Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUIl 1. MARZ 1994
21
Engin íslensk kvikmynd í Rouen
Engin íslensk kvikmynd verður
í ár sýnd á Norrænu kvikmynda-
hátíðinni í Rouen í Frakklandi,
hvorki meðal samkeppnismynda
til verðlauna né nokkurs staðar í
hinni viðamikiu kynningu á nor-
rænum kvikmyndum.
íslendingar hafa nær alltaf átt
þarna stóran sess. í fyrra hlaut
myndin Ingaló eftir Ásdísi Thorodd-
sen fyrstu verðlaun og Sólveig Arn-
ardóttir kjörin besta leikkonan, auk
þess sem kynntar voru allar myndir
gerðar eftir sögum Halldórs Laxness
og Auður Laxness var þar heiðurs-
gestur. Og 1992 var lögð sérstök
áhersla á Island með yfírlitssýningu
á íslenskum kvikmyndum ailt frá
Höddu Pöddu 1923 og átta mynda
sýningum frá kvikmyndavorinu, fyr-
irlestrum, myndasýningu og þrenn
verðlaun komu í hlut íslensku mynd-
anna Ryð eftir Lárus Ými og Börn
Náttúrunnar eftir Friðrik Þór. í febr-
úar sl. voru þessar myndir og fleiri
frá fyrri hátíðum sýndar í tvær vikur
á vegum Norrænu hátíðarinnar í
Odeon kvikmyndahúsinu í París og
sáu þær 3500 manns.
I stuttu símtali við Morgunblaðið
sagði framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar Isabelle Duault, að Islendingar
hefðu nú haft lítið úrval af nýjum
kvikmyndum. Hún hefði reynt að fá
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar
Hin helgu vé í samkeppnina, en hann
kvaðst ekki hafa áhuga. Myndin
keppir ekki í Cannes, svo það hefði
ekki átt að rekast á, en norrænar
myndir geta keppt bæði í Berlín og
í Rouen. Hún sagði erfítt að búa til
flokka gamalla mynda frá íslandi
árlega, því myndaforðinn er svo lít-
ill. En hún kvaðst hafa áhuga á að
taka upp þráðinn og fá íslenskar
myndir aftur næsta ár. Vegna sam-
vinnu við Nordic films undanfarin 4
ár tókst að koma upp tveggja vikna
sýningunni í Odeon kvikmyndahús-
inu í París í vetur, sem vakti mikla
athygli. Þá reyndi hún að hafa sam-
band við menntamálaráðuneytið á
íslandi til að geta með smástyrk
boðið kvikmyndagerðarmönnunum
til að kynna myndir sínar í París eins
og höfundum hinna Norðurlanda-
myndanna, en fékk aldrei neitt svar.
Nú eru í gangi áform um að fara
með þessar norrænu myndir til
margra borga í Frakklandi. Hún
sagði að kvikmyndahátíðin hefði tek-
ið þátt í gerð undirtitla á frönsku,
sem gerði áframhaldandi dreifíngu
auðveldari.
