Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 37
eftir liggja. Þó var hann ekki alls kostar tilbúinn í sína síðustu bar- áttu, því að hann bjóst ekki við, frekar en aðrir, að árásin kæmi úr þessari átt. Á ótrúlega stuttum tíma varð Gylfi að játa sig sigraðan, eins og svo margir aðrir í baráttu við vágest sem læknavísindin standa oft ráðþrota gegn. Jafnvel sterkustu vígi falla í slíkum slag. Það er sárt að horfa á eftir góð- um félaga á þennan hátt. Félaga og vini á besta aldri sem átti svo margt ógert. Starfsfélagar hans á Morgunblaðinu kveðja hann með söknuð í hjarta og þakklæti fyrir allt og allt. Hér er mikill öðlingur kvaddur og það er mikill söknuður meðal þeirra sem voru þess heiðurs aðnjótandi að kynnast Gylfa Hjálm- arssyni, það voru viss forréttindi. En á einum stað hlýtur sorgin að vera mest. Elsku Vera, Magnhild og Vera Ósk, þið eigið samúð starfs- manna Morgunblaðsins. Megi góður Guð blessa ykkur og styrkja í sorg ykkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Með vinarkveðju. Sigmundur Ó. Steinarsson. Þegar komið er að því að kveðja góðan dreng vefst manni tunga um tcnn. Maður rifjar gjarnan upp at- burði í lífinu sem tehgjast samveru- stundum sem geymdar eru í minn- ingunni. Gylfi Hjálmarsson lést langt um aldur fram. Hann veiktist af þeim óútreiknanlega sjúkdómi, krabbameini, á síðasta ári og lést á Landakoti eftir erfiða sjúkdóms- legu sunnudagsmorguninn 21. febr- úar sl. Við Gylfi kynntumst á Morg- unblaðinu árið 1966. Áður hafði ég kynnst honum lítillega í tengslum við íþróttaiðkanir, en íþróttir voru einmitt hans helsta áhugamál. Hef ég aldrei kynnst nokkrum manni sem var jafnfróður um íþróttir og Gylfi. Hann var nánast gangandi alfræðiorðabók þegar rætt var um íþróttir. Árið 1969 fluttum við til Kanada og þar urðu kynni okkar enn nán- ari. Við fórum þangað í þeim til- gangi að víkka sjóndeildarhringinn og auka þekkinguna. Gylfa líkaði vel í Kanada og bjó þar til ársins 1988. Hann kunni vel að meta þann vinnuaga sem viðgengst þar. Hann hafði oft orð á því að við gætum margt af Kanadamönnum lært í skipulagi og rekstri fyrirtækja. Gylfi var mikill nákvæmnismaður og var alltaf með allt sitt á hreinu. Hann hóf störf hjá einu af stærstu fyrirtækjum í Kanada, Sears, og vann þar öll árin. Þar vann hann sig fljótt í álit og voru honum falin ýmis trúnaðarstörf. Gylfi var íhalds- samur, traustur og ljúfur starfs- maður. Ég held til dæmis að hann hafi aldrei komið of seint til vinnu og aukafrídagar voru sem eitur í hans beinum. Hann sinnti störfum sínum af mikilli kostgæfni og var hvers manns hugljúfi. Hann átti trausta vini sem honum þótti vænt um. Honum var það mikið kapps- mál að vinunum vegnaði vel. Það sýndi hann í verki með framkomu sinni. Sem dæmi um íhaldssemi Gylfa, verður mér minnisstæður sá dagur er hann kom niður á Mogga og sagði mér að hann hygðist flytja aftur heim. Það sem skipti meðal annars miklu máli í þeirri stóru ákvörðun var hvort hann fengi aft- ur vinnu á auglýsingadeild blaðsins. Þar voru meðal annars nokkrir af hans bestu