Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Frá Wagner til viðtakanda LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík 1994 hófst með metnaðarfullri uppfærslu á völdum atriðum úr Nifl- ungahring Wagners, ríf- lega fimm stunda sýningu í Þjóðleikhúsinu. Þótt óiík- legt sé að það hafi farið framhjá mörgum, er líklegt að þeir verði tiltölulega fáir, sem sjá sýninguna - vegna þess að Niflunga- hringurinn verður aðeins sýndur fimm sinnum og er Ijórða sýning í kvöld. Uppfærslan Það virðist hræða ís- lendinga frá leikhúsinu þegar taiað er um langar leiksýningar. í því sambandi er spurning hvort við erum hrædd við tímann - eða leikhúsið. Hvað Niflunga- hringinn varðar er óhætt að fuilyrða að engin ástæða er til að óttast sýninguna, því hún er einstaklega falleg. Ekki bara leikmyndin og búningarnir, heldur er hreyfingin í henni hríf- andi, náskyld dansi og gefur tónlist Wagners aðra vídd. Vegna þessarrar failegu líkamstján- ingar er auðveldara fyrir áhorfandann að skilja ýmsa þætti tónlistarinnar betur. Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri, hefur unnið mikið af- rek með uppsetningu Niflungahringsins, því um leið og hún gerir kaflana úr hverri og einni af fjórum óperum Wagners spennandi fyrir augað og taktskynjun áhorfandans, er gott samræmi milli kaflanna. Hún kemur tónlist, sem er lítt þekkt hér, í hreyfingar sem við þekkjum og skiljum og myndar með því brú frá Wagner til viðtakandans. Arfleifðin Því miður er það svo að þeim dýrðlega bók- menntaarfi sem fomsögumar em, er ekki haid- ið að okkur frá barnsaldri. Af þeim bömum, sem útskrifuðust úr grunnskólum landsins í vor, eru líklega fá, sem lesið hafa meira ein 1-3 af íslendingasögunum. Sjálfsagt eru enn færri, sem lesið hafa Völsungasög að ekki sé minnst á Snorra-Eddu. Kannski þykja þetta of erfiðar bókmenntir fyrir elskuleg lítil höfuð í heimi þar sem krafan um fyrirhafnarlaust líf verður æ háværari. Vissulega þarf að hafa fyrir því að lesa fombókmenntirnar, en upp- skeran er tvöföld: Annars vegar lærir barnið margbreytni, sveigjanleika og fegurð móðurt- ungu sinnar, en það virðist vera viðvarandi vandamál að ísienskir unglingar skilji hvorki upp né niður í henni. Hinsvegar, að takast á við verkefni, sem er ekki matreitt eins og skyndibiti - og það að sigrast á verkefnum, sem era ögrandi og ekki gefin, er góður undir- búningur fyrir lífið - sem fer aldrei silkihönsk- um um manneskjuna. Þar fyrir utan lýsa fom-. sögurnar öllum þáttum hennar; löngunum og þrám, ást hennar; hatri og grimmd, góð- mennsku og reiði. I þeim er mikil og merkileg siðfræði. Ef við erum hrædd við okkar eigin arfleifð er eðlilegt að við óttumst Niflungahringinn fremur en tímann. Ef fomsögumar eru of erfið- ar fyrir okkur, er líklegt að við álítum Niflunga- hringinn heldur tormelt fæði. Hins vegar er það svo, að ritlist er eitt, óperulist annað. Algild minni goðsagna í óperunni er víða leitað fanga og hlutir eru einfaldaðir. Þar eru dregnir fram eðlisþættir og áherslan mun fremur á siðfræði en ættar- sögum og héraðsmálum. I viðtali, sem blaðamenn áttu við Wolfgang Wagner, sonarson tónskáldsins og þann sem valdi atriðin úr Niflungahringnum, sem flutt eru hér á Listahátíð, kom fram að markmið Wagners með óperunum fjórum, sem mynda Niflungahringinn, var ekki að skrásetja fomar norrænar sagnir í tónlist - heldur að fjalla um siðferði. Þannig snýst eitt meginþema hrings- ins um valdið; valdafíkn, meðferð valds og valdbeitingu og til að ljóst sé hversu afgerandi afleiðingar meðferð valdsins getur haft, stillir hann upp andstæðunni - ástinni. „Norræn goðafræði er aðeins hluti af goðafræði