingólfsstyttan 1 Reykjavík 70 ára eftir Gissur Símonarson Fyrir sjötíu árum var styttan af Ingólfi Arnarsyni afhjúpuð á Amarhóli. Það var Iðnaðarmanna- félagið í Reykjavík, sefn stóð fyrir því að gera afsteypu af frummynd Einars Jónssonar myndhöggvara og afhenda hana íslensku þjóðinni til eignar og varðveislu. Af þessu tilefni er ekki úr vegi að rifja upp í stórum dráttum söguna um Ing- ólfsstyttuna á Amarhóli. Sigurður málari hafði upphaf- lega hreyft þessari hugmynd í „Kveldfélaginu" svonefnda árið 1863. Hugmynd hans var að minn- ismerki Ingólfs yrði fullgert 1874 og því yrði komið fyrir á Arnar- hóli til minningar um þúsund ára byggð á íslandi. Á sínum tíma gerði Sigurður skissur af minnis- merki Ingólfs og fyrirkomulagi Amarhóls, eins og hann hugsaði sér þessa framkvæmd. í sambandi við heimsókn ís- lenskra þingmanna til Danmerkur árið 1906 hafði komið fram sú hugmynd að ríkisþingið danska gæfi íslendingum eirsteypu af hinni frægu Jasonarstyttu Alberts Thorvaldsens og skyldi hún standa á Austurvelli. Fljótt kom þó fram önnur tillaga í sumum dönsku blaðanna, sem sé, að gefa skyldi standmynd af Ingólfi Arn- arsyni eftir Einar Jónsson, en Einar hafði þá gert frumdrög að sh'kri mynd og birtist mynd af frumgerðinni í dönskum blöðum. íslensku blöðin fylgdust vel með þessu og fluttu af því fréttir. Á fundi í Iðnaðarmannafélaginu um miðjan september árið 1906 kom fram tillaga frá Jóni Halldórs- syni um að félagið gengist fyrir því að koma upp standmynd af fyrsta landnámsmanninum Ingólfi Árnarsyni. Kostnaður við myndina var áætlaður 20 þúsund eða 175 kýrverð. Allir sem til máls tóku voru meðmæltir hugmyndinni og minntust þess ekki, að nokkurt mál í félaginu hefði mætt þvílíkum einhug sem þetta. Til að annast allar framkvæmdir fyrir hönd fé- lagsins var kosin svokölluð Ing- ólfsnefnd og hlutu sæti í henni: Jón Halldórsson, Magnús Benjam- ínsson, Magnús Th. Blöndahl, Sveinn Jónsson og Knud Zimsen. Samþykkt var að félagið veitti tvö þúsund krónur til gerðar styttunn- ar. Að lokum var samþykkt að senda Einari svohljóðandi skeyti: „Iðnaðarmannafélagið gengst fyrir fjársöfnun til Ingólfsmyndar þinnar. Starfaðu öruggur." Skeyti þetta var sent 29. septem- ber 1906 eða sama daginn og rit- síminn var opnaður og var það fyrsta almenna símskeytið, sem sent var. Ekki er það ætlun mín að rekja hér sögu Ingólfsnefndar. Um það má lesa í endurminningum Knuds Zimsens „Við fjörð og vík“ og ennfremur í Sögu Iðnaðar- mannafélagsins í Reykjavík. í henni segir meðal annars: Sunnudaginn 24. febrúar 1924 var gott veður, hlýtt í lofti og austan andvari. Laust fyrir klukk- an þijú komu iðnaðarmenn í fylk- ingu upp á Arnarhól, en þar var Gissur Símonarson. „Vonandi fær Ingólfs- styttan að standa þarna um ókomna tíma, lands- mönnum öllum til ánægju. Hún er og verður sameign ís- lensku þjóðarinnar um aldur og ævi.“ þá fjölmenni fyrir. Leikið var á hom, ísland farsældar frón, en síðan sungið kvæði eftir Kjartan Ólafsson með nýju lagi eftir Svein- björn Sveinbjörnsson. Þá flutti Knud Zimsen borgar- stjóri ræðu um Ingólf og sagði sögu líkneskisins. Því næst gekk formaður félagsins, Jón Halldórs- son, upphafsmaður málsins, upp á fótstall líkneskisins, svipti hjúpn- um af því og afhenti landinu gjöf- ina með stuttri ræðu. Hann sagði m.a.: „Háttvirta ríkisstjóm! Ég af- hendi yður nú þessa mynd, frá Iðn- aðarmannafélagi Reykjavíkur, þessu landi og þessari þjóð til eign- ar og umráða; gerið svo vel og takið á móti henni, vemdið hana frá árásum eyðileggingarinnar, að svo miklu leyti sem í ykkar valdi stendur." Forsætisráðherra, Sigurður Eggertz, þakkaði gjöfina með ræðu og minntist Einars Jónsson- ar. Því næst var leikið á horn lag Páls ísólfssonar við kvæði Þor- steins Gíslasonar er hann hafði ort í tilefni dagsins og birtist í Morg- ur.blaðinu þann dag. Síðast var þjóðsöngurinn sunginn af öllum mannfjöldanum. Klukkan sjö