Morgunblaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLÁÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR'19: MAÍ 1994 í 13
Nýbyggt fjölbýlishús með íbúðum fyrir aldraðra afhent í Borgarnesi
24 þjónustu-
íbúðir afhentar
Borgarnesi - Nýbyggt 24 íbúða fjölbýlishús aldraðra í Borgarnesi
hefur verið tekið í notkun. Um er að ræða 24 þjónustuíbúðir með félags-
aðstöðu á jarðhæð sem tengd er Dvalarheimilinu og Heilsugæslustöðinni.
Er Óli Jón Gunnarsson bæjar
stjóri og formaður byggingar-
nefndar fjölbýlishúss aldraðra, tók
við byggingunni fyrir hönd bygg-
ingarnefndarinnar af fram-
kvæmdastjóra Hrafnakletts hf.,
Guðmundi Eiríkssyni, sagði hann
meðal annars; „í dag fögnum við
merkum áfanga í uppbyggingu
öldrunaraðstöðu hér í Borgarnesi,
fyrir Borgnesinga og aðra hér-
aðsbúa, með því að taka í notkun
þetta glæsilega mannvirki. í hús-
inu eru 24 þjónustuíbúðir fyrir
aldraða, aðstaða fyrir félagsstarf
á jarðhæð, auk 6 bílskúra. Þessu
til viðbótar er sá ágæti salur sem
við stöndum hér í og er byggður
og fjármagnaður af Borgarnesbæ
og öllum hreppum Mýrasýslu, auk
Andakílshrepps, Kolbeinsstaða-
hrepps og Eyjahrepps." Rakti Óli
Jón síðan aðdraganda og undir-
búning byggingarinnar sem hófst
vorið 1989. Fyrsta skóflustungan
var sjðan tekin í júlí 1992 af for-
seta íslands, frú Vigdísi Finnboga-
dóttur.
28 íbúðir seldar
Fjölbýlishúsíð er byggt úr for-
steyptum einingum frá Loftorku
hf. en Loftorka er annar aðilinn,
ásamt Byggingafélaginu Borg hf.
sem saman standa að Hrafna-
kletti hf. sem var aðalverktaki
byggingarinnar. Fjölbýlishúsið er
hæsta hús sinnar tegundar hér-
Morgunblaðið/Theodór
NÝJA 24 íbúða fjölbýlishús aldraðra í
Borgarnesi sem tengt er dvalarheimilinu og
heilsugæslustöðinni. Á innfelldu myndinni
taka hjónin Jóhann Waage og Guðrún Björg
Björnsdóttir við lyklum að íbúð sinni frá Óla
Jóni Gunnarssyni formanni byggingamefnd-
lendis. Sex íbúðir eru á hverri
hæð, tvær þriggjaherbergja, þijár
tveggjaherbergja og ein einstakl-
ingsíbúð. Heildargrunnflötur allr-
ar byggingarinnar er 2.850 fer-
metrar.
Daginn eftir að Hrafnaklettur
hf. afhenti húsið til byggingar-
nefndarinnar var húsið til sýnis
almenningi og mætti fjöldi manns
til að skoða húsið. Sama dag komu
eigendur íbúðanna saman í sam-
komusal hússins og tóku þar við
lyklum að íbúðum sínum og þáðu
armnar.
kaffiveitingar. Þá las séra Árni
Pálsson úr ritningunni, fór með
bæn og blessaði húsið. Allar íbúð-
irnar, utan ein þriggja herbergja,
eru seldar og hægt hefði verið að
selja fleiri tveggja herbergja íbúð-
ir ef til hefðu verið.
Maríuerlu-
ættbálkur
sest að
ÞRJÚ MARÍUERLUPÖR eru nú
í óða önn við hreiðurgerð á þrem
stöplum sem liggja i röð utaná
húsi einu við Grundargötu í
Grundarfirði. „Maríuerla hefur
verpt við þetta hús í mörg ár,“
segir Þorvarður Sigurðsson eig-
andi hússins. „í fyrstu var þetta
bara eitt par sem verpti í á fleka
úr mótatimbri, en nú virðist allur
ættbálkurinn vera sestur að.“
Börnin horfa áhugasöm á þessar
framkvæmdir, en nágrannakett-
imir vappa í kring og sleikja
útum.
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
Glerkrukkur
með álloki
f ýmsum stærðum.
Verð áöur frá
kr. 650,-. Nú
aðeins kr. 455,-
m/30% afslætti.
inni- og útiborð
úr galvaniseruðu stáli.
Úti á sumrin,
inni á veturnar.
AFRICA
stóllinn
er vandaður
og vinsæll.
Kr. 3.400,-
m/áklæði.
CHARBURY
er varanleg
útskriftargjöf!
Rúm, skápar, kommóður,
náttborð og kistur.
Charbury húsgögnin
eru vönduð og eingöngu
unnin úr ræktuðum skógi.
Charbury er umhverfisvæn
og varanleg framtíðareign.
Litmynda-
listinn er
kominn
aftur!
Hann er yfir
100 sfður og
fæst ókeypis.
Ný sending
er komin.
Tryggið ykkur
eintak strax.
habitat
ÖLL HELSTU
GREIÐSLUK)ÖR;
LAUGAVEGI 13 - SIMI (91) 625870
OPIÐ VIRKA DAGA 10.00 - 18.00 OG LAUGARDAGA 10.00 - 14.00
Habitat
international
1964-1994
II
if* 1*H H l|pr/| 11
^ ■
HABITAT ÍSLAND - ENGLAND - FRAKKLAND - SPÁNN - HOLLAND - BELGÍA - MARTINIQUE - SINGAPORE