Morgunblaðið - 13.03.1994, Page 12

Morgunblaðið - 13.03.1994, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MARZ 1994 Clinton Bandaríkjaforseti í vanda vegna Whitewater-málsins Eiginkonan úr valdasessi vegna meintra fjúrglæfra? eftir Kristjón Jónsson BILL Clinton Bandaríkjaforseti lagði arminn um herðar eigin- konu sinnar, Hillary Rodham Clinton, kyssti hana tvívegis á kinnina og hvatti starfsmenn í Hvita húsinu, alls um 300 manns, ákaft til að láta ekki deigan síga þrátt fyrir gerningahríðina vegna Whitewater-málsins. Þetta gerðist á innanhússfundi I vik- unni en þótt forsetinn sé að sögn heimildarmanna vígreifur er ljóst að mjög er að honum og eiginkonu hans kreppt. Náin tengsl við gjaldþrota sparisjóðsstjóra, misheppnuð fjárfesting fyrir 16 árum í sumarbústaðalandi sem kennt var við Whitewater í Arkans- as, grunur um misnotkun valds á ríkisstjóraárunum, sjálfsvíg gamals vinar og samstarfsmanns í fyrra; allt er þetta mál farið að minna á reyfara. Útilokað er fyrir leikmenn að meta að svo stöddu hvort forsetahjónin hafa brotið lög eða fjölmiðlar og póli- tískir andstæðingar Clintons eru að gera úlfalda úr mýflugu. Spjótin beinast nú einkum að forsetafrúnni sem verið hefur áhrifameiri í stjórn landsins en nokkur fyrirrennari hennar í Hvíta húsinu. Ung og saklaus í Arkansas BILL og Hillary Clinton við messu í Arkansas árið 1979. Árið á undan var Clinton kjörinn ríkisstjóri og þá höfðu þau jafnframt fjár- fest í Whitewater-fyrirtækinu sem byggði sumarbústaðahverfi en fór á hausinn. • Hvernig var öllum fjárfestingum forsetahjónanna háttað, hve mikið högnuðust þau og hve miklu töp- uðu þau, voru skattalög brotin? • Tóku opinberir eftirlitsmenn í Arkansas, af tilliti til Clinton-hjón- anna og vegna margvíslegra tengsla þeirra við McDougal, með silkihönskum á Madison-spari- sjóðnum, leyfðu þeir honum að halda áfram rekstri lengur en eðli- legt gat talist þegar fjárhagserfið- leikar stofnunarinnar eru hafðir í huga? •Var það við hæfi að Hillary Clinton, sem þá var lögfræðingur hjá Rose-lögmannastofunni í Little Rock, kæmi fram í hlutverki full- trúa Madison-sparisjóðsins gagn- vart opinberum eftirlitsmanni sem eiginmaður hennar, Clinton ríkis- stjóri, hafði skipað? Veitti spari- sjóðurinn fé í kosningabaráttu Clintons fyrir ríkisstjórakjör? •Tengdist meint sjálfsvíg Vinc- ents Fosters, náins vinar forseta- hjónanna um áratuga skeið og aðstoðarráðgjafa Clintons forseta í lögfræðilegum efnum, Whitewat- er-málinu? Reyndi forsetaembætt- ið að hindra framgang lögreg- lurannsóknar á andláti Fosters í júlí 1993 með því að fjarlægja skjöl um Whitewater-málið af skrifborði hans er ljóst var að maðurinn var látinn? Fiske mun einnig kanna vísbendingar um að ekki hafi verið um sjálfsvíg að ræða. • Voru þrír fundir embættismanna forsetans og fjármálaráðuneytisins um rannsókn Whitewater-málsins haldnir til að hafa samráð um að torvelda rannsóknina og fengu Clinton-hjónin vitneskju um þessa fundi? WHITEWATER-MALIÐ ' Ozark-fjöll ' ® / Litfle Rock r ARKANSAS ' WHITEWATER FYRIRTÆKIÐ Stolnafl 1978 og átti áfl byggja dýra sumarbústaði. Eigendur: Bill og Hillary Clinton og James og Susan McDougal. • Clinton- hjónin lóku ián til að Ijármagna sinn hlul og sögðusl síðarhala tapað á fyiirtækinu. El marka ma skaltaskýrslu þeirra hala þau hagnasl lltillega MADISON-SPARISJÓÐURINN James McDougal tekur við stjórn sparisjóðsins 1982. • Maðison ler á hausinn 1989 og ekkert læsl uppi 60 millljón dollara skuldir. • James McDougal