Morgunblaðið - 01.03.1994, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1994
Dansað í Tónabæ
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Svandís A. Sigurðardóttir sigurvegari í flokki einstaklinga sýnir
hér sigurdansinn.
Dans
Jóhann Gunnar Arnarsson
LAUGARDAGINN 26. febrúar
var haldin „freestyle“-keppni í
Tónabæ. Alls voru keppendur
66 og kepptu þeir bæði í flokki
einstaklinga og í hópum. Var
keppnin hörð og skemmtileg í
flesta staði.
Á undanförnum árum hefur
mikið og gott starf verið innt af
hendi í félagsmiðstöðvum víða um
landið. Þar hafa unglingar verið
hvattir til að koma sér á fram-
færi og fengið til þess ýmis tæki-
færi og aðstoð. Er ekkert nema
gott eitt um það að segja og jafn-
vel mætti vera meira af slíku til
að virkja þá orku sem býr í ungu
fólki í dag.
Laugardaginn 26. febrúar var
haldin hin árlega „freestyle“-
keppni í Tónabæ. Að venju voru
þar margir ungir og efnilegir
dansarar mættir til leiks. Bæði
var keppni á milli einstaklinga og
á milli hópa og að þessu sinni
kepptu krakkar á aldrinum 10-12
ára.
Hóparnir sem mættir voru til
leiks voru 11 talsins en einstakl-
ingarnir 18. Alls voru keppendur
66 að tölu, sem verður að teljast
harla gott.
Margir voru mættir til að fylgj-
ast með sínu fólki og voru kepp-
endur dyggilega studdir jafnt af
ungum sem eldri áhorfendum.
í keppnum sem þessari gætir
oft ýmissa grasa og margar teg-
undir dansa á boðstólum, en í
þetta sinn verður að viðurkennast
að fjölbreytnin var frekar lítil;
flestir voru að dansa fönk eða
hipp hopp. Það er útaf fyrir sig
ekki svo slæmt nema að því leyti
að allir virðast vera steyptir í
sama mót, sem ekki getur verið
skemmtilegt til lengdar. Reyndar
var skemmtilegt að sjá bæði tvo
hópa og tvo keppendur í einstakl-
ingskeppninni dansa sígildan
jazzballet og vóru þær sýningar
mjög metnaðarfullar og • sérlega
skemmtilegar á að horfa, að öðr-
um ólöstuðum.
Sú þróun sem orðið hefur að
undanförnu í „freestyle“-keppn-
um af þessu tagi hefur ekki verið
öllum að skapi og verð ég að játa
að þar er ég sammála í mörgum
atriðum. Sem dæmi langar mig
að nefna þátt fimleika í þessari
þróun. Fimleikar og dans er
tvennt ólíkt en því miður er þessu
of oft slegið saman og missir þá
dansinn gildi sitt. Það sem eftir
stendur eru stökk og önnur „akró-
batík“ sem ekkert á skylt við dans.
Einn dómari keppninnar hafði ein-
mitt orð á því að á tímbili hefði
þessi keppni frekar átt eitthvað
skylt við innanfélagskeppni hjá
einhveiju fimleikafélaginu!
Þó svo að eitt og annað sé
gagnrýni vert þá var þó keppnin
í heild sinni mjög hörð og
skemmtileg og var þarna margt
frábærra og mjög svo efnilegra
dansara. Það var í raun ótrúlegt
að horfa á svona ungt fólk dansa
tiltölulega erfiða dansa af slíkri
færni. Að sögn Báru Magnúsdótt-
ur dómara var mjög erfitt að
dæma þessa keppni; mikið af
bráðefnilegu fólki var þarna á
ferðinni og enginn einn sem skar
sig úr.
Eftir að allir keppendur höfðu
dansað atriðin sín var komið að
skemmtiatriðunum. Á meðan fóru
dómararnir afsíðis til að ráða ráð-
um sínum. Hópurinn Kúnst sýndi
vinningsdansinn sinn frá fyrri
keppninni og einnig sýndi Mar-
grét Takyar íslandsmeistari í
flokki einstaklinga sinn vinnings-
dans. Bæði atriðin voru skemmti-
legt innlegg á þessum annars
ágæta degi. í hléinu skemmti
einnig kynnir keppninnar, Stein-
unn ólína Þorsteinsdóttir. óhætt
er að segja að hún hafi slegið í
gegn, en hún söng lag úr upp-
færslu Þjóðleikhússins á söng-
leiknum Gauragangi, sem nú er
sýndur við góðar viðtökur. Stein-
unn heillaði alla í salnum upp úr
skónum með fallegum söng og
hrífandi framkomu, eins og henni
einni er lagið.
Þá var komið að því að kynna
úrslitin. . Dómararnir Bára
Magnúsdóttir og Birgitta Svein-
bjömsdóttir danskennarar og Ólöf
Björk Björnsdóttir eróbikkleið-
beinandi höfðu komist að niður-
stöðu og voru úrslit eftirfarandi:
Hópar:
1. Funk Style
2. Hún
3. Jassgengið
Einstaklingar:
1. Svandís A. Sigurðardóttir
2. María Torfadóttir
3. Sigrún Birna Blomsterberg
Úrslitin geta vart talist annað
en sanngjörn og held ég að allir
hafi mátt vera sáttir við sitt. Þetta
er reyndar eins og með aðrar
keppnir það er aðalatriðið að vera
með, ekki endilega að vinna.