alls heimsins og sem slík höfðaði hún til Richards Wagner,“ segir Wolfgang. „Það er hin uppsafn- aða reynsla sem felst í goðafræðinni, norrænni og grískri, sem Richard Wagner notfærir sér í verkinu. Spurningin er ekki hvort verkið er íslenskt eða ekki. Það sem tengir verkið við ísland, er sú staðreynd að hér varðveittust sögurnar og fyrir það getum við verið eilíflega þakklát." Og óhætt er að fullyrða að ekki er Niflungahringur- inn endursögn á norrænni goðafræði eða fornsögum. Þótt Wagner noti nöfn og atburði úr þeim, er hann ekki trúr sögunum. „Völs- ungasaga er notuð sem bak- grannur til að koma upp um vanhæfni Óðins til að fara með valdið í guðaheimi. Hann notar Rínargullið til að láta byggja Valhöll, það- an sem hann getur stjórnað öllum heiminum. Hér er verið að fjalla um valdbeitingu. Og þótt Jörð vari hann við og bendi á að afleiðingin verði Ragnarök, lætur hann sér ekki segjast.“ Þannig er sagan hins vegar ekki í Völsungasög, því þar er gullið kallað Oturgjöld og greitt fyrir bróður Fáfnis. Siðfræðin Annað sem kann að stinga í stúf við minni okkar, er að tvíburasystkinin Signý og Sig- rrtundur Völsungsbörn, eru látin vera börn Óðins og foreldrar Sigurðar Fáfnisbana. „Þama notar Wagner dramatúrgíska leið óper- unnar til einföldunar,“ segir Wolfgang. “Hann lætur systkynin vera ómeðvituð um sifjaspell- in, vegna.þess að í óperu er mun dramatísk- ara að Sigurður sé hreinn Völsungur. Þetta er spurning um hetjuímynd þess tíma sem Wagner lifði. Sá sem drepur orminn langa, er guðlegur - ekki mennsk hetja, vegna þess að guðin verða að fá Rínargullið til að skila því og forða þar með Ragnarökum. I óperanni kemur líka fram að Óðinn hefur framið svo mikinn glæp með því að ræna gull- inu, að hann verður að búa til hreint, það er að segja syndlaust kyn á jörðinni til að snúa glæpnum við og þar er kominn tilgangurinn með því að gera Sigurð að hreinræktuðum Vöisungi. Engu að síður hafa verið framin sifja- spell og þar kemur til kasta Friggjar, gyðjunn- ar sem gætir hjónabandsins. Með því að krefj- ast þess að Óðinn láti Sigmund deyja, er sifj- aspellum trúarlega og siðferðislega hafnað. Wagner setur upp aðstæður sem eru eins ólög- lega langt frá því guðlega og hægt er, til að koma boðskapnum á framfæri. Tilgangurinn með þessari dramatúrgíu er sá að hringurinn er tákn fyrir öll Iögmál; sem bæði guðir og menn verða að virða. I siðferðismálum eru ekki til nein skráð lög. Grundvallarþemað hvað þetta varðar, hjá Richard Wagner, er samræmið milli valds og ástleysis. Það sem er álitið heilagt, til dæmis hjónabandið, sem Signý er þvinguð í, þ.e. beitt valdi, Ieiðir til ástleysis og dauða. Þetta þema um konuna sem er þvinguð í hjónaband kemur oft fyrir í þessum sögum og það sem músík dramatúrginn gerir, er að taka það og láta það renna saman í þessu eina ástarsambandi. Það ber líka að athuga að óperan er skrifuð á rómantíska tímanum, þegar krafan um að ástin hafi forgang er orðin hávær. Á móti kemur hin aldagamla hefð sem felur í sér kröfu um að skyldan hafi forgang og samkvæmt henni hlýtur það að leiða Sigmund til dauða að láta ástina hafa forgang. Wagner notar í rauninni verkið til að koma öllum grandvallar þáttum, hvort heldur eru mannlegir eða samfé- lagslegir, til skila. Þar af leiðandi hefur Hring- urinn, eins og aðrar óperar, mjög opna dramat- úrgíu.