Norræna kvikmyndahátíðin í Rou-
en 1994 er að vanda viðamikil. Auk
nýju samkeppnismyndanna frá Norð-
urlöndunum fjórum, verður nú í til-
efni af 40 ára dánarafmæli Knuts
Hamsun 12 mynda flokkur eftir sög-
um hans frá 1921 til 1992, þar á
meðal af Sulti og Pan og einnig allar
myndir danska kvikmyndastjórans
fræga Carls Dreyers. Þá er sýnd
valin syrpa af myndum frá Norður-
löndunum fjórum frá seinni árum,
flokkur stuttmynda úr norðri og
myndir frá kvikmyndaskólunum í
Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og
Helsinki. Prógram er frá dögum
Gústafs III í Svíþjóð sem frægir kvik-
myndagerðarmenn svo sem Alf Sjö-
berg, Vilgot Sjöman og Ingmar
Bergman sóttu efnivið í. Sérstaklega
verður heiðraður finnski kvikmynda-
gerðarmaðurinn Matti Kassita, sem
á að baki 30 myndir og verður við-
staddur í Rouen, og sænski kvik-
myndgerðarmaðurinn Roy Anderson
sem í 25 ár hefur gert myndir, nú
síðast umdeilda mynd um eyðni
“Eitthvað kom fyrir“. Á síðari árum
hefur Eistrasaltsríkjunum verið boð-
in þáttaka og þeirra hlutur er í þetta
sinn kynning á lettneska kvikmynda-
gerðarmannninum Hertz Frank, sem
verður viðstaddur og 12 af 25 heim-
ilamyndum hans. Í sambaiidi við sýn-
inguna verða að venju sýningar á
málverkum, ljósmyndum, fyrirlestrar
og ljóðakynningar á höfundunum
Stig Dagerman, Gunnar Ekelof, Ost-
en Sjöstrand og Inger Christensen
o. fl. Auk þess sem kynningar eru í
blöðum á norrænu efni hvers konar.
Keppnismyndirnar í ár eru, kynnt-
ar undir enskum titlum: Frá Svíþjóð
My great big daddy eftir Kjell Ake
Anderson, frá Danmörku Black Har-
vest eftir Anders Refn og Family
Matters eftir Suisanne Bier, frá Nor-
egi Stella Polaris eftir Knut Erik
Jensen og Du, Pappa eftir René
Bjerke, frá Finnlandi Land of Happi-
ness eftir Markku Pölölen og Pater
Noster eftir Veikko Aaltonen og frá
Eistlandi Baltic love eftir Peeter
Urbla. Veitt eru verðlaun fyrir bestu
norrænu kvikmyndina, besta karl-
leikarann og besta kvenleikarann,
og síðan 5 aukaviðurkenningar af
ýmsu tagi.
Vorið er
framundan
Nú er rétti tíminn að kynna sér einstakt
tilboð Komatsu til íslenskra verktaka og
framkvæmdaraðila. Tilboðið á sér enga
hliðstæðu á markaðinum, og það greiðir götuí'
þeirrá scm hafa áhuga á nýjum trausturn vinrmvélum
- stórum sern srnáum. Hafðu samband strax!
. KOMAllSU
Vorið er framundan
KRAFTVÉLAR HF - FUNAHÖFÐA 6-112 REYKJAVÍK - SÍMI (91) 634500 - FAX (91) 634501
Tilboð í Bónus og McDonald’s
Big Mac
(Venjulegt verð kr. 377.-. Þetta
tilboð gildir út mars -94,
aðeins fyrir ofangreint og er
ekki breytanlegt.)
McDonaids
Með kassakvittun og
tilboðsmiða frá Bónus.
VEITINGASTAÐUR FJÖLSKYLDUNNAR,
SUÐURLANDSBRAUT 56
*Veldu þér eina af
þessum þremur
metsölubókum á
ótrúlegu verði,
aðeins 495 kr., sem
sérstakt inngöngutilboð í bóka-
klúbbinn Nýjar metsölubækur !
Okeypis
Fríöindakort
og glæsilegur i
blekpenni j
aö gjöf!
Glæný innbundin metsölubók á
gjafveröi, aöeins 495 krónur!
Mánaðarbækur bókaklúbbsins Nýjar
metsölubækur munu kosta
995 kr. Verð hliðstæðra
bóka á almennum
markaði er 2.480 kr.
Fríöindakort
ijölskyldunnar ókeypis!
Á þriðja hundrað aðilar í verslun og þjónustu
veita korthöfum afslátt.
Glæsilegur blekpenni aö gjöf ef
þú tekur tilboðinu
innan 10 daga!
Áætlað verðmæti
pennans er 2.500 kr.
Siminn er
(91) 688 300
VAKA- HELGAFELL
'I H móts viíí óskir f> i n a r!