Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR UNGLINGA Morgunblaðið/Frosti Þau unnu sér rétt til að keppa á Eyrarsundsleikunum sem fram fara í Svíþjóð í júlí. Að ofan frá vinstri eru þeir Davíð Helgason og Rafn Ámason og stúlkurn- ar heita Silja Úlfarsdóttir og Rakel Jensdóttir. Unnu ferð til Svíþjóðar LOKAKEPPIMI Skólaþríþrautar FRÍ og Æskunnar var haldið á Laugardalsvellinum á laugardag. í vetur hafa um tvö þúsund unglingar á aldrinum 12-14 ára reynt með sér í skólum lands ins í hástökki, 60 metra hlaupi og í boltakasti. Sérstakt stigakerfi var síðan notað til að reikna út afrek hvers og eins með tilliti til aldurs og tveir efstu keppendur í drengja og stelpnaflokki verða þátttakend- ur á Eyrarsundsleikunum sem fram fara í Helsingjabrog í Svíþjóð fyrri hluta júh'mánaðar. Davíð Helgason úr Hveragerði varð stigahæstur í drengjaflokki með 3050 stig og Rafn Arnason úr Varmárskóla í Mosfellsbæ í öðru sæti með 2975 stig. Báðir eru þeir á sínu síðasta ári í Skóla- þríþrautinni en Rafn var reyndar einnig fulltrúi íslands í sömu keppni í fyrra. Rakel Jensdóttir úr Kópavogs- skóla varð hlutskörpust í kvenna- flokki með 2933 stig en Silja Úlf- arsdóttir úr Setbergsskóla í Hafnarfirði hlaut 2891 stig. Þær unnu sér báðar rétt til að keppa á Eyrarsundsleikunum þar sem keppnisgreinar eru mun fleiri. Sprengdi stigakerfið Besti árangur frá upphafí í bolta- kasti náðist á mótinu en Davíð kast- aði boltanum 65,49 metra og þá sigr- aði Rafn glæsilega í hástökki með því að stökkva 1,80 metra. Þess má reyndar geta að Davíð „sprengdi" stigaskalann með árangri sínum í boltakasti svo umreikna þurfti stig hans sérstaklega því ekki var gert ráð fyrir að drengur á hans aldri gæti kastað boltanum svo langt. Áætlað er að um tvö þúsund ung- menni hafí tekið þátt í forkeppninni en búist er við að hún verði með talsvert öðru stigi á næsta ári. Lík- legt er að þá verði skyldugreinar tvær, 60 m hlaup og gúmmíspjót- kast en keppendur komi síðan til með að geta valið um fleiri greinar. Morgunblaðið/Frosti Helgi Berg Friðþjófsson vinstra megin og Bjartmar Leósson sem kepptu í 13 - 15 ára flokki á Fjallahjólreiðamótinu við Helgafell og höfnuðu í tveimur efstu sætunum. FJALLAHJOLREIÐAR U-16ára lið kvenna valið Logi Ólafsson lándsliðsþjálf- ari kvenna hefur valið U-16 ára landslið íslands sem tekur þátt í Norðurlandamótinu sem fram fer á Akureyri í sumar. Sextán manna hópur er þannig skipaður: Aðalheiður Bjarnad..............Haukum Eva Björk Ægisdóttir............Haukum Ásdfs P. Oddsdóttir.............Haukum Gréta Rún Aradóttir.............Haukum Anna L. Þórsdóttir..................KR Jóhanna Indriðadóttir...............KR Hildur Ólafsdóttir...............UBK Sigurbjörg Júlfusdóttir............UBK Anna Smáradöttir....................ÍA Áslaug Ákadóttir....................IA Brynja Pétursdóttir.................ÍA Guðrún Sigursteinsdóttir.......... ÍA Ingibjörg Olafsdóttir..............ÍBA Erla Edvaldsdóttir................UMFA Harpa Sigurbjörnsdóttir........UMFA Sigríður Marinósd............Sfjömunni ÚRSLIT Skólaþríþraut FRÍ Stigahæstu einstaklingar í Skólaþríþraut FRI og Æskunnar sem haldið var á Laugar- dalsvelli á laugardag. Drengir Davíð Helgason, Hveragerði........3050 Rafn Ámason, Varmársk. Mosfellsbæ .2975 Kári Ámason, Fossvogsskóla........2850 Gunnar Þorvaldsson, Vestmanneyjum .2755 Hilmar Gunnarsson, Varmárskóla....2505 Stúlkur Rakel Jensdóttir, Kópavogsskóla...2933 SiljaÚlfarsd., Setbergsskóla Hafnarf. .2891 Ebba Brynjarsd., Lundaskóla Ak.....2731 Ámýlsberg, Varmárskóla............2668 Drífa Skúladóttir, Breiðholtsskóla.2664 Bikarkeppnin í fjallahjólreiðum Úrslit í unglingaflokkum í 1. umferð bikar- keppninnar í Fjallahjólreiðum. 