Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 31 JÓHANNA í fullum herklæðum við brynvarða bifreið sem notuð er við flutning hjálpargagna. SPÍTALI í austurhluta Mostar. Lyfin eru geymd á efri hæðinni en gengið er inn bakatil þar sem aðalinngangnum hefur verið lokað með sandpokum. Sjúklingar eru vistaðir á fyrstu hæð og aðgerðir í kjallaranum. SÝNISHORN af sjúkrabílum. Til hægri á myndinni má sjá glitta í sjúkrabörur, fyrir ofan þær má greina súrefnistæki og eins og sjá má erii bakdyr hins bílsins sundurskotnar. við veginn og upp við steina og allt of seint að snúa við. Vegurinn var mjór og sprengjum rigndi niður kringum okkur. En ég man að ég hafði meiri áhyggjur af því að rekast á bílana sem komu á móti okkur og allir voru á 150 kílómetra hraða. Þá sáum við hvað það skiptir miklu máli að hafa góðan bílstjóra." Mikið hlegið Jóhanna er spurð hvernig takast megi að halda sönsum undir þessum kringumstæðum. „Við erum venju- lega tíu til tólf í bílunum og reynum að troða eins miklu af hjálpargögnum inn og við getum. Svo er keyrt, alveg á hundrað, allir svolítið hræddir og oft hnakkrifist á meðan um réttu leiðina þótt hún sé löngu ákveðin, eða um ótrúlegustu hluti. Síðan þeg- ar við erum komin úr allri hættu verður einhvers konar spennufall, fólk segir brandara og hlær óstjórn- legum taugaveiklunarhlátri. Þetta er ákveðin stemmning og kannski verð- ur maður háður henni.“ Stríð og pizza og bjór á eftir Þegar Jóhanna er spurð hvað fólk taka sér fyrir hendur eftir vinnu á svona stað nefnir hún sem dæmi að þegar farið sé til Mostar fari hópur- inn stundum til Medjugoije á eftir. Þar kveður eitt sinn hafa sést til Maríu meyjar og þangað fara margir í nokkurs konar pílagrímsferð. „Mað- ui' kemur svo gott sem úr miðju stríði, á þennan stað, allt fullt af ferða- mönnum, kannski bandarískum, á miðjum aldri sem sitja og sötra bjór. Þar setjumst við niður og fáum okk- ur pizzu og bjór og satt að segja myndast oft ótrúlegt andrúmsloft með hópnum." - Hvað af því sem þú hefur séð tekur þig sárast? „Ég held að það versta sé tilfinn- ingin sem maður hefur með þessu fólki sem hefur misst allt sitt. Þeir sem eru dánir eru dánir. En hvernig á að hjálpa þeim sem eftir lifa að komast yfir missinn? Það er ekki blóðið eða bæklunin sem maður tekur mest nærri sér þótt margir séu mjög fatlaðir og hafi misst útlimi. Margt gamalt fólk vill til dæmis bara fá að deyja." - Hvernig blasir fólkið við þér? „Það má segja að það sé mitt í lostinu. Margir sitja inni í herbergi og stara út í loftið. Mæður hugsa ekki um börnin sín. Einnig er von- leysið áberandi og vonbrigðin og reið- in. Fólk trúir því ekki ennþá að þetta skuli hafa getað gerst í heimalandi þess. Ég get nefnt sem dæmi lækni héðan sem fór til Spánar árið áður en stríðið hófst í Júgóslavíu sem var. Um svipað leyti sprengdu Bask- ar upp jámbrautarteina í mótmæla- skyni einhvers staðar og segist hann hafa hugsað með sér „hvers konar villimenn eru þetta eiginlega?“ og svo gerist þetta í heimalandi hans.