Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR HM UNGLIIMGA í SKÁK Júró vísj ón j óðsótt HÚN ER rétt ný- gengin yfir, sóttin. Síðan ’86, þegar Gleðibankinn varð vænlegust veðlána- stofnana, hefur vírus- inn verið árviss. Geng- ið hefur að visu risið og hnigið eins og lög gera ráð fyrir en vonin um gengishækkun ’hefur ávallt blundað sterkt og oftast ráðið ferðinni hjá þjóðinni. Formúlan er þekkt, spurningin aðeins hveijir ættu að blanda hana og hvernig ætti að kynna hana fyrir þjóðum á öðrum (van)þroska- og menningarstigum. Auðvitað erum við hin útvalda þjóð, lagvissastir allra. Það þarf ekki annað en að bregða sér á Gaukinn eða Ýdali til að finna það út. Hvernig stend- ur á því að aðrar þjóðir taka sig sérstaklega saman til þess að úti- loka okkur frá titli sem við raun- -H'erulega eigum? Sértaklega er þetta sárt þegar að staðfesting hefur fengist um allt þetta frá veðbönkum, sem eru vissulega hlutdrægir hvað varðar eigin heimamarkað, en staðfesta þó að við hljótum að vera hinir eðlilegu sigurvegarar, sé hin heim- óttarlega sigurvissa þeirra sjálfra, dregin frá. Það að efast um áreið- anleik veðbankanna og álit kepp- endanna sjálfra, eftir að fjölmiðl- arnir hafa að dæmigerðu þekking- ‘arleysi farið höndum um málið, jaðrar við föðurlandssvik. Ekki má minnast á það einu orði, að ef kynna á alþjóðlega útgáfu lagsins fyrir evrópskum útgefendum segja þeir „What a shame“ þegar þeir frétta um júróvísjón þátttöku þess, sérstaklega ef þeim finnst eitthvað varið í lagið. Sem sagt, þegar lag og flytjandi taka þátt í sjónvarps- stöðvakeppninni á sér ekki síst stað takmörkun á markaðslegum möguleikum beggja, þó það kunni að líta öðruvísi út á skjánum og í kynningu fjölmiðla enda eru hags- munir þeirra að búa til umíjöllun og selja síðan neytendum. Sönglagakeppni evrópskra sjón- ’ varpsstöðva er fyrst og fremst sjónvarpsþáttur og þjónar því markmiði aðstandenda að draga sem flesta Evrópubúa að skjám sínum og fylgjast með sjónvarps- þættinum sem búinn er tii utan um (fals?)vonir keppenda um að glugginn opni þeim leið yfir og í gegnum landamæri og að söngelskum hjört- um handan þeirra. Það er sjálfsagt að taka þátt í leiknum á rétt- um forsendum og því ber aðstandendum að útskýra leikreglumar fyrir bæði keppendum og áhorfendum. Þann- ig má altént hafa gam- an af sjónvarpsþættin- um og keppninni án þess að eftirköstin verði þunglyndi og þras, þó væntingar bregðist. Hvernig var þetta laugardaginn 30. apríl? Eftir nokkra bömmera, og reynslunni ríkari stillti þjóðin sér upp fyrir framan skjáinn. Hvílík vissa, kannske ekki efsta sætið, gott og vel, en topp fimm, pottþétt. Hvílík óhollusta, búið að sameina þjóðina, í keppni sem skiptir svo engu máli þegar Líti Sjónvarpið þannig á, að með þátttöku í júróvísjón sé veríð að skjóta stoðum undir skapandi þátt í gerð ís- lenskra tónlistar, segir ___________ * Steinar Berg Isleifs- son, er það mikill mis- skilningur. upp er staðið. Andinn, stoitið, augabrúnirnar og yfirborð glas- anna, allt seig þetta samsíða í stigagjöfinni. Daginn eftir voru fyrrverandi sigurreif veðbanka- eftirlætin orðin að tapsárum lúser- um. Niðurstaðan: Við erum of heið- arleg fyrir svona svindlkeppnir. Það hlýtur að vera vel varðveitt leyndar- málið um það hvernig við hérumbil unnum í Zagreb héma um árið. Ég hefi aldrei skilið þetta með að þátttakan þurfi að vera svo dýr að hún sligi aðra dagskrárgerð Sjónvarpsins. Hér má örugglega beita einföldum hagræðingarað- gerðum. Það heitir víst að sníða sér stakk eftir vexti og byrjar með því að markmið þátttökunnar eru skilgreind og hvernig ná megi best- um árangri með sem minnstum tilkostnaði. Hvernig stendur tii dæmis á því að í þetta eina lag þarf að eyða einni og hálfri milljón þegar heilu plöturnar eru gerðar fyrir svipaða og minni upphæð. Hefði t.d. þijúhundruðþúsund- krónu útgáfa lagsins, sú sem vann íslensku forkeppnina, gert það eitt- hvað verr en einsoghálfrarmilljón- krónu útgáfan sem svo fór til Du- blin? Það er svo sem alltaf hægt að vera vitur eftirá, en spyija má af hveiju Sjónvarpið er að setja sig og höfundana í hlutverk útgef- anda, þegar við blasir að til er fagþekking til þess að gera þessi hluti mun hagstæðari. Einnig er spurning hvort það sé æskilegt markmið að gera þátttökuna að hópferðalagi starfsmanna Sjón- varpsins og bakraddasöngvara. Ég bara spyr? Ef Sjónvarpið lítur þannig á að með þátttöku í júróvísjón, sé verið að skjóta stoðum undir skapandi þátt í gerð íslenskrar tónlistar er það mikill misskilningur. Þá erum við komin að aðal málinu, sem er stuðningur Sjónvarpsins við ís- lenska tónlist. Það er svo margt hægt að gera en samt er svo lítið gert. Umfjöllun þar um er efni í aðra grein og verður því ekki farið út í það nánar hér. Hinsvegar er það fáránlegt ef því er stillt þann- ig upp að júróvísjón sogi til sín mest allt það fjármagn sem nota skal til dagskrárgerðar fyrir inn- lenda tónlist. Hvort heldur hún á að efla ræktarsemi við þjóðlega arfleifð og skemmtan eða stuðla að möguleikum til þess að koma slíkum afurðum okkar á framfæri alþjóðlega. Staðreyndin er nefni- lega sú að flest af því sem á sér stað á innlendum vettvangi tónlist- arinnar, er athyglisverðara og á meiri möguleika til þess að efla þjóðarstoltið en sá sjónvarpsþáttur sem þjóðin er dregin á asnaeyrun- um út af og verður að líta á sem árvissa jóðsótt, sambærilega við þá sem fjallið tók í dæmisögum Esóps. Er ekki mál að linni og við finnum okkur verðugri áhyggjur en hvernig við eigum að standa undir því að vinna júróvísjón, með öllum þeim skuldbindingum sem því fylgir. Sjónvarpið hlýtur að geta stillt fókusinn betur hvað varðar íslenska tónlist. Það hlýtur að vera hægt að ætlast til að stofn- unin geti bæði tuggið og gengið án þess að missa taktinn. Höfundur er með Verslunarskólapróf, reynslu í alþjóðaviðskiptum