er saksóttur fyrirjjármálasvik I lengslum við gjaldþrolið. Sýknaður 1990. • Rannsóknarmenn reyna að komast aðþvíhvort Madison hafi veitt lé i Whitewater eða kosningasjóð Clintons lyrir endurkjör i embælli rikissljóra 1984. ROSE-LOGMANNASTOFAN Samstarfs- Hillary Clinton, Vincent Foster menn: (dó 1993) og Webster Hubbell. (Nú er Hubbell þriðji æðsti maður I dómsmálaráðuneytinu). • Hillary Clinlon er fulltrúi Madison þegar eltir- lilsmenn hins opinbera eru beðnir um leyfi lil að hlutafé sparisjóðsins verði aukið. Hún Iram■ visar endurskoðun lyrirtækisins Frost & Co. er sanni að Madison eigi lyrir skuldum. • Hubbell er lulltrúi alrikisstjórnarinnar í máti1 gegn Frost & Co. sem hölðað er til að reyna aðnálé sem tápaðisl þegar Madison hmndi. Fjármál hjónanna hafy ávallt verið í umsjón betri helm- ings forsetans sem sagður er vera harla kærulaus í þeim efnum, eiginkonan hefur auk þess alltaf verið mun tekjuhærri. Þrátt fyrir faðmlögin áðurnefndu eru nú vangaveltur meðal kaldrifjaðra fréttaskýrenda um að lausn forset- ans geti orðið sú að „fóma drottn- ingunni“, láta eiginkonuna taka á sig sökina og svipta hana öllum völdum og ábyrgðarstörfum reyn- ist hún hafa farið á svig við fjár- málasiðgæði og jafnvel lög. Þetta yrði þó erfitt í reynd; Clinton hefur ávallt lagt áherslu á að þau hjón séu samhent og eiginkonan sé besti og nánasti ráðgjafi forsetans í stjórnmálum. Heimildarmönnum ber yfirleitt saman um að Hillary Clinton sé að minnsta kosti andlegur jafnoki manns síns. Jafnvel pólitískir and- stæðingar segja hana metnaðar- fullan hugsjónamann, gagnstætt eiginmanninum sem oft er sakaður um tækifærismennsku. Samstaða á örlagastundu Hillary Clinton er af efnuðu fólki komin, eiginmaðurinn var blá- snauður, hún hefur stutt hann með ráðum og dáð, agað hann og kennt honum. Ríkisstjórinn og síðar for- setinn voru að miklu leyti sköpun- arverk hennar. Hún fórnaði örugg- um frama hjá frægustu lögmanna- stofum landsins að loknu námi, settist að í smábænum Little Rock í útkjálkaríkinu Arkansas til að vera manni sínum stoð og stytta í valdaklifri hans á heimaslóðum. Á örlagastundu í baráttunni við George Bush 1992 stóð hún með manni sínum og fyrirgaf honum ítrekað framhjáhald. Það er alls ekki víst að hún láti þegjandi og hljóðalaust ýta sér út af taflborð- inu, ef til vill fyrir þær sakir einar að hafa verið full gírug og dugleg við að treysta fjárhag fjölskyldunn- ar, „skaffa". Hillary Clinton er bandarískur vinstrisinni, liberal, í venjulegum skilningi orðsins, vill að ríkisvaldið sé öflugt og leysi vandamálin. Sagt er að nokkur rígur sé þegar kom- inn upp á milli starfsmanna forset- ans annars vegar og starfsliðs eiginkonu hans hins vegar. Hinir síðamefndu, sem sumir eru blökkumenn, eru . tortryggnir vegna stefnu „hvítu strákanna" í búðum forsetans sem vilja ekki spenna bogann um of í ýmsum hefðbundnum baráttumálum demókrata, vilja að höfðað sé til miðjufólks ekki síður en vinstri- sinna. Hafni forsetafrúin úti í kuld- anum vegna Whitewater gætu talsmenn ýtinna minnihlutahópa í Bandaríkjunum, sem að jafnaði styðja demókrata og litið hafa á Hillary Clinton sem sinn fulltrúa í Hvíta húsinu, dregið þá ályktun að um pólitíska stefnubreytingu sé að ræða. Velferð og skrifræði Hugmyndir Hillary Clinton í heilbrigðismálum hafa verið gagn- rýndar fyrir að vera í gömlum skrifræðisstíl. Bent hefur verið á að velferðarkerfi eins og hún mælir með sé að sliga fjárhag margra Evrópuríkja. Við margt er að kljást, hagsmunir