Morgunblaðið - 13.03.1994, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓKjJJIýNJ^pUR 13. MARZ 1994
A
IT\ \ /"'•er sunnudagur 13. mars, sem er 72. dagur
XJiWM ársins 1994. Miðfasta. Stórstreymi (4,11
m). Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 7.09 og síðdegisflóð kl.
19.22. Fjara er kl. 1.00 og kl. 13.17. Sólarupprás í Rvík er
kl. 8.19ogsólarlagkl. 19.01. Myrkurkl. 19.48. Sól erí
hádegisstað kl. 13.39 ogtunglið í suðri kl. 9.00. (Almanak
Háskóla íslands.)
En Drottinn efli yður og auðgi að kærleika hver til
annars og til allra, eins og vér berum kærleika til yðar.
(I. Þessal. 3,12.)
ÁRNAÐ HEILLA
F7 f\ira. afmæli. í dag, 13.
| U mars, er sjötugur
Jörundur Þorsteinsson,
Hvassaleiti 58, Reykjavík.
Hann og Kristjana Jóseps-
dóttir taka á móti gestum í
sal Félags- og þjónustumið-
stöðvar eldri borgara,
Hvassaleiti 56-58, milli kl. 16
og 18 í dag, afmælisdaginn.
pr/\ára afmæli.Á morgun,
14. mars, verður
fimmtug Guðrún Hjördís
Ólafsdóttir, Egilsbraut 7,
Neskaupstað. Eiginmaður
hennar er Sigurður R.
Bjarnason, apótekari, Nes-
kaupstað.
ORÐABÓKIN
Fyrir löngu (síðan)
Fyrir nokkrum árum
var vikið að ofangreindu
orðalagi í þessum pistlum,
en því miður að því er
virðist með litlum árangri.
Er þess vegna ekki úr
vegi að minna aftur á það
í von um betri undirtektir.
Þegar ég var í skóla fyrir
hálfri öld, mun nemendum
almennt hafa verið bent
á, að óíslenzkulegt væri
að hnýta ao. síðan aftan
við ofangreinda fyrirsögn
og segja: fyrir löngu síðan
eða fyrir nokkrum árum
síðan. Því miður sést og
heyrist þetta samt allt of
oft hjá þorra fólks, bæði
lærðum og leikum. Hér
gæti fjölmiðlafólk vissu-
lega komið til aðstoðar,
en það virðist öðru nær.
Segja má, að þetta klingi
í eyrum á öllum rásum og
stöðvum og ekki síður frá
ungu fólki. í prentuðu
máli sést það einnig of
oft. Þetta er áreiðanlega
hingað komið úr dönsku,
þar sem t.d. er sagt og
ritað: for mange ár siden.
Þar og einnig í öðrum
Norðurlandamálum er
þetta almennt mál, en hjá
okkur á það ekki heima,
jafnvel þótt það hafí
slæðzt inn í málið fyrir
nokkrum öldum. í reynd
er það engu betra fyrir
það. Ekki verður heldur
skilið, hvers vegna mönn-
um finnst eitthvað auð-
veldara að segja: Þetta
gerðist fyrir löngu síðan
eða Hann kom fyrir
nokkrum dögum síðan í
stað þess að segja: Þetta
gerðist fyrir löngv eða
Hann kom fyrir nokkrum
dögum.
J.A.J.
KROSSGATAN
L
9
fiE
12 13
n ■ _
H-
122 23 24
■■■26 H
LÓÐRÉTT: 2 hestur, 3
fugl, 4 þjakar, 5 eflir, 6 trylli,
7 sár, 9 djöflar, 10 völt, 12
læstir, 13 syndajátningin, 18
hvetja, 20 greinir, 21 þunnt
berglag, 23 gelt, 24 ending.
LÁRÉTT: 1 aðstoð, 5 gegn,
8 trylltar, 9 heiðarlega, 11
verðleiki, 14 kjaftur, 15 koma
í veg fyrir, 16 ílát, 17 hólkur,
19 vegsamaði, 21 pípan, 22
nýgræðingur, 25 stirðleika,
26 forfeður, 27 gyðja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: 1 gagna, 5 sóðar, 8 ofnar, 9 stúts, 11 dónar,
14 önd, 15 göfug, 16 raust, 17 nói, 19 illt, 21 hann, 22
dávænar; 25 gái, 26 ála, 27 als.
