Morgunblaðið - 02.06.1994, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnurekendur og skólastjórar ath.
Fataskáparnir,
töskuskáparnir og
nemenda- skáparnir fást
hjá okkur.
íslenskt handverk - einstök gæði
Fa^me/(ns£a i 60 ár
HROFNASMWJAN
Háteigsvegi 7 sími 21220.
NYR
GLÆSILEGUR!
VEISLUSALUR
- ájarðhceð ígrónu ogfallegu umhverfi, hefurverið opnaður
Hentar við oli tækifæri!
• Brúðkaupsveislur
• Útskriftarveislur
• Stárafmceli
• Fermingarveislur
• Ráðstefnur
• Vörukynningar
• Tískusjningar
Pantið tímanlega fyrir haustið
LISTHUS
í LAUGARDAL
IISTACAFF
Sími 684255
ESÍT INDE5IT INDE5IT INDESÍT INDESIT INDISIT INPESiT
Heimilistœkin frá Indesithafa fyrir löngu
sannað gildi sitt í Evrópu. Þér bjóðast þessi
sterku ítölsku tæki á einstöku verði!
u»
a
z
vs
m
a
z
Kæliskápur ▲
R 2600 W
H-152 B-55 D-60
187 I kælir
67 I frystir
Verö kr. 49.664,-
47.181 /* stgr.
▲ Eldavél
KN 6043 WY
H-85 B-60 D-60
Undir/yfirhiti
Grill.Snúningsteinn
Ver& kr. 51.492,-
48.917stgr.
Þvottavél ▲
WN 802 W
Vindingahraði 400-800 sn/mín.
Stigalaus hitarofi
14 þvottakerfi Tekur 4,5 kg.
Verð kr. 59.876,-
56.882/- stgr.
DJORMSSONHF
Uppþvottavél
D3010 W
7 þvottakerfi
Fyri 12 manns
Verb kr. 56.544,-
53.717,- stgr.
BRÆÐURNIR m
D
Lágmúla 8, Sími 38820 |jj
Umboösmenn um land allt
INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDÍSIT INDESIT INDESIT
LISTIR
Kynning
ámynd-
verkum
fatlaðra
VISTARVERUR, bjartar og djúpar, sýning á verk-
um fatlaðra, er nú í Háskólabíó. Hún hófst í gær,
1. júní, og lýkur á morgun föstudaginn 3. júní. Á
henni eru verk eftir bæði andlega og líkamlega
fatlað fólk. Að sögn Öldu Ármönnu Sveinsdóttur,
listakennara, er meginmarkmið sýningarinnar að
kynna fatlaða sem einstaklinga og hvað er gert
til að þeir nái meiri fæmi. Eins og titill ráðstefnunn-
ar bendir til er áhersla lögð á að allir búi við sömu
hluti og lifi svipuðu lífi. Myndlistin gefur fötluðum
tækifæri til að vera þátttakendur í þjóðfélaginu
þar sem þeir vinna hluti sem eru metnir af öðrum.
FURÐURDÝR úr hugarfylgsnum Ásgeirs Vals
Sigurpálssonar.
Alda, sem var ráðin til þess að
sjá um þessa sýningu, var í óða önn
að setja upp myndverk þegar blaða-
maður tók hana tali. Að sögn Öldu
var í vetur ráðstefna í Gerðubergi
um stofnun samtaka um list fatl-
aðra og var í tengslum við hana
haldin sýning á myndverkum fatl-
aðra. Takmark samtakanna er að
sjá um sýningar og annað fyrir list
fatlaðra, og er nú að störfum nefnd
sem er að skipuleggja hvað eigi að
gera.
Á ráðstefnunni í Gerðubergi var
auglýst eftir myndverkum á sýning-
una 1.-3. júní. Alda sagði að mjög
væri upp og ofan hvort fólk drifí
sig til að taka þátt. Fatlaðir væru
oft ragir við að vera með og þyrftu
hvatningu frá þeim sem væru minna
eða ekki fatlaðir. Því væru mörg
af þeim verkum sem sýnd hefðu
verið í Gerðubergi á sýningunni í
Háskólabíói.
Sumir af þeim sem sýna hafa
sýnt erlendis. Að sögn Öldu voru
send verk á sýningu í London árið
1992 sem var á vegum Samtaka
fatlaðra í Englandi. Þessi samtök
buðu fötluðum alls staðar úr heim-
inum að taka þátt og sendu íslend-
ingar nokkur verk. Þau fengu at-
hygli hvarvetna.
Alda sagði að mikil breidd væri
í hópnum sem tæki þátt í sýning-
unni í Háskólabíói. Verkin væru
eftir mismunandi fatlað fólk. Blaða-
maður sá t.d. verk eftir Vilhjálm
Vilhjálmsson, sem er heyrnarlaus
Kyrralíf
MYNPLIST
Gallcrí cinn cinn
LJÓSMYNDIR
Eduardo Peres Baca. Opið daglega
14-18 til 9. júní. Aðgangur ókeypis.
