Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK m M A- Lt í Aðgöngumiði að Backbeat gildir sem 300 kr. afsláttur af geislaplötunni með rokktónlistinni dúndrandi úi myndinni í verslunum Skífunnar. Mannfagnaður PAUL McCARTNEY Ríkasti tónlistarmaður Bretlands ►í NÝLEGU hefti breska dag- blaðsins Sunday Times er listi yfir 500 ríkustu menn Bretlands. Þar af er á þriðja tug tónlistar- manna. Paul McCartney er þeirra langríkastur og í tuttugasta og fjórða sæti á listanum. Eignir hans eru metnar á um 40 millj- arða ísl. króna. Orðrómur hefur komist á kreik um að Bitlarnir eftirlifandi séu að koma saman aftur og þá vegna bágrar fjár- hagsstöðu. Ef tekið er mið af McCartney á sá orðrómur ekki við nein rök að styðjast. Hann þénaði rúma tvo milljarða ísl. króna á tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin á síðasta ári. Á eftir McCartney kemur Sir Andrew Lloyd Webber í fertug- asta og sjötta sæti með eignir metnar á 30 milljarða ísl. króna. Það segir mikið um vinsældir Webbers að jafnvel jarðskjálfti hindrar ekki miðasölu á söngleiki hans. Miðar voru bókaðir fyrir rúmar fimm milljónir ísl. króna í Los Angeles á sama degi og jarð- skjálftinn stóri varð þar. Elton John er í fertugasta og sjöunda sæti með rúma níu milljarða ísl. króna. Neðar á listanum má síðan þekkja fleiri tónlistarstjörnur. Félagarnir úr Rolling Stones, þeir Mick Jagger og Keith Richards, koma næstir og síðan Phil Coll- ins, George Michael, Eric Clapton, Dave Stewart, Sting, Rod Stewart o.fl. Athygli vekur að Richard Bran- son sem hóf feril sinn á því að reka útgáfufyrirtækið Virgin er í ellefta sæti með eignir metnar á 96 milljarða ísl. króna. Útgáfu- fyrirtækið þénaði mikla peninga á plötu Mikes Oldfields, „Tubular Bells“, en hún var ein mest selda plata áttunda áratugarins. Þó að útgefandinn Branson sé svo ofar- lega á listanum örlar ekkert á Oldfield sjálfum. MÁLVERKASÝNING eftir Tolla var opnuð á laugardaginn sl. í nýjum sýningarsal sem heitir Gall- erí Regnbogans og er staðsettur í forsal kvikmyndahússins Regn- bogans. Hann er eingöngu opinn kvikmyndahússgestum, sem geta skoðað málverkasýninguna fyrir sýningu og í hléi. Aðspurður um ástæðuna fyrir þessu uppátæki sagði Tómas Þór Tómasson, markaðsstjóri Regnbogans: „Þetta skref er rökrétt framhald af þeirri viðleitni Regnbogans að sýna listrænar og vandaðar mynd- ir frá öllum heimshomum." MIKILL fjöldi gesta sótti opnum TOLLI heilsar Svavari Gestssyni, en til hliðar við þau standa Bubbi Morthens og Guðrún Ágústsdóttir. LISTAMAÐUIRINN Tolli ræðir málin við Árna Sigfússon. Málverk eft- ir Tolla í nyjum syn- ingarsal Tapar sál sinni ►LEIKKONAN Jennifer Tilly var spurð hvaða kvik- myndaatriði væri í uppáhaldi hjá henni. „Atriðið í lok kvik- myndarinnar Glæpir og afbrot þegar Mart- in Landau hefur ný- lokið frásögn sinni af því hvernig hann drap hjákonu sínu og komst upp með það. Woody Allen heldur því fram Jennifer Tilly að hann náist en Mart- in segir: „Þú hefur séð of margar kvikmynd- ir. Ég fæst við raun- veruleikann." í fyrstu finnurðu til með Allen vegna þess hve hann er óraunsær, en þá gerirðu þér grein fyrir að það er Landau sem á bágt. Þó hann hljóti ekki makleg málagjöid hefur hann tapað sál sinni.“ (.. HASkoLABIÓ SÍMI22140 Háskólabíó BítiIIinn Paul McCartney. Rod Stewart. Kvikmyndir Sýningar bannaðar áLista Schindlers Elton John hefur skrautlega sviðs- framkomu. Tvær hliðar á Þýska- landi. Amon Goeth (Fien- nes) yfir- maður gyðinga- búðanna og Oskar Schindl- er (Liam Neeson). EGYPSKA kvikmyndacftirlitið hcf- ur lagt blátt bann við að kvikmynd Stevens Spielberg, Listi Schindlers, þar ■■HHHÍHHÍHH Ástæðan er sögð vera sú að hún innihaldi ofbeldis-, pyntinga- og nektarsenur. Haft var eftir Hamdi Sorour, formanni kvikmyndaeftir- litsins, að nokkur atriði kvikmyndar- innar stönguðust á við „almenna reglu og siðferði". Hann sagði að ef til styttingar kvikmyndarinnar hefði komið, hefði það rýrt áhrifa- inátt söguþráðarins. Þess vegna hefði verið gripið til þess ráðs að leyfa ekki sýningu kvikmyndarinn- ar. Þetta vekur athygli þar sem Egyptaland er eina arabalandið sem heldur uppi virku stjórnmálasam- bandi við ísrael. Sagan um Lista Schindlers greinir frá atburðum seinni heimsstyijaldarinnar, þegar nasistinn og iðjuhöldurinn Oskar Gyðingar verða fyrir barðinu á þýskum hermönnum þegar þeim Schindler bj^aði 1200 ^yðingum éi'smaláð'sámantiÍ’htiilinihgsi vmnúbúhíí’nar í Plászöw.' . ' 1 frá utrýmingarbuðúrh.' J FOLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.