Morgunblaðið - 19.05.1994, Síða 18

Morgunblaðið - 19.05.1994, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuter KARL Bretaprins heimsótti Nikulásardómkirkjuna í Pétursborg og hlýðir hér á frásögn föður Bogdans. Karl prins heillar íbúa Pétursborgar Pétursborg. Reuter. KARL Bretaprins bar í gær lof á íbúa Pétursborgar er hann minnist hundruð þúsunda Rússa sem létu lífíð.1900 daga umsátri Þjóðveija um borgina í heims- styrjöldinni síðari. Karl er í opin- berri heimsókn í Pétursborg en það er í fyrsta sinn sem meðlim- ur bresku konungsfjölskyldunn- ar heimsækir Rússland eftir bylt- inguna 1917. Bíefur Karl unnið hug og hjörtu borgarbúa í ferð- inni o g fögnuðu hundruð borg- arbúa prinsinum. Heimsókn Karls er um margt söguleg, ekki síst í ljósi þess að eftir byltinguna tóku Rússar af lífí Nikulás keisara II og fjöl- skyldu hans, ættingja bresku konungsfjölskyldunnar. Heimsókninni er ætlað að beina athyglinni að þörf Rússa fyrir aðstoð til að vinna á efna- hagslægð og sívaxandi glæpa- starfsemi. „Sjón er sögu ríkari,“ sagði Karl prins eftir heimsókn í stærsta sjúkrahús Pétursborgar þar sem ryðgaðir skurðhnífar og lækningatæki blöstu við honum. Rússneska heilbrigðisþjónustan býr við viðvarandi fjárskort og lækningamiðstöðvar hafa jafnvel ekki yfír brýnustus tækjum að ráða. Hvatti Karl prins evrópsk og bandarísk sjúkrahús til að kanna möguleika á því að gefa gömul en gagnleg tæki til rúss- neskra lækningamiðstöðva. Friðsamlegt „Heilagt stríð“? Þá verður rætt ákall sem eignað er Arafat til Palestínumanna um að heyja „Heilagt stríð“ en á þriðju- dag lék ísraelska útvarpið upptöku þar sem karlmannsrödd, er líktist rödd Arafats, sagði að heilögu stríði yrði fram haldið. Jerúsalem væri ekki fyrir Palestínumenn, heldur fyrir múslima og aðalorrustan myndi standa um Jerúsalem. Sagði útvarpið að upptakan hefði verið gerð í mosku múslima í Jóhann- esarborg er Arafat var þar á ferð í síðustu viku. Arafat viðurkenndi í gær að hann hefð kallað á „Heilagt stríð“ en sagðist hafa átt við friðsamlegt stríð. Hyggjast ekki láta vopn sín af hendi ísraelsmenn og Palestínumenn skáluðu í gær í höfuðstöðvum pal- estínsku lögreglunnar í Gaza í til- efni þess að síðustu ísraelsku her- mennimir héldu á brott frá svæðinu í gær. Hins vegar tókust unglingar þjóðanna á, köstuðu steinum, æptu svívirðingar og úðuðu táragasi hver á annan. Hópar Palestínumanna, sem andvígir eru friðarsamkomu- laginu sögðust ekki myndu láta vopn sín af hendi til palestínskra yfirvalda á Gaza og í Jeríkó. Bandaríkjamenn telja Mið- austurlandaför Christophers til marks um það að Sýrlendingar og ísraelar hafí hafið langa og erfíða samningalotu, til að komast að samkomulagi um frið. Helsta deilu- efni þjóðanna er vera ísraelshers á Gólanhæðum en vonast er til þess að samkomulag muni nást um brottflutning ísraelsmanna þaðan. Fastlega er búist við Christopher haldi í aðra Miðausturlandaferð í næsta mánuði. Brottförinni fagnað Reuter PALESTÍNSKUR lögreglumaður tekur þátt í hátíðahöldum á Gazasvæðinu í tilefni þess að síðustu ísraelsku hermennirnir héldu á brott þaðan í gær. VSB Bank-skákmótið í Amsterdam Ivantsjúk lék Kasparov illa Amsterdam. Reuter. GARRÍ Kasparov, heimsmeistari atvinnumanna í skák, sigraði Jan Timman í fyrradag í fimmtu um- ferð VSB Bank-mótsins, sem fram fer í Amsterdam, en eins og staðan er nú er ekki víst, að hann hreppi sigurlaunin. Er ástæðan sú, að hann gjörtapaði fyrir Vassílíj ívantsjúk í fjórðu umferðinni á mánudag. ívantsjúk vann svo Nig- el Short í fimmtu umferðinni og hefur nú 3,5 vinninga eins og Afstaða Japana og Norðmanna í hvalveiðimálum er háð skilyrðum Vilja semja um griðasvæði Tókýó. Heuter. JAPÖNSK stjórnvöld geta fallist á tillögu ýmissa hvalfriðunar- sinna um sérstakt griðasvæði fyrir hvali í suðurhöfum gegn því, að það verði minna en Frakkar hafa lagt til og leyft verði að veiða hrefnu. Norska stjórnin er hlynnt tillögunni um griðasvæðið