Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
MÓSES AÐALSTEINSSON
verkfræðingur,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans laugardaginn 26. febrúar.
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Ragnheiður Mósesdóttir, Matthew James Driscoll,
Kári og Katrín Þórdfs Driscoll.
t
Útför móður okkar og tengdamóður,
ÖNNU ÞORGRÍMSDÓTTUR,
sem lést 13. febrúar, hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Birna Jónsdóttir, Pétur Pétursson,
Jóhanna Jónsdóttir, Anna Þorbjörg Kristjánsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Jónas Árnason,
Þorgrímur Jónsson, Hulda Jósefsdóttir,
Bjarni Jónsson, Hólmfrfður Árnadóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
MAGNÚS JÓNSSON,
Suðurgötu 12,
Keflavfk,
lést að morgni 28. febrúar í Sjúkrahúsi Keflavíkur.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helga Jónsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BENEDIKT E. JÓNSSON,
Hafnargötu 120,
Bolungarvík,
lést í Sjúkrahúsi Bolungarvíkur 28. febrúar.
Margrét Halldórsdóttir,
Guðrfður Benediktsdóttir, Einar Hálfdánsson,
Halldór Benediktsson, Steinunn S.L. Annasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES FR. SIGURÐSSON
húsasmiður,
Löngumýri 57,
Garðabæ,
lést í Landspítalanum sunnudaginn
27. febrúar.
Hafsteinn Jóhannesson, G. Magnea Magnúsdóttir,
Kristinn Jóhannesson, Áslaug Erla Guðnadóttir,
Sigurður H. Jóhannesson, Brynja Guðmundsdóttir,
Haukur Jóhannesson, Eygló Björk Kristinsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir og
tengdafaðir,
GUÐJÓN GUÐJÓNSSON
Stóragerði 18,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 3. mars kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Ingibjörg Rebekka Jónsdóttir,
Ingibjörg R. Guðjónsdóttir, Ólafur J. Gunnarsson.
t
Maðurinn minn,
GUNNAR PÉTUR LÁRUSSON,
Guðrúnargötu 4,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 2. mars 1994 kl. 13.30.
Sigurlaug Sigurðardóttir.
Guðlaugur Hannes-
son — Minning
Fæddur 21. september 1926
Dáinn 15. febrúar 1994
Mér er í minni sá dagur þegar ég
fyrst hitti Guðlaug Hannesson. Þá
starfaði hann á Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins og hafði óskað eftir
að fá að ræða við líffræðistúdent við
Háskólann með það í huga að að-
stoða sig við tiltekið verkefni. Örlög-
in höguðu því þannig að þessi líf-
fræðistúdent var sá sem hér ritar.
Hann talaði við stúdentinn um verk-
efnið eins og hann hefði talsvert til
málsins að leggja. Ég hef oft hugsað
um það síðar, hve mikils virði það
er þegar ungt fólk í leit að sumar-
vinnu fær þannig móttökur. Sam-
starf okkar Guðlaugs varð þó ekki
langvinnt, en fyrir hans milligöngu
fór ég í framhaldsnám.
Eftir að ég kom frá námi og hóf
störf á Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins, hafði Guðlaugur verið ráðinn
forstöðumaður Matvælarannsókna
ríkisins, sem var undanfari Hollustu-
vemdar ríkisins. Fram til þess tíma
hafði gerladeild RF rannsakað öll
sýni fyrir heilbrigðiseftirlitið í land-
inu auk þess að vinna að verkefnum
fyrir fískiðnaðinn. Fyrst eftir stofnun
Matvælarannsókna, árið 1976, hafði
Guðlaugur skrifstofuna sína á gerla-
deildinni til umráða. Þegar ég kom
til starfa þótti honum ekkert sjálf-
sagðara en að öðru skrifborði væri
komið fyrir þar inni. Það var gaman
og fróðlegt að deila skrifstofu með
Guðlaugi. Honum voru hollustumál
matvælaiðnaðarins hugleikin og
hann hafði mikinn áhuga á eflingu
íslensks matvælaiðnaðar. Upp úr
1970 voru lögð fyrir Bandaríkjaþing
frumvörp um stórauknar kröfur um
aðbúnað fískiðnaðarfyrirtækja sem
framleiddu fyrir Bandaríkjamarkað.
Hér á landi var sett á laggimar sér-
stök nefnd sem hét „Tillögunefnd
um hollustuhætti í fískiðnaði" til að
fjalla um það hvemig íslendingar
ættu að bregðast við þessum yfírvof-
andi kröfum. Guðlaugur tók þátt í
starfí nefndarinnar og var m.a. rit-
ari hennar um tíma. Lagði nefndin
til að gert yrði stórátak um allt land
í að bæta búnað og umhverfí vinnslu-
stöðvanna, hollustuhætti við fram-
leiðsluna og aðstöðu fyrir starfsfólk.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR SVANLAUGSDÓTTIR,
Hörðalandi 4,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hennar,
er bent á Hjartavernd.
