Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 46

Morgunblaðið - 01.03.1994, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994 TALKIN6 jBWTttvau Kfisniai! imujvs irsiMon BlffiSWJWfllfll&ar JtKDJinKar*iWittiKSJnfliSr[1IBGBIiiti FLEIRI POTTORMAR Hver man ekki eftir Pottorma- myndunum tveimur, sem slógu öll met út um allan heim! Nú er uppáhaldsfjölskylda allra mætt í þriðja sinn og er farin i hundana. Takið bátt í spennandi kvikmynda- getraun á Stiurnubín-línunni í síma 991065. Glæsileg verölaun eru í bnöi: ársmiöi í Stjnrnubín, My First Sony-hljómtæki Irá Japis auk boðsmiða á myndina. Jtuk bess veita aðgöngumiðar fyrir hunda hjá Dýraríkinu. Verð kr. 39,90 mínútan. í NÝJU OG STÓRGLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI „Afbragðs góðir stólar“ ★ ★ ★ ★ S.V. MBL. Frumsýnir spennutryllinn í KJÖLFAR MORÐINGJA STRIKIHC DISTANCE -100 VOLTA SPTNNUMYND Sýnd kl.5,9.05 og11. B. i. 16 ára. Old sakleysisins Tilnefnd til 5 Óskarsverðlauna. Sýnd kl. 6.45. Síðustu sýn. KR. 350 u. I. maia. rvrv. 03U WttttttttttttttttttttttttttttmH Morgunblaðið/Arnór Frá afhending'u endurlífgunarbúnaðarins sl. laugardag. Talið frá vinstri: Sigurður Jónsson forseti Kiwanisklúbbsins Hofs, Jón Hjálmarsson forsvarsmaður íþróttahúss- ins, Guðmundur Th. Ólafsson, Sigurjón Kristinsson formaður styrktarnefndar og Sig- urður Ingvarsson formaður húsnefndar, en Sigurður veitti búnaðinum viðtöku. Garður Kiwanisklúbburinn Hof gaf endurlífgunarbúnað Garði. SL. LAUGARDAG afhenti Kiwanisklúbburinn Hof for- svarsmönnum íþróttahússins endurlífgunarbúnað til björgunar frá drukknun. Þetta eru þrjár stærðir af öndunarbelgjum sem notaðir eru í stað munn-við-munn- aðferðarinnar. gjg BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680 ^I^LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svið kl. 20: • GLEÐIGJAFARNIR eftir Neil Simon. með Árna Tryggvasyni og Bessa Bjarnasyni. FRUMSÝNING fim. 3/3 örfá sæti laus, 2. sýn. fös. 4/3, grá kort gilda uppselt, 3. sýn. mið. 9/3, rauð kort gilda, fáein sæti laus, 4. sýn. sun. 13/3, blá kort gilda, fáein sæti laus. • EVA LUNA leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson unnið upp úr bók Isabel Allende. Lau. 5/3 uppselt, sun. 6/3 uppselt, fim. 10/3, fös. 11/3 upp- selt, lau. 12/3 uppseit, fim. 17/3, lau. 19/3 uppselt, fim. 24/3, fös. 25/3 uppselt, sun. 27/3. Geisladiskur meö lögunum úr Evu Lunu til sölu í miðasölu. ATH. 2 miðar og geisladiskur aðeins kr. 5.400. Litla svið kl. 20: • ELÍN HELENA e Árna Ibsen Aukasýning fös. 4/3 og lau. 5/3, allra síðustu sýningar. Ath.: Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasalan er opin frá ki. 13-20 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum i síma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasimi 680383. - Greiðslukortaþjónusta. ÍSLENSKA LEIKHÚSIÐ HllfU HÍSINB, NHTUIiOLTI 21. SÍMI124121 VÖRULYFTAN eftir Harold Pinter í leikstjórn Péturs Einarssonar. Leikmynd: Gunnar Borgarsson. Lýsing: Sigurður Guðmundsson. Hljóðmynd: Hilmar Örn Hilmarsson. Leikarar: Halldór Bjömsson og Þórarinn Eyfjörð. Frimsýning þriöjud. 1. mars kl. 17.11, uppselt. Miðvikad. 2. mars kl. 17.11, uppselt. Fimmtud. 