Morgunblaðið - 24.02.1994, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
51
Konur eru öngfvar kýr
Frá Einari Ingva Magnússyni:
Ef einhver fer til hjúkrunarfræð-
ings í enskumælandi landi, er eins
möguleiki á því að fræðingurinn
sé kvenkyns eins og karlkyns. Þar
getur hann verið hún. Kyngrein-
ingu er ekki hægt að koma auga á
í þessu tilviki í enskri tungu. Þann-
ig er einnig að verða hér á Is-
landi, þó tungumálið bjóði upp á
allt annað og betra.
íslenskan er það „fullkomið"
mál, að sem betur fer gerir hún
fólki auðveldara að skilja hvaða
hugtök í málinu þýða og standa
fyrir. Á íslensku er því hægt að sjá
og heyra hvort tiltekinn fræðingur
er karlkyns eða kvenkyns. Slík skil-
greining er fólki til hægðarauka og
auðveldar skilning og tjáskipti. I
íslensku máli eru orð til eins og
hjúkrunarmaður og hjúkrunarkona,
forstöðukona og forstöðumaður, þó
báðir einstaklingar séu að sjálf-
sögðu af kyni manna, manneskjur.
En ég er undrandi á þeim mann-
eskjum, sem vilja afmá úr íslensku
máli kyngreiningu starfstitla. Því
kyngreining starfstitla er okkur
sem skiljum málið til mikilla hægð-
arauka.
Það er mikill misskilningur hjá
þessum konum (kvenmönnum) sem
eru kvenkyns menn af manna kyni,
að einhver minnkunn sé fólgin í
kyngreiningu. Málið býður uppá
þennan skilningsauka, og hví ekki
að nota það? Er einhver minnkunn
í því að vera kona en ekki karlmað-
ur?
Mér finnst kominn tími til þess,
að breyta þeirri stefnu, sem viss
hópur kvenmanna er að leiða málið
okkar, íslenskuna, út í. Ameríkanar
reka sumir upp stór augu, þegar
þeir sjá, að lögregluþjónninn er
kona (kvenkynsvera af mannkyni),
en ekki maður (karlkynsveran sömu
tegundar). Bara svona til að taka
eitthvert dæmi. Á íslandi heyrist æ
oftar að kvenkyns lögregluþjónar
séu lögreglumenn, sem í sjálfu sér
er ekkert rangt. Konur og karlar
eru bæði menn, en menn geta ekki
verið konur, þó konur geti verið
menn. Verum ekki að rugla háþró-
uðu máli, sem íslenskan er, í takt
við enskuna, eða minnimáttarkennd
sumra kvenna. Notum kyngrein-
ingu okkar háþróaða tungumáls og
tölum um lögreglukonur og lög-
reglumenn, hjúkrunarkonur og
hjúkrunarmenn, forstöðukonur og
forstöðumenn. Hví ekki að nota
þessi hjálpartæki íslenskrar mál-
fræði?
Mér finnst að konur geti verið
stoltar yfir kynhlutverki sínu, eins
og Guð skapaði þær, ekki síður en
„venjuiegir" karlmenn eru með sitt
hlutverk. Hvað er að því að kven-
menn, séu kallaðir konur? Mér
fínnst það bara „gott mál“. Á sama
hátt og ekki verður villst á körlum
og nautum, villist heldur enginn á
konum og kúm.
EINAR INGVI MAGNÚSSON,
Heiðargerði 35,
Reykjavík.
Pennavinir
FRÁ Filippseyjum skrifar 29 ára
bandarískur karlmaður sem safnar
símakortum og frímerkjum:
Richard Nochbar,
Q Plaza 207,
1900 Cainta, Rizal,
Philippines.
EINHLEYPUR 23 ára Slóvaki,
prentari, með áhuga á ferðalögum
og tónlist:
Jaroslav Garaj,
Hliny VII - Gabajova 2,
010 01 Zilina,
Slovakia.
