Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Búist við 11 Ákærur í 17 liðum gegn bandaríska þingmanninum Dan Rostenkowski milljónum aðfluttra Rússa Moskvu. Reuter. RÁÐGJAFAR rússnesku stjórnar- innar hafa lagt fram langtímaáætl- un um hvernig finna megi allt að 11 milljónum Rússa frá fyrrum Sovétlýðveldunum samastað, yfir- gefi þeir þau. Er stefnt að því að koma flestu fólkinu, sem kemur frá Asíulýðveldunum og Eystra- saltsríkjunum, fyrir á svæðum í miðhluta Rússlands og til Síberíu. Um er að ræða héröðin Tver, Novogrod, Yaroslavl og Omsk. Verður yfirvöldum þar veittur skattaafsláttur og stuðningur og hinum aðfluttu Rússum verður gefið land til að rækta matvæli á og sjá þannig fyrir sér eins og kostur er. Málefni Rússa í fyrrum sovétlýð- veldunum eru ákaflega viðkvæm. Þeir hafa kvartað yfir því að hafa mætt fordómum og ógnunum og segjast fá sáralítið fyrir hús sín, reyni þeir að selja þau. Um 25 milljónir Rússar eru búsettir í fyrr- um sovétlýðveldum, í Kazakhstan eru þeir t.d. um 40% íbúanna. Nú þegar hefur fjöldi Rússa snúið aftur til heimalands síns en það hefur skapað mikil vandamál í stærstu borgunum. Áætlun ráð- gjafanna verður borin undir þingið og ríkisstjómina. Clinton mun sakna vinar i stað með brotthvarfi Rost- enkowskis. Eiginkona ræður mestu um heilbrigði karla London. Reuter. EINHLEYPIR og fráskildir karlmenn eru líklegri til að fá hvers kyns kvilla en kvæntir karlmenn, samkvæmt skýrslu um niðurstöður nýrr- ar rannsóknar í Bret- landi. Þar segir sömuleiðis að það skipti jafn miklu með hverjum búið er og hveijir lifnaðarhætt- irnir eru. „Upplýsingum um heilsufar og hollustu erjafnanbeint að konum, þær eru gerðar ábyrgar ekki bara fyrir eigin heilsu, heldur barn- anna líka. Holl ráð skila sér því sjaldan til einhleypra karlmanna eða manna sem búa með öðrum manni,“ segir Steve Carroll lækn- ir, höfundur skýrslunnar um rannsóknina. Carroll sagði að karlmenn væru tregari en konur til að fara til læknis þeg- ar sjúkdómar steðj- uðu að og ástæðan væri oftast sú hve illa upplýstir þeir væru. „Þessi tregða er lík- lega ástæða þess að karlar eru í raun veikara kynið. Það eru tvisvar sinnum meiri líkur á að þeir deyi fyrir 65 ára ald- ur en konur, oftast af völdum sjúkdóma sem koma má í veg fyrir. Sjúkdóma á borð við hjartakvilla og vissra tegunda krabbameins," segir Carroll. í ljós kom einnig að karlmönnum hætt- ir frekar til að reyna fremja sjálfsmorð en konum. „Það eru tvisvar sinnum meiri líkur á að þeir reyni að stytta sér aldur sem bendir til að þeir vanræki einnig geðheilsu sína.“ Evrópusambandið Norðmenn fara að dæmi Svía og Finna Ósló. Reuter. VERULEGUR meirihluti Norð- manna er andvígur aðild að Evrópu- sambandinu, ESB, en ákveði Svíar og Finnar að gerast aðilar að því, mun naumur meirihluti þeirra gera það ejnnig. Kom þetta fram í skoð- anakönnun dagblaðsins Verdens Gang á þriðjudag. Samkvæmt könnuninni eru 58% þeirra, sem gert hafa upp hug sinn, á móti ESB-aðild en 42% hlynnt. Ef Svíar og Finnar segja hins vegar já við aðild ætlar lítill meirihluti Norðmanna, 51%, að fara að dæmi þeirra en 49% ætla að halda sig við neiið. Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-aðildina verður 28. nóvember í Noregi en fyrr í Finnlandi og Sví- þjóð. Á Norðurlöndum er andstaða við ESB-aðild mest í Noregi og and- stæðingar hennar eru einnig í meiri- hluta í Svíþjóð. í Finnlandi er því hins vegar öfugt farið. Er það haft eftir Svein Aaser, formanni sam- taka norskra atvinnurekenda, að segi Finnar og Svíar nei, þurfi ekki að kjósa í Noregi. Sakaður um spillingu Og fjárdrátt í 20 ár Washington. The Daily Telegraph, Reuter. EINN af áhrifamestu mönnum á Bandaríkjaþingi, Dan Rost- enkowski, var formlega ákærður í fyrradag fyrir margvíslega spill- ingu í 20 ár, fjárdrátt og fyrir að hafa reynt að hindra framgang réttvísinnar. Er þetta mál mikið áfall fyrir Bill Clinton forseta en Rostenkowski hefur nýtt sér vel þingreynslu sína í baráttunni fyr- ir heilbrigðismálafrumvarpi forsetans. Saksóknarar höfðu boðist til að semja við Rostenkowski um að hann játaði sekt sína, segði af sér þing- mennsku, endurgreiddi ríkinu um 43 milljónir kr. og færi í fangelsi í stuttan tíma en hann hafnaði því. Kvaðst hann heldur viija berjast og sanna sakleysi sitt og var þá ekki beðið boðanna með að birta ákær- urnar gegn honum. Eru þær í 17 liðum. Rostenkowski er sakaður um að hafa dregið sér tugmilljónir króna af opinberu fé og reynt að koma í veg fyrir opinbera rannsókn með því að leggja að manni að bera ekki vitni fyrir rétti. Hann er sagð- ur hafa selt frímerki í éigu ríkisins og stungið fénu í eigin vasa; gefið vinum sínum dýrar gjafir en látið almenning borga fyrir þær og notað um fimm milljónir kr. úr sjóðum þingsins til bílakaupa fyrir fjöl- skylduna. Mæðgur, eiginkona og dætur fyrrum dómara, greindu frá því um helgina að þær hefðu allar átt í ástarsambandi við Clark á áttunda og níunda áratugnum. Hafa þær veitt fjölmörg viðtöl við fjölmiðla á undanförnum dögum í því skyni að „hefna sín“ á Clark en þær segjast mjög sárar yfir því að hann skuli hafa gefið þetta ástarsamband í skyn í endurminningum sínum, er komu út á síðasta ári. Önnur dóttirin, Josephine Hark- ess, hefur lýst því yfir að Clark hafi ítrekað sýnt sér og systur sinni kynfæri sín áður en þær urðu sext- án ára. Þá segir hún hann hafa Með 14 manns á launaskrá Frá 1971 til 1992 á Rost- enkowski að hafa haft 14 manns á launaskrá sinni eða öllu heldur þingsins, sem unnu þó engin störf, sem tengdust þinginu, heldur voru í vinnu fyrir hann sjálfan. Unnu þeir meðal annars að viðhaldi og breytingum á húsinu, hirtu garðinn og voru í alls konar snatti öðru. Rostenkowski er 66 ára gamall og hefur setið á þingi í meira en 35 ár fyrir Illinois-ríki. Nú verður hann hins vegar að segja af sér þingmennsku og tekur ekki við henni aftur nema hann verði sýkn- aður fyrir rétti. Við því býst þó enginn. Málið hófst með „frímerkja- hneykslinu“ sem fyrr er nefnt fyrir næstum tveimur árum en vatt síðan upp á sig við rannsóknina. Þegar ákærurnar voru loks birtar kom það flestum á óvart hve margar þær voru og umfangsmiklar. dregið sig á tálar nokkrum árum síðar er hún var ölvuð og í