Morgunblaðið - 19.05.1994, Síða 4

Morgunblaðið - 19.05.1994, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Minni kornrækt í sumar en í fyrra FLEST bendir til að minna hafi verið sáð af korni í vor en í fyrra, en sáningu lauk almennt um síð- ustu helgi. Talið er að í fyrra hafi verið sáð í um 600 hektara, en Kristján Bj. Jónsson, héraðsráðu- nautur á Selfossi, telur að í ár hafi ekki verið sáð nema í um 400 hektara. Ástæðan fyrir samdrætt- inum er að frost hefur víða farið seint úr jörðu og eins hafa síðustu tvö ár verið með eindæmum léleg kornár. Á síðustu árum hefur áhugi á kornrækt aukist mikið meðal bænda. Umtalsverð aukning varð árið 1992 þegar sáð var í um 240 hektara. í fyrra meira en tvöfaldað- ist það land sem tekið var undir kornsáningu og sáð var í heila 600 hektara. Kristján giskar á að í ár hafi verið sáð í um 400 hektara. Síðustu tvö ár hafa verið léleg kornár og afrakstur bænda af korn- ræktinni því rýr. í fyrra gerði frost í ágúst sem skemmdi víða upp- skeruna. Áhugi á kornrækt hefur því að vonum minnkað. Kristján sagði að allir vissu að kornrækt á íslandi fylgdi áhætta. Menn ættu síður von á enn einu slæmu kornári, en allt gæti gerst. Kristján sagði að reyndar væri það ekki einhlítt að uppskera bænda hefði verið rýr. Þannig hefði verið metuppskera í fyrrasumar á Þor- valdseyri undir Eyjafjöllum. Ástæð- an fyrir því er að ekki fraus þar eins og víðast hvar annars staðar á landinu og eins hafa bændur þar gert tilraun með nýtt kornafbrigði sem gafst afar vel. Skýringar Landsbanka íslands á hækkuðu vaxtaálagi afurðalána Breytingar á útlánaáhættu Vaxtaálag innlendra banka hærra hlutfall af vaxtabyrði fyrirtækja en áður UPPBYGGING kjörvaxtakerfisins og breyttar reglur um eiginfjár- skyldu banka með tilliti til útlána- áhættu, skýra að mestu leyti þá hækkun sem orðið hefur á vaxta- álagi af gjaldeyristryggðum af- urðalánum, að sögn Brynjólfs Helgasonar, aðstoðarbankastjóra Landsbanka. Friðrik Pálsson, for- stjóri SH, gagnrýndi fyrir hönd aðildarfyrirtækja SH hækkun á þessu vaxtaálagi á örfáum árum úr 1,5% í 3,0-3,5% í Morgunblaðinu í gær. Brynjólfur segir kjörvaxtakerfið þannig uppbyggt að mismunandi álag er lagt á með tilliti til áhættu viðskipta, þannig að fyrirtæki borga misháa vexti eftir því í hvaða áhættuflokk þeim er skipað. Þetta sé breyting frá þeim tíma er vaxta- álagið var í kringum 1,5%. Eiginfjárskylda banka Hann segir aðra mikilvæga for- sendu fýrir hækkuðu vaxtaálagi vera svokallaðar BlS-reglur um eiginíjárskyldu bankanna, sem komið hafa til sögunnar á seinustu tveimur árum og eru miðaðar að nokkru við fjárhagslega áhættu útlána. Ríkisfyrirtæki flokkist þannig undir 0% áhættu en flest venjuleg fyrirtæki flokkist undir 100% áhættu, nema eitthvað sérstakt komi til. Þarna á milli geti áhættan verið 50% ef menn hafa sérstakar gerðir trygginga eða 20% ef um sveitarfélag er að ræða. „Við þurf- um því að eiga meira eigið fé á móti þessum afurðalánum en þurfti áður. Einnig hefur áhætta í afurða- lánakerfínu reynst vera síst minni en í öðrum útlánaveitingum, en upphaflega töldu menn að þau væru áhættuminni, og að því leyti hefur álagið á sínum tíma reynst vera of lágt. Við núverandi aðstæður þegar eigið fé þarf á móti áhættuflokkun fyrirtækja og áhættan er skoðuð í þessu samhengi, þá þarf álagið að vera verulega hærra en það var á sínum tíma,“ segir Brynjólfur. Hann segir J)essa breytingu ekki nýtilkomna. A þessum tíma hafi erlendir vextir verið háir og því sé vaxtaálag innlendra banka hærra hlutfall af vaxtabyrði fyrirtækj- anna