Morgunblaðið - 02.06.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 47
BREF TIL BLAÐSIiMS
Amalgam
tannfyllingar
Frá Ævari Jóhannessyni:
FYRIR nokkru birtist í Morgun-
blaðinu grein um tannfyllingarefnið
amalgam sem nokkuð hefur verið
í sviðsljósinu að undanförnu. Nokk-
ur atriði í umræddri grein eru mjög
umdeild og umdeilanleg og greinin
túlkar einvörðungu málið frá ann-
arri hliðinni. Því er brýn nauðsyn
á að fleiri sjónarmið komi fram,
svo að aimenningur fái sem rétt-
asta mynd af málinu.
Kvikasilfursblanda
Amalgam er blanda kvikasilfurs
og annarra málma. í tannfyllingum
er oftast nálægt 50% kvikasilfur
og afgangurinn aðrir málmar, oft-
ast silfur, kopar, zink o.fl. Kenning-
in hefur verið sú að þessi blanda
sé mjög stöðug og lítið sem ekkert
kvikasilfur komi úr henni. Einnig
sé blandan sterk og endingargóð
þannig að ekkert annað tannfyll-
ingarefni, að e.t.v. gulli undan-
skildu, geti komi í stað amalgams
í fyllingar í jöxlum.
Vegna þess hversu eitrað kvika-
silfur er, sennilega eitraðast af öll-
um málmum,
hafa oft komið
upp raddir um
að e.t.v. sé ekki
heilsusamlegt að
vera með tann-
fyllingar úr
þessu efni í
munninum. Heil-
brigðisyfirvöld
flestra landa
snerust gegn
hugmyndum um
skaðsemi amalg-
ams í fyrstu, en
í sumum löndum
hefur orðið þar
mikil breyting á
síðustu árum.
Bannað í
Svíþjóð
Svíar, sem
einna fyrstir
voru tii að ræða
þessi mál í fullri
alvöru, skipuðu
nefnd sérfræðinga til að fara ofan
í saumana á hugsanlegri skaðsemi
amalgamfyllinga. Nefndin komst
að þeirri niðurstöðu að amalgam
væri alls ekki hættulaust.
í kjölfar þess voru sett lög, sem
bönnuðu að setja amalgamfyllingar
í þungaðar konur, og einnig var
tannlæknum uppálagt að nota
amalgam tannfyllingar því aðeins
að ekki væri mögulegt að nota
annars konar fyllingar. Á sl. ári
voru svo sett lög sem bönnuðu
endanlega að nota amalgam í tann-
fyllingar í Svíþjóð. Lögin taka gildi
á næsta ári.
Líka sögu má segja frá Þýska-
landi. Þar er nú búið að banna alla
notkun amalgams í tannfyllingar.
I greinargerð með þýsku lögunum
segir að enda þótt ekki sé sannað
að amalgam valdi öllu fólki með
það í munninum skaða, þá sé full-
sannað að hjá sumu fólki valdi það
heilsutjóni sem ekki fáist bót á
nema það sé tekið úr munninum.
Því sé óveijandi að nota þetta efni
í tannfyllingar.
Deilt um skaðsemina
Fyrir rúmum áratug urðu nokk-
ur skrif um amalgam í fjölmiðlum,
bæði hér heima og erlendis. Því var
meðal annars haldið opinberlega
fram að alls ekkert kvikasilfur losn-
aði úr amalgamfyllingum. Ég
ákvað þá að ganga úr skugga um
hvort þetta væri rétt með einfaldri
tilraun.
Ég bjó til mót úr plasti sem rúm-
aði nálægt 'h g af amalgami, en
það er álíka mikið og „meðalstór"
tannfylling. Síðan fékk ég tann-
lækni til að steypa nokkrar „fylling-
ar“ í þessu móti. Fyllingarnar lét
ég svo harðna í 14 daga í stofu-
hita. Því næst hengdi ég þær í
grönnum nylonþræði niður í 100
ml plastglös með mismunandi vökv-
um og lét hanga í tvo sólarhringa
í stofuhita. Þá voru fyllingarnar
teknar upp úr og vökvinn í glösun-
um efnagreindur. Kvikasilfur
fannst í öllum vökvunum, jafnvel í
afjónuðu vatni sem var í einu glas-
inu, en í hinum voru 1% saltvatn,
1% mjólkursýra og Coca Cola.
Mest kvikasilfur var í saltupplausn-
inni. Greiningarnar voru gerðar á
Atomic Absorbtion Spectrophoto-
meter hjá Norrænu eldfjallastöð-
inni í Reykjavík.
Þessar niðurstöður staðfesta
svipaðar erlendar rannsóknir og
sanna að fullyrðingar um annað
eru byggðar á vanþekkingu.
Við núning og tyggingu losnar
auk þess meira kvikasilfur sem fer
út í munnvatnið. Lífrænt kvikasilf-
ur er talið til muna skaðlegra en
ólifrænt. Ýmsar örverur, sem lifa
í munni og meltingarfærum, eru
taldar umbreyta ólífrænu kvika-
silfri í lífrænt.