Anna Kristófersdóttir, Ómar Arason,
Harald Kristófersson, Anna Pétursdóttir,
Hjalti Kristófersson
og barnabörn.
t
Föðursystir mín,
ELÍNRÓS SIGMUNDSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
sem andaðist 19. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Vikingur Björnsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir
og afi,
STEFÁN GUÐMUNDSSON,
Kleppsvegi 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 1. rnars,
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélag
fslands.
Þuríður Guðmundsdóttir,
Haukur M. Stefánsson, Soffia Bryndfs Guðlaugsdóttir,
Arnheiður S. Stefánsdóttir, Jens Gunnar Ormslev,
Guðmundur Þ. Stefánsson, Jacquline Raatz,
Hrefna Helgadóttir, Ingólfur Þorsteinsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, áfi og langafi,
HÁKON KRISTGEIRSSON
fv. verkstæðisformaður
hjá Steindóri,
Hjarðarhaga 38,
verður jarðsunginn frá Neskirkju
fimmtudaginn 3. mars kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hins Íátna, er
bent á Félag aðstandenda Alzheimer-
sjúklinga, Hlíðabæ.
Helga Lúthersdóttir,
Finnbjörg Hákonardóttir, Ólafur Sigurðsson,
Steinunn Hákonardóttir, Páll Guðmundsson,
Kristborg Hákonardóttir,
Kristgeir Hákonarson,
Reynir Sæmundsson, Þóra Siguröardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þótt áðurnefnd frumvörp hafí að lok-
um dagað uppi á Bandaríkjaþingi,
var ákveðið að hrinda „frystihúsaá-
ætluninni" í framkvæmd. Enginn
vafí er á því að þær umbætur sem
fylgdu í kjölfarið færðu fiskiðnaðinn
hér á landi í einu vetfangi í fremstu
röð. Þótt þetta átak hafi verið erfítt,
kostnaðarsamt og umdeilt á sínum
tíma, var með því lagður grundvöllur
að nútímalegum fiskiðnaði á íslandi.
Hollustunefndin lét frá sér fara
„Handbók fyrir frystihús", sem lýsti
skýrt og skilmerkilega þeim kröfum
sem gera þyrfti til fiskvinnslustöðva.
Þótt nú séu ýmsar nýjar stefnur í
heilbrigðiskröfum til matvælaiðnað-
arins er óhætt að fullyrða að Hand-
bókin hefur í nær öllum atriðum stað-
ist tímans tönn.
Guðlaugur vann í nánum tengslum
við sölusamtök frystiiðnaðarins við
að skipuleggja og hrinda í fram-
kvæmd gerlafræðilegu eftirliti með
frystum afurðum. Arið 1971 tók
Fiskvinnsluskólinn einnig til starfa í
húsakynnum RF og voru margvísleg
hreinlætisnámskeið skipulögð á veg-
um skólans, en Guðlaugur átti sæti
í fyrstu skólanefndinni. Á þessum
tíma vann hann einnig ötullega að
þjálfun verðandi heilbrigðisfulltrúa.
I þessum störfum var Guðlaugur
farsæll því hann naut verðskuldaðs
trausts sem sérfræðingur. Ekki var
alltaf auðvelt að sannfæra menn um
nauðsynina á umbótum í hreinlætis-
háttum. Þar tókst Guðlaugi hins veg-
ar vel upp og átti þar stóran þátt í
kurteisi hans og hæfileiki til að setja
fræði sín fram á auðskilinn hátt.
Enginn vafí er á því að þetta umbóta-
starf átti mikinn þátt í að byggja
upp það góða traust sem íslenskar
fískafurðir hafa notið á erlendum
mörkuðum.
Það er e.t.v. einkennandi fyrir
rannsóknastörf að aldrei er að vita
hvenær niðurstöður nýtast, því „fáir
njóta eldanna, sem fyrstir kveikja
þá“. Guðlaugur vann á árum áður,
ásamt öðrum, að tiiraunum á Rann-
sóknastofnun fískiðnaðarins með
geislun fískafurða til að lengja
geymsluþol þeirra. Þessi aðferð hefur
legið í láginni í áratugi vegna efa-
semda um öryggi hennar, en nú
gæti farið að rofa til í þeim efnum.
Fyrir liggja vandaðar skýrslur um
þessar tilraunir sem gerðar voru við
íslenskar aðstæður og unnt verður
að byggja á þegar þar að kemur.
Við samstarfsmenn Guðlaugs á
RF kveðjum góðan félaga og sendum
eftirlifandi eiginkonu hans, Ingunni
Ingvarsdóttur, sonum og öðrum að-
standendum samúðarkveðjur. Við
Kristín minnumst með þakklæti
ánægjulegra samverustunda og vin-
argreiða á liðnum árum. Minningin
lifir um góðan dreng.
Grímur Valdimarsson.
r
V
ERFIDRYKKJUR
sími 620200
P E R L A N
Wislu|)jónusi<i
Erfidrykkjur
Verö Irá 750 kr. á mann
614849
108 Reykjavík. Sími 31099
Opíð ölt kvöid
til kl. 22,- einnlg um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.