SAUTJÁN ára finnsk stúlka með
áhuga á hjólreiðum, sundi, skíðum,
tónlist, bréfaskriftum:
Jaana Manninen,
Járvenpaantie 190,
44150 Áánekoski,
Finland.
FRANSKUR 36 ára sundkennari,
kvæntur og þriggja barna faðir,
skrifar á ensku:
Nicolas Mautrot,
1 Rue Alphonse Daudet,
44110 Chateaubriant,
France.
GHANASTÚLKA 21 árs með
áhuga á blaki, tónlist og bréfa-
skriftum:
Joyce Okpati,
c/o Mr. Samuel Okpati,
Tema Thread Company,
P.O. Box 628,
Tema,
Ghana.
VELVAKANDI
ÞÖKKUM ÞAÐ SEM
VEL ER GERT
ÉG TALA fyrir minn munn og
annars lesanda Morgunblaðsins
á Selfossi er ég þakka fyrir það
sem vel er gert, eins og okkur
ber að gera.
Reykjavíkurbréf Morgun-
blaðsins sl. sunnudag, þann 20.
febrúar, gladdi okkur mjög og
okkur finnst verulega ánægju-
legt að sjá, að loksins er einhver
hjá blaðinu, sem skrifar af raun-
verulegri þekkingu um málefni
Evrópu og Evrópubandalagið, og
virðist hafa kynnt sér málið
rækilega.
Kærar þakkir.
Margrét Eggertsdóttir,
Garðabæ.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
HJÁSVARTA
SVANINUM
MÉR finnst sérstök ástæða til
að þakka fyrir góða þjónustu hjá
starfsfólki í Svarta svaninum,
Laúgavegi 118, sem er reyndar
Rauðarárstígsmegin. Þar hef ég
getað farið inn í hjólastólnum
mínum og skoðað myndbönd í
rekkum og hjólað um eftir vild
því aðgengið getur ekki verið
betra. Alveg slétt frá útidyrum.
Afgreiðslufólkið hefur gert allt
til að létta um fyrir .mér með
alla afgreiðslu á góðum varningi
sem þar er að fá og sendi ég
því bestu þakkir um leið og ég
bendi hjólastólafólki og öðrum á
að líta þangað inn.
Ein í hjólastól.
TAPAÐ/FUNDH)
Lyklakippa tapaðist
LYKLAKIPPA, merkt Sparisjóði
Hafnarfjarðar, með fjórum lykl-
um, tapaðist sl. föstudag, líklega
á Laugavegi, en þó ekki víst.
Finnandi vinsamlega hringi í
sima 688190 fyrir hádegi.
Lyklakippur fundust
LYKLAKIPPUHRINGUR með
tveimur húslyklum fannst við
Frostaskjól við KR-heimilið sl.
föstudag. Einnig fannst önnur
kippa með rauðu coca-cola-merki
og á henni eru tveir lyklar. Upp-
lýsingar í síma 620730.
Hringur fannst
GAMALL gullhringur með blá-
um steini fannst fyrir utan Stiga-
hlíð 28 sl. föstudag. Upplýsingar
í síma 811974 á milli kl. 12 og
15..
Seðlaveski tapaðist á
Ömmu Lú
LÍTIÐ svart seðlaveski með
skólaskírteini og skilríkjum tap-
aðist á Ömmu Lú fimmtudaginn
10. febrúar sl. á árshátíð
Kvennaskólans. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 683790.
Týndir skór
SVARTIR uppreimaðir leðurskór
af stúlku (hermannaskór) töpuð-
ust í Sundlaug Vesturbæjar sl.
mánudag. Fqreldrar barna á
þessu svæði eru beðnir að athuga
hvort börn þeirra hafi komið
heim í ókunnugum skóm. Upp-
lýsingar í síma 616888.