Að verðlaunaafhendingu lok-
inni tíndist fólk út í góða veðrið,
hver til síns heima, eftir vel
heppnaðan og skemmtilegan dag.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Starfandi ljósmæður á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Sjúkrahús Suðurlands
Fæðingum fjölgar
með bættri þiónustu
, Selfossi.
rekast á í Reykjavík. Nýlega voru
gerðar endurbætur á annarri
fæðingarstofunni í Sjúkrahúsinu.
Baðker var sett upp á fæðinga-
stofunni sem einn kostur í verkja-
meðferð og' er hið fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi sem sett er upp í
þessum tilgangi. Þá var nýlega tekið
í notkun nýtt ómskoðunartæki sem
gefið var af kvenfélögum í Sam-
bandi sunnlenskra kvenna og rauða-
krossdeildunum í Árnes- og Rangár-
vallasýslu. Þetta tæki gefur marg-
falt meiri möguleika í skoðun vegna
ýmissa sjúkdóma í kviðarholi auk
skoðana á þunguðum konum.
„Ég hef trú á því að þessi aðstaða
muni laða konur að því að koma
hingað til að nýta þessa þjónustu
sem við bjóðum hérna,“ sagði Þor-
kell Guðmundsson kvensjúkdóma-
læknir á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Sig. Jóns.
KONUR af Suðurlandi leita í
auknum mæli eftir því að fæða
börn sín á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Þar kemur til bætt aðstaða, nýr-
áðinn fæðinga- og kvensjúkdóma-
læknir og þrengslin sem konur
Leshringnr
í Langholts-
tírkju
LESHRINGUR um siðfræði lífs
og dauða hefst miðvikudaginn 2.
mars kl. 18 í Langholtskirkju.
Umsjón með leshringnum hafa
Haukur Ingi Jónasson og María Sig-
utjónsdóttir læknir. Fundirnir verða
j safnaðarheimili Langholtskirkju.
Lyf vegna magasárs, sveppalyf og ákveðin geðdeyfðarlyf
Avísanir takmarkað-
ar við 30 daga notkun
ÁVÍSANIR á lyf vegna magasárs, á sveppalyf til inntöku og á ákveð-
in geðdeyfðarlyf eru hér eftir takmarkaðar við 30 daga notkun í
stað 100 áður, samkvæmt breytingu á reglugerð sem heilbrigðisráðu-
neytið hefur gefið út. Þó er Tryggingastofnun heimilt að gefa út
skírteini sem heimilar óbreytta tilhögun fyrir þá sjúklinga sem þurfa
ótvírætt á lyfjunum að halda vegna langtímameðferðar.
Aðrar breytingar á reglugerð um stórkaupmanna er mótmælt þeim
greiðslur almannatrygginga á lyfja-
kostnaði eru helstar að Trygginga-
stofnun tekur þátt í greiðslum vegna
lyfja sem innihalda kódein og eru
notuð sem sterk verkjalyf. Áður tóku
tryggingar ekki þátt í greiðslum
vegna þessara lyfja. Þá eru sýklalyf
útivortis færð í þann flokk lyfja sem
almannatryggingar greiða ekki og
er það gert til samræmis þar sem
það gildir einnig um önnur sýklalyf,
nema í undantekningartilfellum.
í fréttatilkynningu frá heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu kemur
fram að mikil sveppalyfjanotkun að
undanförnu hafi vakið athygli og
fyrir liggi að kostnaður vegna
sveppalyfja hafi stigið ört á síðasta
ári. Engar skýringar hafi komið fram
þar að lútandi og því hafi heilbrigðis-
ráðherra ákveðið að veita styrk til
rannsókna á þessu sviði. Þá hefur
ráðherra óskað eftir tillögum lyfja-
nefndar um lausasölu magasárslyfja.
Markmiðið er að hægt sé að kaupa
lyfin í lyljabúðum vegna tilfallandi
veikinda í samráði við lyfjafræðing,
en sú tilhögun tíðkast bæði í Dan-
mörku og Bretlandi.
Mótmæli FÍS
starfsháttum sem viðhafðir hafi verið
við gerð og setningu þessarar reglu-
gerðar. Þar er á það bent að sam-
kvæmt lögum um.lyfjadreifingu beri
lyfjaheildsölum skylda til að eiga
ávallt hæfílegar birgðir skráðra sér-
lyfja á lager. Þar sem tilgangur
reglugerðarinnar sé að breyta notk-
unarmynstri þessara lyfja þurfi vart
að tíunda hve miklu óhagræði og
fjárhagslegu tjóni það valdi lyfja-
heildsölum þegar svona breytingar
séu kynntar með svo stuttum fyrir-
vara.
I athugasemd frá Félagi íslenskra meinssjúkra barna, styrkinn.
Styrkir krabbameinssjúk börn
HLUTA af söluandvirði jólakorta í verslunum Hans Petersen hf. hefur
undanfarin ár verið varið til styrktar mismunandi líknarfélögum og í ár
varð Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna fyrir valinu sem styrkþegi.
Fékk Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna samtals 229.100 kr. til styrkt-
ar starfsemi sinni. Guðrún Ruth Eyjólfsdóttir, sölustjóri verslana Hans
Petersen hf., afhendir Þorsteini Ólafssyni, formanni Styrktarfélags krabba-