um kvöldið hófst í Iðnó veisla, er félagið bauð til, og sátu hana á annað hundrað manns. Knud Zimsen sagði þar nánar sögu Ingólfsstyttunnar og þakkaði öll- um sem hlut áttu að máli. Forsæt- isráðherra mælti fyrir minni fé- lagsins og_ sagði ágrip af sögu þess. Jón Árnason prentari mælti fyrir minni nefndarinnar og kom m.a. fram í ræðu hans, að í janúar 1923 hefði komið hingað danskur gipssteypari, sem gerði mót af styttunni og voru þau fullgerð og send utan 24. apríl sama ár. Voru þar gerð sandmót fyrir eirsteyp- una og kom hún hingað fullgerð í lok nóvember. Kostnaður við gipsmótið varð 6.000 kr., eða hálfu meira en áætlað var, og eirsteypan kostaði 15 þúsund. Alls taldi hann kostnaðinn nema um 40 þúsund- um króna og mest af því hefði Iðnaðarmannafélagið gefið úr sjóðum sínum. Helgi H. Eiríksson mælti fyrir minni kvenna. Kjartan Ólafsson las kvæði til félagsins, sem fyrr er getið. Bjarni Jónsson flutti kveðju Einars bróður síns og Knud Zimsen las upp kveðjuskeyti frá honum og annað frá Sveini Björns- syni sendiherra með heillaóskum til félagsins og Ingólfsnefndarinn- ar. Þá töluðu Sveinn Jónsson, Magnús Benjamínsson og Guð- mundur Gamalíelsson. Klemens Jónsson atvinnumálaráðherra MEÐAL ANNARRA ORÐA HANNES eftir Njörð P. Njarðvík Þótt ýmislegt megi setja út á fyrirkomulag íslensku bók- menntaverðlaunanna, bæði hvemig bækur eru tilnefndar og hvemig dómnefndir eru valdar, þá hefur engu að síður svo vel tekist til, að þau hafa enn sem komið er ratað til höfunda, sem standi fyllilega undir slíkri veg- semd. Nú síðast til Hannesar Pét- urssonar fyrir ljóðabókina Eldhyl- ur, og er það raunar svo sjálf- sagt, að enginn vafi gat leikið á, hver hlyti verðlaunin að þessu sinni. Hannes er eitt áhrifamesta skáld samtíðar sinnar, og Eldhyl- • ur markar enn ný tímamót í glæsi- legum skáldferli hans. Huldan í dalnum Árið 1955 komu út tvær ljóðabækur, sem standa líkt og vörður á leið ísjenskrar ljóðagerð- ar á 20. öld. Önnur er Sjödægra Jóhannesar úr Kötlum, og með henni gekk eitt helsta skáld þjóð- arinnar til liðs við formbyltingar- mennina með eftirminnilegum hætti. Viðskilnaði sínum við hefð- bundinn brag lýsir hann í ljóðinu Rímþjóð, og segir: Loks opnaðist veröldin mikla, og huldan steig fijáls út úr dalnum. Hin bókin er Kvæðabók Hann- esar Péturssonar, fyrsta ljóðabók ungs höfundar, sem tekið var með miklum fögnuði, enda sleginn nýr og ferskur tónn. Næst fremsta ljóð bókarinnar hefst þannig: Bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu heiður er þinn vorhiminn hljóðar eru nætur þínar létt falla öldumar að innskeijum - hvit era tröf þeirra Þótt huldan hafi stigið frjáls út úr dalnum, þá á hún þar samt heima. Hannes kemur fram á tímamótum þar sem íslensk ljóð- list hefur brotist úr fjötrum, hin ófijóu átök um bragform eru í raun að baki. Frelsið er einnig fólgið í því að geta notað jöfnum höndum hið fijálslegra form og eigindir bragsins á persónulegan hátt. Atómskáldin forðuðust vís- anir í Ijóðum sínum, vildu að það Iifði í eins konar tímalausu andar- taki. Hannes var hins vegar frá upphafi umfram allt íslenskur í Ijóðum sínum, óijúfanlega tengd- ur hinni sönnu þrenningu, er Snorri Hjartarson orðaði svo vel: landi, þjóð og tungu. Landið sjálft, lifandi og síungt, þjóðsögur, bók- menntir, sagan sjálf, allt sem þjóðin man og varðveist hefur, þetta er hinn mikli fjársjóður þangað sem Hannes sækir í senn efnivið sinn og viðmiðanir. — Og vinnur úr á einkar persónulegan hátt. Staður, sögn, innra fyrirbæri Við getum tekið sem dæmi Ijóðið Drangey í Stundum og stöðum frá 1962. Yfírborðsmynd Ijóðsins er hin tignarlega klettaeyja, sem Hannes hefur haft fyrir augum í æsku, og vísun er til þjóðsögunnar um óvættina í Heiðnabergi, þar sem Guðmundur biskup góði hætti vígslu sinni. En þema Ijóðsins er hin illu öfl sem búa innra með manninum og bijótast fram þegar minnst varir, líkt og í sögninni