“ Hírðust í dimmum kjöllurum „Annað sem tekur mig mjög sárt er eyðileggingin í Mostar þar sem ekki eitt einasta hús er uppistand- andi; eymd fólksins þar sem það hírð- ist í lekum, dimmum kjöllurum, særð- ir í hrúgum. Fimmtíu þúsund manns sátu í kulda og myrkri í austurhluta borgarinnar í allan vetur, ekki einu sinni kertaljós, og stanslausar sprengiárásir. Það eru allir hálf geð- veikir á eftir. Ég veit um tvo lækna sem misstu vitið eftir að álagið minnkaði. Á meðan hafsjór af sund- urtættu fólki flæddi inn á spítala voru' þeir of önnum kafnir við að afgreiða hina særðu til þess að ganga ekki af göflunum. Það gerðist ekki fyrr en um hægðist. Þarna er ekkert rafmagn, ekkert vatn, engin salernisaðstaða. Fólk getur ekki þvegið sér, er með lús. Svo við erum með sérstaka kassa með hreinlætisvörum, í þeim eru sápa og sjampó, tannburstar og tannkrem, lúsasjampó og dömubindi, rakvélar og aðrar brýnar nauðsynjar en það er hægara sagt en gert að sjá tugum þúsunda fyrir þeim ... ég er fyrir löngu orðin vön blóðinu og sundurt- ættu fólki, það er eymdin sem er verst.“ Margir fara aldrei heim Jóhanna segist kvíða því sem eftir á að gera, koma rafmagninu á, vatn- inu, hreinsa út allt holræsakerfið. Gera byggingar þannig úr garði að þær geti að minnsta kosti veitt skjól, einhveijar leiðir verði að finna til þess að gera húsarústirnar íbúðar- hæfar að nýju fyrir næsta vetur. „Það sem við kvíðum einnig er það að fólk veit kannski að það hefur misst húsin sín, en það veit ekki að spítalinn er farinn líka og jámbrauta- stöðin, það er ekkert eftir. Helming- urinn af þessu fólki fer aldrei heim. Mér er ennþá minnisstætt þegar ég keyrði eitt sinn í gegnum hverfi sem búið var að sprengja, hvergi stóð steinn yfir steini, allt brunnið, þegar ég allt í einu sá glitta í snúru sem á héngu barnaföt til þerris. Al- veg heil.“ Bruno Bischoff tekur þátt í hlutafjáraukningu Samskipa Um 86 milljónir króna lagðar fram í upphafi Viðræður við innlend og erlend fyrirtæki um þátt- töku í hlutafjáraukningu Samskipa standa nú sem hæst, Agnes Braga- dóttir varpar hér ljósi á það helsta sem er að gerast í þeim viðræðum þessa dagana. LANDSBANKA íslands barst í gær staðfesting þess, frá I þýska skipafiutningafyrir- ' tækinu Bruno Bischoff, að fyrirtækið hyggist leggja fram 86 milljónir króna, eða tvær milljónir þýskra marka, við hlutafjáraukningu Samskipa með þeim möguleika að geta aukið hlutafé sitt í 376 milljón- ir króna eða samtals 6,5 milljónir þýskra marka. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins er það skil- yrði af hálfu Þjóðvetja, að Samskip hafi Bremerhafen sem áætlunarhöfn í flutningum sínum til Þýskalands en ekki Hamborg. Forráðamenn Samskipa sjá, samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins, engin vand- kvæði á að uppfylla þetta skilyrði. Hagkaup og Samheiji á Akureyri íhuga nú þátttöku í hlutaljáraukn- ingu Samskipa. Til að byija með var um það rætt að Hag- kaup og Samheiji mynduðu í samvinnu við fyrirtæki tengd Fóðurblöndunni hf. eign- arhaldsfélag um eignarhlut í Samskipum, en Gunnar Jó- hannsson, forstjóri Fóður- blöndunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að slíkt væri ekki lengur á döf- inni að því er varðar Fóður- blönduna eða bakfyrirtæki hennar. Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær: „Ég get stað- fest að við hjá Hagkaup höfum verið að íhuga þátttöku í hlutafjáraukn- ingu Samskipa. Við höfum undan- farnar vikur verið að skoða þann möguleika að koma inn í fyrirtækið í félagi við tvo aðra aðila, Samheija og Fóðurblönduna." „Við höfum verið að skoða þetta. Við höfum ekki tekið neina afstöðu til þess hvort við verðum með eða ekki. Ef einhver okkar þriggja sem höfum verið að ræða sameiginlega þáttöku í Samskipum, fellur út úr hópnum, þá höfum við ekki hugsað það upp á nýtt hvað við gerum,“ sagði Þorsteinn Már Vilhelmsson hjá Samheija í gær. Hann taldi að niður- staða myndi liggja fyrir innan tveggja vikna. „Við fluttum viðskipti okkar yfir til Samskipa um síðustu áramót og flytjum mjög mikið með fyrirtækinu eða á milli 35 og 40 þúsund tonn af fóðurvörum á ári. Því var eðlilegt, þegar hlutafjáraukning Samskipa kom til umræðu, að leitað væri til okkar, sem svo stórs viðskiptavin&r og okkur var kynnt málið. En nú ligg- ur fyrir að þetta er ekki lengur inni í myndinni og er ekki lengur til umræðu," sagði Gunnar. Óskar Magnússon, forstjóri Hag- kaups, og Þorsteinn Már Vilhelms- son, framkvæmdastjóri Samheija, staðfestu þessar upplýsingar í sam- tali við Morgunblaðið í gær, en ekki liggur fyrir um hversu háar upphæð- ir verður að ræða, að þeirra sögn, ef af verður. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hefur verið um það rætt, að gerist þessi tvö fyrirtæki hluthaf- ar í Samskipum séu líkur á að hvort fyrirtækið um sig leggi fram eitthvað nálægt 40 milljónum króna í nýju hlutafé. Áður hefur verið greint frá því að Samvinnusjóðurinn, Vátryggingafé- lag íslands, Olíufélagið hf., Iceland Seafood Corp., Lífeyrissjóður sam- vinnumanna og KEA ræði um hlutaf- járkaup í Samskipum sín á milli. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins eru einnig taldar miklar lík- ur á því, að þessi fyrirtæki myndi í sameiningu eignarhaldsfélag um sinn eignarhlut í Samskipum, sem verður stór, jafnvel allt að 300 milljónfr króna, ef af verður, samkvæmt sömu upplýsingum. 1 þessum hópi fýrirtækja hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um það hvort þau taki þátt í hlutafjáraukn- ingunni eða eins og forsvarmaður eins fyrirtækisins orðaði það í sam- tali í gær: „Af eða á, við tökum ákvörðun þegar við erum sáttir við þær upplýsingar og þá kosti sem til boða standa. Ég hygg að ekki líði á löngu áður en niðurstaða getur legið fyrir.“ Bruno Bischoff er staðsett í Brem- en og í eigu fýrirtækisins eru um 30 skip. Skipið er með flutninganet út um allan heim og m.a. mun vaka fyrir fyrirtækinu að fá Samskip til fiskflutninga á Bremerhafen-svæð- inu. Samskip hafa náð flutninga- samningum við Færeyinga um fisk- flutninga þaðan til Evrópu og að því mun stefnt að auka samvinnu og hagræðingu í flutningum, meðal ann- ars með fiskflutningum frá Færeyj- um og frá íslandi til Bremerhafen. Að því hafði verið stefnt af hálfu Samskipa að Ijúka viðræðum við hugsanlega hluthafa fyrir aðalfund Samskipa, sem haldinn var í fyrra- dag, þannig að þar væri hægt að kynna ákveðna niðurstöðu. Það tókst ekki og því var aðalfundi frestað og stefnt er að því að boða til framhalds- aðalfundar, þegar niðurstaða liggur fyrir í þessum viðræðum. Heimildarmönnum Morgunblaðs- ins ber saman um, að staðfesting þýska fyrirtækisins, Bruno Bischoff, á þátttöku í hlutafjáraukningu Sam- skipa hafi gert þátttöku íslenskra fyrirtækja fýsilegri kost en ella og hleypt ákveðnum krafti í þær viðræð- ur, sem nú standa yfir, og stefnt er að, að ljúka áður en júnímánuður ei á enda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.