“ Tvískipt vitund - tvær persónur Hluti af þessari opnu dramatúrgíu er per- sóna Brynhildar Buðladóttur. í Völsungasögu dvelur Sigurður hjá henni á fjallinu til að nema af henni, og álítur hana vitrustu manneskju á jörðinni. Hún er vitur, hermaður, kona og móðir. Dálítið of flókinn persónuleiki til að koma fyrir í óperu og Wagner velur þá leið að skipta eiginleikum hennar í tvennt; Jörð og Brynhiidi. Jörðin verður tákn fyrir móðurina og lífið en Brynhildur fyrir dauðann. í óper- unni er Jörðin móðir Brynhildar og það er hún sem Óðinn segir að búi yfir allri visku sem hægt sé að hafa. Persónu Brynhildar fylgir aftur á móti dauði; hún er send af Óðni til að Niflungahringurinn hef- ur þróast frá fomgrísk- um goðsögnum, til nor- rænna fomsagna, að óperuforminu til leik- sviðsins. Súsanna Svavarsdóttir skoðar siðfræði verksins og uppsetninguna í Þjóð- leikhúsinu lauslega. Óðinn ogBrynhildur ÓÐINN (Max Wittges) neyðist til að afturkalla skipun til Brynhildar (Lia-Frey Rabine) um að veita Sigmundi lið í einvígi við Hunding. sækja Sigmund í dauðann og sjálf velur hún heldur að deyja en að gangast undir þá vald- beitingu, sem hjónabandi hennar með Gunnari Gjúkasyni fylgir. En það er jafnframt hún sem lokar hringnum, þegar hún skilar aftur hringn- um úr Rínargullinu um leið og hún sjálf sam- einast Jörðu. Tilgangur uppfærslunnar Sjálfsagt geta tónlistarfræðingar, sagnfræð- ingar og alls kyns textafræðingar notað upp- færslu Niflungahringsins til að velta vöngum yfir því hvort réttlætanlegt sé að setja upp sýningu á borð við þá sem hér er á ferðinni og er það ekki nema gott. Deildar meiningar fárra verða jú oft kveikjan að áhuga margra. Gagnrýni af ýmsum toga hefur og verið nokk- uð áberandi í umræðunni og þá helst á það að þetta sé dýr uppfærsla og gleypi upp allt það fjármagn sem Listahátíð hefur til umráða. Það er ekki rétt, því samkvæmt fjárhagáætlun hátíðarinnar, fara aðeins 11 milljónir af 70 í uppsetninguna. Annar kostnaður er greiddur af fyrirtækjum og listastofnunum í Þýskalandi og á Islandi. Sú umræða hefur einnig farið vaxandi að Wolfgang Wagner hafí leyft þessa styttri út- gáfu af Niflungahringnum hér, vegna þess að höfundarréttur á óperum Wagners sé að falla niður, vegna þess hve langur tími sé síðan þær voru samdar. Það þýði mikið fjárhagslegt tap fyrir Bayreuth hátíðina og Wagner Ijölskyld- una og því hafi þurft að búa til nýja dramatúrg- íu til að skapa nýjan höfundarrétt. Þegar Wolfgang Wagner var spurður hvort eitthvað væri hæft í þessu, varð hann einlæg- lega undrandi og sagði: „Þessi staðhæfing er út í hött. Höfundarréttur vegna flutnings á óperum Wagners féll niður árið 1913. Það getur hver sem er, hvar sem er í heiminum, sett upp verk hans án þess að svo mikið sem króna komi til Bayreuth eða fjölskyldunnar. Hátíðin í Bayreuth stendur fullkomlega undir sér. Á hvetju ári eru 70.000 fyrirspurnir um miðar - en aðeins áttundi hver maður kemst að. Þar fyrir utan er ljóst að þótt ný leikgerð sé samin upp úr óperunum, er tónlistin sú sama. Til þess að komast framhjá höfundar- rétti, ef einhver væri, yrði að skrifa nýjar nót- ur. Þá væri kominn nýr höfundarréttur. Það hefur hins vegar ekki verið gert hér. Ég vil líka benda á að þótt þessi leið hafi verið farin hér, er ekki þar með sagt að óperur Niflunga- hringsins verði settar upp á þennan hátt í fram- tíðinni. Við gerum þessa tilraun, vegna þess að óperar Wagners eru lítt þekktar hér á landi og okkur fannst þetta gæti verið leið til að kynna þær.“ Svo við íslendingar verðum að kyngja því að hér er ekkert verið að koma aftan að okk- ur. Það er ekki verið að nota okkur sem til- raunadýr. Það er ekki meiri illska innifalin í uppsetningu á völdum atriðum úr Niflunga- hringnum en sú sem felst í því að veita okkur innsýn í óþekktan heim og þar með auka menningarlíf okkar. I | {-? » í » I » í . r » : » : » í » » » t » » i f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.