Morgunblaðið - 24.02.1994, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
Ptor&mmMwÖÍÖ
UJjJUJuL£Jl
Veist þú
að í Gagnasafni
Morgunblaðsins
er að flnna
greinarogfréttir
um JAFNRÉTTI
03
Framkvæmdaáætlun um
iafhrétti kynjanna:
Hlutur kvenna í nefndum
í og ráðum verði aukinn
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, hefur kynnt skýrslu
um framkvæmdaáætlun rfkisstjórn-
arinnar til fjöguna ára um að gerð-
ir til að ná fram jafhrétti kynjanna.
| - Morgunblaðið 12. mars 1991
Skilningur á mikilvægi
jafnréttis kynja fer vax-
andi ár frá ári þó svo að
launamálin hafi lítið
| lagast
Ellefu kærur bárust kærunefnd
% iafnréttismála á árinu 1993, eða
um helmingi færri en árið á
* undan, þegar alls barst 21 kæra
vegna meints brots á jafnréttis-
| lögunum, þar af voru sjö aftur-
I kallaðar, en aldrei hafa jafh-
| margar kærur borist á einu ári
ogþá.
% - Morgunblaðið 14. janúar 1994
Evrópuþingið:
Tillaga um nýtt kvennaár
Brussel.frá Krislófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Þingmenn á þingi Evrópubanda-
lagsins í Strassborg hafa skorað á
framkvæmdastjóm bandalagsins
að beita sér fyrir því í samvinnu
við Evrópuráðið og OECD, að
árið 1989 verði helgað baráttu
fyrir auknu iafnrétti karla og
kvenna í menntun og
starfsþjálfun.
- Morgunblaðið ló.júlí 1988
Hvort sem er vegna starfa eöa
áhugamála getur áskrift aö
Gagnasafnl Morgunblaösfns
komiö aö góöu gagni.
Allir sem eiga einmenningstölvu
geta oröiö áskrifendur og nýtt
sér þær upplýsingar sem eru í
gagnasafninu.
Hægt er að leita í safninu eftir
oröum, nöfnum, dagsetningum,
höfundum ofl. ofl.
Allar upplýsingar veitlr
Strengur hf. í síma 624700
eöa 685130.
STRENGUR hí.
Hagkaup selur
Vita Verde-kvenfatnað
VERSLUN Hagkaups í Kringlunni hefur hafið sölu á Vita Verde-
kvenfatnaði frá danska fyrirtækinu Bestseller. Svala Ólafsdóttir,
innkaupamaður í dömudeild, segir að um sé að ræða frjálslegan tísku-
fatnað fyrir konur á öllum aldri.
Svala sagði að Bestseller væri
með verksmiðjur víða um heim og
framleiddi m.a. fatnað fyrir Vera
Moda. Verð í þeim verslunum væri
lágt en stefnt væri að enn lægra
vöruverði í Hagkaup.
Hún sagði að nýr fatnaður í hóf-
legu upplagi myndi berast í verslun-
SS selur innmat
fyrir gæludýrafóður
SAMNINGAVIÐRÆÐUR um
kaup fjölþjóðafyrirtækisins Ped-
igree Petfoods á innmat frá Slát-
urfélagi Suðurlands eru á loka-
stigi. Steinþór Skúlason, forstjóri
Sláturfélagsins, segist vona að
hægt verði að hefja útflutning í
vor. Hann áætlar að 20 til 40
tonn fari út á þessu ári. Hins
vegar segir hann söluverð ekki
endanlega frágengið.
Steinþór sagði að í framhaldi af
innflutningi á Pedigree-hundamat
og Wiskas-kattamat hefði komið
upp sú hugmynd hvort nýta mætti
viðskiptatengslin og selja fyrirtæk-
inu hráefni. Viðræður hefðu hafist
í árslok 1992 og væru nú á loka-
stigi.
Hann sagði að um væri að ræða
innmat, t.d. lungu og vélindu úr
hefðbundnum sláturdýrum, nýru úr
öðrum sláturdýrum en sauðfé og
lifur og hluta úr maga 'af nautgrip-
um. Innmaturinn hefur annars veg-
ar verið urðaður, og hefur kostnað-
ur við urðunina verið 2-3 kr. fyrir
hvert kíló, og hins vegar verið nýtt-
ur í loðdýrafóður og 5 kr. fengist
fyrir kg. Alls fellur til um 100 tonn
af innmati að þessu tagi á landinu
öllu ár hvert.
Kröfuharðir kaupendur
Aðspurður sagði Steinþór erfitt
Léttreyktur og
soðinn Holtakjúklingur
í GÆR kom á markaðinn létt-
reyktur og soðinn kjúklingur.
Um er að ræða vöru frá Reykja-
garði hf., svokallaðan Holta-
kjúkling.