16 - 18 ára Sigurður Skarphéðinsson 54,4o 2. Steinar Þorbjörnsson 55,47 Kristmundur Guðlaugsson 59,09 Sighvatur Jónsson 59,50 Orri Gunnarsson ....1:01,35 Helgi Guðvarðarson ....1:02,47 Jörg Albert Königseder .'..1:10,56 13 - 15 ára Helgi B. Friðþjófsson............23,55 Bjartmar Leósson.................26,52 Magnús Guðjónsson................32,16 Bjöm Oddsson.....................36,51 Gústaf Jónsson...................43,21 Ingi Öm Jónsson..................hætti 9-12 ára Gylfl Jónsson....................14,46 Andri Guðmundsson................17,59 ■Keppendur í 16 - 18 ára flokki hjóluðu fjóra hringi, keppendur 13-15 ára og 9 - 12 ára hjóluðu tvo hringi. Fjögur mót verða fyrir unglingaflokk- anna í sumar, þrjú bikarmót auk Islands- móts. Mikið um brekkur sem reyndu á þol keppenda Ingi Örn Jónsson og Andri Guðmundsson. Fyrsta bikarmót ársins í fjalla- hjólreiðum var haldið í ná- grenni höfuðborgarsvæðisins á Hvítasunnudag. Keppt var í þremur unglingaflokkum en keppendur hjóluðu í kringum fjallið Helgafell. Leiðin sem hjólreiðamennirnir lögðu að baki var mjög erfið enda grýtt og mikið um brekkur sem reyndu á þolkeppenda. Aðeins tveir keppendur voru í yngsta flokknum, flokki níu tíl tólf ára en það voru þeir Andri Guðmundsson og Gylfí Jónsson. „Það er ekkert hægt að æfa yfir vetrartímann en ég æfi mig á sumr- in með því að hjóla og skokka," sagði Andri sem hjólaði báða hring- ina og hafnaði i öðru sæti á eftir Gylfa Jónssyni. „Þetta var ofboðs- lega erfitt og reyndi mikið á lærvöð-- vana og kálfana," sagði Andri. Gafst upp á miðri leið „Ég fór einn hring og hafði ekki þol í meira enda var brautin mjög erfið. Þetta er annað mótið sem ég tek þátt í, ég keppti á einu móti í fyrra og þá á mikið léttari braut,“ sagði Ingi Örn Jónsson sem keppti í 13 - 15 ára flokknum. Á fullri ferð Frammistaða Helga Bergs Frið- þjófssonar vakti athygli en hann hjólaði báða hringina mjög greitt og var á undan meistaraflokks- mönnum í mark eftir tvo hringi en meistaraflokksmennirnir þurftu að hjóla fimm hringi en hver hringur er um fimm kílómetrar að lengd. „Ég hef alltaf verið mikið í hjól- reiðum og segja má að áhuginn hafi kviknað strax og ég fékk mitt fyrsta hjól. Ég bjóst ekki við að ganga svona vel. Ég átti frekar von á því að verða aftariega og var orðinn þreyttur og var alveg við það að gefast upp á fyrri hringnum. Ég komst hins vegar yfir það og ákvað m) gefa vel í fyrst að þetta voru bara tveir hringir," sagði Helgi. „Ég stefni á að keppa í meist- araflokki og ætla að hjóla eins mik- ið og ég get í sumar. Erfitt að hjóla í grjóti Bjartmar Leósson keppti einnig í 13 - 15 ára flokki en hann og Helgi þekkjast vel enda bekkjar- bræður í skóla. „Þetta er fyrsta mótið sem ég tek þátt í. Mér fannst þetta vera erfitt og þá sérstaklega að hjóla í grjóti. Ég er óvanur því enda hef ég mest hjólað í bænum á gangstéttum,“ sagði Bjartmar. Líkt langhlaupi „Það má segja að hjólreiðar eigi margt skylt með langhlaupum. Keppendur í þessum greinum þurfa að hafa gott úthald og kunna að nota andstæðingana. I hjólreiðum eins og í langhlaupum er gott að láta næsta mann á undan létta sér leiðina með því að láta hann kljúfa loftið. Svo má andstæðingurinn ekki vita að maður sé þreyttur,“j sagði Bjarni Svavarsson ur Hjól- reiðaklúbbi Reykjavíkur þegar Morgunblaðið tók hann tali til að forvitnast um keppnishjólreiðar. „Til þess að keppa á mótum sem þessum verða menn að vera mjög vél líkamlega undir það búnir því að ljallahjólreiðar eru erfíð íþrótta- grein,“ sagði Bjarni. Þess má geta að æfingar hjá hjólreiðaklúbbnum eru öllum opnar en þær eru á mánudögum klukkan 18:15 en þá er hist fyrir utan Veit-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.