vinum og honum þótti ákaflega vænt um fyrirtækið eins og öllum þeim sem verða-á annað borð vinir blaðsins. Það var því auðsótt mál að ráða Gylfa aftur til blaðsins. Hann vann því aðeins hjá tveimur fyrirtækjum um ævina. Við, íjölskyldan, áttum þess kost að heimsækja Gylfa og Veru til Kanada árið 1987. Þá sýndu þau hjónin okkur mikla velvild og vin- áttu. Við áttum þar margar ánægjustundir sem seint munu gleymast. Það er því með söknuði sem við kveðjum góðan dreng um leið og við vottum eiginkonu hans MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 37 Stefán Guðmunds son — Minning Fæddur 13. maí 1925 Dáinn 19. febrúar 1994 Veru og dætrunum Magnhild og Ósk, foreldrum, systkinum og öðr- um ættingjum okkar dýpstu samúð á þessari sorgarstund. Guð blessi ykkur öll. Baldvin Jónsson og fjölskylda. Þegar maður missir góðan vin verður hversdagsleg minning um hann dýrmæt og hvunndagurinn jafnvel eftirsóttur því á svona stundum þegar sorgin knýr dyra, hugsar maður: „Því getur ekki allt orðið eins og það var?“ Þannig hugsa ég eftir að Gylfi vinur minn dó úr krabbameini i sl. viku. í minningunni rifjast upp fjöl- mörg hversdagsleg samtöl um dag- inn og veginn, samtöl sem nú eru mér mikilvæg og gleymast ekki. Mér finnst svo skrýtið að eiga ekki eftir að setjast lengur niður með Gylfa og ræða pólitík, sem var uppáhald okkar beggja sem um- ræðuefni. I þessum samtölum kom lífsskoðun hans skýrt í ljós. Gylfi trúði á vinnuna, fjárhagslegt sjálf- stæði einstaklinga, sparnað og á sterka fjölskyldu. Að mínu mati var Gylfi nokkuð íhaldssamur en vildi treysta velferðarþjóðfélagið svo að enginn liði skort. I vinnuna mætti Gylfi ávallt í jakkafötum með bindi enda sýndi hann vinnustað sínum, þ.e. Morgun- blaðinu, virðingu og var metnaðar- fullur starfsmaður. Sagði hann oft að ef menn bæru ekki virðingu fyr- ir sjálfum sér og hefðu metnað fyr- ir sjálfa sig, væri lítil von um að þeir hefðu einhvern metnað fyrir hönd vinnustaðar síns. Ef svo væri, væri lítil von til að fyrirtækið spjar- aði sig og greiddi út laun. Þessi vinnuheimspeki lýsir Gylfa vel og mættu fleiri á tímum atvinnuleysis tileinka sér hana. Síðastliðna tvo mánuði barðist Gylfi við illvígan sjúkdóm, þ.e. krabbamein. A íþróttamannamáli má segja að þetta hafi verið ójafn leikur frá byijun því sjúkdómurinn hafði þó nokkra forgjöf. Hugrekki Gylfa og baráttumóður entist fram á síðustu stund. í lokin birtist dauð- inn sem vinur og fylgdi Gylfa inn í ljósið. Við sem sitjum hér eftir eigum minningu um góðan dreng og fyrir það ber okkur að vera þakklát. Sorgin mun veðrast í burtu en minn- ingin ekki. Jón Kristinn Snæhólm. Elskulegur föðurbróðir minn Stefán Guðmundsson lést í Land- spítalanum 19. febrúar sl. Stefán fæddist í Reykjavík 13. maí 1925, yngsta barn foreldra sinna, Elínar Stephensen og Júlíus- ar Guðmundssonar. Elín var dóttir Elínar Thorstensen og Magnúsar Stephensen landshöfðingja, en Júl- íus var sonur Andreu H.B. Weywadt og Stefáns Guðmundssonar versl- unarstjóra á Djúpavogi. Foreldrar Stefáns dvöldu í Kaupmannahöfn fyrstu