Morgunblaðið - 01.03.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
9
Ný sending frá Frakklandi
frá stærð 34
TESS
Nfc
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardag
kl. 10-14.
I. GUÐMUNDSSON & Co. hf.
UMBpÐS OG HEILDVER9LUN
SlMI 91-24020 FAX 91-623145
MOULINEX
ELDHÚSMEISTARINN
ótrúlega fjölhæfur, hrærir,
hnoðar, sker og rífur.
MOULINEX
fyrir matgæðinga.
Blomberg eldunartækin hlutu
hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF
hönnunarverðlaun fyrir framúr-
skarandi glæsilega og hugvit-
samlega hönnun.
Enginn býður nú meira úrval af
innbyggingartækjum í sam-
ræmdu útliti en Blomberg !
Komdu til okkar og kynnstu
Blomberg af eigln raun, hringdu
eða skrifaðu og fáðu sendan 60
sfðna litprentaðan bækling á ís-
lensku.
— LE
Tfjhá Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S622901 og 622900
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60. AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. '26
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÖRI: BRAGIV. BERGMANN (ABM.)
FRÉTTASTJÓRl: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLADAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (tþrótlir),
LJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 96-41585. fax 96-42285),
y(A^ÓRSSONjÓSKARÞÓRFLMXD^^»Lj^|
Efling verkmenntunar
„Það er fyrir löngu orðið tímabært að
leggja meiri rækt við verkmenntun og
setja hana á hærri stall,“ segir í forustu-
grein í Degi á Akureyri í síðustu viku.
Víðtækar
breytingar
Dagblaðið Dagur fjall-
aði í forustugreiii nýlega
um tillögur nefndar um
viðtaekar breytingar á
framhaldsskólakerfinu.
Forustugreinin nefndist
„Verkmenntun verði
efld“ og þar segir m.a.:
„Tillögur nefndar um
mótun menntastefnu
gera ráð fyrir víðtækum
breytingum á uppbygg-
ingu framhaldsskóla-
kerfisins og mennta-
málaráðherra mun
leggja fram lagafrum-
vai'p í framhaldi af vinnu
nefndarinnar. Þótt tillög-
umar hafi ekki verið
kynntar í smáatriðum á
opinberum vettvangi eru
þó atriði á borð við þau
að skólaárið verði lengt
úr níu mánuðum í tíu,
heildamámstimi til stúd-
entsprófs verði þrjú ár í
stað fjögurra og starfs-
menntun verði stórefld
komin í umræðuna. Þetta
em vissulega veigamikil
atriði sem þarf að skoða
nánar.“
Sumarvinna
í fomstugreininni er
því næst fjallað um tillög-
una um styttingu náms
til stúdentsprófs í þijú
ár og lýst blaðinu ekki
alls kostar á það, m.a. sé
engin þörf á að dæla
skólafólki út á vinnu-
markaðinn. Bent er á, að
dýrara sé að hafa ein-
staklinga á atvinnuleysis-
skrá en í skóla. Þá segir
ennfremur:
„Reyndar er það deg-
inum ljósara að skólafólk
hefur ekki jafn greiðan
aðgang að sumarvinnu
og áður. Sömuleiðis er
ljóst að mjög margir
hverfa úr námi á þessu
fjögurra ára ferfi og
sjálfsagt hefur nefndin
tekið mið af öllum þess-
um atriðum þótt þau hafi
ekki verið rækilega
kynnt ennþá. í tillögun-
um er einnig lagt til að
sett verði sveigjanleg
inntökuskilyrði fyrir
nemendur til að innritast
á einstakar námsbrautir
og þannig verður meiri
verkaskipting við upphaf
framhaldsskólanáms.
Nemendur eiga þvi að
ákveða strax loka-
markmiðið með náminu
og það gerir línurnar ein-
faldari, séu 16 ára ung-
lingar á annað borð i
stakk búnir til að taka
slíkar ákvarðanir.
Sagan blindar
Sá liður í tillögunum
sem getur vart verið ann-
að en jákvæður lýtur að
eflingu starfsnáms. I því
sambandi er lagt til að
aðilar atvinnulífsins taki
virkan þátt í stefnumótun
og tiliögugerð um skipán
og framkvæmd starfs-
námsins. Það er fyrir
löngu orðið tímabært að
leggja meiri rækt við
verkmenritun og setja
hana á hærri stall. Menn
hafa borið of mikla virð-
ingu fyrir bóknáminu og
skilin núlli memitaðra og
ómenntaðra hafa gjarnan
miðast við það. Þaraa hef-
ur sagan líka biindað okk-
ur og íslendingar hafa
ekki horfst í augu við
breytta tíma. Við þurfum
meiri verkmenntam til að
styðja við frumgreinar
atvinnulifsins. Það verður
að leggja meiri áherslu á
fullvinnslu á sjávarfangi
og landbúnaðarafurðum
og vöraþróun og nýjungar
á ýmsum sviðum. Islend-
ingar geta hvorki haldið
uppi atvinnu né viðunandi
þjóðartelgum með hrá-
vinnslu. Við verðum að
iiefja verkmenntun og iðn-
greinar tíl vegs og virð-
ingar í þjóðfélaginu og ef
væntanlegt lagafrumvarp
uni framhaldsskóia felur
þessi atriði í sér er gott
mál á ferðinni."
Vímuvarnanefnd Hafnarfjaröar
Samkeppni um slagorð
VÍMUVARNANEFND Hafnarfjarðar hefur ákveðið að efna til hug-
myndasamkeppni í tilefni árs fjölskyldunnar og í kjölfar fræðslu-
funda um vímuvarnir í grunnskólum bæjarins undanfarin inisseri.
Keppnin er í samvinnu við skól-
ana og felst í því að fjölskyldan í
sameiningu útfæri og geri tillögu
um slagorð á veggspjaldi. Öllum
fjölskyldum í Hafnarfirði, þar sem
er a.m.k. eitt barn eða unglingur,
er heimil þátttaka. Hver fjölskylda
skal senda inn slagorð og útfærslu
þess (myndskreytingu) á vegg-
spjaldi. Tillögum þarf að skila á
A4 hið minnsta, en efni, tæki og
stíll er hverjum í sjálfsvald sett.
Hver tillaga skal merkt dulnefni,
en í lokuðu umslagi merktu sama
dulnefni skulu vera nöfn allra fjöl-
skyldumeðlima, aldur þeirra, heim-
ilisfang og sími. Veitt verða verð-
laun í samkeppninni.
Tillögum skal skila til Vímuvarn-
arnefndar Hafnarfjarðar, Ráðhús-
inu við Strandgötu, 220 Hafnar-
firði, fyrir 20. mars. Nánari upplýs-
ingar verða veittar á bæjarskrif-
stofunum.
Útbob ríkisvíxla
til 3, 6 og 12 mánaba
fer fram mibvikudaginn 2. mars.
Nýtt útboö á ríkisvíxlum fer fram á
morgun. Um er aö ræöa 5. fl. 1994
A, B og C í eftirfarandi verögildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til 3, 6 og 12 mánaöa
meö gjalddaga 3. júní 1994, 2.
september 1994 og 3. mars 1995. Þessi
flokkur veröur skráöur á Veröbréfaþingi
íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir verða seldir með
tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboö
samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu
er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í
meðalverð samþykktra tilboða er
1 millj. kr.
Aörir sem óska eftir að gera tilboð í
ríkisvíxla eru hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá
og veita nánari upplýsingar. Jafnframt
er þeim sjálfum heimilt að bjóða í
vegið meðalverð samþykktra tilboða
(meðalávöxtun vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa
að hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 14 á morgun, miðvikudaginn
2. mars. Tilboðsgögn og allar nánari
uppíýsingar eru veittar hjá Lánasýslu
ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 40 70.
Athygli er vakin á því að
4. mars er gjalddagi á 23. fl.
ríkisvíxla sem gefinn var út
3. desember 1993.
Löggiltum verðbréfafyrirtækjum,
verðbréfamiðlurum, bönkum og
sparisjóðum gefst einum kostur á að
gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt
tiltekinni ávöxtunarkröfu.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.
GOTT FÓLK / SlA