Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 1
64 SIÐURB STOFNAÐ 1913 49. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR1. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Aðildarsamingár við Evrópusambandið Erfiðlega geng- ur að ljúka við gerð samninga FULLTRÚAR Evrópusambandsins gáfu í gær í skyn að hægt væri að veita Svíum, Finnum, Norðmönnum og Austurrikismönnum aðild að sambandinu í tveimur umferðum. Finnar og Svíar höfðu í gærkvöldi leyst nær öll sín ágreiningsmál við sambandið en töluverð vinna var eftir vegna samninga Norðmanna og Austurríkismanna. Norðmenn standa fast á kröfunni um að veita ekki fiskveiðiheimildir og Austurrík- ismenn vilja takmarka umferð flutningabíla um Alpana. Fimm mínútum fyrir miðnætti ákváðu utanríkisráðherrar sambandsins að framlengja frest til að ná samningum um óákveðinn tíma. Carlos Westendorp, Evrópuráð- herra Spánar, sagði í gær að ekki væri hægt að ganga frá samningi nema Norðmenn féllust á kröfur um fiskveiðiheimildir til handa ES-ríkj- um í lögsögu sinni. Westendorp sagði að einnig yrði að ganga frá nýjum reglum varðandi atkvæðagreiðslur innan Evrópusambandsins áður en hægt væri að hleypa nýjum ríkjum inn. Óttast Spánveijar að vægi þeirra muni minnka innan Evrópusam- bandsins er aðildarríkjunum fjölgar. Ríkin fjögur hafa öll sett fram töluvert af kröfum í aðildarviðræð- unum o g gáfu stjórnmálamenn óspart í skyn í gær að ekki yrði sleg- ið af þeim öllum. Alois Mock, utanrík- isráðherra Austurríkis, sagði Austur- Uppfylla ekki skilyrði Dana í kvótamálum Þórshöfn. Frá Grækaris D. Magnussen, fréttaritara Morgunblaðsins. POUL Nyrup Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, til- kynnti landsljórn Færeyja með símbréfi í gær að lögþing Færeyja uppfyllti ekki skilyrði sijórnarinn- ar í tengslum við framseljanlega kvóta. Danir hafa sett það skilyrði fyrir endurfjármögnun erlendra lána landstjórnarinnar að Lög- þingið samþykki slík lög. Thomas Arabo, sjávarútvegsráð- herra Færeyja, lagði frumvarp fyrir Lögþingið, sem uppfyllti í einu og öllu skilyrði Dana. Það hlaut hins vegar ekki eitt einasta atkvæði og því lagði sjávarútvegsnefnd þingsins fram nýtt frumvarp sem felur í sér að kvótar fylgi skipum og séu ekki framseljanlegir. ríkismenn hafa mikinn áhuga á aðild en þeir væru ekki reiðubúnir að greiða hana hvaða verði sem er. Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegsráð- herra Noregs, var mjög vígreifur og sagði ekki koma til greina að veita fiskveiðiréttindi í norskri lögsögu. Norðmenn sögðust hins vegar í gær vera ánægðir með það sam- komulag sem hefði náðst við Evrópu- sambandið varðandi olíumál. Sam- kvæmt því fá Norðmenn að viðhalda ríkisrekstri við olíuvinnsluna og ákvarða sjálfir hvaða olíulindir verða nýttar í framtíðinni. Upphaflega hafði verið ákveðið að ljúka aðildarviðræðunum fyrir sl. miðnætti til að Evrópuþingið gæti tekið þær fyrir áður en því verður slitið fyrir kosningamar í júní. Nú er þó talið líklegt að samningavið- ræðurnar gætu dregist allt fram til 10. mars. Vilja alþjóðlegt gæslulið Reuter YASSER Arafat, leiðtogi frelsissamtaka Palestínu, PLO, fullyrti í gær að ísraelsher hefði átt þátt í fjölda- morðinu sem framið var í mosku í Hebron á föstu- dag. Hann sagði að alþjóðleg nefnd yrði að rannsaka málið og senda yrði alþjóðlegt herlið til að tryggja öryggi Palestínumanna á hernumdu svæðunum. PLO krefst þess einnig að landnemar gyðinga á hernumdu svæðunum verði afvopnaðir og hefur frestað um óákveðinn tíma næstu lotu í samningaviðræðum við ísraela um sjálfstjórn Palestínumanna á hernumdu svæðunum og brottflutning ísraelska herliðsins. ísra- elsstjórn hefur lofað að afvopna hættulegustu öfga- mennina meðal landnema en Shimon Peres, utanríkis- ráðherra ísraels, benti á að alþjóðlegt gæslulið hefði ekki getað komið í _veg fyrir ódæðið á föstudag. í gær gaf sendiherra Israela hjá Sameinuðu þjóðunum hins vegar í skyn að slíkt væri mögulegt. Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, hvatti í gær PLO og arabaríkin, sem einnig hafa frestað frekari friðarvið- ræðum, til að taka upp þráðinn á ný. A myndinni sést ísraelskur lögreglumaður deila við palestínska konu í Jerúsalem. Fjórar þotur Bosníu-Serba skotnar niður yfir Bosníu er þær brutu flugbann Rússar lýsa yfir stuðn- ingi við aðgerðir NATO Moskvu, Brussel, Róm, Sarajevo, Reuter. RÚSSAR lýstu í gær yfir stuðn- ingi við aðgerðir Atlantshafs- bandalagsins (NATO) í Bosníu, er tvær bandarískar F-16 orr- ustuþotur í flugsveitum banda- lagsins skutu í gærmorgun niður fjórar G-4 Galeb-orrustuþotur, sem talsmenn NATO fúllyrða að hafi verið úr her Bosníu-Serba. Hins vegar sögðu Rússar að ekki væri ljóst livort vélarnar hefðu verið serbneskar og bentu á að Bosníu-Serbar hefðu neitað því að þeir hefðu misst flugvélar, svo og því að vélar þeirra hefðu tek- ið á loft frá Banja Luka, þaðan Jeltsín rekur yfirmami gagn- njósna leyniþjónustunnar Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín tilkynnti í gær að Nikolaj Golúshko, yfirmanni gagn- njósnadeildar rússnesku leyniþjónustunnar, hefði verið vikið frá. Hann greindi ekki frá ástæðunni. Líklegt þykir að brottreksturinn tengist deilu um sakaruppgjöf þeirra sem stóðu að valdaránstilraununum í ágúst 1991 og í október í fyrra. Þeir voru látnir lausir úr fangelsi á laugardag þrátt fyrir tilraunir Jeltsíns til að koma í veg fyrir það. Golúshko kann þó einnig að hafa verið vikið frá vegna máls bandaríska leyniþjónustumannsins Aldrich Ames, sem var handtekinn fyrir rúmri viku, sakaður um njósnir í þágu Sovétmanna og síðar Rússa. Jeltsín var í gær þögull sem gröf- in um lausn valdaránsmannanna en þeirra á meðal voru Alexander Rútskoj, fyrrverandi varaforseti, og Rúslan Khasbúlatov, fyiTverandi þingforseti. Georgíj Satarov, aðstoðarmaður hans, sagði um miðjan dag í gær, að Jeltsín myndi koma fram í sjón- varpi þá um kvöldið og tilkynna um tilskipun sem ætlað væri að slá á þá spennu sem ríkti í kjölfar lausn- arinnar. Jeltsín kom hins vegar ekki fram á tilsettum tíma í gærkvöldi og Itar-Tass fréttastofan sagði ekk- ert ávarp hafa verið fyrirhugað. Sjá: „Kazannik sakar Borís Jeltsín ...“ á bls. 25. sem vélarnar flugu. Manfred Wörner, framkvæmdastjóri NATO, varaði Bosníu-Serba í gær við hefndaraðgerðum, sagði að bandalagið myndi ekki hika við að draga sínar ályktanir yrði at- burðanna hefnt. Þoturnar voru skotnar niður nærri borginni Banja Luka í Bosníu og er þetta fyrsta hernaðaraðgerð í nafni NATO frá því að bandalagið var stofnað árið 1949. Vélarnar voru staðnar að sprengjuárásum á bæi í Bosníu. Þær sinntu í engu endurteknum aðvörunum og voru þá fjórar af sex Galeb-þotum skotn- ar niður. Tvær þotanna komust undan. í ýfírlýsingu rússneska utanríkis- ráðuneytisins segir að hver sá sem hafi staðið fyrir skyndiárásinni á Bosníu og þar með rofið ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um flugbann, hljóti að bera fulla ábyrgð á því sem gerðist. í kjölfar aðgerða NATO, gerðu Bosníu-Serbar árás á stöðvar stjórn- arhersins og flugvöllinn í Tuzla. Þá gerðu króatískar flugvélar loftárás á verksmiðju í Novi Travnik. Karadzic til Moskvu Bandaríkin og ríki Evrópusam- bandsins vörðu í gær aðgerðir NATO og sögðu þær ekki eiga að hafa áhrif á tilraunir til að stilla til friðar. Undir það tók Manfred Wörner. Sagði Bill Clinton Banda- ríkjaforseti, að allt hefði verið gert til að koma í veg fyrir árásina. Radovan Karadzic, leiðtogi Bosn- íu-Serba, kom til Moskvu í gær- kvöldi. Sagði hann að verið væri að kanna hvað hefði gerst og að fljót- lega kæmi í ljós hvort vélarnar hefðu verið serbneskar eða króatískar. Bosníumenn og Króatar fögnuðu aðgerðunum. Haris Silajdzic, for- sætisráðherra Bosníu, sagði þær geta flýtt friðarumleitunum og Franjo Tudjman, forseti Króatíu, sagði þær sýna að ásetningur Vest- urlanda væri að stöðva Serba. Yasushi Akashi, sérlegur sendi- maður SÞ, kvaðst vona að atvikið stefndi friðarviðræðum ekki í hættu en Michael Rose, yfirmaður herafla SÞ í Bosníu, sagði árásina sýna að hótanir NATO væru ekki orðin tóm. Sjá: „Fjórar... “ á bls 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.