Morgunblaðið - 19.05.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 19.05.1994, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 ... FRÉTTIR Silungur veiddur í Tjöminni STARFSMENN á vegum Garð- yrkjustjórans í Reykjavík urðu varir 3-4 punda silungs þegar þeir voru að koma gosbrunninum fyrir í syðri hluta Tjamarinnar í gær og tókst þeim að klófesta hann í vatnsfötu. Fóru þeir síðan sem leið lá með fiskinn og slepptu honum í litla tjöm sem er norðan við Ráðhús Reykjavík- ur, en þar voru fyrir 12-14 bleikjur og regnbogasilungar sem þar em hafðir í eldi. Talið er víst að silungnum hafi verið sleppt í Tjömina. I bókinni Reykjavík sögustað- ur við Sund er greint frá því að gömul saga hermi að eitt sinn hafi Tjörnin verið full af laxi og silungi og hafi bræður tveir átt saman veiðina. Þá greindi hins vegar á um veiðiréttinn og end- aði sú deila með heitingum þeirra á milli. Varð afleiðingin sú að öll veiði hvarf. Utanríkisráðherra Aðalverk- takar starfi áfram JÓN Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra lýsti því yfir á fundum sem hann átti með sveit- arstjómarmönnum á Suðumesj- um og íslenskum starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli í gær að hann teldi rétt að framhald yrði á starfsemi íslenskra aðalverk- taka. Jón Baldvin sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri talsmaður þess að fyrirtækið yrði ekki leyst upp og reynt yrði að brúa bilið þar til stórfram- kvæmdir hefiast á ný. „Spumingin er hvort það tekst að brúa bilið þar til við lendum í næstu uppsveiflu, þannig að réttlætanlegt sé að halda fyrirtækinu saman heldur en að látið verði undan þrýstingi um að leysa það upp. Ég teldi það skaða. Ég tel enn rétt að freista þess að láta ekki þessa eiginfjárstöðu og tækniþekkingu fara forgörðum, og brúa bilið annaðhvort með verkefnum inn- anlands eða erlendis eða þá hvort tveggja," sagði hann. Hafnir fái að keppa um Rússaviðskipti GREIÐA þarf fyrir viðskiptum við Rússa í höfn- um landsins þannig að íslendingar verði sam- keppnisfærir við aðrar þjóðir í verði og þjón- ustu. Stuðla þarf að auknum viðskiptum með físk og styðja markaðsaðgerðir í Rússlandi og auðvelda viðskipti við Rússa með útflutnings- lánum og tryggingum. Þetta er meðal annars það sem nefnd um greiðari viðskipti við Rúss- land telur að íslensk stjórnvöld þurfi að beita sér fyrir, samkvæmt heimildum blaðsins. Nefndin, sem skipuð var fulltrúum ráðuneyta, samtaka launþega, vinnuveitenda og atvinnu- vega, hefur skilað skýrslu þar sem fram koma margar ábendingar um úrbætur sem snúa að íslenskum stjórnvöldum. Nefndin bendir þó á, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að meðan ekki hafi fengist pólitísk lausn í Smugu- deilunni muni viðskipti við Rússland búa við ýmsar ytri takmarkanir. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er í skýrslu nefndarinnar meðal annars lagt til að möguleikar hafna um að keppa um viðskipti viðkomuskipa verði auknir með því að gera hafn- arstjómum mögulegt að nýta sér heimildir til að lækka ýmis gjöld án þess að það komi niður á opinberu framlagi til hafnanna. Þá verði stuðl- að að aukinni samkeppni milli olíufélaga og lægra olíuverði með afnámi laga um flutnings- jöfnun olíu. Nefndin mun einnig leggja til að heilbrigðiseft- irlit í erlendum veiðiskipum verði einfaldað og settar samræmdar reglugerðir um eftirlit með innfluttum fiski. Reglugerðum samkvæmt tolla- lögum verði breytt þannig að hægt verði að geyma ótollafgreiddan fisk til endurútflutnings í frystigeymslum í innflutningshöfnum. Þá verði lögum um rétt erlendra skipa til löndunar breytt þannig að skip fái almennt að kaupa vöru og þjónustu hér á landi og heimiluð verði bein sala á síld og loðnu úr íslenskum skipum til vinnslu í rússneskum vinnsluskipum. Morgunblaðið/Þorkell Flautað í mótmælaskyni SNIGLARNIR, Bifhjólasamtök lýðveldisins, efndu til mótmælaaðgerða í miðbænum síðdegis í gær vegna hækkunar tryggingafélaganna