Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 45

Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 45 Morgunblaðið/Arnór Þrír frakkar með Ulfari ÍSLANDSMEISTARAR kvenna í sveitakeppni. _ Frá vinstri eru Esther Jakobsdóttir, Valgerður Kristjónsdóttir, Úlfar Eysteinsson fyrirliði, Anna Þóra Jónsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir. Hjördís Eyþórsdóttir var fjarverandi. Ungir íslandsmeistarar ÍSLANDSMEISTARAR spilara 25 ára og yngri. Frá vinstri eru Karl O. Garðarsson, Stefán Asmundsson, Magnús Magnússon og Sigurbjörn Haraldsson. Islandsmót kvenna og yngri spilara í sveitakeppni 14 ára Islandsmeistari í flokki yngri spilara Sveit Þriggja frakka varði titilinn í kvennafiokki __________Brids______________ Guðm. Sv. Hermannsson SVEIT Þriggja frakka varði Islandsmeistaratitil kvenna í sveitakeppni um helgina. Keppt var um titilinn í 12. skipti og hefur Esther Jak- obsdóttir nú unnið hann 11 sinnum. Sveit Kvikk sf. vann íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni. Einn liðsmaður Kvikk, Sigurbjörn Haralds- son, er aðeins 14 ára gamall og er hann yngsti íslands- meistari sem krýndur hefur verið í brids. Sex sveitir kepptu til úrslita í kvennaflokki og sveit Þriggja frakka tók snemma forustu. Sveit Erlu Siguijónsdóttur fylgdi henni þó fast eftir og þessar sveitir spiluðu saman í síðustu umferðinni. Þá voru Þrír frakkar með 10 stiga forustu þannig að Erla varð að vinna leikinn 20-10 til að ná titlinum. í þessum síðasta leik var mik- ið um sveiflur og fóru fleiri til sveitar Erlu. En sú stærsta, 18 IMP-stig, fór til sveitar Þriggja frákka þegar annað parið í sveit Erlu fór 500 niður á fjórum hjört- um dobluðum og hitt parið fór 1400 niður á 5 tíglum dobluðum í sama spilinu. Leikurinn endaði 17-13 fyrir Erlu en íslands- meistaratitillinn fór til Þriggja frakka, sem endaði með 100 stig en Erla endaði með 94 stig. í sigursveitinni spiluðu Esther Jakobsdóttir, Valgerður Krist- jónsdóttir, Anna Þóra Jónsdóttir, Ljósbrá Baldursdóttir og Hjördís Eyþórsdóttir. Með Erlu spiluðu Kristjana Steingrímsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir og Guð- laug Jónsdóttir. í þriðja sæti, með 75 stig, var sveit Sendibíla- stöðvarinnar Þrastar. Hana skip- uðu Ólína Kjartansdóttir, Hulda Hjálmarsdóttir, Grehte Iversen og Sigríður Eyjólfsdóttir. Sigursælir norðanmenn Keppnin í flokki yngri spilara var einnig jöfn og spennandi og börðust ljórar sveitir lengi vel um sigurinn, Kvikk sf., Halldórs Más Sverrissonar, LA Cafés og Sparisjóðs Siglufjarðar. Fyrir- fram þóttu sveitir Sparisjóðsins og Kvikk sigurstranglegastar en fyrir síðustu umferð var Kvikk efst með 152 stig, Halldór Már var í öðru sæti með 142 stig og Sparisjóðurinn var í 3. sæti með 141 stig. í síðustu umferðinni tapaði Kvikk, 12-18, fyrirRagn- ari T. Jónassyni frá Isafirði og endaði því með 164 stig. Halldór Már tapaði 9-21 fyrir Birni Brynjólfssyni og datt við það í 4. sætið. Sparisjóðsmenn unnu sinn leik 21-9 og enduðu með 162 stig en það dugði aðeins í 2. sætið og sveit LA Cafés skaust í 3. sætið með 25-5 sigri í síð- ustu umferð og endaði með 153 stig. Sveit Kvikk skipuðu Karl O. Garðarsson, Stefán Ásmunds- son, Magnús Magnússon og Sigurbjörn Haraldsson. Karl og Stefán hafa áður unnið íslands- mót yngri spilara í tvímenningi og Magnús er fyrrverandi ís- landsmeistari í einmenningi. Þetta er hins vegar fyrsti Is- landsmeistaratitill Sigurbjöms sem er aðeins 14 ára gamall en hefur undanfarið vakið mikla athygli og vann meðal annars afmælismót Soffíu Guðmunds- dóttur á Akureyri í vetur. Sveit Sparisjóðsins skipuðu Ólafur og Steinar Jónssynir, sem eru íslandsmeistarar í sveita- keppni, og Skúli Skúlason og Stefán Stefánsson sem eru ís- landsmeistarar yngri spilara í tvímenningi. Sveit LA Cafés var