Morgunblaðið - 13.03.1994, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 13. MARZ 1994
ATVIN N U A UGL YSINGA R
„Au pair“
Hjúkrunarfræðingar
Snyrtifræðingar
19 ára barngóð dönsk stúlka óskar eftir
„au pair“ starfi frá júlíbyrjun.
Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
20. mars merkt: „Au pair - 13100“.
Hárgreiðslufólk
Höfum til leigu hárgreiðslustól í Hafnarfirði.
Áhugasamir leggi inn svör á auglýsingadeild
Mbl., merkt: „Hár - 64“.
Matreiðslumaður
óskast
frá 1. apríl til 1. október á veitingastað, 30
mínútna akstur frá Reykjavík.
Nema í matreiðslu vantar á sama stað.
Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild
Mbl. merktar: „ÓR- 10389", fyrir 25. mars nk.
Markaðsstjóri
Óskum að ráða starfsmann til að sjá um
markaðsmál IKEA á íslandi. í boði er áhuga-
vert starf í ungu og framsæknu fyrirtæki með
mikla vaxtarmöguleika.
Nauðsynlegt er að umsækjandi uppfylli eftir-
farandi:
★ Hafi markaðsmenntun.
★ Hafi starfsreynslu við markaðsmál.
★ Hafi góða enskukunnáttu.
★ Eigi gott með að vinna með fólki.
★ Sé framtakssamur.
★ Sé metnaðarfullur.
★ Sé á aldrinum 25-45 ára.
Skriflegar umsóknir sendist IKEA fyrir
mánudaginn 21. mars 1994. Allar umsóknir
verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og
öllum svarað.
c/o Sigurbjörg Pálsdóttir,
Box 3170, 123 Reykja vík.
ffl BORGARSPÍTALINN
Hjúkrunarstjóri á skurðdeild
- skurðhjúkrun -
Staða hjúkrunarstjóra á skurðdeild E-5, er
laus til umsóknar.
Skurðgangur þjónar fimm sérgreinum skurð-
lækninga, á 7 skurðstofum.
Starfsvið hjúkrunarstjóra felst meðal annars
í eftirfarandi:
• Almennri stjórnun - starfsmannahald og
áætlanagerð.
• Hjúkrunarstjórnun - verkstjórn, gæðaeft-
irlit, eftirlit með skipulagningu, fram-
kvæmd og skráningu hjúkrunar og um-
sjón með þróunarvinnu.
Hjúkrunarstjóri skal hafa víðtæka starfs-
reynslu og þekkingu í skurðhjúkrun og
reynslu í stjórnun.
Staðan veitist frá 1. maí 1994. Umsóknir
skulu hafa borist til Sigríðar Snæbjörnsdótt-
ur, hjúkrunarforstjóra Borgarspítalans, fyrir
30. mars 1994.
Gyða Halldórsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, veitir frekari upplýsingar.
Sjúkraliðar
Við á öldrunarlækningadeild B-5 á Borgar-
spítalanum óskum eftir sjúkraliðum til starfa
á allar vaktir sem fyrst. Hlutavinna kemur til
greina. Góð starfsaðstaða og skemmtilegur
starfsandi til staðar.
Upplýsingar veita Auður Harðardóttir, deild-
arstjóri, sími 696555, og Erna Einarsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 696356.
óskast til starfa á sjúkrahúsið Vog til sumar-
afleysinga. Jafnframt vantar hjúkrunarfræð-
ing í fasta stöðu frá og með 1. júní nk.
Vinnuhlutfall er samkomulagsatriði.
Á Vogi eru rúm fyrir 60 sjúklinga og er unn-
ið við sérhæfða hjúkrun í afeitrun áfengis-
og vímuefnasjúklinga. Gott tækifæri til að
kynnast vímuefnahjúkrun, sem kemurtil með
að nýtast hjúkrunarfræðingum á öðrum svið-
um hjúkrunar.
Upplýsingar gefur Jóna Dóra Kristinsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í símum 681615 og 676633.
KÓPAVOGSBÆR
Félagsmálastofnun
Kópavogs
fjölskyldudeild
Laus er til umsóknar 50% staða félagsráð-
gjafa. Um er að ræða tímabundna ráðningu
til 12 mánaða. Verksvið er einkum innan
barnaverndar. Krafist er félagsráðgjafa-
menntunar eða sambærilegs náms. Æskilegt
er að umsækjandi hafi reynslu af barnavernd-
arstarfi og geti hafið störf hið fyrsta.
