Morgunblaðið - 24.02.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
43
BANDARIKIN
Dóttir Reagans
segir foreldrana vanhæfa
Nancy og Ronald Reagan meðan þau bjuggu í Hvíta húsinu. Dóttir
þeirra, Patti, er um þessar mundir á fyrirlestraferðalagi, þar sem
hún segir m.a. frá því að móðir sín hafi lamið sig og að faðir sinn
hafi neitað að viðurkenna staðreyndir málsins.
Los Angeles. The Daily Telegraph.
Patti Davis, dóttir Ronalds og
Nancy Reagan, fyrrverandi
forsetahjóna Bandaríkjanna, er nú
á fyrirlestraferðalagi um Bandarík-
in, þar sem hún dregur upp heldur
dökka mynd af foreldrum sínum. í
fyrirlestrunum lýsir Davis því
hvernig sömu vandamál komu upp
hjá Reagan-hjónunum í barnaupp-
eldinu og við stjórn landsins og
segir hún foreldra sína hafa verið
„vanhæfa“.
Fyrirlestrarnir bera yfirskriftina
„Að ná sér eftir að alast upp hjá
vanhæfum foreldrum“ og greiða
áhorfendur 40 dali, tæpar 3.000
krónur, fyrir að hlýða á þá.
Áhorfendur hlýða m.a. á Davis
segja frá því er móðir hennar barði
hana í æsku og að faðir sinn hafi
neitað að viðurkenna hvað hafi
gerst. Að sögn Davis urðu óeirðirn-
ar í Los Angeles vegna þess að
faðir hennar hafði „afneitað" þeim
vanda sem steðjaði að í borginni á
sama hátt og hann „afneitaði" þeim
vandamálum sem börn hans áttu
við að stríða. Stjórn hans á níunda
áratugnum hafi átt sök á að óeirð-
irnar brutust út áratug síðar.
Þegar íran-kontramálið kom upp
segir Davis að viðbrögð föður síns
hafi minnt sig sterklega á viðbrögð
hans heima fyrir. „Iran-kontra var
stækkuð mynd af heimilislífi okk-
ar,“ segir hún. „Allt snerist um að
fela það sem gerðist á bak við lukt-
ar dyr. Fólki var sagt að halda sér
saman eða breyta frásögnum sín-
um. Þannig var tekist á við allt það
sem foreldrum mínum þótti óþægi-
legt. Faðir minn brást við íran-
kontra-hneykslinu á sama hátt og
þegar ég sagði honum að mamma
hefði barið mig árum saman. Hann
hreinlega trúði því ekki sem gerst
hafði.“
I fyrirlestrum sínum mælir Davis
með fyrirgefningu til að ná bata.
Segist hún ekki aðeins hafa fyrir-
gefið foreldrum sínum heldur einnig
náð sáttum við þau. Hún segist nú
sjá að vandamál föður síns hafi
fyrst og fremst verið það að hann
hafi átt erfitt með að lýsa tilfinning-
um sínum, fremur en að hann hafi
verið eigingjarn og fjarlægur. Hún
segist nú hafa samúð með móður
sinni og telur hana hafa verið
hrædda en ekki kaldlynda og
grimma. Hún hafi fundið öryggi í
því að stjórna fólki.
Patti Davis hefur skrifað þrjár
sjálfsævisögulegar skáldsögur og
eigin ævisögu. Hún viðurkennir fús-
lega að hún hafi verið harðlega
gagnrýnd fyrir að skrifa um innstu
leyndarmál fjölskyldunnar en
kveðst telja að hún hafi ekki gert
neitt óheiðarlegt. Ætlun hennar
, hafi ekki verið að særa fólk, heldur
beri henni skylda til að deila þess-
ari erfiðu lífsreynslu með öðrum.
Arið
Afmœlis'
veisla fyrir
aðeins:
krónur
var veitingarekstur
hafinn í Naustinu
Nú bjóðum við þér að velja þríréttaða máltíð a£ sérstökum
afmælismatseðli fyrir aðeins 1954 kr. A honum er að finnaýmsa
þekkta rétti sem lögðu grunninn að varanlegum vinsældum staðarins.
nfanJ'
tóndstlUn
Veitingahúsið Naust
—19 9
Borðapantanir í síma 17759
TILBOÐ
íslenskar bækur á tilboði:
Látum steinana tala....kr. 1.595
Vígslan.................kr. 990
Hendur Ijóssins........kr. 1.995
Boðberar Ijóssins......kr. 990
Carola.................kr. 990
Bókin um veginn........kr. 990
■ Draumar...............kr. 490
Yoga heimspekibækurnar..kr. 600
Leitin inn á við.......kr. 990
Auktu styrk þinn.......kr. 990
Ástin og stjörnumerkin.kr. 590
Mikael handbókin...........kr. 990
Mörg líf, margir meistarar.kr. 990
Heilsufæði.............kr. 980
Forlagaspá Kiros..... kr. 500
- og margar fleiri.
Valdir titlar af erlendum bókum
með 40% afslætti.
TILBOÐ á snældum, snyrtivörum
og nuddolíum.
M0NDIAL orkujöfnunararmböndin
með 25% afslætti
ÞESSI AFSLÁTTARTILBOÐ GILDA
FRAM í MIÐJAN MARS Borgarkringlunni,
sími 811380
Póstkröfuþjónusta - Greiðslukortaþjónusta
ilsts
H
.
Það styttist í 1. ma
/
Tryggðu
sumarleyfisferðina '94
á lága verðinu.
BORCAÐU FERÐINA FYRIR VERÐTIL
28. FEBRÚAR OC NÝTTU ÞÉR 28. FEB.
EINSTAKT VERf>.
KAUP/AANNAHÖFN 23.900
ÓSLÓ 23.900
STOKKHÓLMUR 25.900
ÚAUTABORC*** 25.900
FÆREYJAR 14^00*
LONDON 23.900*
CLASCOW 17.900*
AMSTERDAM 23.900*
LÚXEMBORC 25.900*
PARÍS FRÁ 28/4 1994 25.900*
HAMBORG 25.900*
FRANKFURT 27.900*
VÍN FRÁ 25/6 1994 27.900*
ZURICH FRÁ 7/5 1994 27.900*
MÍLANÓ FRÁ 16/7 1994 27.900*
BARCELONA frá 17/6 1994 27.900*
VERÐFRA
1./ÁARSTII
30.APRÍL
26.900
26.900
27.900
27.900
15.900*
26.900*
20.900*
26.900*
27.900*
27.900*
27.900*
29.900*
29.900*
29.900*
29.900*
29.900*
Ferðir skulu farnar á tímabilinu 15. apríl
til 30. september 1994. Lágmarksdvöl 7 dagar.
Hámarksdvöl 1 mánuður. Ákveðnir brottfarardagar.
Bókunarfyrirvari 21 dagur. Staðfestingargjald er 5.000 kr.
* Veið gildir eingöngu í beinu flugi Flugleiða.
**Miðað við tvo fuliorðna og tvö böm (2ja-l 1 ára). Ferð keypt fyrir
***Flogið til Kaupmannahafnar og áfram með SAS.
Flugvallarskattar eru ekki innifaldir í verði.
ísland 1.310 kr., Þýskaland 255 kr., Danmörk 710 kr.,
Holland 245 kr., ftalía 595 kr., Frakkland 215 kr.,
Noregur 590 kr., Færeyjar 3.270 kr.
Hafðu samband við söluskrifstofur
okkar, umboðsmenn um allt land,
ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18).
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskurferðafélagi