Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
31
sem dómar misgamalla hrossa frá
ólíkum sýningarárum voru lagðir að
jöfnu.
Einstaklingssýningarnar eru lík-
lega vinsælasti hluti kynbótaþáttar-
ins þar sem fram koma nýjar stjörn-
ur en það er einmitt það sem áhorf-
endur vilja. Að ætla sér að spá í
hvaða hross muni bianda sér þar í
toppbaráttuna er nær útilokað á
þessu stigi málsins. Að vísu, með því
að líta yfir dóma síðasta árs, má leiða
getum að því hvaða hross muni koma
fram í sex vetra flokkum -en um
yngri flokkana er ill mögulegt að
spá. Línur skýrast í forskoðun og
best að láta nægja að fylgjast með
framvindu mála í henni þegar þar
að kemur. Hinsvegar má geta hér
lágmarkseinkunna sem farið verður
eftir við val hrossa inn á mótið. Stóð-
hestar 6 vetra og eldri þurfa að ná
8,05. Stóðhestar 5 vetra 7,95. Stóð-
hestar 4 vetra 7,80. Hryssur 6 vetra
og eldri 8,0, hryssur 5 vetra 7,90
og hryssur 4 vetra 7,80. Alltaf hefur
þeirri skoðun skotið upp kollinum að
velja ætti fyrirfram ákveðinn fjölda
hrossa í hvern flokk en ekki fara
eftir lágmarks einkunnum. Telja
ýmsir að dómar séu alltaf harðari
landsmótsár og vilja rökstyðja það
með þeim hætti að dómarar séu að
reyna að tryggja að ekki fari of
mörg hross inn á mót hverju sinni.
Aðspurður um það hversvegna þess-
ari leið hefði verið hafnað sagði
Kristinn að samkvæmt útreikningum
væru einkunnir landsmótsár fyllilega
í jafnvægi við önnur ár þannig að
þessi kenning stæðist engan veginn.
En hvers vegna þessi leið hafi ekki
verið valin sagði hann að þar væri
farið eftir vilja hestamanna. Sagði
hann að á síðasta ársþingi LH hafi
þessi mál borið á góma í kynbóta-
nefnd þingsins en enginn séð ástæðu
til að bera fram tillögu þess efnis
að fjöldi kynbótahrossa yrði ákveðinn
fyrirfram.
Búið er að dagsetja forskoðun sem
fram fer fyrir landsmót og má sjá á
meðfylgjandi töflu að hún tekur mun
skemmri tíma en áður. Munar þar
mestu að tvær dómnefndir verða að
störfum. Önnur, sem Þorkell Bjarna-
son hrossaræktarráðunautur veitir
forstöðu, mun dæma á Norðurlandi
og Austfjörðum að Vestur-Húna-
vatnssýslu undanskilinni en hin dóm-
nefndin, þar sem Kristinn Hugason
mun ráða ríkjum, dæmir á Suður-
og Vesturlandi auk Vestur-Húna-
vatnssýslu. Með þeim munu starfa
héraðsráðunautar og eru uppi hug-
myndir um að starfandi ráðunautar
á Norðurlandi muni dæma fyrir sunn-
an og öfugt. Sagði Kristinn þetta
gert til að tryggja hlutleysi og betri
yfirsýn.
Nýtt kynbótamat verður reiknað
út að aflokinni forskoðun og verður
fullbúið 20. júní og mun þá liggja
• fyrir röð afkvæmahrossa til verð-
launa á landsmótinu. Sýningargjöld
fyrir hvert hross verða 2.050 krón-
ur, hefur hækkað um 50 krónur frá
síðasta ári og segir Kristinn það í
samræmi við hækkun vísitölu búíjár.
Á landsmótinu er gert ráð fyrir að
byggingardómar á hryssum úr for-
skoðun verði að mestu látnir standa.
Kynbótadómar munu hefjast þriðju-
daginn 28. júní en dagskrá mótsins
verður kynnt nánar síðar.
KRIPALUJOGA
Jóga er líkamleg og andleg iðkun.
Námskeið hefjast í byrjun mars
fyrir byrjendur og lengra komna.
Reyndir kennarar.
JógastöMn Heimsljós
Skeiíunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
Mc’tsMublcu) ú hverjum degi!
mánaða ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bílum í eigu Brimborgar!
1 o O % ÁBYRGÐ
Opið laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Það getur verið töluverð áhætta að kaupa notaðan bíl. Þú getur auðveldlega sannreynt að útlit bflsins sé í lagi en fæstir
hafa getu né aðstöðu til að sannreyna hvað leynist undir yfirborðinu. Þess vegna býður Brimborg hf. SEX mánaða
ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bflum í eigu Brimborgar. Allir notaðir bflar af þessum tegundum eru yfirfarnir af
þjónustumiðstöð Brimborgar og þar er allt lagfært sem er í ólagi áður en bflarnir eru seldir. Þannig er öryggi þitt tryggt.
Ábyrgðin giidir til sex mánaöa eða að 7500 km. og allt er í ábyrgð nema yfirbygging bilsins. faxafeni s - sImi 9i-6SS870