ástar- sorg. „Það sem ég fékk út úr þessu voru nokkrar mínútur af kynlífi, kynlífi sem ég man ekki eftir vegna þess ástands sem ég var í,“ sagði Josephine. Á þessum tíma var Clark ráðherra í ríkisstjórn Margaretar Thatcher. Mál þetta hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og í gær varði æsifréttablaðið Sun fimm blaðsíðum undir frásögn Josephine. Clark harðneitaði þessum ásök- unum í samtali við blaðamenn í gær. „Ég verð að vísa þessum ásök- unum á bug enda fela þær í sér lögbrot," sagði Clark. Páfi fundar með Clinton BILL Clinton Bandaríkjaforseti fer í dag til fundar við Jóhannes Pál páfa. Búist er við að umræð- ur þeirra snúist um fóstureyð- ingar en í þeim efnum fara skoð- anir þeirra í engu saman. Páfi óttast að mannfjöldaráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kairó í haust, sem ætlað er að móta stefnu um það hvernig megi stöðva fjölgun mannkynsins á 20 árum, muni stuðla að aukn- um fóstureyðingum og getnað- arvörnum. Vilja Dehaene í stað Delors FRANCOIS Mitterrand Frakk- landsforseti og Helmut Kohl Þýskalandskanslari náðu sam- komulagi á fundi sínum í Mul- house að styðja Jean-Luc Deha- ene forsætisráðherra Belgíu sem eftirmann Jacques Delors formanns framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), að sögn háttsettra franskra og þýska embættismanna. Walesa vill silja áfram LECH Walesa forseti Póllands tilkynnti í gær að hann myndi freista endurkjörs í forsetakosn- ingunum 1995 þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni að vin- sældir hans fari dvínandi. Lík- legt þykir að Aleksander Kwasniewski, leiðtogi fyrrver- andi kommúnistaflokks lands- ins, bjóði sig fram en hann nýt- ur mikilla vinsælda. Rætt um arf- taka Wörners MIKLAR vangaveltur eru nú um hver verði eftirmaður Manfreds Wörners, framkvæmdastjóra NATO. Hann er frá vinnu vegna krabbameins. Líklegastir til að hreppa hnossið eru taldir þeir Thorvald Stoltenberg fyrrum utanríkisráðherra Noregs og Giuliano Amato, fyrrum forsæt- isráðherra Ítalíu. Einnig eru nefndir Ruud Lubbers, forsæt- isráðherra Hollands, Hans van den Broek, utanríkisráðherra Hollands, Douglas Hurd, utan- ríkisráðherra Bretlands, Malc- olm Rifkind, varnarmálaráð- herra Bretlands, Jacques Poos, utanríkisráðherra Lúxembourg, Willy Claes, utanríkisráðherra Belgíu og forveri hans, Mark Eyskens. Svíar á móti olíuleit SÆNSKA stjórnin hefur lagst gegn áformum Norðmanna um að hefja olíuleit í Skagerrak en gert er ráð fyrir að norska þing- ið samþykki áætlun þar að lút- andi á morgun. Sænski um- hverfisráðherrann krafðist þess að sænsk og norsk stjórnvöld hæfu viðræður áður en ákvörð- un um olíuleit yrði tekin. Reuter ALAN Clark ræðir við fréttamenn við heimili sitt í gær. Hann neitaði að hafa haft í frammi ósiðlegt athæfi við dóttur fyrrum ástkonu sinnar. Mæðgurnar herða róðurinn gegn Clark Yísar öllum ásökunum á bug London. Reuter. ALAN Clark, fyrrum aðstoðarvarnarmálaráðherra Bretlands, neit- aði í gær ásökunum um að hann hefði haft í frammi ósiðlegt at- hæfi við dætur fyrrum ástkonu sinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.