GÆLUDÝR
Köttur í óskilum
BLÁGRÁR fressköttur með hvít-
ar loppur, bringu og höku fannst
við Toyota-umboðið í Kópavogi
fyrir rúmri viku. Hann er ungur
og ógeltur. Kannist einhver við
köttinn er hann vinsamlega beð-
inn að hafa samband í síma
650514. Guðrún.
ÞESSI læða hefur dvalist nokk-
urn tfma í Kattholti og langar
heim til sin. Kannist einhver við
gripinn er hann vinsamlega beð-
inn að sækja hann. Kattholt er
opið á milli kl. 14 og 16.
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
} 'tl'l -II,■■ I.ÍM
Ókeypis löglræðiaðstoð
á hverju f immtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012
ORATORf félag laganema
94029
Excel námskeið
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
TölvusKóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Námskeið í sjálfsrækt helgina 26. og 27. febr.
árangur-Meit
Leiðbeinandi
Guðrún G. Bergmann
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum og
verkefnum sem beinast að því að:
Efla sjálfstraustið
✓ Byggja upp jákvætt viðhorf gagnvart eigin útliti
✓ Þjálfa tjáningu
✓ Vinna með staðfestingar
✓ Draga fram jákvæða persónuþætti
✓ Kanna uppranafjölskvlduna og stöðu sína innan hennar
✓ Læra að greina innrætingu úr umhverfinu
y/ Setja sér markmið og læra leiðir til að ná þeim
✓ Hugleiðslur og aðrar þroskandi æfingar
Námskeiðið stendur frá kl. 10—17.30 hvem dag í sal SVFR við Háaleitisbraut.
10% afsláttur fyrir félaga í Nýaldarsamtökunum.
10% þátttakenda geta sótt um fiía þáttöku, ef þeir eiga í greiðsluerfiðleikum.
upplýsingar í vcrsluninni Betra 1
Biddu um
Banana Boat
þegar þú vilt 99,7% Aloe Vera
Þú kemst ekki nær sjálfri Aloe Vera plötunni, sárasmyrsli náttúrunnar.
Prófaöu 99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat á brunasár, þurra eða
sprungna húð, útbrot o.þ.h. Þú finnur ekki mun á því og að brjóta Aloe Vera
blað og bera hlaupið úr því beint á þig. Gerðu verðsamanburð á 99,7% hreina
Aloe Vera gelinu frá Banana Boat og útþynntum Aloe Vera gelum. 99,7%
hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat fæst í 6 misstórum túpum og brúsum
með eða án pumpu. Verð frá kr. 540,- desilítrinn til kr. 988,- hálfur lítri.
99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat fæst í Heilsuvali, Barónsstíg 20,
og í öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur. Pað fæst líka í vönduðum
apótekum, snyrtivöruverslunum, sólbaðsstofum og víðar, ásamt breiðri Aloe
Vera húðvörulínu frá Banana Boat (Body Lotion, varasalva, sólkrem o.m.fl.).
Biddu um Banana Boat þegar þú vilt hreina hágæðajurtavöru á góðu verði.
HEILSUVAL - Barónsstíg 20 ■ff 626275 og 11275
SAMSTARFSVERKEFNIÐ
TÓNWTFWRAUA
23. febrúar, kl. 20.00
íþróttahúsinu v/ Vesturgötu
24. febrúar, kl. 20.00
íþróttahúsi Sólvallaskóla
SOV** 26’ febrúar, kl. 14,00
íþróttahúsinu Digranesi
Hljómsveitarstjóri: Juha Nikkola
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir
Kynnir: Sverrir Guðjónsson
Danshöfundur: David Greenall
Listdansflokkur æskunnar
EFNISSKRÁ
Richard Wagner: Forspil að 3. þætti Lohengrin
Pjotr Tsjajkofskíj: Fiðlukonsert
Sigvaldi Kaldalóns/ úts: P.P.P.: Á Sprengisandi
Fjöldasöngur: Hver á sér fegra föðurland
Ó blessuð vertu sumarsól
Island ögrum skorið
Maurice Ravel: Bolero
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Hljómsvelt allra íslendlnga OZZZOo