Á VORIN njótum við náttúrunn-
ar í ljósi vaknandi lífs; gróðurinn
kviknar og græni liturinn tekur
smám saman völdin, farfuglar snúa
aftur, heíja hreiðurgerð og koma
upp ungum og sauðburður kallar á
vökunætur til
sveita. Dýralíf
er ekki eins
fjölbreytt hér á
landi og víðast
annars staðar,
en er þeim
mun mikilvæg-
ara í hugum
manna, eink-
um fýrir ung-
viðið.
Það er því
hálf nöturlegt
að minna á að
þessa nýja lífs vorsins bíður í flest-
um tilvikum matarkista mannsins,
hvort sem það er með beinum eða
óbeinum hætti. Húsdýrin okkar enda
þar flest hver, sem og garðagróður,
því allt er þetta hluti af þeirri undir-
stöðu, sem maðurinn hefur eflt sér
til viðurværis.
Eduardo Peres Baca er ungur
Spánverji sem hefur búið á íslandi
í tæpan áratug og með einföldum
Ijósmyndum sínum hefur hann kos-
ið að minna áhorfendur á þessar
staðreyndir lífsins. En hann veltir
sér ekki upp úr sorg og sút yfir
grimmd örlaganna, heldur gleðst
yfír þvi sem gott er í stuttri skýr-
ingu með sýningunni:
„Hvers vegna húsdýr? Ja, eru við
ekki öll hrifin af dýrum þegar á
ailt er litið, annað hvort sprækum
og skoppandi í því umhverfi sem
þau þekkja best, eða þá í því um-
hverfi sem við þekkjum þau best
í: Löðrandi í sósu umkringd sínum
nánustu ættingjum: kartöflum og
grænmeti, sem eru óneitanlega best
fallnir til að fylgja dýrunum á leið-
arenda að lokinni dýrðarstund fórn-
arinnar."
Hér kemur fram skemmtilegt
sjónarhom, sem síðan skýrir efni
ljósmyndanna. Þar getur að líta
uppstoppuð íslensk dýr, sem ekki
hafa fengið að „njóta þeirrar sælu“
að þjóna manninum með eigin lík-
ama:
„En hin út-
völdu dýr hér
urðu ekki einu
sinni aðnjót-
andi þessa
dýrðlega and-
artaks, né
munu þau
falla í gleyms-
kunnar dá, því
áður en að því
kom hefur
uppstopparinn
tekið til við
sínar seremóníur, talið æðaslögin
og kyrrsett þau í tímanum, til inn-
göngu í eilíft líf.“
Það er þetta kyrrsetta líf sem
Eduardo hefur ljósmyndað og að
nokkru persónugert með myndum
af hana, kálfi, hesti, hundi, ketti,
lambi o.s.frv. í þessum dýrum er
hringrás lífsins rofin og ímynd
þeirra fest í dauðanum með varan-
legum hætti. í því felst hið sorglega
við þessi dýr og þessar ljósmyndir.
Hér er vel að verki staðið á fyrstu
sýningu listamannsins; Ijósmyndar-
inn hefur fundið athyglisvert sjón-
arhom á afar hversdagslegt við-
fangsefni og nær að koma því með
skilmerkilegum hætti til sýningar-
gesta. Það telst góð byijun hjá
hveijum listamanni.
Eiríkur Þorláksson
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Meðal söngvara sem komu
fram á listahátíðinni í Eyjum
var Anna Mjöll Ólafsdóttir.
Dagar lita og
tóna í Eyjum
Vestmannaeyjum - Dagar lita og
tóna voru haldnir í Akógeshúsinu í
Eyjum fyrir nokkru. Um var að
ræða myndlistarsýningu og jasstón-
leika.
Listakonan Helga Magnúsdóttir
sýndi 28 verk á sýningunni og fjöldi
hljóðfæraleikara og söngvara kom
fram og má þar nefna tríó Ólafs
Stephensen, tríó Ólafs Stolzenvalds,
Ólaf Gauk, Einkavini Óla Jóns,
Stórsveit FIH, Skósveina og Háeyr-
ar-kvintettinn. Meðal söngvara sem
komu fram'voru Anna Mjöll Ólafs-
dóttir, Friðrik Theodórsson, Ragn-
heiður Ólafsdóttir, Einar „Klink“
Sigurfinnsson og Gísli Steingríms-
son. Tónleikar voru öll kvöldin en
hápunktur þeirra var þó á sunnu-
dagskvöldið en þá endaði kvöldið
með ,jammsessioni“.
Mikill fjöldi sótti dagskrá Lita
og tóna á sunnudagskvöldinu og
var yfirfullt hús. Það var Listvinafé-
lagið í Éyjum sem stóð fyrir þess-
ari listahátíð en aðalhvatamaður
þess eru Eyjóifur Pálsson, Hermann
Einarsson, Guðjón Ólafsson og Rób-
ert Sigurmundsson. Dagar lita og
tóna eru orðnir árviss viðburður í
Eyjum og miðað við undirtektir má
búast við að áframhald verði þar á.