3. mirs kl. 17.11, uppselt. Liimrd. S. mirs kl. 21.11, laus sæti. Miiipantinir í Hinu húsinu, sími 124321. Siguijón Kristinsson for- maður styrktarnefndar hjá Kiwanisklúbbnum afhenti búnaðinn og Sigurður Ing- varsson formaður húsnefnd- ar veitti honum viðtöku. Öndunarbelgirnir eru af þremur stærðum. Minnsti belgurinn er fyrir ungbörn, miðstærðin fyrir börn og unglinga og stærsti belgur- inn fyrir fullorðna. Starf Kiwanisklúbbsins Hofs hefur verið með hefð- bundnum hætti í vetur. Þó má geta þess að félagið endurvakti þorrablótin í Garðinum, sem legið höfðu niðri í tæpan áratug. Ágóð- inn, sem af þorrablótinu varð, rann til Björns Finn- bogasonar kjörforseta sem slasaðist illa í slysi á þrett- ándanum í vetur. Þá má og geta þess að si. fimmtudag voru 11 félagar frá Selfossi í heimsókn hjá klúbbnum. Félagar í Kiwanisklúbbn- um Hofi eru nú 28. - Arnór Kringlukráin með afmælisverð í DAG eru liðin 5 ár síðan sala á áfengu öli var Ieyfð hér á landi og í dag er Kringlukráin 5 ára. Af því tilefni býður ostafyllt tortellíni með skinku Kringlukráin upp á lækkað verð á mat og öli á næst- unni. Þannig verður íslensk kjötsúpa á boðstólum fyrir 380 krónur, kringlusamloka með frönskum á 430 krónur, síldardiskur á 530 krónur og og sveppum á 630 krónur, svo dæmi séu tekin. Ámuöl af krana lækkar einnig í tilefni afmælisins. Lítill Egils gull kostar 250 krónur og stór kostar 390 krónur. JÓÐLEIKHÚSIÐ sími 1 1200 Stóra sviðið kl. 20.00: • GAURAGANGUR eftir Óiaf Hauk Símonarson. 7. sýn. á morgun mið. 2. mars, uppseTt, 8. sýn. sun. 6. mars, uppselt, - lau. 12. mars, uppselt, - sun. 13 mars, uppselt, fim. 17. mars, uppselt, - fös. 18. mars, uppseit, - fim. 24. mars, uppselt, - lau. 26. mars, uppseit. MENNINGARVERÐLAUN DV 1994 • MAVURINN eftir Anton Tsjekhof Lau. 5. mars, allra síðasta sýning. • ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller. Fös. 4. mars - fös. 11. mars -.lau. 19. mars - fös. 25. mars. Sýningum fer fækkandi. • SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum Sun 6. mars kl. 14, nokkur sæti laus, - lau. 12. mars kl. 14, - sun. 13. mars kl. 14, nokkur sæti laus. • ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Frumsýning fim. 3. mars kl. 20 - 2. sýn. lau. 5. mars kl. 14 - 3. sýn. mið. 9. mars kl. 20 - 4. sýn. fim. 10. mars kl. 20 - 5. sýn. sun. 20. mars kl. 20. Smíðaverkstæðið kl. 20.30: • BLÓÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca Fös 4. mars - fös. 11. mars, uppselt, - lau. 19. mars. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Litla sviðið kl. 20.00: • SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norén Fim. 3. mars - lau. 5. mars - fös. 11. mars - lau. 12. mars. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00. Græna línan 996160. Muniö hina glæsilegu þriggja rétta máltið ásamt dansleik. LEIKHUSKJALLARINN - ÞAR SEM LÍFIÐ ER LIST - UR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 25. - 28. febrúar 1994 Um helgina eru skráðar 414 færslur í dagbókina. Af þeim eru 104 umferðar- mál. Flestir hafa verið kærðir vegna hraðaksturs, eða 54 talsins. Þegar færðin er eins góð og um helgina vilja ökumenn gleyma sér og aka þá margir hveijir hraðar en leyfileg hámarks- hraðamörk segja til um. Við þær aðstæður verða oft flest og alvarlegustu um- ferðarslysin. Um helgina var tilkynnt um 25 umferð- aróhöpp. Slys á fólki urðu í tveimur tilvikanna. Und- anfarna viku hefur verið tilkynnt um 60 umferðaró- höpp og 9 umferðarslys til lögreglu, en í raun er um- ferðaróhappatíðnin miklum mun hærri því meirihluti óhappatilvikanna er til- kynntur beint til trygginga- félaganna. Á sama tímabili hafa 174 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akst- ur og 108 fyrir önnur um- ferðarlagabrot. Lögreglan lokaði tveimur