lækna og lyfjaframleiðenda vega einnig þungt, þeir óttast að missa spón úr askinum. En fáir hafa dregið í efa réttmæti þess að forsetafrúin annaðist undirbúningsstarfið — fyrr en nú. Táknrænt fyrir um- skiptin er að grafið hefur verið upp að forsetahjónin eigi hlut í fjárfest- ingasjóði sem hefur braskað með hlutabréf í lyfjafyrirtækjum, helsta skotspæni vinstrisinnaðra umbóta- sinna í heilbrigðismálunum. „Hún [forsetafrúin] er öflugasti talsmaður stjórnvalda í heilbrigðis- málunum og það er ljóst að meðan þessi ský grunsemda grúfa yfir höfðum forsetahjónanna mun það draga úr henni kraft“, sagði Mike Synar frá Oklahoma, demókrati í fulltrúadeild þingsins og mikill stuðningsmaður Clinton-stjórnar- innar. Spurningar Fiske Sérstakur rannsóknardómari í Whitewater-málinu er Robert Fiske, skipaður í janúar að ósk Clintons forseta en gegn vilja Hiil- ary Clinton sem ávallt vísaði öllum ásökunum á bug og taldi rannsókn- ina óþarfa. Talið er að starf Fiske geti varað í að minnsta kosti hálft annað ár, málskjöl verði á aðra milljón og þrír tugir manna verði í fullu starfi við það auk þess sem 25 manna sérfræðingahópur frá alríkislögreglunni, FBI, mun að- stoða við rannsóknina. Helstu spurningarnar sem Fiske og menn hans vilja fá skýr svör við eru: • Hyglaði James McDougal, stjórnandi Madison-sparisjóðsins í Little Rock og vinur Clinton-hjón- anna, þeim með því að leyfa þeim að leggja fram minna en helming hlutafjár í Whitewater-sumarhúsa- spildunni þótt þau væru skráð fyr- ir 50% eign? • Beittu Clinton-hjónin dómara í Little Rock þrýstingi til að fá hann til að nota áhrif sín hjá opinberri stofnun er annast fjárstuðning við smáfyrirtæki? Stofnunin veitti eig- inkonu McDougals, Susan, 300.000 dollara lán [rúmar 20 milljónir króna]. Whitewater og Watergate Fyrstu viðbrögð Clintons og manna hans er Whitewater-málið skaut upp kollinum voru jafn klaufaleg og Nixon-stjórnarinnar á áttunda áratugnum þegar upp komst um innbrotið í Watergate. Reynt var að gera sem minnst úr öllu, þijóskast við að veita upplýs- ingar í staðinn fyrir að leggja strax öll spilin á borðið. Pólitísk' staða forsetans hefur verið styrkjast undanfarna mánuði og skoðanakannanir sýnt vaxandi stuðning kjósenda. Nú hefur skyndilega syrt í álinn, þingmenn demókrata eru hræddir, óttast að Whitewater geti skaðað flokkinn og þá í kosningum í haust. Mögu- leikar forsetans á að fleyta heil- brigðismálatillögunum í gegnum þingið eru að verða að engu. Baráttukjarkurinn starfsmanna í Hvíta húsinu, sem margir eru ungir að árum og lítt harðnaðir, hefur þegar beðið mikinn hnekki. Verði fleiri sakir dregnar fram í dagsljósið getur ástandið farið að minna á lömun. Þá er hætt við að einhverjir rifji upp viðbrögð rott- unnar þegar hún finnur á sér að skipið er orðið að manndrápsbolla. Áhyggjur erlendis Breska dagblaðið Financial Tim- es fjallaði um Whitewater-málið í forystugrein í vikunni og benti á að stjórn Clintons hefði ekki notið ótvíræðrar aðdáunar utan Banda- ríkjanna í fyrstu. Reynsluleysi og skortur á heilsteyptri stefnu nýju stjórnarinnar í utanríkismálum hefðu valdið mönnum áhyggjum. Tíminn hefði með sínu lagi unnið nokkuð á fyrra meininu, hið síðara væri ef til vill ekki hægt að lækna að fullu en að undanförnu hefði mátt sjá batamerki. Yrði Clinton á hinn bóginn flæktur í neti hneyksl- ismála til langframa, sem veruleg hætta væri á, væri hægt að slá því föstu að allt sigi í sama farið á ný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.