nú. Lögreglustjóri Rússamir ekki beitt- irórétti BÖÐVAR Bragason, lögreglu- stjóri í Reykjavík, vísar algerlega á bug ummælum framkvæmda- stjóra VSÍ í Morgunblaðinu í gær um fjandskap íslenskra embættis- manna í garð rússneskra sjó- manna. Böðvar sagði að rússnesk- ir sjómenn fái alveg sömu meðferð og aðrir sem lögreglan hafi eftirlit með. Helgi Hallvarðsson, skip- herra hjá Landhelgisgæslunni, sagði ásakanir Þórarins fráleitar. Helgi sagði að eitt af hlutverk- um Gæslunnar sé að fylgjast með því að sjómenn séu ekki að menga hafið með því að kasta olíu, bílum eða vélahlutum í það. Gæslan fylg- ist með rússneskum skipum á sama hátt og skipum frá íslandi og öðrum löndum innan íslensku landhelginnar. Með ónýta bíla í bandi Helgi sagði að nýlega hefðu skipveijar á rússneskum togara ætlað að halda frá landi með þrjá ónýta bíla í bandi í skutrennunni. Ekki hefði farið á milli mála að þeim hefði verið ætlað að fara í hafið. Skipstjóra togarans hefði verið bent á að þetta væri óleyfi- legt og hefði það komið honum algerlega á óvart. Helgi sagði þetta dæmi sýna að rússnesku sjó- mennirnir séu almennt illa upp- lýstir um þær reglur sem gildi um mengunarvarnir. Morgunblaðið/Helgi Ólafsson KÁRI unir hag sínum vel í mýrinni við Raufarhöfn. Kári floginn til Raufarhafnar Raufarhöfn - Svanurinn Kári, sem lengst af hefur búið við Reykjavíkurtjörn og valdið þar umferðartruflunum með frakkri framkomu, kom fljúgandi til Raufarhafnar á þriðjudagsmorgun- inn. Hann þekktist á merkinu CYC. Kári er þeg- ar kominn í gott vinfengi við börnin á staðnum. Menn hér norður á Raufarhöfn eru að velta því fyrir sér hvort honum lítist ekki alltof vel á þau átök sem nú eiga sér stað í höfuðborginni hans og sé að tryggja sér búsetu hér, en það er varla hægt að komast lengra á fastalandinu frá Reykjavík en til Raufarhafnar. Kári unir hag sínum vel á mýrlendi norðan við tjörnina á Raufarhöfn, fær sér gönguferð upp á aðalgötu þorpsins og skoðar umferðina. Kári hefur komist að því að hún er ekki eins hættuleg og hún getur stundum orðið í henni Reykjavík. Morgunblaðið/Kristinn Gosbrunnurinn á sinn stað STARFSMENN garðyrkjusljór- ans í Reykjavík unnu við það í gær að koma gosbrunninum fyrir í Tjörninni, en að sögn Jóhanns Pálssonar garðyrkju- stjóra er hann tekinn upp og geymdur innandyra yfir vetur- inn til að koma í veg fyrir frost- skemmdir. Kópavognr Drottning opnar sýningu MARGRÉT Þórhildur Dana- drottning mun opna myndlist- arsýningu í Listasafni Kópa- vogs í tengslum við komu hennar hingað til lands á 50 ára afmæli lýðveldisins 17. júní. Á sýningunni verða mál- verk eftir íslenska listamenn í eigu listasafna í Danmörku. Sum verkanna hafa aldrei ver- ið til sýnis hér á landi áður. Verkin eru eftir Jón Stef- ánsson, Jóhannes Kjarval, Júlíönu Sveinsdóttur, Svavar Guðnason, Erró og hugsan- lega einhveija fleiri. Á sýning- unni verða 20-25 verk. Reykjavíkurhöfn Smygl fannst í Helgafelli UMTALSVERT magn af áfengi og tóbaki sem smygla átti inn í landið fannst við leit tollvarða í Helgafellinu sem kom til hafnar í Reykjavík í gær. Grunur er uin að meira magn leynist í skipinu- Leit var hætt í Helgafellinu í gærkvöldi en að sögn Brynjólfs Karlssonar hjá embætti ríkistoll' stjóra verður leit haldið áfram » skipinu í dag. Í gærkvöldi vildi Brynjólfur ekki tjá sig um málið né greina frá hve mikið magn smyglvamings hefði fundist. Helgafellið var að koma úr sigl- ingu milli hafna í Evrópu, m.a- Rotterdam og Hamborgar, en hingað til lands kom skipið frá Þórshöfn í Færeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.