Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýr meirihluti í stjórn Stöðvar 2 óskar eftir hluthafafundi Ingimundur Sigfússon neitar boði um stj ómarformennsku Sakar Sigurjón um stórfelldar blekkingar í sambandi við hlutabréfakaup SIGURJÓN Sighvatsson, Jón Ólafsson, Jóhann J. Ólafsson og Haraldur Haraldsson hafa í sam- einingu myndað nýjan meirihluta í stjórn ís- lenska útvarpsfélagsins. Þeir óskuðu í gær form- lega eftir að boðað verði til hluthafafundar í félaginu. Ingimundur Sigfússon hefur hafnað beiðni Jóns Ólafssonar um að gegna áfram stjórnarformennsku í félaginu. Aðrir stjómar- menn sem myndað hafa meirihluta hafa einnig tekið ákvörðun um að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa í stjóm félagsins. í sam- tali við Morgunblaðið vísaði Ingimundur Sigfús- son til ummæla sinna í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi þar sem hann sagði að viðhafðar hefðu verið stórfelldar blekkingar gagnvart hluthöfum og stjómarmönnum í sambandi við hlutabréfa- kaup í fyrirtækinu. „Siguijón Sighvatsson hefur gefið í skyn við okkur að hann væri að selja sín bréf á sama tíma sem hann er að kaupa bréf í stómm stíl og gerir það á bak við okkur og undir fölsku yfirskyni. Sjálfur hef ég aldrei kynnst svona vinnubrögðum, svona óheilindum og óheiðar- leik,“ sagði Ingimundur Sigfússon í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Auk Ingimundar hafa stjómarmennirnir Jó- hann Óli Guðmundsson, Þorgeir Baldursson, Stefán Gunnarsson óg Bolli Kristinsson og vara- stjómarmennirnir Hildur Petersen, Gunnsteinn Skúlason og Ólafur N. Sigurðsson ákveðið að sitja ekki áfram í stjórn félagins en þeir hafa undanfarið myndað meirihluta í stjórninni. Siguijón Sighvatsson sagði í samtali í gær- kvöldi að hann vildi það eitt segja út af ásökun- um um að hann hefði beitt blekkingum að hann hefði marglýst yfir áhyggjum af gangi mála á Stöð 2 þó að vel kynni að vera að hann hefði að einhveiju leyti við sjálfan sig að sakast að koma því ekki nægilega vel til skila. Sigurjón vill sæti í stjórn Um kröfur fyrrverandi stjórnarmanna um að hinn nýi meirihluti keypti hlutabréf þeirra sem nú væru lentir í minnihluta, sagðist Siguijón vilja minna á að hann hefði margsinnis boðið þeim hlutabréf sín til sölu en án árangurs. Það þýddi þó ekki að hann útilokaði einhver kaup á hlutabréfum þeirra sem yndu illa þessum lyktum. Jóhann J. Ólafsson sagði við Morgunblaðið í gær að þeir Jón Ólafsson og Haraldur Haralds- son hefðu gengið til samstarfs við Siguijón Sig- hvatsson um síðustu helgi og óskað væri eftir hluthafafundi vegna áhuga Siguijóns á að taka sæti í stjóm. Jóhann kvaðst gera ráð fyrir að þeir samstarfsaðilarnir fengju kosna fjóra menn í stjórn félagsins á fundinum. Hann sagði að farið hefði verið fram á að Ingimundur Sigfús- son yrði áfram stjórnarformaður og hefði það verið í samræmi við yfirlýsingar Siguijóns Sig- hvatssonar um að hann væri lítt hrifínn að flokkadráttum í minnihluta og meirihluta í ís- lenskum hlutafélögum. Þeir fjórmenningar hefðu viljað vinna með sem flestum hluthöfum og kvaðst Jóhann harma yfirlýsingar Ingimundar. Jóhann kvaðst ekki gera ráð fyrir breytingum á framkvæmdastjórn fyrirtækisins eftir að breytt stjórn tæki við. Jóhann J. Ólafsson sagði að- spurður að ekkert hefði verið ákveðið um hver væri stjómarformannsefni nýja meirihlutans. Hollustuvernd Varað við skelfiski HOLLUSTUVERND ríkisins var- ar við tínslu á skelfiski í Hval- firði, þar sem hætta er talin á að hann geti verið eitraður. Viðvörun- in kemur í framhaldi athugunar sem fram hefur farið á eitruðum þörungum á Faxaflóasvæðinu. Verður áfram fylgst með þörung- unum og mun Hollustuvernd af- létta viðvöruninni þegar eiturhætt- an er liðin hjá. í frétt frá Hollustuvernd kemur fram að aðallega sé um tvær tegund- ir eiturmyndandi þörunga að ræða. Þörunga sem mynda PSP-eitur, sem geta valdið lömunareinkennum og DSP-eitur, sem geta valdið iðra- kveisu. Þá segir að skelfiskur síi til sín þörungasvif og safnast eitrið fyrir í honum. Eitrið eyðileggst ekki við suðu og getur því neysla á krækl- ing og öðrum skelfiski verið vara- söm. Vor og haust eru ákjósanleg fyrir vöxt þörunganna og má líta á maí og september sem varhugaverða mánuði til tínslu skelfisks. |ff r~|TWfyrr”i ||IÍi[^ííTi|r^BÍ^rF~'r [I1 ! 1 'f y' dsii IT irW i JjHfcmÆikí jfjl $M Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Meistarar í brúargerð Á MYNDINNI má sjá brúarvinnuflokk Guðmundar Sigurðssonar frá Hvammstanga smíða nýju brúna yfir Giljá í A-Húnavatnssýslu. Það tók þá félaga 24 klukkustundir að gera 25 metra langa brú yfir Giljána eftir að vegurinn fór þar í sundur að kvöldi sl. sunnudags og er það án nokkurs vafa íslands- met í brúargerð. Að sögn Guðmundar þá liðu 24 klukkustundir frá því vegagerðarmenn komu að Giljánni og hófu mælingar og þangað til fyrstu bílunum var hleypt yfir brúna rétt eftir miðnætti þriðjudaginn 31. maí. Það var svo snemma í gær sem tíu tonna öxulþungi var leyfður á brúnni. Bæjar- og sveitarstj órnarmenn eru sestir að samningaborðinu Meirihlutavið- ræður víða vel á veg komnar A AKRANESI hófu oddvitar Sjálf- stæðisflokks og Alþýðubandalags viðræður í gær um myndun meiri- hluta í bæjarstjóm, en áður hafði Framsóknarflokkur hafnað viðræð- um við Alþýðubandalagið. Gunnar Sigurðsson oddviti sjálfstæðis- manna sagði vel líta út með viðræð- ur D-lista og G-lista og þeim yrði haldið áfram í dag. í Borgamesi hófu fulltrúar B-list- ans og G-listans viðræður í fyrra- kvöld um myndun meirihluta í nýju sveitarfélagi, en að sögn Guðmund- ar Guðmarssonar oddvita fram- sóknarmanna gengu þeir óbundnir til þeirra viðræðna. Viðræðunum var haldið áfram í gær og stóðu þær enn yfir í gærkvöldi. Á Grundarfirði eiga Framsóknar- flokkur og Alþýðubandalag í við- ræðum um áframhaldandi meiri- hlutasamstarf flokkanna. B og G ræða saman á Húsavík Á Sauðárkróki hefur tekist samningur um áframhaldandi sam- starf D-lista, A-lista og K-lista þriðja kjörtímabilið í röð. Gerður hefur verið málefnasamningur um þá málaflokka sem setja á í fyrir- rúm á komandi kjörtímabili og ber þar hæst atvinnumál, æskulýðs-, íþrótta- og skólamál og umhverfís- mál. Forseti bæjarstjórnar verður Jónas Snæbjörnsson af D-lista, en formaður bæjarráðs Björn Sigur- bjömsson af A-lista. Þá hafa flokk- arnir samþykkt að ganga til samn- inga um endurráðningu Snorra Björns Sigurðssonar sem verið hef- ur bæjarstjóri á Sauðárkróki undan- farin átta ár. Á Húsavík á Framsóknarflokkur í viðræðum við G-lista Alþýðu- bandalags, Kvennalista og óháðra um myndun meirihluta. Að sögn Stefáns Haraldssonar oddvita fram- sóknarmanna hafa menn gefið sér tímann fram að helgi til að kanna möguleika á meirihlutasamstarfi. Samkomulag á Eskifirði Á Eskifirði hefur tekist sam- komulag Alþýðuflokks, Framsókn- arflokks og Alþýðubandalags um áframhaldandi meirihlutasamstarf. Ásbjöm Guðbjörnsson, A-lista, verður forseti bæjarstjórnar fyrstu tvö ár kjörtímabilsins, Sigurður Hólm Freysson, B-lista, þriðja árið og Auðbergur Jónsson, G-lista, fjórða árið. Þá eru taldar líkur á að um áframhaldandi meirihluta- samstarf D-lista og H-lista verði að ræða í Homafjarðarbæ, en við- ræður þar að lútandi standa yfir. Viðræður í Vesturbyggð, nýju sameinuðu sveitarfélagi á sunnan- verðum Vestfjörðum, áttu sér stað milli sjálfstæðismanna sem fengu fjóra menn kjöma og F-lista óháðra, en þeim var slitið þegar í ljós kom að F-listinn átti samhliða í óform- legum viðræðum við alþýðuflokks- menn og framsóknarmenn. Gísli Ólafsson oddviti sjálfstæðismanna sagði þetta fáheyrð vinnubrögð. í gær hófust síðan formlegar viðræð- ur F-lista, A-lista og B-lista, sem samtals eru með fimm fulltrúa kjörna, en sjálfstæðismenn hafa jafnframt óskað eftir viðræðum við Alþýðuflokkinn. Viðræðunefndir D- og K-lista luku í gærkvöldi við að fara yfir málefni og varð ekki ágreiningur að sögn Sigurðar Jónssonar oddvita sjálfstæðismanna. Má því búast við áframhaldandi samstarfí listanna. Ferðum fjölgað vegna HM FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að fjölga ferðum um Ósló í júní í sumar. Er það vegna þátttöku Norðmanna í Heimsmeistara- keppninni í fótbolta í Banda- ríkjunum. Að sögn Einars Sig- urðssonar blaðafulltrúa, hefur salan einnig aukist í Svíþjóð, Hollandi og Belgíu. „Við höfum séð verulega fjölgun bókana vegna HM og þá sérstaklega vegna þátttöku Norðmanna, Svía, Hollendinga og Belga,“ sagði Einar. „Þetta hefur verið sérstaklega áber- andi með Ósló og hafa þijár auka vélar verið settar þar inn í júní til að mæta því.“ Sagði hann að bókunum frá Ósló hefði auk þess fjölgað al- mennt en þar væri uppgangur í efnahagslífinu. Þegar mest er verða farnar níu ferðir á viku til Óslóar en núna er þegar flog- ið daglega vegna HM. Þyrlusveit heimsækir Neskaupstað UM HELGINA fer 15 manna hópur varnarliðsmanna og eig- inkvenna þeirra í ferðalag til Neskaupstaðar í boði íslands- flugs og annarra aðila. Þar mun hópurinn meðal annars taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni sjómannadagsins. Að sögn Sigfúsar Sigfússon- ar hjá íslandsflugi, var ákveðið að bjóða þyrlusveitunum tveim- ur sem tóku þátt í björgunar- störfum í Vöðlavík fyrr í vetur, í heimsókn austur þegar betur viðraði, en þyrlur sveitarinnar lentu með skipbrotsmenn á bílastæði Kaupfélagsins í bæn- un. Þeir vissu ekki þá hvar þeir höfðu lent. Sveitin fer á einni þyrlu aust- ur og lendir aftur á bílaplaninu, en eiginkonurnar fljúga með Dornier-vél íslandsflugs. í Neskaupstað munu ferða- langarnir borða í boði bæjar- stjómar Neskaupstaðar á föstudagskvöld og í boði sjó- mannasamtakanna á staðnum á laugardagskvöld. Borgarbyggð varð fyrir valinu SAMÞYKKT hefur verið að nafnið á nýju sveitarfélagi í Mýrasýslu verði Borgarbyggð, en sveitarfélagið varð til við sameiningu Borgarness, Hraunhrepps, Norðurárdals- hrepps og Stafholtstungna- hrepps, og tekur sameiningin gildi 11. júní næstkomandi. Sveitarstjórnir ofantaldra sveitarfélaga hittust á sameig- inlegum fundi í Borgarnesi í gær, en á fundinum var lögð fram niðurstaða úr skoðana- könnun um nafn á hið nýja sameinaða sveitarfélag í Mýra- sýslu, en könnunin var gerð þegar bæja- og sveitarstjórnar- kosningarnar fóru fram síðast- liðinn laugardag. Á fundinum var samþykkt að sveitarfélagið skuli heita Borgarbyggð, en það nafn hlaut næstflest at- kvæði í könnuninni á eftir Borgarnesbyggð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.