LÓÐRETT: 2 amt, 3 not, 3 afsögn, 5 saddri, 6 óró, 7 aka,
9 sigling, 10 úlfaldi, 12 naumara, 13 rýtings, 18 ósæl, 20
tá, 21 ha, 23 vá, 24 Na.
I>ing NorðurlnndíuAös sclt 1 Stokkhólmi í dag:
„Litla stúlkan með eldspýturnar".
FRÉTTIR/MANNAMÓT
FIMIR fætur eru með dans-
æfíngu í Templarahöllinni í
kvöld kl. 21.
SK AFTFELLIN G AFÉ-
LAGIÐ í Rvík er með félags-
vist í dag kl. 14 í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi 178.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Furugerði 1: Á þriðjudaginn
kl. 10 verður danskennsla hjá
Sigvalda, kl. 13 kennir Kristín
Lúðvíksdóttir silkiblóma-
skreytingar, kl. 13 spiluð vist
og brids, bókasafnið opið, leð-
urvinna.
KVENFÉLAG Bústaða-
sóknar heldur fund mánu-
daginn 14. mars kl. 20 í safn-
aðarheimilinu. Happafundur,
skemmtiatriði og kaffiveit-
ingar.
SKAGFIRÐINGAR norðan
og sunnan heiða halda fagn-
að í félagsheimilinu Drangey,
Stakkahlíð 17, laugardaginn
19. mars sem hefst með borð-
haldi kl. 20. Söngur, gaman-
mál og bögglauppboð. Til-
kynna þarf þátttöku í síma
36679 eða 39833 á þriðjudag
og miðvikudag eftir kl. 16.
SÓKN og Framsókn eru
með félagsvist, stakt kvöld,
nk. miðvikudagskvöld kl.
20.30 í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50A. Verðlaun og kaffi-
veitingar.
KVENFÉLAG Grensás-
sóknar heldur fund í safnað-
arheimilinu á morgun, mánu-
dag, kl. 20.30. Félagsstörf,
rætt um vorferð. Skemmtiat-
riði og kaffiveitingar.
KVENFÉLAG Breiðholts
verður með fund í safnaðarsal
Breiðholtskirkju nk. þriðju-
dag kl. 20.30. Gestur fundar-
ins verður Birna Smith og
talar hún um tilfínningasár
og áhrif þeirra á heilsu okkar
og líðan almennt.
KIWANISKLÚBBURINN
Góa heldur fund á morgun,
mánudag, kl. 20.30 á Smiðju-
vegi 13A, Kópavogi.
VÍGHÓLASKÓLI, Kópa-
vogi. Árgangur ’57 ætlar að
hittast 7. maí nk. í Félags-
heimili Kópavogs. Þátttöku
þarf að tilkynna til Unnar í
síma 642857 eða Birnu
Bjarkar í síma 39616.
KVENFÉLAGIÐ Heimaey
er með fund í Setrinu á
Holiday Inn þriðjudaginn 15.
mars kl. 20.30. Gestir úr fjór-
um fyrirtækjum í Mjóddinni
koma í heimsókn.
SLYS AV ARN ADEILD
kvenna, Seltjarnarnesi. Síð-
asti fundur vetrarins á morg-
un, mánudag, kl. 20.30 á Aust-
urströnd 3 verður með léttu
yfírbragði, tískusýning o.fl.
KVENFÉLAG Grindavíkur
verður með fund mánudaginn
14. mars kl. 20.30 í Verka-
lýðshúsinu, Víkurbraut 46.
Leynigestur, bingó o.fl.
KVENFÉLAGIÐ Selljörn
heldur almennan félagsfund
í Félagsheimilinu nk. þriðju-
dag kl. 20.30.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Gerðubergi. Á morgun hár-
greiðsla og fótsnyrting.
Þriðjudag kl. 8.20 sund og
íþróttaæfíngar í Breiðholts-
sundlaug. Miðvikudag heim-
sókn í Breiðholtskirkju. Kaffí-
veitingar í boði. Prestur sr.
Gísli Jónasson. Lagt af stað
frá Gerðubergi kl. 14.30.
Uppl. og skráning í síma
79020.
