Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 ■ HUGLEIÐSLA er meginvið- fangsefnið á hugleiðsludögum sem standa yfir 2.-6. mars nk. þar sem fólki gefst kostur á að kynnast hugleiðslu. Sri Chinmoy stendur fyrir námskeiðunum, en það félag hefur um langt skeið boðið upp á ókeypis námskeið og fyrirlestra til að stuðla að eflingu einstaklingsins og sjálfþroska og einnig unnið að öðrum rr.álum sem hafa hugsjónir friðar og frelsis að leiðarljósi, segir i fréttatilkynningu. Námskeiðin á hugleiðsludögum eru haldin í Sri Chinmoy-setrinu.Hverfisgötu 76. Upplýsingar um námskeiðin og tímasetningu þeirra má fá í sím- um 39282 og 626634. Skráning fer fram við inngang- inn og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. ■ GUÐRÚN Ólafsdóttir, dósent í landafræði við Háskóla íslands, segir í dag, þriðjudaginn 1. mars, frá rannsóknum sinum á ferðabók- um um ísland á 19. öldinni eftir erlendar konur undir fyrirsöginni: Ida Pfeiffer og stallsystur henn- ar. Skrif erlendra ferðakvenna um islenskt þjóðlíf. Rabbið fer fram kl. 12 í stofu 311 í Árna- garði og er öllum opið. ■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir tveim námskeiðum á næstunni. Það fyrra, sem er nám- skeið í almennri skyndihjálp, hefst miðvikudaginn 2. mars. Kennslu- dagar verða 2., 3., 7. og 8. mars. Námskeiðagjald er 4.000 kr. og fá skuldlausir félagar í RKÍ 50% af- slátt. Hægt verður að ganga í félag- ið á staðnum. Einnig fá nemendur framhaldsskóla 50% afslátt. Meðal þess sem kennt verður á námskeið- inu eru blástursmeðferðin, endur- lífgun með hjartahnoði, hjálp við bruna, blæðingu úr sárum og mörgu öðru. Einnig verður fjallað um það hvernig koma megi í veg fyrir helstu slys. Seinna námskeiðið, sem verður í endurlifgun (hjarnahnoði), hefst miðvikudaginn 9. mars. Kennsludagar verða 9. og 10. mars. Þetta námskeið er einkum ætlað aðstandendum hjartasjúklinga og þeim sem umgangast þá. Þetta námskeið er sjaldan á boðstólum fyrir almenning sem sjálfstætt námskeið. Öllum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Námskeiðin verða haldin í Fákafeni 11, 2. hæð, og verður kennt frá kl. 20-23. Þeir sem hafa áhuga á að komast á þessi námskeið geta skráð sig i síma 688188 frá kl. 8-16. ■ Á vegum Orlofs húsmæðra í Reykjavík verða í ár farnar orlofs- ferðir á Hótel Örk í Hveragerði, að Hvanneyri í Borgarfirði, til Vestmannaeyja og á Nordisk Forum í Ábo í Finnlandi. Fundur verður haldinn um þessi verkefni á Hallveigarstöðum miðvikudaginn 2. mars kl. 20.30 og hefst innritun í ferðirnar þar. Konur, sem ekki hafa farið áður í orlof, ganga fyrir á fundinum. ATVIN N UA UGL YSINGAR Söluaðili óskast Óskum eftir sambandi við ábyggilegan sölu- mann til dreifingar og sölu á mjög seljanlegu sælgæti. Þarf að hafa bíl. Tenging við litla heildsölu hugsanleg. Tilboð, merkt: „Traust", sendist í pósthólf 968, 121 Reykjavík, fyrir 5. mars. Blaðberi óskast á Mávanes, Arnarnesi Upplýsingar hjá áskriftadeild Morgunblaðs- ins í síma 69 11 22. 2. vélstjóri óskast á línubát sem gerður er út frá Flateyri. Þarf að geta leyst af 1. vélstjóra. Upplýsingar í síma 94-7881 eða 94-7700 á skrifstofutíma. Æ. KENNARA- HÁSKÓLI ÍSL4NDS Laus staða Við Kennaraháskóla íslands er laus til um- sóknar staða lektors í dönsku. Meginverk- efni lektorsins er kennsla og rannsóknir í dönsku máli og málnotkun. Umsækjendur þurfa einnig að geta starfað á sviði danskra bókmennta og kennslufræði greinarinnar. Þá skulu þeir vera undir það búnir að kenna í fjarnámi og endurmenntun. Auk fullgilds háskólaprófs í grein sinni skulu umsækjendur hafa próf í uppeldis- og kennslufræðum eða hafa að öðru leyti nægi- legan kennslufræðilegan undirbúning. Æski- legt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu og skólastarfi almennt. Umsókn fylgi ítarleg skýrsla um vísindastörf, ritsmíðar og rannsóknir, svo og upplýsingar um námsferil og önnur störf. Þau verk, sem umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um, skulu einnig fylgja. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. ágúst 1994. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir berist Kennaraháskóla íslands v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík, fyrir 25. mars. Rektor. Golf á Flórída Glæsilegt einbýlishús við golfvöll á einum besta stað á Flórída til leigu allan eða hluta mars. 3 svefnherb. Sundlaug og tennisvellir á svæðinu. Örstutt á strönd, í verslanir og Disneyland. Verð miðað við 6 manns kr. 1.200 á dag. Upplýsingar í síma 12005 milli kl. 20-21. Útboð Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir til- boðum í eftirtalda verkþætti í 36 íbúðum við Laufengi í Grafarvogi: 1. Eldhúsinnréttingar. 2. Fataskápa. 3. Gólfdúkalögn. 4. Hreinlætistæki. 5. Málun. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu H.N.R., Suðurlandsbraut 30, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 9. mars kl. 15.00 á skrifstofu H.N.R. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur. Skrifstofuhúsnæði eða einbýlishús óskast Óskum eftir að leigja ca 200 fm skrifstofu- húánæði eða einbýlishús á höfuðborgar- svæðinu. Þarf að rúma 5-6 skrifstofur, fund- arherbergi, kaffiaðstöðu og geymslu. Tilboð óskast send í pósthólf 10054, 130 Reykjavík. Húsnæði við Laugaveg Við neðanverðan Laugaveg er til leigu 350 fm innréttað húsnæði á 2. hæð. Húsnæðið er að mestu leyti einn stór salur, sem býður uppá marga notkunarmöguleika. Upplýsingar veittar í síma 77059 e. kl. 18. Kvenfélagið Hringurinn Áríðandi mál á dagskrá félagsfundar á Ás- vallagötu 1, miðvikudaginn 2. mars kl. 17.00. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. TILKYNNINGAR Morgunblaðið, Selfossi Áskrifendur athugið að umboðsmaður hefur fengið nýtt símanúmer: 98-23375. -y. Afgreiðslan er opin frá kl. 7 alla útburðardaga. Heilsugæslustöðin Sólvangi, Hafnarfirði Frá og með 1. mars 1994 verður símatími Hauks Heiðars Ingólfssonar, læknis, kl. 9.00-9.45 alla virka daga. Söluturn með ís og skyndibita Af sérstökum ástæðum er til sölu söluturn með ís og skyndibita í miðbæ Rvíkur. Góð arðsemi. Gott atvinnutækifæri fyrir sam- henta fjölskyldu eða drífandi einstakling. Gott lán getur fylgt gegn fullnægjandi veði. Nánari uppl. gefur Ingvar í síma 91-52555 á milli kl. 18.00 og 21.00 í dag og á morgun, annars símboði 984-51515. Einkavæðing, árangur og afleiðing Á morgun, miðvikudaginn 2. mars, kl. 20.30 verður haldinn umræðufundur um einka- væðinguna, árangur og afleiðingu á Korn- hlöðuloftinu, Bankastræti 2. Frummælendur: Friðrik Sophusson, fjármála- ráðherra; Ögmundur Jónasson, formaður BSRB; Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður; Steingrímur Sigfússon, alþingismaður. Fundarstjóri: Oli Björn Kárason, hagfræð- ingur. Fundurinn er öllum opinn. Landsmálafélagið Vörður. Samband ungra sjálfstæðismanna. SmO auglýsingor I.O.O.F. Rb. 4 = 143318 - ö'h. O. □ HLÍN 5994030119 IV/V 2 Frl. □ EDDA 5994030119 II 5 Frl. ADKFUK Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30 í umsjá Sigrúnar Gísladóttur og fleiri. Hug- leiðing. Allar konur velkomnar. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 SÍMI 682533 Þriðjudagskvöld 1. mars kl. 20.30: Opið hús í Mörkinni 6 (risi) Allir velkomnir, félagar sem aðr- ir. Feröaáætlun liggur frammi. Heitt á könnunni með meiru. Aöalfundur F.f. verður haldinn miðvikudagskvöldð 9. mars í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, og hefst hann stundvfslega kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Munið vetrarfagnaöinn laugar- dagskvöldið 19. mars í Hótel Selfossi. Möguleiki á gistingu. Pantið tfmanlega. Ferðafélag islands. íþróttafélagið Leiknir Framhalds aðalfundur félagsins verður þriðjudaginn 8. mars '94 kl. 20.00 í menningarmiðstöö- inni Gerðubergi. Stjórnin. Fjallið mannræktar- stöð, Krókhálsi 4, (Harðviðar- valshúsið), s. 91-672722. Skyggnilýsing ( kvöld kl. 20.30 verður Ingibjörg Þengilsdóttir með skyggnilýs- ingu í húsnæði stöðvarinnar (Harðviðarvalshúsið 2. hæð bakatil). Aðgangseyrir kr. 700. Upplýsingar í síma stöðvarinnar 672722. Spíritistafélag Islands Anna Carla Ingvadóttir miðill er með einkatíma í lækningum og hvernig fyrri jarðvistir tengjast þér í dag. Upplýsingar i síma 40734. Euro - Visa. Opið frá kl. 10-22 alla daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.