með tónlist og afgreiddi fyrr á árum plötur á háhæluðum skóm íFaco. Steinar Berg ísleifsson Keppendur valdir á HM unglinga SKAK Úrtökumót, firma- keppni og öölingamót NÍU börn og unglingar hafa verið valin til að taka þátt í hinum ýmsu aldursflokkum á heimsmeistaramóti unglinga 18 ára og yngri í skák sem fram fer í UngVeijalandi í júlí. Skák- samband ísiands stefnir að því að senda fulltrúa héðan í fimm drengja- flokka og fjóra stúlknaflokka, en það er háð sérstakri fjáröflun hvort því markmiði verður náð. Magnús Örn Úlfarsson hefur verið valinn til að tefla í flokki 18 ára og yngri, Matthías Kjeld í flokki 16 ára og yngri, Bragi Þorfínnsson í flokki 14 ára og yngri, Davíð Kjartansson í flokki 12 ára og yngri og Guðjón Valgarðsson í flokki 10 ára og yngri. Stúlkurnar eru Anna Björg Þorgríms- dóttir í flokki 16 ára og yngri, Berta Ellertsdóttir í flokki 14 ára og yngri, Álfheiður Eva Óladóttir í flokki 12 ára og yngri og Ingibjörg Edda Birg- isdóttir í flokki 10 ára og yngri. í fjórum flokkum drengja voru keppendur valdir eftir skákstigum, en í yngsta drengjaflokknum og öll- um stúlknafiokkum_ voru haldin úr- tökumót í lok maí. Úrslit þeirra urðu sem hér segir: Drengir fæddir 1984 og síðar 1. Guðjón H. Valgarðsson 7 v. af 7 2. Hlynur Hafliðason 6 v. 3. Sigurður H. Höskuldsson 4'/2 v. 4. -6. Jón F. Daðason, Gunnar Ó. Svein- bjömsson og Þorvaldur K. Sigurðsson 4 v. 7.-9. Birkir Hreinsson, Gunnar Öm Jó- hannsson og Atli Rúnar Kristjánsson 3Vi v. 10.-11. ívar Hlynur Ingason og Ingólfur S. Ingólfsson 3 v. o.s.frv. Stúlkur fæddar 1978- 79 Anna Björg Þorgrímsdóttir sigraði eftir aukakeppni við Hrund Jörundsdóttur. Eva Hlín Hermannsdóttir varð í þriðja sæti. Stúlkur fæddar 1980 og ’81 1. Berta Ellertsdóttir 6 v. af 6 2. Svava B. Sigbertsdóttir 4'h v. 3. Harpa Ingólfsdóttir 4 v. 4. Margrét Hanna Bragadóttir 3 v. Stúlkur fæddar 1982-83 1. Álfheiður Eva Óladóttir 7 v. af 7 2. Aldís Rún Lárasdóttir 6 v. 3. Þorbjörg Elsa Ingólfsdóttir 5 v. 4. Guðlaug B. Eiríksdóttir 3'/2 v. o.s.frv. Stúlkur fæddar 1984 og síðar 1. Ingibjörg Edda Birgisdóttir 6 v. af 6 2. Unnur Malin Sigurðardóttir 3 v. 3. Sigurlaug Sigurðardóttir 2 v. 4. Bergrún Iris Sævarsdóttir 1 v. Það þarf ekki að orðlengja að þetta unga fólk hefur lagt mikla rækt við taflmennskuna og vonandi fá hinir útvöldu verðskuldað tækifæri til að spreyta sig gegn þeim bestu í sínum aldursfiokki. Firmakeppni TR í hraðskák Þátttaka var afar góð í fírma- keppni Taflfélags Reykjavíkur í hrað- skák sem fram fór í vor. Fyrirkomu- lagið var með hefðbundnu sniði, dreg- ið var um það hvaða skákmaður tefldi fyrir hvert fyrirtæki. Einnig gátu fyr- irtækin sjálf sent menn til keppni og nýttu mörg þeirra sér það. Fyrst var háð keppni í átta undanrásaiðlum og komust þrír áfram úr hveijum þeirra. Röð þeirra efstu í úrslitakeppninni varð síðan þessi: 1. Reykjavikurhöfn Hannes H. Stefánsson 13 v. af 14 2. Oriflame