um eyjuna: Oft þá varist sízt og sólin til þín siglir rauðum voðum, úr hafi stigin og lyftist þú í ljós morgunsins, tigin - birtist hið illa, brýtur upp klettana. Skín hið brýnda vopn sem digrar krumlur hampa. Slær um iðandi björgin beittum glampa. Þannig er staðurinn og sögn bundin staðnum tvinnuð saman til að flytja lesandanum áþreifanlega mynd af innra fyrirbæri sem á sér ekki neina áþreifanlega mynd. Einmitt þetta hefur verið einkenni á ljóðagerð Hannesar — þar vegast á „söngur hjartans og hin kalda skynsemi" eins og Jón úr Vör komst einhveiju sinni að orði. Evrópa enda hér Þótt hér hafi verið lögð mikil áhersla á hinn séríslenska þátt í ljóðum Hannesar Péturssonar, þá má ekki nema staðar við slíka einföldun. Hannes hefur farið vítt um Evrópu og sótt sér ljóðföng í stundir og staði þeirrar víðfeðmu hugmyndasögu sem álfa okkar geymir. Evrópa endar hér, eins og segir í einu ljóði, en um leið er bent á hvar við eigum heima, í menningarlegum skilningi. Það er í senn húmanísk víðsýni og innri íhygli sem einkennir ljóðferil Hannesar, sífelld leit menntaðs skálds að öruggri fótfestu í ólgu samtímans, að raunverulegum kjarna undir því hismi stærilætis, sjálfréttlætingar og hégómaskapar, sem við höfum fyrir augum og eyrum dag hvern. Hnitmiðun Ijóðsins krefst hófstilltrar ögunar í hugsun, ögunar sem hefur jafnan efann að leiðarljósi í leit sinni að sannleika. Einmitt þannig vildi ég lýsa ljóðagerð Hannesar. Heimkynni við sjó Hér gefst auðvitað ekki tóm til að lýsa ferli hans í tíu ljóðabókum. Ef til vill má segja að þróunin hafi leitt til einföldunar í formi, en jafnframt til dýpri hugsunar. Ékki verður hjá því komist að staldra við bókina Heimkynni við sjó, sem kom út 1980. Skáldið gengur um Álftanesið, virðir fyrir sér hversdagsmyndir fjöru, hafs og himins og finnur sér stað í tilverunni, sköpunarverkinu, — verður með einkennilegum hætti eins konar miðdepill tilverunnar, eðlilegur hluti umhverfisins og jafnframt eins konar rödd náttúrunnar í ytri og innri skilningi. Skýrt dæmi um það er síðasta ljóð bókarinnar, er beinir hugsuninni að hinstu rökum: Ei hálfa leið nær hugsun mín til þín. Ég skynja þig en ég skii þig ekki. Afneitun mín og hik er ígrandun um þig. Mín innsta hugsun er á heimferð til þín — og þó innan þín sem ert allar strendur. Mislengi er iíf vort í hafi. Eldhylur Verðlaunabókin Eldhylur kom út á liðnu hausti eftir 10 ára hlé, og markar að ýmsu leyti enn eina breytingu á skáldferli Hannesar. Þijú löng kvæði bera bókina uppi líkt og súlur eða máttarstoðir: í upphafi, miðju og að lokum. Þetta eru orðmeiri kvæði en fyrri ljóð Hannesar, spanna stærri vef, og hefjast á prósainngangi sem markar aðstæður, og tvö þeirra eru fleyguð slíkum prósainnskotum. Þetta kann mönnum að finnast nýjung, en þeir kannast við slíkt sem ekki hafa gleymt eddukvæðum. Þessi þijú ljóð tengjast eins konar þrenningu sem er landið, þjóðin (sagan) og — sálin. Mestu skipta að minni hyggju upphafsljóðið Vorgestur og lokaljóðið Talað við einhyrning. Vorgesturinn er listaskáldið góða er stígur fram úr koparstyttu sinni í júní 1944 og ávarpar ungmenni. Ljóst er af orðum hans, að sú þjóð er hann þar sér er ekki sú þjóð er Fjölnismenn dreymdi um. Áfellisorð hans eru þung, en birtir hafin þá von að þjóðin muni þrátt fyrir allt láta drauminn rætast. Einhyrningurinn er alþekkt Kriststákn á miðöldum, og ekki fer á milli mála að það er Kristur er birtist hinu aldna skáldi „um víðan veg innan úr birtu sólar“. Kjarni ljóðsins felst í ávarpsorðum skáldsins, er hann sér Einhyrninginn, og eru endurtekin í lokin: Þig átti ég að bróður í þagnarljósi bamshjarta míns. En þig missti ég og þín er ég að leita, sífellt... Þannig er leit skáldsins með efann sér við hlið á þeirri leið er sveigist óhjákvæmilega og líkt og óafvitandi til upphafs síns. Höfundur er rithöfundur og prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.