hjúskaparár sín þar sem Júl- íus vann við verslanir Örum og Wulff s og þar fæddust börn þeirra, öll nema Stefán. Þau fluttu síðan heim til íslands aftur 1921 þar sem Júlíus gerðist stórkaupmaður og útgerðarmaður. Elín og Júlíus eignuðust sex börn: Agnar elstur, búsettur í Reykjavík, Eva, sem lengst af bjó í Danmörku og lést 1984, Elín (Mússí), búsétt í Danmörku, Valborg (Lillen), bjó í Reykjavík og lést 1987, Ása, bú- sett í Kanada, og Stefán, sem nú er látinn. Þau systkinin eignuðust öll maka og böm. Stefán ólst upp í foreldrahúsum en missti föður sinn 1941, réttra sextán ára gamall. Eftir það bjó hann með móður sinni en síðar hjá bróður sínum, Agnari, og fjölskyldu hans en Agnar reynd- ist honum bæði sem bróðir og fað- ir. Stefán gekk í Miðbæjarbarna- skólann en var síðan tvo vetur við nám í Verslunarskólanum. Hann hafði mikinn áhuga á flugi eins og margir ungir menn á þeim árum og lauk einkaflugprófi en flugskír- teini hans var númer 65. Um tíma vann hann hjá Jarðborunum ríkisins og við hvalveiðar. Síðar lauk hann námi í járnsmíði frá Iðnskólanum og vann við járnsmíðar bæði hjá Stálsmiðjunni og Glófaxa. Árið 1954 kvæntist Stefán Þuríði Guð- mundsdóttur. Foreldrar hennar eru Þórhalla Oddsdóttir húsmóðir ættuð úr Breiðafirði sem lifir í hárri elli og Guðmundur Kristján Guðmunds- son bóndi og sjómaður ættaður úr Arnarfirði sem lést 1968. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap á Kvigind- isfelli í Tálknafirði og eignuðust sautján börn og eru öll á lífi nema eitt. Þuríður og Stefán eignuðust þrjú börn. Elstur er Haukur Már, verkfræðingur hjá Lýsi hf., f. 1955, kvæntur Soffíu Bryndísi Guðlaugs- dóttur, skrifstofukonu hjá Euro- card. Þeirra börn eru Lilja Björk, f. 1979, Guðlaugur Örn, f. 1982, og Edda Þuriður, f. 1985. Næst er Arnheiður Svala, verzlunarkona, f. 1960, gift Jens Gunnari Ormslev, framleiðslustjóra, bæði hjá Hans Petersen hf. Þeirra dætur eru Elín Áslaug, f. 1986, og Eva Birna, f. 1990. Yngstur er Guðmundur Þór, trésmiður, f. 1964, kvæntur Jacque- line Raatz, sem er við framhalds- nám í sálarfræði. Þau eru búsett í Seattle í Bandaríkjunum. Þuríður eignaðist dóttur áður, Hrefnu Helgadóttur, sem er tölvuritari við Bifreiðaskoðun íslands hf. á Akur- eyri, f. 1948. Gekk Stefán henni i föður stað og reyndist henni sem besti faðir. Börn Hrefnu frá fyrra hjónabandi eru Stefán, Hugrún og Elfa. Núverandi sambýlismaður hennar er Ingólfur Þorsteinsson bif- reiðaskoðunarmaður hjá Bifreiða- skoðun íslands hf. á Akureyri. Árið 1970 fóru Stefán og Þuríður með börn sín til Svíþjóðar eins og margir aðrir á þeim tíma og fékk Stefán vinnu við skipasmiðastöð Kockums í Malmö en Þuríður vann við verslunarstörf. Þeim líkaði vel vistin í Svíþjóð en þó fór svo að þau fluttu aftur heim til íslands 1981. Eftir heimkomuna starfaði Stefán lengst af sem hlaðmaður hjá Flug- leiðum en Þuríður vann sem sauma- kona. Þau voru ötul og samhent ásamt börnum sínum við að koma sér upp húsnæði og sjá sér farboða. Stefán bjó á heimili mínu þegar ég var lítil telpa. Hann hefur verið