skipuð Erlingi Arnarsyni, Stefáni Jóhannssyni, Inga Agnarssyni og Aron Þorfinnssyni. Þess má geta að hann er sonur Estherar Jakobsdóttur. Það er athyglisvert að lang- flestir verðlaunahafarnir í yngri flokknum eru landsbyggðar- menn. Sigurvegararnir eru frá Akureyri og Suðurlandi, silfur- verðlaunahafamir eru Siglfirð- ingar og Akureyringar og tveir bronsverðlaunahafanna eru Sel- fyssingar. ____________Brids_______________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson íslandsmótið í sveitakeppni - Undanúrslit Sl. sunnudag var dregið í riðla í undankeppni íslandsmótsins í sveita- keppni sem hefgst 11. marz nk. Verða riðlarnir þannig skipaðir: A-RIÐILL: 1. Tryggingamiðstöðin Reykjavík 2. Aron Þorfmnsson Reykjavík 3. Jóhann Stefánsson Nl. vestra 4. L.A. Cacé Reykjavík 5. Björn Friðriksson Nl. vestra 6. Guðlaugur Sveinsson Reykjavík 7. Metró Reykjavík 8. Jón Þ. Bjömsson Vesturland B-RIÐILL: 1. Eiríkur Kristófersson Vestfirðir 2. Glitnir Reykjavík 3. Brynjar Olgeirsson Vestfirðir 4. Hjólbarðahöliin Reykjavík 5. Magnús Magnússon Nl. eystra 6. Vélaleiga Sigga Þór Austurland 7. Sparisjóður Keflavíkur Reykjanes 8. Herðir Austurland C-RIÐILL: 1. Alfreð Viktorsson Vesturland 2. Þorgeir Jósefsson Vesturland 3. Valur Símonarson Reykjanes 4. Borgarapótek Reykjavík 5. V.Í.B. Reykjavík 6. Símon Simonarson Reykjavík 7. Birgir Orn Steingrsson Reykjanes 8. Þorsteinn Bergsson Austurland D-RIÐILL: 1. Sparisjóður Siglufjarðar Nl. vestra 2. Icemac Suðurland 3. Sigfús Þórðarson Suðurland 4. Kristófer Magnússon Reykjanes 5. Brynjólfur Gestsson Suðurland 6. H.P. kökugerð Suðurland 7. Kjöt og fiskur Reykjavík 8. Landsbréf Reykjavík E-RIÐILL: 1. Hermann Tómasson Nl. eystra 2. Hlynur Magnússon Vestfirðir 3. S. Ármann Magnússon Reykjavík 4. Bíóbarinn Reykjavík 5. Sigurbjörn Haraldsson Nl. vestra 6. Sproti-Icy Austurland 7. Kristján Blöndal Nl. vestra 8. Sigurður Sigurjónsson Reykjavík Morgunblaðið/Arnór Nei, þetta er ekki hattasýning — það er verið að draga í undan- keppni Islandsmótsins í sveitakeppni. Það er frkvstj. Bridssam- bandsins, Elín Bjarnadóttir, sem stjórnar framkvæmdinni. - Morgunblaðið/Magnús Gíslason Hótel við Staðarskála VEITINGAMENNIRNIR í Staðarskála eru að leggja síðustu hönd á framkvæmdir við nýtt hótel á Stað. Nýtt hótel við Staðarskála AÐ Stað í Hrútafirði er verið að Ijúka byggingu nýs hótels í tengsl- um við starfsemi Staðarskála. Á hótelinu eru 18 tveggja manna herbergi, öll með baði. Þar er rúmgóður veitingasalur og setustofa. Áformað er að taka hótelið í notkun í byijun júní. Gistiaðstaða hefur verið tak- aukið gistirými skapist möguleikar mörkuð í Staðarskála og löngu orð- ið tímabært að bæta úr því,“ segir Magnús Gíslason, veitingainaður í Staðarskála. Hann leggur áherslu á að aðstaðan verði ákjósanleg fyr- ir fundi og minni ráðstefnur. Magnús segir að í tengslum við á fjölbreyttri þjónustu við gesti Staðarskála. í framtíðinni verði lögð rík áhersla á að auka framboð á afþreyingu ýmiskonar. Skipulagð- ar verða dagsferðir í hópferðabif- reið frá staðnum, til dæmis á Strandir, í Borgarfjörð og að Breiðafirði. Þá nefnir hann göngu- ferðir til áhugaverðra staða í ná- grenninu. Að vetrinum verður lögð áhersla á útivist, til dæmis ferðir á vélsleð- um og snjóbíl og dorgveiði. í vetur hefur Flugbjörgunarsveitin í Vest- ur-Húnavatnssýslu staðið fyrir dorgveiðiferðum að Arnarvatni stóra í samvinnu við Dorgveiðifélag íslands. Hefur verið farið flesta laugardaga. p1 ^=EI== IB,— ,b| I TILEFNI DAGSINS SELJUM VIÐ MAT OG ÁMUÖL Á 5 ÁRA GÖMLU VERÐI Kringlukráin er opin alla daga vikunnar, sunnudaga til fimmtudaga frá kl. 12 til 01, föstudaga og laugardaga frá kl. 12 til 03 KRINGLUKRÁIN Restaurant - Pub Borgarkringlunni P1 Islenskt ámuöl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.