bruggverksmiðjum um helgina. Önnur og sú stærri var staðsett í sumarbústað rétt við Mosfellsbæ, en hin var í Vogunum í Reykjavík. Á báðum stöðunum var hellt niður talsverðu af landa og lagt hald á tæki. Tvö tæki höfðu verið í notk- un á fyrrnefnda staðnum. Lögreglan hafði fylgst með aðstandendum verksmiðj- anna um tíma og þegar þeir hófu rekstur að nýju lét hún til skarar skríða með fyrrnefndum árangri. Lög- reglan veit enn af nokkrum aðilum, sem iíklegir eru til framleiðslu að fenginni reynslu. Þá veit hún af ein- staklingum er veitt hafa þessum aðilum liðsinni, s.s. við flutning hráefnis, at- hyglinni verður engu að síð- ur beint að þeim sem og hinum á næstunni. Nauð- synlegt er að málum þess- ara manna verði fylgt ákveðið eftir og að þeir fái sem fyrst viðurlög í sam- ræmi við afbrot þeirra. Og þá væri ekki verra að sett verði í reglugerð að bannað verði að flytja inn, framleiða og eiga brugggerðartæki hér á landi, nema með sér- stöku leyfi. Á sunnudag fundu lög- reglumenn brugg í bifreið, sem þeir höfðu stöðvað í austurborginni. Ökumaður og farðþegar voru færðir á lögreglustöðina. Á föstudagskvöld var til- kynnt um eld í húsi við Árbæjarblett. Hús þetta er í eigu börgarinnar og höfðu borgarstarfsmenn þarna kaffiaðstöðu. Grunsemdir eru um að um íkveikju hafi verið að ræða. Á laugardagskvöld var tilkynnt um eld í bílskúr við Guðrúnargötu. Mjög mikill eldur var í skúrnum, en slökkvilið gekk greiðlega að slökkva eldinn. Grunur leik- ur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Skömmu síðar var til- kynnt um eld í húsi við Holtsgötu. Allt tiltækt slökkvilið var sent á stað- inn. Þarna var einnig um umtalsverðan eld að ræða. Kona, sem var heima ásamt tveimur börnum sínum, hafði vaknað við hávaða frá reykskynjara og komist út. Talið er að kviknað hafi í út frá þvottavél í kjallara. Miklar skemmdir urðu af völdum elds, reyks og vatns. Á sunnudagsmorgun var tilkynnt um yfirstandandi innbrot í húsi í Fenjunum. Tveir menn flúðu af vett- vangi. Slóð þeirra var rakin af lögreglumönnum með aðstoð sporhunds. Einn hinna grunuðu innbrots- þjófa náðist fljótlega. Grun- semdir eru um hver hinn er, en sá hefur margsinnis komið við sögu mála hjá lögreglu. Athæfi mannanna var tekið upp á myndband, en vegna tíðra innbrota í söluturna sem hafa spila- kassa að geyma, hafa eig- endur sumra þeirra brugðið á það ráð. Á sunnudag var tilkynnt um reyk á stigagangi húss í Seljunum. Tilkynnandi komst inn um glugga á íbúðinni og opnaði íbúðina fyrir björgunarliði. Pottur hafði gleymst á eldavél í íbúðinni, en hún var mann- laus. Um kvöldið var tilkynnt um lausan eld í húsi við Bíldshöfða. Um var að ræða sumarhús, sem notað var sem skrifstofuhúsnæði. Mun einhver hafa hellt elds- neyti undir húsið og kveikt í. Gaus upp af því mikill eldur. Slökkviliðinu tókst þó fljótlega að ráða niður- lögum eldsins. Talsverðar skemmdir urðu á húsinu. Um helgina þurfti lög- reglan að hafa afskipti af 10 ökumönnum, sem grun- aðir eru um að hafa verið undir áhrifum áfengis. Þrír þeirra höfðu lent í umferð- aróhöppum áður en til þeirra náðist. Það er rétt að allir geri sér grein fyrir því að tryggingafélögin gerðu endurkröfu á u.þ.b. eitt hundrað ökumenn á sl. ári vegna umferðaróhappa, sem þeir urðu valdir að. Langflestir þeirra reyndust hafa verið undir áhrifum áfengis. Á stundum var um verulegar fjárhæðir að ræða. Enginn ætti því að aka eftir að hafa drukkið áfengi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.