Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
7
Komst með börn út
úr brennandi húsi
ELDUR kom upp í ibúðarhúsi við Holtsgötu á laugardagskvöld. Kona
sem bjó í íbúðinni komst út úr brennandi íbúðinni með tvö börn sín.
Talið er að kviknað hafi í út frá brauðrist í eldhúsi.
Rjúklingabringur frá Kanada
Málið sent umboðs-
manni Alþingis
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur staðfest afturköllun tollstjórans
í Reykjavík á heimild til að flytja til landsins soðnar kjúklinga-
bringur frá Kanada, sem tollstjórinn hafði áður veitt innflutnings-
heimild fyrir. Að sögn Hauks Hjaltasonar hjá Dreifingu sf. mun
hann vísa þessu máli til umboðsmanns Alþingis, en hann segir
með öllu óskiljanlegt hvernig sljórnvöld hafi tekið á þessu máli.
Eldurinn uppgötvaðist um klukkan
hálfellefu um kvöldið þegar hjón á
kvöldgöngu sáu reyk leggja frá hús-
Lést af höf-
uðáverkum
HOLLENSKA konan sem bíll kast-
aðist á við gatnamót Kringlumýr-
arbrautar og Laugavegar á föstu-
dag lést á gjörgæsludeild Borgar-
spítalans á sunnudagsmorgun.
Hún hlaut mikla höfuðáverka við
slysið og komst aldrei til meðvitund-
ar.
Hún hét Janna Hendrikje, 37 ára
gömul, fædd 10. júní 1956. Hún var
búsett í bænum Epe í Hollandi og
lætur eftir sig eiginmann og tvö börn.
-----♦ ♦ ♦---
Menntamálaráðuneytið
Rekstrar-
gjöld inn-
an ramma
fjárlaga
Rekstrargjöld stofnana mennta-
málaráðunetyis voru innan ramma
fjárlaga á seinasta ári. Framlög
til framhaldsskóla urðu 63 milljón-
um króna innan við áætlun, en
grunn- og sérskólar fóru 43 millj-
ónir framúr fjárlögunum.
Greiðslur til háskólastofnana
námu rúmum 2,2 milljörðum sem er
nánast sama fjárhæð og fjárlög
heimiluðu en grunn- og sérskólar
fóru 43 millj. umfram fjárlög en til
reksturs þeirra fóru rúmlega 4,3
milljarðar í fyrra. „Þessi niðurstaða
sýnir veruleg umskipti til hins betra
miðað við næstu tvö ár á undan. Frá
árinu 1991 hafa greiðslur til fram-
haldsskóla lækkað um 90 m.kr. mið-
að við fast verðlag, eða um 2,6% og
greiðslur til héraðs- og grunnskóla
hafa lækkað um 210 m.kr. eða
4,3%,“ segir í skýrslu fjármálaráðu-
neytisins.
Vaxta- og geymslugjöld 100
millj. untfram fjárlög
Á fjárlögum seinasta árs var gert
ráð fyrir 6 milljarða kr. greiðslum
til landbúnaðarmála skv. nýja bú-
vörusamningnum en þær urðu 6,4
milljarðar. Mesta frávikið, 220 millj.
kr. stöfuðu af auknum niðurgreiðsl-
um á miðju seinasta ári vegna kjara-
samninga. Þá voru greiðslur vaxta-
og geymslugjalds tæplega 100 millj.
kr. hærri en fjárlög heimiluðu og er
ástæðan að vextir reyndust hærri en
og sala dræmari en ráð var fyrir gert.
---------*—*—*---
Lundinn
kominn
Vestmannaeyjum.
LUNDINN sást á sjónum sunnan
við Eyjar í fyrsta skipti á þessu
ári á sunnudaginn og er fuglinn
óvenju snemma á ferðinni nú.
Guðjón Björnsson frá Gerði sá
lundann sunnan við Geirfuglasker.
Hann sagði að talsvert hefði verið
af fuglinum á sjónum en einnig hefðu
stórir hópar verið á flugi og sagði
Guðjón, að þetta hefði helst minnt á
lóuhópana þegar þeir koma til lands-
ins á vorin. Guðjón sagði, að hann
vissi ekki til að lundinn hefði áður
verið hér á ferð svo snemma. „Ég
hef verið til sjós í nær 71 ár og ég
hef aldrei áður orðið var við lunda á
sjónum svo snemma árs.“
- Grímur
inu og sáu skömmu síðar hvar konan
kom hlaupandi út úr húsinu með
börnin í fanginu. Mæðginin höfðu
verið sofandi en konan vaknað við
að eldur var laus í húsinu og hlaupið
út með börnin.
Slökkvilið kom fljótt á staðinn og
tókst fljótlega að vinna bug á eldin-
um en íbúðin skemmdist talsvert af
eldi, vatni og reyk. Mestar urðu
skemmdir í eldhúsi, þar sem upptök
eldsins voru.
Innbú og hús munu vera tryggt
en fólkið hafði nýlega lokið endurbót-
um á húsinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðsmenn berjaset við eld-
inn á Holtsgötu á laugardags-
kvöld.
„Við erum komin á endastöð í
stjórnsýslunni og það verður ekki
nema hjá umboðsmanni Alþingis
sem verður hoggið á hnútana. Eg
tel að hér sé um að ræða vítaverða
valdníðslu sem byggist á hættuleg-
um hringlandahætti í stjórnsýsl-
unni sem stórskaðar okkur erlend-
is,“ sagði Haukur. Hann sagði að
ef álit umboðsmanns Alþingis yrði
Dreifingu sf. í hag teldi hann fulla
ástæðu til að fara með málið fyrir
dómstóla og fá hlutaðeigandi aðila
þar dæmda fyrir lögbrot.
DAEWOO
29" RISATÆKI
Býður nokkur betur?
Við bjóðurri nú nýjustu gerð af DAEWOO/MARK 29" litsjónvarpstækjum, hlöðnum tækninýjungum:
Verð aðeins krí)«).ÍMH)
eða kr
/ 29" flatur, kantaður skjár „Super Black Screen" (flestir bjóða aðeins 28")
t/ Nicam Stereo, 2x25w magnari.
✓ Frábær hljómgæði, 4 hátalarar, Super Woofer og Super Dome.
*/Textavarp með íslenskum stöfum.
i/ Fullkomin fjarstýring.
*/ Stillanlegur tímarofi.
*/ Scart tengi.
89.1)00
Borgartúni 28 “S 622901 og 622900