Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 2

Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 Gasolíuverð lágt í Rotterdam Verð óbreytt hér á næstunni Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson Færeyingar flylja ÞRJÁR færeyskar fjölskyldur, alls 12 manns, komu til Hríseyjar á laugardaginn var, en þar hefur fólk- ið fengið atvinnu. Myndin er tekin þegar fólkið er að stíga á landi í eynni eftir sjóferð með ferjunni Sævari frá landi. Færeysku fjölskyldumar komu út í Hrísey á laugardaginn var Fólk í atvimiuleit sýnir áhuga HRÍSEYINGUM fjölgaði umtals- vert um helgina þegar færeysku fjölskyldurnar frá Fuglafirði fluttu þangað búferlum. Fólkið hefur fengið vinnu hjá frystihúsi KEA í eynni. „Við erum mjög ánægð með þessa fjölgun," sagði Jónas Vigfús- son sveitarstjóri í Hrísey. „Það er alltaf ánægjulegt þegar hægt er að veita atvinnulausu fólki vinnu, sama hvaðan það kemur.“ búferlafiutningum Færeyinganna til Hríseyjar hefur fólk víða af land- inu látið í ljós áhuga á staðnum og sagði sveitarstjórinn að fyrirspum hefði komið frá Tálknafirði um at- vinnu og húsnæði og eins hefði maður úr Reykjavík verið að skoða hús í eynni fyrir helgi með kaup í huga. „Þetta er auðvitað einhæf vinna sem í boði er, fyrst og fremst fisk- vinna og það er meiri þörf fyrir kvenfólk en karla,“ sagði Jónas, en hvað húsnæðismál varðar sagði hann að eitthvað væri á lausu af húsnæði, „en það er byijað að þjappast." GASOLÍUVERÐ hefur verið lágt á Rotterdam-markaði undan- farið og var tonnið selt á tæplega 140 dollara kringum 17. og 18. febrúar, miðað við „basis-fob-verð“ en um 143 dollarar við seinustu skráningu. „Basis-fob“ er olíuverð án flutningsgjalda og trygginga en „cargo-cif“ er olíuverð með tryggingu og flutn- ingsgjöldum og því nokkru hærra. Yfirleitt kaupa olífélögin hér olíu miðað við „cargo-cif“ eða sambærilega viðmiðun ytra. Tals- menn íslensku olíufélaganna sögðu í samtali við Morgunblaðið í gær að verð á gasolíu myndi ekki lækka um mánaðamótin nú og óvíst væri með verðbreytingar á næstunni. Verð væri hins vegar endurskoðað jafnóðum í samræmi við varanlegar verð- sveiflur ytra. Um seinustu áramót lækkaði verð á gasolíu í samræmi við lækk- að heimsmarkaðsverð og sagði Kristinn Björnsson, forstjóri Skelj- ungs, að verðið hefði lítið breyst síðan þá að meðaltali, hvorki til hækkunar né lækkunar. „Þegar við lækkuðum í desember vorum við með sama verð og nú, þannig að ég á ekki von á neinum verð- breytingum á næstunni, að minnsta kosti á meðan ekkert til- efni er fyrirsjáanlegt,“ sagði Krist- inn. Bjarni Bjarnason, fulltrúi for- stjóra Esso-Olíufélagsins tók í svipaðan streng. Að sögn Kristins halda olíufélög almennt að sér höndum um þessar mundir og bíða eftir niðurstöðu fundar OPEC-ríkja 25. mars nk., en þar verður athugað hvort sam- staða náist um að minnka fram- leiðslu sem gæti haft mikil áhrif á olíuverð. Samstaða um slíkt sé þó ekki líkleg. Endurskoðað um miðjan mánuð Kristján B. Ólafsson, fjármála- stjóri Olíuverzlunar íslands, sagði að fyrirtækið ætti von á olíusend- ingu eftir fyrstu viku í mars og yrði verð endurskoðað um miðjan mánuð ef tilefni gæfist til. Svartol- ía hafi hins vegar hækkað verulega á heimsmarkaði en vegna ágætar birgðarstöðu geti fyrirtækið boðið svartolíu á óbreyttu verði enn um sinn. Fimm stjórnarþingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi Áhugi á flutningum Auk Færeyinganna er fimm manna fyölskylda frá Stokkseyri að flytja til Hríseyjar á næstunni. „Þetta er fólk sem var atvinnulaust en hefur fengið vinnu hér og er búið að festa kaup á íbúðarhúsi," sagði Jónas. í kjölfar atvinnu- ástandsins í landinu og frétta af Fimmtudagsfrídagar færð- ir og tekiim upp sumartími FIMM stjórnarþingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að láta kanna hvort rétt sé að taka upp sumar- tíma hér á landi og hvort flytja eigi til fimmtudagsfrídaga, svo sem sumardaginn fyrsta og uppstigningardag, og lengja þannig helgar. Einnig verði kannaðir möguleikar á að lögfesta vetrarfrí og stytta sumarfrí á móti. Arekstur á Þjórsár- dalsvegi HARÐUR árekstur varð rétt hjá bænum Haga í Gnúpverjahreppi um kvöldmatarleytið í gær þegar Mitsubishi-pallbíl var ekið framan á Toyota-jeppa. Að sögn lögregl- unnar á Selfossi er ökumaður pall- bílsins grunaður um ölvun við akstur. Hann meiddist lítillega, en fólkið í jeppanum slapp ómeitt. Ökumaður pallbílsins var einn á ferð en tveir voru í jeppanum. Pall- bílnum var ekið norðaustur Þjórsár- dalsveg en jeppanum í gagnstæða átt og lenti pallbíllinn framan á jepp- anum. Að sögn lögleglunnar er það mesta mildi að ekki skuli hafa farið verr. Flutningsmenn tillögunnar eru Vilhjálmur Egilsson, Árni R. Árna- son, Einar K. Guðfinnsson og Árni M. Mathiesen þingmenn Sjálfstæð- isflokks og Gísli S. Einarsson þing- maður Alþýðuflokks. Þeir leggja til að Alþingi feli ríkisstjórninni að skipa nefnd til að kanna þessi atriði. í greinargerð segir að það sé talsvert hagsmunamál fyrir at- vinnulífið að breyta núverandi fyrirkomulagi, en margoft hafi verið kvartað undan því að núver- anóWskipan mála dragi úr fram- leiðni atvinnulífsins og veiki sam- keppnisstöðu þess. Betri sumarstemmning í greinargerðinni kemur einnig fram að Framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins hafi lagt fram til- lögu um samræmdan sumartíma í aðildarríkjunum, að klukkan verði færð fram um eina klukkustund í lok mars og til baka síðasta sunnu- dag í október. Sagt er að þeir sem þurfa að hafa samskipti við Vest- ur-Evrópu yfir sumartímann kvarti undan því að samskiptatíminn minnki verulega við að tímamis- munurinn aukist úr einni klukku- stund í tvær. Því geti mikill tími og fyrirhöfn sparast með því að taka upp sumartíma hér á landi „Ef tekinn er upp sumartími færist hið náttúrulega hádegi frá um hálftvö til um hálfþijú á dag- inn. Þetta þýðir að í raun mundi þjóðin vakna fyrr á sumrin og byija daginn fyrr. En það þýðir líka að sólarinnar nýtur lengur þegar fólk kemur úr vinnu og þá getur verið þokkalega hlýtt á sumardögum nokkuð fram eftir deginum. Þetta gefur því þjóðinni betra tækifæri til þess að njóta sumarsins og skap- ar án efa betri sumarstemmningu með öllu sem því fylgir," segir í greinargerðinni. Frídagar skapa erfiðleika Þá er bent á að íslendingar taki þijá fasta frídaga á fimmtudögum, skírdag, uppstigningardag og sum- ardaginn fyrsta. Þetta fyrirkomu- lag sé nokkuð sérstakt og skapi erfiðleika í atvinnulífi þar sem vinnuvikan slitni sundur. Því hafi oft vaknað sú spuming hvort ekki sé heppilegt að. flytja fimmtu- dagsfrídagana að helgum og jafn- vel taka þá á öðrum tíma og nærri hafi legið að samið væri um það í kjarasamningum að flytja að minnsta kosti einn þessara daga til. Lagt er til að skoða hvort hægt sé að tengja þessa daga til skiptis við 17. júní eða sjómannadaginn og gera þannig langar helgar með aukafrídegi á föstudegi eða mánu- degi. Loks er lagt til að gerð verði rækileg úttekt á því hvort ekki sé skynsamlegt að setja ákvæði í lög um orlof að tiltekinn lágmarks- hluti orlofs sé tekinn utan sumar- leyfistímans. Bent er á að þetta sé til þess fallið að auðvelda fyrir- tækjum almennt starfsemi sína og auk þess geti þetta haft mikla þýðingu fyrir innlenda ferðaþjón- ustu þar sem það hvetji íslendinga til aukinna ferðalaga á vetrum um eigið land. í dag Búnaðarþing Halldór Blöndal, landbúnaðarráð- herra, segir landbúnaðinn illa undir samkeppni búinn 18 Styrkir til grunnskóla________ Tuttugu og átta verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla 27 FSA sýknað____________________ Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sýknað af kröfu sjúkraliða sem slasaðist við störf 20 Leiðari ______________________ Vítahringur rússneskra stjómmála 26 íþróttir ► Knattspymulandslið Bóliv- íu leikur á íslandi í mai - Magn- ús Scheving Evrópumeistari í þolfimi - Heimsmet í sundi hjá Sigrúnu Huld Hákonardóttur Sokolov tryggði sér signr í lokin JOHANN Hjartarson, Sokolov og Van Wely. ÍSLANDSBANKAMÓTINU í skák lauk í gær á Akureyri. Ivan Sokolov vann Jóhann Hjartarson og tryggði sér þar með sigur á mótinu. Hann hlaut 9 vinninga. í öðru sæti varð Hollendingurinn Van Wely, sem í gær vann Henn- ing Danielsen, en hann hlaut ll/i vinning. Jóhann Hjartarson varð þriðji með 7 vinning, Helgi Ólafsson hlaut 6V2 vinninga eftir sigur á Ólafi Kristjánssyni í gær, en Klaus Berg, sem vann Gylfa Þórhallsson í gær, og Margeir Pétursson, sem vann Björgvin Jónsson í síðustu umferð- inni, deildu fimmta sæti með 6 vinn- inga. Önnur úrslit í síðustu umferð urðu þau að De Firmian vann Þröst Þórhallsson. í verðlaun fyrir sigur sinn á mótinu hlaut Sokolov 3.200 banda- ríkjadali eða rúmar 220 þúsund krónur. Verðlaunafé á mótinu var alls 9.150 dalir eða um 650 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.