en því aðeins, að meirihluti Alþjóðahvalveiðiráðsins samþykki fyrst hvalveiðar undir vísindalegu eftirliti. Upplýsingalína Sjálfstæðismanna G12094 Hringdu núna Reylcjavílc Þetta kom fram hjá Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Nor- egs, eftir fund hennar með Bill Clinton Bandaríkjaforseta á þriðjudag. Talsmaður japanska sjávarút- vegsráðuneytisins sagði, að Japan- ir væru ekki andvígir einhveiju griðasvæði fyrir hvali í suðurhöf- um svo fremi sem staðið væri að því með vísindalegum hætti en kvaðst um leið vilja vekja athygli á því, að svo mikið væri um hrefnu þar um slóðir, að hún væri farin að ógna öðrum tegundum, til dæmis steypireyðinni, sem tímgast ekki jafn ört. Samkvæmt tillögu Frakka, sem Astralir, Brazilíumenn, Hollend- ingar, Nýsjálendingar, Spánveijar, Bretar og Bandaríkjamenn styðja, verða allar hvalveiðar fyrir sunnan 40° suðlægrar breiddar bannaðar en Japanir ætla að leggja fram málamiðlun, sem gerir ráð fyrir, að griðasvæðið verði minna og hrefnuveiðar leyfðar. Að mati vís- indanefndar Alþjóðahvalveiðiráðs- ins eru um 750.000 hrefnur í suð- urhöfum. Ekki er ljós hvort hvalamálin voru rædd á fundi þeirra Brundt- lands og Clintons en fyrir fundinn sagði Clinton, að verið væri að vinna í hvalamálunum í samvinnu við Norðmenn. Brundtland lagði einnig áherslu á, að Norðmenn hefðu alltaf farið að alþjóðalögum hvað varðaði hvalveiðar. Alþjóða- hvalveiðiráðið kemur saman til fundar í lok mánaðarins og er jafn- vel búist við, að þá verði eitthvað slakað á gagnvart hvalveiðiþjóð- um. Kasparov. Aðeins þessir fjórir skákmenn tefla á mótinu. Viðureign þeirra ívantsjúks og Kasparovs á mánudag vakti mikla athygli en ívantsjúk, sem var með hvítt, lék fram kóngspeði og Kasp- arov svaraði með eftirlætinu sínu, Najdorf-afbrigðinu af Sikileyjar- vöm. ívantsjúk valdi þá lítt þekkt en sókndjarft afbrigði, undirbjó sókn á kóngsvængnum og gerði sig líklegan til að hrókera langt, en Kasparov svaraði með því að leika fram peði á miðborðinu. Virð- ist sá leikur hvergi eiga heima í skákfræðunum enda kom í ljós, að heimsmeistaranum höfðu orðið á hrapalleg mistök. ívantsjúk lék nú biskupsleik, sem galopnaði vöm svarts, og Kasparov neyddist til að skipta upp á biskupum og þá var kóngsstaðan orðin mjög varasöm. í einhverri örvæntingu fórnaði hann drottn- ingu fyrir tvo létta menn en staðan var í raun töpuð. ívantsjúk hafði leikið mjög hratt, notað aðeins 30 mínútur, og skáksérfræðingarnir voru rétt að koma sér fyrir til að fylgjast með viðureigninni þegar henni var lokið. Þegar hér var komið söfnuðust allir skákskýrendur og sérfræðing- ar saman í skákskýringasalnum og það var stórmeistarinn Genna Sosonko, sem kvað upp úr með, að jafntefli væri ekki til í stöð- unni, aðeins ósigur Kasparovs. Þegar skákinni lauk, mddist Kasparov út úr salnum þungur á brún og sinnti ekki þeim stór- meistarasið að fara yfir hana með blaðamönnum. PLO og Israelsmenn ræða friðarsamkomulag í Osló YASSER Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), og Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, hittust í Osló í gær í kjölfar brottfarar ísraelshers frá Gazasvæðinu til að ræða framtíð friðarsamkomulags þjóðanna og sögusagnir um að Arafat hafí hvatt til „Heilags stríðs“. í Damascus flutti Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hafez al-Assad, foreta Sýrlands, síðustu tillögur ísraelsmanna í friðar- viðræðum ríkjanna. Arafat og Peres komu til Óslóar í boði Jimmy Carters, fyrrum for- seta Bandaríkjanna, til að heiðra Norðmenn vegna framgöngu þeirra í friðarviðræðum þjóðanna á síð- asta ári og munu eiga viðræður á meðan dvöl þeirra stendur. Hætt er við að ofbeldi á sjálfstjórnar- svæðum Palestínumanna muni varpa skugga á viðræðurnar en tveir ísraelar og einn Palestínu- maður lágu í valnum á þriðjudag. Arafat sagður hvetja til „Heilags stríðs“ Ósló. Damaskus, Gaza. Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.