FÉLAG eldri borgara í
Rvík og nágrenni. í dag
sveitakeppni í brids kl. 13 og
fjögurra daga keppni í félags-
vist kl. 14 í Risinu. Dansað í
Goðheimum kl. 20 í kvöld.
Mánudag opið hús í Risinu
kl. 13-17. Lesið úr Sturlungu
kl. 17 í Risinu og söngvaka
kl. 20.30. Stjómandi Kári
Ingvarsson, undirleikari Sig-
urbjörg Hólmgrímsdóttir.
ITC-DEILDIN Eik heldur
fund á Fógetanum, efri hæð,
á morgun, mánudag, kl.
20.30.
VESTURGATA 7, félags-
og þjónustumiðstöð aldr-
aðra. Miðvikudaginn 16.
mars kl. 9.30-15 myndlistar-
kennsla, kl. 13-14 leikfimi,
kl. 14 verður kennt boccia
(boltaleikur) undir leiðsögn
Sigríðar Kristinsdóttur.
Kaffiveitingar.
AFLAGRANDI 40, félags-
og þjónustumiðstöð 67 ára
og eldri. Félagsvist kl. 14 á
morgun, mánudag. Uppl. í s.
622571.
SAMBAND dýraverndarfé-
laga er með flóamarkað í
Hafnarstræti 17, kjallara,
mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga frá kl. 14-18.
KALDÆINGAR,
KFUM/KFUK, Hafnarfirði,
halda aðalfund sinn á Hverf-
isgötu 15, Hafnarfirði, þriðju-
daginn 22. mars kl. 20.30.
Umræður um starfið í Kald-
árseli.
KRISTNIBOÐSSAM-
BANDIÐ hefur samveru fyrir
aldraða í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 56-58, á morg-
un, mánudag, kl. 14-17. Unn-
ið fyrir kristniboðið.
KIRKJA
ÁSKIRKJA: Fundur í æsku-
lýðsfélaginu í kvöld kl. 20.
Ópið hús fyrir alla aldurshópa
mánudag kl. 14-17.
BÚSTAÐAKIRKJA: Fundur
í æskulýðsfélaginu í kvöld kl.
20.30.
DÓMKIRK J AN: Kirkju-
nefnd kvenna Dómkirkjunnar
er með vinnufund á morgun,
mánudag, kl. 20 í safnaðar-
heimilinu.
FELLA- og Hólakirkja:
Fyrirbænastund í kapellu
mánudag kl. 18. Umsjón:
Guðlaugur Heiðar Jakobsson.
Æskulýðsfundur mánudags-
kvöld kl. 20.
HÁTEIGSKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Fundur í æskulýðsfélaginu
Örk í kvöld kl. 20. Kvöldbæn-
ir með lestri Passíusálma
mánudag kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA:
Fræðsla 12 ára barna mánu-
dag kl. 13. TTT-starf fyrir
10-12 ára mánudag kl. 16-18.
Aftansöngur mánudag kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA:
Fundur í æskulýðsfélaginu í
kvöld kl. 20.
NESKIRKJA: 10-12 ára
starf mánudag kl. 17. Fundur
í æskulýðsfélaginu mánu-
dagskvöld kl. 20.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Fundur í æskulýðs-
félaginu í kvöld kl. 20.30.
FRIÐRIKSKAPELLA. Á
morgun, mánudag, verður
kyrrðarstund í hádegi. Prest-
ur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Organisti Tóm-
as Grétar Ólason. Léttur
málsverður í gamla félags-
heimilinu að Hlíðarenda að
stundinni lokinni.
ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
Öpið hús fyrir aldraða mánu-
dag frá kl. 13-15.30.
Mömmumorgunn þriðjudag
kl. 10-12.
SELJAKIRKJA: Fundur hjá'
KFUK á morgun, mánudag,
fyrir 6-9 ára kl. 17.30 og
10-12 ára kl. 18. Mömmu-
morgnar þriðjudaga kl. 10.
BORGARPRESTAKALL:
Mömmumorgunn þriðjudag
kl. 10-12 í Félagsbæ. Helgi-
stund í Borgarneskirkju kl.
18.30.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
í dag eru væntanlegir Ás-
björn og Freri af veiðum og
þá fara Örfirisey og Akur-
eyrin.
Sjá dagbók Háskóla
íslands bls. 17