á bifhjóla- tryggingum. Söfnuðust um 150-200 manns saman í miðbænum á 100 hjólum og lágu á flautunum í mótmælaskyni. Að því búnu var ekið um borgina í fylgd lögreglunnar. Jóhann Ágúst Jóhannsson varaformaður bifhjólasamtakanna segist til dæmis hafa greitt 38.000 krónur í bifhjólatryggingu í fyrra en sé gert að greiða um 80.000 krónur í dag. Segir hann óréttlátt að tryggingafélögin dauf- heyrist við 14,6% fækkun á bifhjólaslysum vegna umferðarátaks Sniglanna árið 1992 sem sparað hafi þjóðarbúinu og tryggingafélögunum milli 70 og 80 miiyónir króna. Hækkunin sé réttlætt með útlögðum kostnaði vegna fjölda slysa þar sem bif- hjól eigi hlut að máli, hvort sem ökumenn þeirra séu í rétti eða ekki. Yerndaður vinnu- staður á Akranesi Starfs- fólkinu sagt upp Ungur maður fékk einkenni köfunarveiki í Yestmannaeyjum Var með alvar- legar truflan- ir Ttaugakerfi UNGUR piltur, Ingvi Skjaldarson, fékk alvarleg einkenni köfunar- veiki eftir að hafa kafað úti fyrir Eiðinu í Vestmannaeyjum í fyrra- dag. Ingvi þjáist af jafnvægis- truflunum. Að sögn Magna Jóns- sonar, læknis á Borgarspítala, er þetta alvarlegasta tilfelli af köfun- arveiki sem upp hefur komið lengi. Hann segist gera sér vonir um að Ingvi nái fullum bata, en um það sé þó ekkert hægt að fullyrða ennþá. Ingvi var að kafa á um 30 metra dýpi úti fyrir Vestmanneyj- um ásamt félaga sínum. Þeir voru að vinna við að festa taug í akk- eri sem Bakkafoss tapaði í vetur. Eftir að Ingvi kom upp fór hann fljótlega að fmna fyrir óþægind- um, m.a. jafnvægistruflunum. Hann var þegar fluttur á Sjúkra- hús Vestmannaeyja og þaðan á Borgarspítalann. Einkenni kafaraveiki eru mis- alvarleg. Vægustu einkennin eru óþægindi í húð, kláði og sviði. Þessu geta fylgt meiri óþægindi, svo sem í vöðvum, liðamótum og bein- um. Alvarlegustu einkennin eru frá taugakerfinu, frá mænu eða heila, sem geta leit til lömunar, blindu og heila- skemmda. „Ingvi er með j afnvægistruflanir, sem eru merki um skaða í taugakerf- inu, en þó þess eðlis að við vonum að það gangi til baka,“ sagði Magni og bætti við að þetta væri al- varlegasta einkenni kafaraveiki sem upp hefði komið hér á landi lengi. Magni sagði enn óljóst hvort pilturinn hljóti varan- legan skaða, en sagðist gera sér góðar vonir um að einkennin gangi til baka með réttri með- höndlun. Hann er þegar búinn að fara tvisvar í afþrýstiklefa og reiknað er með að hann þurfi að fara í hann aftur í dag og á morgun. Ingvi sagðist ekki telja að hann hafi gert einhver mistök í köfuninni. Hann sagðist hafa verið með flensu um síð- ustu helgi og því ekki nægilega vel fyrir kallaður þegar hann kafaði. Hann sagðist telja það skýra að ein- hverju leyti að hann fékk köfunarveiki. Ingvi sagði að einu einkennin sem hann hefði væru jafnvægis- truflanir sem ekki vildu hverfa þó hann hefði verið í jafnþrýsti- klefa í tæpar 10 klukkustundir í gær og fyrrinótt. Morgunblaðið/J úlíus Ingvi segist eiga erfitt með að halda jafnvægi, sérstak- lega ef hann hreyfir höfuðið snöggt. ÖLLUM 23 starfsmönnum vernd- aðs vinnustaðar á Akranesi hefur verið sagt upp störfum vegna fjárhagserfiðleika staðarins. Þor- varður Magnússon, fram- kvæmdastjóri vinnustaðarins, sagðist gera sér vonir um að hægt verði að fínna lausn á vand- anum, en ef það takist ekki verði einungis hluti starfsmannanna ráðinn aftur. Ekki fæst fé til rekstursins Þorvarður sagði að staðan væri þannig að það kostaði 23 milljónir á ári að reka staðinn. Einungis 3,7 milljónir færu til rekstursins á fjár- lögum og sértekjur skiluðu 15 milljónum. Að óbreyttum forsend- um gengi ekki upp að reka starf- semina með sama hætti áfram- Hann sagði að óskað hefði verið eftir auknu fjárframlagi úr ríkis- sjóði, en nú væri ljóst að krafa stjórnvalda væri að reksturskostn- aður við vinnustaðinn verði lækk- aður. Þess vegna hefði aðalfundur fé- lagsins samþykkt að segja öllum starfsmönnum upp störfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.