Kvikasilfurs-
gufur, sem losna
úr fyllingum t.d.
við tyggingu eða
við að drekka
heita drykki,
geta borist upp í
nefgöng og
kvikasilfrið úr
þeim farið beint
upp í heila, ann-
ars fara gufurn-
ar niður í lungu
þar sem meiri-
hluti eitursins fer
út í blóðið.
Galvaniskir
rafstraumar sem
myndast milli
fyllinga úr mis-
munandi efni,
t.d. gulli og
amalgami, flýta
og mjög fyrir að
kvikasiifur losni
úr fyllingunum.
Algengt er að spennumunur milli
fyllinga sé nokkur hundruð milli-
volt. Þessi rafspenna getur í vissum
tilfellum valdið ýmiss konar vand-
kvæðum og vanlíðan, án tillits til
þess hvort kvikasilfur losnar eða
ekki.
Séríslenskt fyrirbæri?
í greininni í Morgunblaðinu er
talið að ofnæmi gegn kvikasilfri sé
nánast óþekkt, aðeins kannske einn
einstaklingur af milljón. Þessi tala
hefur áður verið nefnd í skrifum
hér á íslandi. Ég veit ekki hvaðan
hún er upprunnin, en sé hún rétt
er hún algerlega séríslenskt fyrir-
bæri. Erlendar athuganir benda til
að kvikasilfursofnæmi sé algengt
og eftir því algengara sem fólk
hafi lengur verið með amalgam
tannfyllingar. Bandaríska tann-
læknafélagið hefur viðurkennt að
sennilega séu nálægt 5% fólks með
amalgamfyllingar með þannig of-
næmi. Ég hef sé miklu hærri tölur
annars staðar frá en læt þær liggja
milli hluta að sinni.
Hér hefur verið stiklað á stóru
í sambandi við alvarlegt málefni.
Mér virðist að ekki sé lengur þörf
á að deila um það hvort kvikasilfur
losni úr amalgam tannfyllingum,
fyrir því eru ótal sannanir. Við
getum aðeins deilt um það, hversu
mikið við þolum að fá í okkur af
því án þess að það valdi okkur
heilsutjóni. Um það kunna að vera
deildar meiningar.
ÆVAR JÓHANNESSON,
starfsmaður Raunvísindastofnunar
Háskóla íslands.
Kvikasilfur er einn eitraðasti
málmurinn sem til er. Hann
er að finna í amalgam tann-
fyllingarefni. Skiptar skoðan-
ir eru um hve hættulegt þetta
sé mönnum.
Fyrir sjó-
manna-
daginn
Vorum að fá staka jakka og herrabuxur í stórum
stærðum
□ Herraföt frá kr. 15.800
□ Stakir jakkar frá kr. 10.900
□ Stakar buxur frá kr. 4.900
□ Dömujakkar frá kr. 10.990
□ Dömubuxur frá kr. 4.900
□ l&M tHSj sportfatnaðurinn kominn
úlpurnar komnar
□ Gallabuxur
□ Köflóttar skyrtur
□ Bakpokar, svefnpokar
o.m.fl.
SAUMASTOFA — HEILDVERSLUN
tnilliliðalaus viðskipti
Nýbýlavegi 4
(Dalbrekkumegin),
Kópavogi,
sími 45800
BÖRN í UMFERÐ
OKKAR ÁBYRGÐ
Vátryggingafélag íslands
minnir á ráðstefnu um öryggi barna í umferðinni,
„Börn í umferð - Okkar ábyrgð“
í samstarfi við Umferðarráð
og Áhugahóp um bætta umferðarmenningu.
t
Ráðstefnan verður haldin 7. júní næstkomandi og hefst klukkan 09:00
í sal 3 í Háskólabíói. Ráðstefnuna sækir áhugafólk um úrbætur í umferðarmálum
og allir þeir sem geta haft áhrif á jákvæða þróun þessara mála.
Nánari upplýsingar fást hjá Vátryggingafélagi íslands.
• Frummælandi:
Dr. Claes lingvall, prófessor í umferðaröryggismálum í Svíþjóð
og deildarstjóri Öryggis- og forvarnadeiidar Folksam tryggingafélagsins.
Hann fjaliar um niðurstöður rannsókna á öryggi barna sem farþega í umferðinni.
• Aðrir frummæiendur:
Baidnr Kristjánsson, sálfræðingur, um börn í umferðinni og viðhorf foreldra
hér á landi til öryggis barna í umferðinni. Esther (iuðmnndsdóltir, framkvæmda-
stjóri SVFÍ, um leiksvæði barna. Brynjóifur Mogensson, yfirlæknir, um afleiðingar
umferðarslysa og Edda Björgvlnsdóttir, leikkona,
um börn, fjölmiðla og umferðarmál.
Möguieikhúsið: Umferðarálfurinn Mókollur.
Karnakót Soffíu Vagnsdótlur.
VÁTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANDS HF
- þar sem Iryggingar snúast um fólk
Ármúla 3, sími: 60 50 60