Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 Fegurðasamkeppni Norðurlands 19 ára Akur- eyrarmær valin Ungfrú Norðurland TVÆR stúlkur, sem þátt tóku í Fegurðarsamkeppni Norðurlands í Sjallanum á Akureyri, voru valdar til þátttöku í Fegurðarsam- keppni íslands, sem haldin verður á Hóteli íslandi í maí. Anna Karen Kristjánsdóttir, 19 ára Akureyrarmær, var kjörin Ungfrú Norðurland eins og fram hefur komið. Anna Karen hefur stundað nám í Verkmenntaskólanum á Akur- eyri síðustu ár en tók sér hlé frá námi um stundarsakir og starfar í tískuverlun. Auk hennar ákvað dómnefnd að Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir myndi einnig taka þátt í keppninni á Hótel íslandi, en hún er 19 ára nemi í Verk- menntaskólanum á Akur- eyri. Fimm tilboð í endurbætur á Kaldbak Pólsku tilboð- in lang’læg’st ÓLJÓST er hvaða tilboði verður tekið í umfangsmiklar breytingar og endurbætur á Kaldbak EA, einu skipa Útgerðarfélags Akur- eyringa hf., en ákvörðun þar um verður ekki tekin fyrr en að fullu er ljóst með hvaða hætti staðið verður að jöfnunaraðgerðum til að bæta samkeppnisstöðu íslenskra skipasmíðastöðva, en tillögur iðnað- arráðuneytis verða kynntar síðar í vikunni. Fimm tilboð bárust í verkið áður en frestur rann út, en tvö tilboð komu of seint. Lægsta, tiiboðið er frá skipasmíðastöðinni Nauta í Pól- landi upp á 20 milljónir króna, ann- að tilboð frá pólskri stöð í Gryfia hljóðaði upp á 24 milljónir króna, þá barst tilboð frá skipasmíðastöð á Spáni upp á rúmar 40 milljónir. Tvö innlend tilboð bárust, frá Stál- smiðjunni, sem bauð 44 milljónir í verkið, og Slippstöðinni-Odda, sem bauð 44,2 milljónir króna, auk frá- vikstilboðs sem lækkaði upphæðina um 1,8 milljón króna. í lægsta til- boðinu er gert ráð fyrir 40 daga verktíma, en 56 daga hjá Slippstöð- inni-Odda. Björgólfur Jóhannsson fjármála- Morgunblaðið/Rúnar Þór FSA sýknað af kröfu sjúkra- liða Sem slasaðist við störf FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á Akureyri, FSA, var sýknað í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær af kröfum sjúkraliða sem hlaut mein á hægri öxl eftir átök við sjúkling á öldrunar- deildinni Seli, en sjúkraliðinn var þar að störfum í september árið 1987 er atvikið varð. Sjúkrahúsið var hins vegar dæmt til að greiða sjúkraliðanum 640 þúsund krónur vegna slysa- bóta auk vaxta og þá var FSA dæmt til að greiða málskostnað. Atvikið átti sér stað þegar var sjúkraliðinn metinn 100% ör- sjúkraliðinn var við vinnu sína á öldrunardeildinni Seli. Sjúkralið- inn ætiaði að koma í veg fyrir að sjúklingurinn, sem er blindur, myndi detta um konu í hjólastól, þegar sjúklingurinn greip um úlnl- ið hans og snéri upp á hendur hans aftur fyrir bak, en sjúkralið- inn losnaði ekki fyrr en aðstoð barst frá samstarfsmanni. Sjúkral- iðinn taldi sig hafa hlotið varan- legt mein á hægri öxl, eða svokall- aða „frosna öxl“. Við mat örorku yrki í 7 mánuði frá slysadegi, 50% í 5 mánuði eftir það og varanleg örorka var metin 20%. Sjúkralið- inn tilkynnti hvorki um slysið til Vinnueftirlits né lögreglu fyrr en sumarið 1988 er það var rannsak- að af lögreglu. Sjúkraliðinn fór fram á að sjúkrahúsið yrði dæmt til að greiða sér 3,7 miiljónir króna í skaðabæt- ur vegna þess meins sem hann hlaut. Taldi hann sig ekki hafa fengið nægar upplýsingar úm sjúklinginn sem ætti það til að reiðast og láta hendur skipta, en með honum væri ekki nægt eftir- lit. Þá taldi sjúkraliðinn sig ekki hafa haft nægilega þjálfun til að fást við sjúkling eins og þann sem veitti áverkann. Á þessum atriðum m.a. byggðust aðal- og varakrafa stefnanda, en þrautakrafa sjúkral- iðans var að hann ætti rétt á slysa- bótum samkvæmt ráðningarsamn- ingi. FSA krafðist sýknu af öllum kröfum stefnanda, en til vara