unglingur og ungur maður þá og var jafnan kallaður Númi af fjöl- skyldu og vinum. Hann var þá og síðar grannvaxinn og spengilegur, meðalmaður á hæð, íþróttamanns- lega vaxinn og fjaðurmagnaður í hreyfingum. Stefán var laglegur og prúður maður og bauð af sér góðan þokka. Hann gat verið gamansamur en var hrekklaus og óáreitinn, hæg- látur og hlédrægur. Hann var vel- viljaður og trygglyndur og unni fjöl- skyldu sinni mjög og hafði yndi af barnabörnum sínum og langafa- barni. Hann var handlaginn og fékkst meðal annars við að búa til listmuni úr járni. Ungur hreifst hann af flugi og hafði alltaf mikinn áhuga á því. Hann var mikill nátt- úruunnandi, áhugamaður um dýra- líf, einkum fugla og þekkti þá á flugi og skemmti börnum og barna- börnum með því að herma eftir hljóðum þeirra. Um tíma átti hann trillu og sigldi á henni út á Flóa til að veiða. Stefán naut góðrar heilsu lengst m af ævi sinnar. Fyrir rúmu ári veikt- ist hann þó og rannsóknir leiddu í Ijós að um illkynja sjúkdóm var að ræða. Þrátt fyrir aðgerð og frekari meðferð tókst ekki að komast fyrir meinið. Hann tók hlutskipti sínu með jafnaðargeði og Þuríður stóð traust eins og klettur við hlið hans ásamt börnum þeirra. Þau voru öll mjög þakklát fyrir góða umönnun lækna og Heimastoðar Krabba- meinsdeildar Landspítalans. Stefán var mikill gæfumaður í hjónabandi og átti ástríka og dugmikla konu og mannvænleg börn og barnabörn. Ástvinum hans öllum flyt ég inni- legar samúðarkveðjur frá föður mínum, mér og systkinum mínum og fjölskyldum okkar. Blessuð sé minning Stefáns Guð- mundssonar. Guðrún Agnarsdóttir. t Móðir mín, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sundabúð, Vopnafirði, 28. febrúar. Hreinn Sveinsson. Eiginkona mín, t KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR, Laufásvegi 45, lést í Landspítalanum sunnudaginn 27. febrúar. Guðni Guðmundsson. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA JÚLÍUSDÓTTIR, Hverfisgötu 123, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 28. febrúar. Helgi Hafliðason, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín og fósturmóðir, STEFANÍA GUÐRÚN ÁSKELSDÓTTIR, Grenimel 4, lést í Landakotsspítala laugardaginn 26. febrúar. Óskar Eyjólfsson, Sæmundur Bjarkar Árelíusson. t Ástkær eiginkona mín, móðir og amma, BERGUÓT GUÐMUNDSDÓTTIR, Kársnesbraut 66, Kópavogi, lést í Landspítalanum föstudaginn 25. febrúar. Guöni Jónsson, Guðrún Guðnadóttir, Bergljót Steinsdóttir. t Faðir okkar, MAGNÚS S. HARALDSSON, áðurtil heimilis á Álfaskeiði 27, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, 27. febrúar sl. Sigríður Magnúsdóttir, Haraldur Magnússon, Gunnar Magnússon, Guðbjörg Áslaug Magnúsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA SVEINSDÓTTIR, Dalalandi 14, Reykjavik, er lést í Landspítalanum 19. febrúar sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 1. mars, kl. 15.00. Sigríður Gústafsdóttir, Skúli Guðmundsson, Ólafur Gústafsson, Kristín Sigurðardóttir, Gústaf Gústafsson, Björg Hauksdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.