Geymsluþol er hálfur mánuður.
Kjúklingurinn er ófrosinn og því
kæliværa. Hann er tilbúinn til
neyslu, það má skera hann niður
í salöt, pottrétti eða hita upp í
ofni eða örbylgjuofni. Kílóverðið
er 799 krónur í Hagkaup. ■
að segja til um hversu mikið af því
væri hæft til útflutnings og hann
lagði áherslu á að kaupendurnir
væri kröfuharðir um hráefni. Hins
vegar áætlaði hann að á bilinu 20
til 40 tonn færu út á þessu ári og
ykist magnið væntanlega í framtíð-
inni. Hann sagði að markmiðið með
útflutningnum væri að skapa aukin
verðmæti og auknar gjaldeyristekj-
ur. ■
SS með
einkaleyfi á
JL Quality Foods
SLÁTURFÉLAG Suðurlands
hefur fest kaup á einkaleyfi
til framleiðslu og sölu á vör-
um sem JL Quality Foods í
Bretlandi hefur þróað.
Einkaleyfíð var í eigu Mark-
lands hf.
Eftir 1. mars býður SS við-
skiptavinum sínum því New
Yorkers-hamborgara, einn og
fleiri í pakka, og bama New
Yorkers-hamborgara, einn og
sex í pakka. ■
ina á tveggja til þriggja vikna fresti
og væri fyrsta sendingin þegar
komin. í henni væru m.a. bolir,
vesti, skyrtur, gallabuxur og jakkar
fýrir vorið og ættu allar konur að
finna þama eitthvað við sitt hæfi.
Af hverju kostar
rúmlega fimm þúsund
að færa símanúmer milli húsa?
ÞAÐ kostar 5.322 krónur að
flytja síma á milli húsa svo
framarlega sem flutningurinn
er innan sama símstöðvarsvæð-
is.
Að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur,
upplýsingafulltrúa hjá Pósti og
síma, liggur mismikil vinna á bak
við flutning hveiju sinni en símnot-
endur greiða hins vegar þetta jafn-
aðárgjald sem er ákveðið í gjald-
skrá sem samgönguráðherra gefur
út. Þessi greiðsla er fýrir breyting-
ar á tölvuskráningu og tengingu
nýja númersins og aftengingu þess
gamla. Tengingin er gerð í við-
komandi símstöð og tekur stuttan
tíma ef vitað er hvaða númer var
fyrir á nýja staðnum. Ef það er
ekki vitað eða ef verið er að tengja
Innflutningur á vél
sem skúrar og skrúbbar
HÚN HEITIR
Svopper og
kostar tæplega
80 þúsund
krónur.
Eggert Ólafs-
son hefur hafið
innflutning á
sænskum
þveglavélum,
sem hann kynn-
ir í fyrirtækjum
og heimahús-
um. í samtali
við Daglegt líf
sagði Eggert að
vélin gengi fyrir
rafhlöðu sem
hlaðin væri í þar
til gerðu hleðslutæki og entist
hver rafhlaða í klukkustund í einu.
„Einn lítri af vatni er settur í vél-
ina og sá þvegill sem hentar þeim
gólffleti sem ætlunin er að þvo
Frædagar
í Blómavali
SÁNINGATÍMINN er nú að
ganga í garð og bera fræhillur
blómaverslana nú þess merki.
Svokallaðir frædagar byija í
Blómavali í dag og standa fram
á sunnudag.
Á meðan á þeim stendur mun
Hafsteinn Hafliðason sýna við-
skiptavinum réttu handtökin og
svara fyrirspurnum um fræ og sán-
ingu, en nú er rétti tíminn til að sá
fyrir vinsælustu sumarblómunum,
svo sem eins og stjúpum og petún-
íum. í tilefni frædaga verður
Blómaval með lagerhreinsun á ýmiss
konar sáðvörum og bökkúm. ■
Mexíkóskir
dagar hefjast
á Hótel Loftleiðum
Á morgun hefjast Mexíkósk-
ir dagar á Hótel Loftleiðum.
Hilda Torres og Angelica
Cantu frá Mexíkó ráða ríkjum
í eldhúsinu og gítarleikararnir
Patricio og Enrici ætla að leika
fyrir gesti. Dansmærin Rosa
Torres mun dansa. Mexíkóskir
drykkir verða á boðstólum.
Mexíkósku dögunum lýkur 6.
mars. ■
hveiju sinni. Með vélinni er hægt
að skúra allar tegundir gólfefna
auk þess að yfirborðshreinsa
teppi.“ ■
númer í fyrsta sinn í húsnæðinu
þarf hins vegar að senda mann á
staðinn til að tengja í götuskápum
og í húskassa. ■
i
>
>
>
I
í
>
»
b