var þess krafist að stefnufjárhæðin yrði lækkuð verulega. í dómi Ásgeirs Péturs Ásgeirs- sonar hérðaðsdómara er ekki fall- ist á að sjúkrahúsið beri ábyrgð á tjóni sjúkraliðans hvorki á grund- velli almennu skaðabótareglunnar né reglum skaðabótaréttar um húsbóndaábyrgð. Sannað þótti að örorkan hefði hlotist af átökum við sjúklinginn, en á aðrar málsá- stæður stefnanda er ekki fallist og sjúkrahúsið því sýknað af að- al- og varakröfu sjúkraliðans. Dómurinn féllst á þrautakröfu hans, þ.e. varðandi greiðslu slysa- bóta vegna 20% örorku, að upp- hæð 640 þúsund krónur auk vaxta. Þá ber sjúkrahúsinu að greiða málskostnað, 200 þúsund krónur. stjóri Útgerðarfélags Akureyringa sagði, að ákveða þyrfti fyrir miðjan þennan mánuð hvaða tilboði yrði tekið, en vinna ætti að endurbótun- um í sumar. Verkið tekur um þrjá mánuði og er reiknað með að skip- ið verið komið á veiðar að því loknu næsta haust. Útgerðarfélagið leggur sjálft til búnað og fleira sem setja á í skipið upp á um 60 milljónir króna. Að sögn Björgólfs hefur verið rætt um 13% niðurgreiðslu á verk unnin inn- anlands, en óljóst væri við hvaða verð væri miðað, þ.e. tilboðsupp- hæðina, sem er um 44 milljónir, eða heildarkostnaðinn, að viðbættum þeim búnaði sem ÚA legði til. Hráar tölur Kostnaður við að senda skipið út til Póllands nemur um 6 milljón- um króna á verktímanum, að sögn Björgólfs. „Það er ekki hægt að horfa bara á hráar tölur, það er svo margt annað sem spilar inn í þetta. Við eigum eftir að meta alla þætti málsins áður en ákvörðun verður tekin.“ Baldur Pétursson deildarstjóri i iðnaðarráðuneytinu sagði, að full- mótaðar tillögur um jöfnunarað- gerðir yrðu kynntar síðar í vikunni. Hann sagði, að ef fram kæmi beiðni frá íslenskum samkeppnisaðilum um rannsókn á meintum undirboð- um Pólverja yrði málið tekið til skoðunar. Slík kvörtun hafði ekki borist ráðuneytinu í gær, en hann átti von á að hún bærist. -------» ♦ ♦------- ■ KYRRÐARSTUND verður í Glerárkirkju í hádeginu á morgun, miðvikudaginn 2. mars, frá kl. 12 til 13. Orgelleikur, helgistund, alt- arissakramenti, fyrirbænir. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Bænastund kvenna miðvikudags- kvöld frá kl. 20.30 til 21.30. Bæn og fyrirbænir. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI Hjúkrunarfræðingar - Ijfismæður Lausar stöður til umsóknar eru eftirf arandi: Stada Ijósmóóur við mæðraeftirlit frá 1. maí nk. til eins árs. Stðður hjúkrunarfræðinga við heilsugæslu i skólum frá 1. september nk. Staða hjúkrunarfræðings við heimahjúkrun Stöður hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra til afleys- inga í sumar eru einnig lausar til umsóknar. Hjúkrun unnin á heilsugæslustöð er sjálfstætt, gefandi og þakklátt starf. Unnið er á dagvinnutíma. Hafðu samband fyrir 15. mars nk. og kynntu þér möguleika á starfshlutfalli og annað sem varðar störfin. Upplýsingar gefur Konny, hjúkrunarforstjóri, í síma 96-22311. Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon Um 80 þátttakendur á dorgveiðimóti UM 80 manns tóku þátt í dorgveiðimóti sem haldið var á Ólafsfjarðarvatni á sunnudaginn var, en fjöldi annarra reyndi fyrir sér við dorgveiðina þó þeir væru ekki skráðir þátttakendur á mótinu. Afiinn var einkum silungur, koli og lax og reyndist sá stærsti vera um 3 kíló eða 6 pund. Úrslit mótsins urðu þau að í eldri flokki sigraði Rúnar Þór Björnsson, annar varð Árni Björgvinsson og Gunnar Jónsson varð þriðji. í flokki ungiinga sigraði Bragi Óskarsson, Elías Hólm Þórðarson varð annar, og Einar Ólafsson þriðji. Mikill fjöldi áhorfenda lagði leið sína að vatn- inu enda kjörið veður til útivistar og var fólk ýmist á skautum, skíðum, hestum, vélsieðum eða bílum á ferð um svæðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.