snyrtivörur Magnús Örn Ólfarsson 9'/>v. 3. Fatabúðin hf. Ólafur B. Þórsson 9‘/!V. 4. Samey hf. Sigurður Daði Sigfússon 9'Av. 5. Orka hf. Tómas Björnsson 9 v. 6. Hársnyrtistofa Art Bragi Þorfinnsson 9 v. 7. Bílapartasala Garðabæjar Jón Viktor Gunnarsson 8‘/2V. 8. Ársel, félagsmiðstöð Björn Þorfinnsson 8'Av. 9. Betri bílasalan Eiríkur K. Bjömsson 8 v. 10. Verkfræðistofan Rafteikning Stefán Þ. Siguijónsson 8 v. 11. Starfsmannafélag Vatnsveitu Reykjavíkur James Burden 8 v. 12. Max hf. Ríkharður Sveinsson 8 v. 13. Réttur'hf. Benedikt Jónasson 7'Av. 14. Ellapartar, bílapartasala Einar K. Einarsson 7 v. 15. Sjóvá-AImennar tryggingar hf. Bergsteinn Einarsson 6'/2 v. o.s.frv. Skákstjórar í fírmakeppninni voru þau Ríkharður Sveinsson, Gyða B. Hilmarsdóttir og Þorfinnur Björnsson. Öðlingamót TR Öðlingamótið er með best heppn- uðustu nýjungum í starfsemi Tafl- félags Reykjavíkur. Það er ætlað skákmönnum 40 ára og eldri. Skák- stjórinn góðkunni, Ólafur Ásgríms- son, er frumkvöðull að þessum mótum og Nesti hf. hefur gefíð glæsileg verð- laun, auk þess sem teflt er um Nest- is-bikarinn. Úrslitin í ár urðu óvænt, sigurvegari varð Halldór Garðarsson úr Taflfélagi heymardaufra. Á hæla hans fylgdu tveir fyrrverandi Islands- meistarar og margir fyrrum landsliðs- menn. í efstu sætunum urðu: 1. Halldór Garðarsson ö'/2 v. af 7 2. Björn Þorsteinsson 5 v. 3. -5. Gunnar Gunnarsson, Kári Sól- mundarson og Sveinn Kristinsson 4*/2 v. 6.-8. Júlíus L. Friðjónsson, Jóhann Örn Siguijónsson og Bjarni Magnússon 4 v. 9.-12. Sverrir Norðfjörð, Bjarni Bjarna- " son og Grímur Grímsson 3'/2 v. o.s.frv. Giæsilegur árangur Halldórs er mikil hvatning fyrir félaga hans í Taflfélagi heyrnardaufra, en þeir hyggjast senda lið á Ólympíumót heyrnardaufra í sumar. Einnig var haldið hraðskákmót öðlinga. Þar sigraði Jóhann Örn Sig- uijónsson með 15 v. af 16 möguleg- um, næstur varð Gunnar Gunnarsson með 11 Vi v. og þriðji Kári Sólmund- arson með 9 v. Margeir Pétursson TIL LUXEMBORGAR MEÐ FLUGLEIÐUM « TIL LUXEMBORGAR MEÐ FLUGLEIÐUM « TIL LUXEMBQRGAR MEÖ FLUGLEIÐUM til Verðfrá 27.255 kr* á manninn í viku m.v. 4 (2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára) í bíl í A-flokki. 35.940 kr.* á manninn í viku m.v. 2 í bíj í A-flokki. Flug og gistin Verð frá 36.250 kr.* á manninn f cvíbýli í 4 daga og 3 næturá Home Plazza. Náðu þér í ferðabæklinga Flugleiða, Ut í heim og Út í sól. * Hugvallarskattar innifaldir. 14 daga bókunaríyrirvari. ** Flugvallarskattar ekki innifaldir. 21 dags bókunarfyrirvari, Hafðu samband við söluskrifstoíur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofúrnar eða í síma 690300 (svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -19 ög á laugard. frá kl. 8 -16.) FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi TIL LUXEMBORGAR MEÐ FLUGLEIÐUM * TIÍ/LI JXEMBORGAR MBE> FLUGLEIÐ1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.