Frekari upplýsingar gefur Gunnar Klængur
Gunnarsson, deildarfulltrúi í síma 45700.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 18. mars
nk. Umsóknum með vottorðum um nám og
fyrri störf skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu Fé-
lagsmálastofnunar í Fannborg 4.
1
Laus störf við
átaksverkefni hjá
Reykjavíkurborg
Ráðningarstofa/vinnumiðlun Reykjavíkur-
borgar leitar eftir starfsfólki í tímabundin
störf við átaksverkefni sem hefjast á næst-
unni á vegum borgarinnar.
Óskað er eftir að ráða eftirfarandi:
a) Verkafólk til margvíslegra starfa hjá
gatnamálastjóra, Vatnsveitu Reykjavíkur,
Hitaveitu Reykjavíkur og garðyrkjudeild.
b) Blikksmiði hjáTrésmiðju byggingadeildar
við viðgerðir, m.a. á loftræstikerfum og
þakrennum.
c) Pípulagningamenn við stillingu snjó-
bræðslu- og hitakerfa á vegum bygginga-
deildar borgarverkfræðings. Einnig vantar
pípulagningarmann til viðgerða- og við-
haldsstarfa hjá Vatnsveitu.
d) Trésmiði hjá Trésmiðju og Rafmagns-
veitu Reykjavíkur við ýmis smærri við-
haldsverkefni.
e) Múrara í viðhaldsverkefni á vegum Tré-
smiðju.
f) Byggingaverkafólk hjá Trésmiðju við
handlang og aðstoð við iðnaðarmenn.
g) Járniðnaðarmenn við endurvinnslu o.fl.
af lager hjá Hitaveitu Reykjavíkur.
Skilyrði fyrir ráðningu í þessi störf er að við-
komandi sé atvinnulaus og á skrá hjá Ráðn-
ingarstofu/vinnumiðlun Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk.
Umsækjendur skulu snúa sér til Ráðriingar-
stofu/vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 3, sími 632580, þar sem nánari
upplýsingar fást.
Ráðningarstofa/vinnumiðlun
Reykja víkurborgar.
Snyrtivöruverslun á besta stað við Laugaveginn
hefur húsnæði fyrir förðun og/eða snyrtingu.
Tilboð, merkt: „Sjálfstæð atvinna - 10“, leggist
inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir 17. mars.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða fóstru í 50% starf á leikskól-
ann Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810.
Einnig vantar þroskaþjálfa og fóstru á leik-
skólann Ósp v/lðufell, s. 76989.
Þá vantar fóstru í fullt starf frá 15. maí nk.
á leikskólann Njálsborg v/Njálsgötu, s.
14860.
Allar nánari upplýsingar gefa viðkomandi
leikskólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Sjónvarpsmynda-
framleiðandi
í Flórída leitar að aðstoðarmanni, á aldinum
22-30, vegna upptöku á íslandi.
Möguleiki á áframhaldandi starfi í Flórída.
Þarf að tala ensku.
Vinsamlega sendið upplýsingar um mennt-
un, fyrri störf og önnur áhugamál, ásamt
símanúmeri og nýlegri mynd, til:
RCP Productions Inc.,
P.O. Box 030464,
Fort Lauderdale, Florida 33301 USA.
SKIPAREKS TRARDEILD
EIMSKIP
óskar að ráða starfsmann í skiparekstrardeild.
Meginhlutverk deildarinnar, sem er ein af
þremur deildum á Rekstrarsviði, er að stýra
skipaflota, viðhalda verðmæti hans og tryggja
rekstraröryggi skipanna með
hámarkshagkvæmni að leiðarljósi.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
1. Tengiliður skipstjóma og landreksturs..
2. Innkaup rekstrarvöru og varahluta.
3. Rekstraráætlanir, matsgerðir,
kostnaðareftirlit og ráðgjöf vegna viðhalds
og viðgerða.
4. Öryggismál, fræðsla og endurmenntun í
samvinnu við skipstjóra og yfirvélstjóra.
5. Umsjón með umhverfis- og gæðamálefnum
sem tengjast skipum félagsins.
Við leitum að starfsmanni með verk- eða
tæknifræðimenntun af skipa eða vélasviði.
Nauðsyn er að umsækjendur hafi annað hvort
góða starfsreynslu sem verk-/tæknifræðingur
eða hafi, auk framangreindrar menntunar,
menntun sem vélstjóri, vélvirki eða í annarri
sambærilegri iðngrein.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
"Skiparekstrardeild 071" fyrir 25. mars n.k.
1 X & 1 if
1 Skeifunni 19 | Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta 1 Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir