Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ INGIBERGUR SÆMUNDSSON + Ingibergnr Sæmundsson fæddist 20. júní 1920 á Ei- ríksbakka í Biskupstungum. Hann lést 27. maí 1994 á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Hann var yngstur átta barna hjónanna Arnleifar Lýðsdóttur og Sæmundar Jóns- sonar bónda á Eiríksbakka. Börnin voru þessi talin eftir aldri: Lýður, húsasmiður og bóndi á Gýgjarhóli, Kristrún, húsfreyja á Brautarhóli, Jón, w múrari í Reykjavík,' Kristinn, húsasmiður í Kópavogi, Sigríð- ur, lést tvítug, Guðbjörg, lést á sjötta ári, Sveinn, blikksmiður í Kópavogi, og Ingibergur, lög- regluþjónn og garðyrkjubóndi. A lífi eru nú aðeins Kristrún, sem er á Ljósheimum á Sel- fossi, og Sveinn, búsettur í Kópavogi. Kona Ingibergs var Sigríður Jakobína Halldórs- dóttir. Hún lést 1977. Þau eign- uðust þrjú börn. Útför Ingi- bergs fer fram frá Kópavogs- kirkju í dag. ARNLEIF, móðir Ingibergs, var dóttir Lýðs Þórðarsonar bónda á ’JKiríksbakka og sambýliskonu hans Kristínar Markúsdóttur. Lýður var af bændaættum í Tungum og Hreppum, en Kristín af prestum langt aftur í aldir. Séra Kolbeinn Þorsteinsson á Gilsbakka var afi hennar í móðurætt en Finnur Jóns- son biskup langalangafi í föðurætt. Sæmundur var eins og Lýður tengdafaðir hans af bændum kom- inn langt í ættir fram, t.d. bjuggu í Helludal 1850 tveir langafar okk- ar, Sæmundur Tómasson og Þórður ^Asronsson. Arnleif og Sæmundur hófu bú- skap í Hrauntúni 1903, en fluttu að Torfastaðakoti 1905 og loks að Eiríksbakka 1911 og voru þar uns þau brugðu búi vorið 1921. Fjöl- skyldan, 11 manns, skiptist á fimm bæi við flutninginn frá Eiríks- bakka, foreldrar okkar og Ingi- bergur voru næstu tvö ár í Skál- holti, Kristín amma og Kristinn fóru að Helgastöðum, Lýður afí að Spóastöðum, tvö elstu systkini mín og ég fórum að Stóra-Fljóti til ro- skinna hjóna sem áður höfðu tekið Jón bróður í fóstur. Á uppvaxtarárum okkar var lífs- mynstrið einfaldara en nú. Þá voru æviþrepin þrjú, bernska frá fæð- ingu til fermingar, fullorðinsár frá fermingu til sextugs og síðan ellin. Ingibergur lauk sinni bernsku Iíkt og aðrir á fjórða áratugnum, síðan tóku ýmis störf við, m.a. gróðurhúsastörf sem vafalaust hafa komið að notum á síðasta hluta starfsævinnar. Rúmlega tví- tugur lauk hann búnaðarnámi, en gekk svo í Lögregluna í Reykjavík ERFIDRYKKJUR perlan sími 620200 Erfidiykkjur Glæsileg kítiíi- hlaðborð Megir saiir og mjög gcK) þjóniLsta. Lpplýsingar í sínia 2 2322 FLUGLEIÐIR HÍTEL L8FTLEIIII og seinna í Kópavogi, og var þar samtals hátt á fjórða áratug. í öllum sínum störfum ávann hann sér traust og virðingu vinnufé- laga og annarra sam- borgara. En maðurinn einn er ei nema hálfur, þar kemur lífsförunautur- inn til sögu. Ingiberg- ur kvæntist Sigríði Jakobínu Halldórs- dóttur skömmu eftir að hann gerðist lög- regluþjónn. Sigríður var fædd á Raúðafelli undir Eyja- fjöllum, en fluttist á barnsaldri með foreldrum sínum til Vestmanna- eyja. Sigríður og Ingibergur eign- uðust þrjú börn, elst er Elín Dóra, maki Haraldur L. Haraldsson, þau eiga tvo syni; þá Örn Sævar, maki Guðlaug Óskarsdóttir, þau eiga þrjá syni; og Jón Kristinn, maki Guðrún Snorradóttir, þau eiga þrjú börn. Eftir að Ingibergur hætti lög- gæslustörfum flutti hann austur í Biskupstungur og gerðist garð- yrkjubóndi. Í eðli sínu var hann náttúrubarn, sem unni gróðri og dýrum. Hann naut sín vel í hópi hestamanna. Hann var ekki aðeins góður hagyrðingur heldur einnig gott skáld. Enginn má sköpum renna segja forn vísindi. Ingibergur varð fyrir alvarlegu slysi fyrir sjö árum og bar aldrei sitt barr eftir það. Því er þreyttum hvíldin góð. Eg kveð þig bróðir með ósk um farar- heill til framtíðarlandsins. Sveinn A. Sæmundsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim sér góðan getur. í dag kveðjum við Ingiberg Sæ- mundsson, föðurbróður okkar. Bergur frændi var um margt stór- brotinn maður, dulur og traustur. Hann var vel hagmæltur og spaug- samur á góðum stundum. Bergur og íjölskylda hans og fjölskylda okkar voru meðal frum- byggja Kópavogs. Á fyrstu árunum var lífsbaráttan hörð og reyndi mikið á samstöðu íbúanna. Sam- heldnin milli fjölskyldnanna var góð og við börnin tengdum þá þau vin- áttubönd sem halda enn í dag. Það var oft glatt á hjalla í Melgerðinu hjá Bergi og Siggu. Okkur systrun- um í Vallargerðinu fannst líka mik- ið til Bergs koma þegar hann birí,- ist í eldhúsinu heima í einkennis- búningnum, ýmist að fara á vakt eða að koma heim. Hann var mikil- menni í okkar augum. Sú minning lifir í huga okkar beggja. Börn mynda sér oft mjög raunsanna mynd af fólki og skynja ef til vill betur en margir fullorðnir hvaða mann fólk hefur að geyma. Við fundum svo vel hve stórbrotinn maður Bergur var og þannig geym- ist myndin af honum frænda í huga okkar. Á kveðjustund koma margar minningar fram í hugann. Við vilj- um þakka Bergi fyrir samveruna, hlýjuna og styrkinn sem hann gaf okkur í bernsku. Einnig vináttu og góðar stundir sem við áttum saman eftir að við urðum fullorðnar. Pjöl- skyldur okkar færa honum einnig þakklæti fyrir vináttuna. Við vott- um börnum hans og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning um góðan dreng og mikilhæfan mann. Alda og Ólína Sveinsdætur. Stuttu eftir að ég sem þessar línur rita var skipaður bæjarfógeti í Kópavogi á árinu 1955 flutti ég heimili mitt frá Reykjavík í Kópa- vog. í því bæjarhverfi sem við flutt- um í bjuggum við í tæpan aldar- fjórðung eða mest allan þann tíma sem ég gegndi starfi bæjarfógeta. Eins og gengur meðal barna- fólks takast kynni milli nágranna fyrir milligöngu barnanna fyrr en hjá þeim sem eldri eru, enda kynnt- umst við fljótt góðum grönnum í götunni okkar í Kópavogi. Meðal þeirra voru þau hjónin Sigríður J. Halldórsdóttir og Ingi- bergur Sæmundsson, sem þá gegndi lög- reglumannsstarfi í Reykjavík. Tvennt var sérstaklega áberandi í fari þessarar fjölskyldy, annars vegar snyrtimennska húsfreyjunn- ar í heimilisrekstri og hins vegar vinnusemi húsbóndans. Það varð okkur fljótt ljóst, að Ingibergur sinnti fleiri verkefnum en lögreglu- mannsstarfinu í Reykjavík einu saman. Margir lögreglumenn, sem voru flestir kraftakarlar á besta aldri, fengust við ýmis störf, aðal- lega við húsbyggingar og skylda starfsemi, á því æviskeiði sem þeir voru að koma undir sig fótunum ljárhagslega eftir stofnun heimilis. Við fylgdumst nokkuð með störfum Ingibergs og undruðumst hve miklu hann kom í verk, þótt það kæmi ekki fyllilega í ljós fyrr en hann tók að sér slíkt verk fyrir okkur, er við stækkuðum hús okkar. Líklega hefur Ingibergur brénnt kertið í báða enda, ekki með óreglu eða óráðsíu, heldur með því að ætla sér ekki af í vinnu. Þegar loks var ákveðið að hið unga bæjarfélag, Kópavogur, skyldi hafa sérstaka lögreglu í stað þess að liggja upp á Reykjavík að þessu leyti eins og verið hafði, voru í ársbytjun 1958 ráðnir tveir lög- reglumenn í Kópavog. Sá fyrri þeirra var Ingibergur og sinnti hann því starfi í 21 ár, þar af í 13 ár sem yfirlögregluþjónn. Sem yfir- iögregluþjónn var hann nánasti samstarfsmaður minn að löggæslu- málum og umferðarmálum. Eru lín- ur þessar settar á pappír til þess að þakka það samstarf, skyldu- rækni hans og ljúfmennsku í skipt- um hans við okkur sem með honum störfuðu og ekki síður við borgara bæjarins sem við hann átti erindi, ýmist af fúsum vilja til fyrir- greiðslu eða ekki af eins fúsum vilja, svo sem alltaf hlýtur að henda þegar um löggæslu er að ræða. Ég tel víst að Kópavogsbúar sem við hann áttu erindi minnist nú prúðmennsku hans og ljúf- mennsku. En linur þessar eru ekki síður á blað festar til þess að minnast þeirra hjóna beggja, Sigríðar og Ingibergs, sem góðra nágranna í tvo áratugi, og þægilegra skipta fjölskyldna okkar yfir götuna. Þau hjónin höfðu hlakkað til þess að setjast að á garðyrkjubýli þeirra í Biskupstungum við starfs- lok Ingibergs, en Sigríður féll frá í október 1977, tæpum tveimur árum áður en Ingibergur lét af störfum. Ingibergur hélt þó sínu striki og gerðist garðyrkjubóndi í Biskupstungum í nábýli við sum barna sinna, en auðvitað á allt öðr- um grundvelli en orðið hefði ef Sigríður hefði starfað með honum eins og ætlað var. Börnum Ingibergs, Elínu, Erni og Jóni og fjölskyldum þeirra, vott- um við hjónin innilega samúð okk- ar. Sigurgeir Jónsson. Árið eftir að Ingibergur fæddist urðu foreldrar hans að bregða búi, enda mun faðir hans þá hafa verið farinn að kenna veikleika og lést hann fimm árum síðar úr berklum. Fjölskyldan tvístraðist því þegar Ingibergur var á unga aldri en hann ólst þó upp með móður sinni og var með henni á mörgum bæjum í Bisk- uþstungúrh þar sém hún varð áð vinna fyrir sér. Ingibergur fór fljótt sem unglingur að vinna fyrir sér sjálfur og var vinnumaður víða í uppsveitum Árnessýslu. Oft vitnaði hann til þess þegar hann vann við garðyrkjustörf á Syðri-Reykjum, þá 18 ára. Hugur Ingibergs stefndi ætíð til ræktunar og gróðrarstarfa. Hann fór í Bændaskólann á Hvanneyri árið 1940, tvítugur að aldri, og lauk búfræðiprófi frá þeim skóla 1942. Sumarið eftir vann hann á vinnuvél- um við ræktunarstörf á Rangárvöll- um. En þar kynntist hann lífsföru- nauti sínum, Sigríði J. Halldórsdótt- ur. Þá voru erfiðir tímar og óvissa ríkti um atvinnuöryggi og afkomu fólks, ekki síst þeirra er hugðu á sveitabúskap. Það atvikaðist því þannig að Ingibergur Sæmundsson vék frá sínum æskudraumum um að gerast bóndi og þegar auglýst var eftir lögreglumönnum til starfa hjá lögreglunni í Reykjavík, snemma árs 1943, sótti Ingibergur um starf og var ráðinn. Þar með var ævistarf hans að mestu ráðið því í lögreglunni í Reykjavík var hann þar til 31. desember 1957 og tók svo við starfi lögreglumanns í Kópavogi 1. janúar 1958. Hann var skipaður yfirlögreglu- þjónn í Kópavogi 1. maí 1966 og gegndi því starfi til 25. apríl 1979. Þá var Ingibergur búinn að vinna sér réttindi til að hætta störfum og fara á eftirlaun, enda hafði hann þá í allmörg ár búið í haginn fyrir sig til að láta gamlan draum ræt- ast og gerast garðyrkjubóndi. Hann seldi húsið sitt í Kópavogi og flutti austur í Biskupstungur og reisti garðyrkjubýlið Dalbrún. Þar bjó hann til ársins 1991, er hann varð að yfirgefa sína kæru heimahaga og fara á sjúkrastofnanir, vegna afleiðinga slyss er hann varð fyrir árið 1987 og náði sér aldrei eftir það. Hann dvaldi síðustu árin á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, oft mikið veikur. Ingibergur og Sigríður áttu myndarlegt heimili og búnaðist vel, enda bæði iðjusöm og samheldin. Þau voru bæði alin upp við vinnu- semi og þekktu ekkert annað alla tíð. Hann, eins og fyrr segir, uppal- inn í Biskupstungunum, en hún var alin upp í Vestmannaeyjum. Ingibergur Sæmundsson sat ekki auðum höndum um dagana á meðan heilsan leyfði. Hann vann að meiru og minna leyti aukastörf með sínu aðalstarfi sem lögreglumaður alla tíð. Hann byggði húsið að Melgerði 9 í Kópavogi árið 1949 í hjáverkum með lögreglumannsstarfinu og þurfti þar lítið að sækja til ann- arra, enda ekki af miklum efnum að taka, því eins og Sigríður J. Halldórsdóttir, kona hans, sagði, það var engu eytt nema í húsið, ekki einu sinni keyptur klútur né neitt annað, sem hægt var að kom- ast hjá að kaupa. En þó að húsið að Melgerði 9 væri komið upp var ekki látið þar við sitja í byggingariðninni því mörg hús í Kópavogi og víðar múraði Ingibergur í frístundum sín- um. Hann var afskaplega iðinn maður og féll sjaldan verk úr hendi og þegar hann var kominn í vinnu- gallann með múrskeiðina var nú ekki slegið af. Árið 1962 hóf Ingibergur bygg- ingu hússins að Hrauntungu 27 í Kópavogi og byggði það að mestu leyti sjálfur og í frístundum sínum og seldi Melgerði 9. Ingibergur var dagfarsprúður maður og skemmtilegur að ræða við, en var þó að eðlisfari hlédræg- ur og lítið fyrir að láta bera á sér og fátalaður um hagi sína. Hann gat verið glettinn og spaugsamur, þó alvörumaður væri. Hanh var mjög vel hagmæltur, en fiíkaði því ekki að jafnaði. Mörg ljóð og Iausa- vísur gerði hann, oft í gamansömum tón og hitti vel í mark, þegar hann vildi það við hafa. En samkvæmt lífsskoðunum hans um sína eigin hagi og viðhorf mun hann ekki hafa látið eftir sig liggja nema mjög lítið af ljóðum og lausavísum og er það miður. Ingiþergur Sæmundsson var far- saéll maður, bæði í sínu einkalífi og sem lögreglumaður. Hann var velviljaður húsbóndi og vildi sínum mönnum vel, svo var og um þá er hann hafði hinum megin við borðið sem lögreglumaður, hann vildi eng- an særa né meiða. Hann var félagsmálamaður, var lengi starfandi í Lionshreyfingunni, og starfaði hjá BSRB fyrir stétt- arfélag sitt, var í stjórn Starfs- mannafélags Kópavogs, þegar lög- reglumenn voru starfsmenn Kópa- vogsbæjar, svo og gegndi hann mörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög sín og bæjarfélag. Þar á meðal var hann í umferðar- nefnd þegar breytt var yfir í hægri umferð á íslandi og fór til Málmeyj- ar í Svíþjóð til að kynna sér umferð- armál þar til að undirbúa þær miklu breytingar sem gera þurfti við þær ráðstafanir. Margar ánægjulegar stundir áttu lögreglumenn í Kópavogi með Ingi- bergi og oft var glatt á hjalla þegar skipst var á skoðunum í kaffistofu lögreglunnar eða við önnur tæki- færi þegar starfið kallaði ekki og tækifæri gafst til. Hans verður lengi minnst sem fyrsta lögreglumanns í Kópavogi og síðar yfirlögreglu- þjóns, bæði af lögreglumönnum og öðrum bæjarbúum. Aðstandendum Ingibergs vottum við samúð okkar og vitum að minn- ingin um góðan dreng mun lifa. F’yrir hönd samstarfsmanna hjá lögreglunni og sýslumannsembætt- isins í Kópavogi, Ásmundur S. Guðmundsson. Föstudaginn 27. maí sl. var einn af fegurstu dögum vorsins, sólin skein bjart í Suðurhlíðum Kópavogs og var sem sumarið væri komið, en að kvöldi þess fagra dags end- aði ævi tengdaföður míns, Ingi- bergs Sæmundssonar. Eg man vel eftir fyrsta skipti þegar ég kom í Hrauntunguna, feimin stúlka með unnusta mínum til að hitta tilvonandi tengdafor- eldra. Ég fann glöggt, eins og raun- in varð, að í þeim báðum eignaðist ég góða vini. Árin liðu, fjölskylda okkar Arnar stækkaði og við flutt- um til útlanda. Skyndilega breytt- ust aðstæður og við þurftum að flytja heim til íslands. Kom þá til rausnarskapur tengdaforeldra minna en þau opnuðu heimili sitt fyrir litlu fjölskyldunni okkar. Þenn- an góða tíma geymi ég í minning- unni og vona að mér hafi tekist að endurgjalda hlýleikann og hjálp- semina. Þau hjón Ingibergur og Sigríður áttu góða ævi saman, eignuðust þijú elskuleg börn. Þau höfðu yndi af ferðalögum og útivist og nutu þess að skoða landið sitt saman. Því var það Ingibergi tengdaföður mínum mikið áfall þegar hann missti Sigríði konu sina aðeins 56 ára gamla, eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Og sennilega jafnaði hann sig aldrei á þeim missi. Ingi- bergur var dulur maður og bar til- finningar sínar ekki á torg, en hann hafði sannarlega stórt hjarta. Hann hlaut í vöggugjöf frá móður sinni að eiga auðvelt með að setja saman vísur, og varpaði þeim gjarnan fram í góðra vina hópi, en af því lítillæti sem einkenndi hann, vildi hann þó lítið láta á þessum hæfileikum bera. Miklar breytingar urðu í lífi Ingi- bergs við lát konu hans, en skömmu fyrir andlát hennar höfðu þau hjón fest kaup á landi í Biskupstungum, sem þau ætluðu að rækta upp og eyða þar ævikvöldinu. En hann hélt ótrauður áfram því starfi sem þau hjón höfðu þegar hafið. Hann fluttist búferlum austur í sælureit- inn sinn, reisti sér hús og gróður- stöð og undi glaður við sitt, enda vinnusamur og vandvirkur með af- brigðum. Allt virtist vaxa í höndum hans. Árið 1985 varð Ingibergur fyrir því óhappi að slasast og varð aldrei samur maður eftir það. Síðustu æviár sín dvaldi hann á Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í Kópa- vogij og naut þar góðrar umönnun- ar. Ég kveð tengdaföður minn með virðingu og þakka honum sam- fylgdina. Guðlaug.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.