Morgunblaðið - 02.06.1994, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
íffémR
FOLK
■ SÆNSKI landsliðsmaðurinn
Stefan Schwarz gekk til liðs við
enska úrvalsdeildarliðið Arsenai í
gær. Arsenal greiddi Benfica 187
milljónir króna fyrir kappann.
■ DICK Advocaat, þjálfari hol-
lenska knattspyrnulandsliðsins,
•hefur kallað eftir Marco van Bast-
en til að fylla skarð það sem Ruud
Gullit skyldi eftir sig, þegar hánn
ákvað að hætta að spila með lands-
liðinu. Basten hefur verið meiddur
sl. 18 mánuði og eina skilyrðið sem
Advocaat setur er að hann standist
læknisskoðun í dag.
KNATTSPYRNA
EyjóHúr er í við-
ræðum við Nice
Eyjólfur Sverrisson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, var í
Niee á Miðjarðarhafsströnd Frakk-
lands síðustu daga þar sem hann
átti í viðræðum við forráðamenn
samnefnds félags um hugsanleg
samning. Talsmaður félagsins sem
Morgunblaðið ræddi við í gær, sagði
enn ekki öruggt hvort íslendingur-
inn gerðist leikmaður hjá félaginu.
Eyjólfur var í liði OGC Nice í
æfingaleik gegn Istre á útivelli í
fyrrakvöld, þar sem Istre hafði bet-
ur, 1:0. Landsliðsmaðurinn hefur
leikið með Stuttgart í Þýskalandi
síðustu ár, en hafnaði tilboði frá
félaginu fyrir skömmu og nánast
öruggt er að hann fer þaðan. Nokk-
ur félög hafa borið víurnar í hann,
bæði í Þýskalandi og Frakklandi.
Lið Nice kom upp úr 2. deild
frönsku knattspymunnar nú í vor
á ný, eftir nokkura ára dvöl þar,
en liðið er fornfrægt. Ef samningar
takast yerður Eyjólfur Sverrisson
annar íslendingurinn til að leika
með liði Nice, Albert Guðmundsson
lék með því á árum áður við frábær-
an orðstír.
UBK af botninum
Sigursteinn Gfslason, Zoran Miljkovic ÍA.
Heimir Guðjónsson, KR. Gunnar Oddsson,
Kjartan Einarsson, ÍBK. Friðrik Friðriks-
son, ÍBV. Ólafur Pétursson, Þór. Birkir
Kristinsson, Fram.
BLIKAR tóku sig til og skutust
upp af botni fyrstu deildar og
upp í sjötta sæti með góðum
sigri á ÍBV í Kópavogi í gær-
kvöidi; 2:0. Sigur þeirra var
sanngjarn og hefði auðveld-
lega getað orðið stærri, en
þeirra eigin klaufaskapur gerði
þeim erfitt fyrir sem og besti
maður vallarins; Friðrik Frið-
riksson markvörður ÍBV.
Fyrri hálfleikur var algjörlega
eign Blika. Þeir hreinlega óðu
í, færum, og áttu að skora fyrsta
■ WS
,Dæmd var víta-
spyrna á Eyjamenn á
46. mínútu eftir að Hermann
Hreiðarsson togaði Jón Þóri
Jónsson niður í vítateignum. Úr
henni skoraði Sigurjón Krist-
jánsson með föstu skoti í blá-
homið niðri vinstra megin.
2af\Kristófer Sigurgeirs-
»^#son gaf fyrir markið
frá vinstri á 85. mínútu á Jón
Þóri Jónsson sem skallaði
knöttinn í markið hægra megin
frá markteig.
■■■■■■ markið á 17. mín-
Stefán útu, þegar Kristófer
Eiriksson Sigurgeirsson sendi
boltann framhjá af
svo stuttu færi að auðveldara hefði
verið að skora. Heiðurinn af færinu
átti Raspislav Lasorik sem sendi á
Kristófer eftir að hafa leikið vörn
Eyjamanna grátt upp við enda-
mörk. Færin komu síðan á færi-
bandi hjá Blikum; sex vænleg litu
dagsins Ijós áður en þeir náðu að
skora fyrsta markið; úr vítaspyrnu
á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Eyjamenn voru ögn sprækari til
að byija með í fyrri hálfleik. Besta
færi þeirra kom á 54. mínútu er
Hermann Hreiðarsson þrumaði í
þverslá Blikamarksins frá vitateig.
Aðeins tveimur mínútum síðar varði
Friðrik meistaralega frá Jóni Þóri
og tíu mínútum síðar varði hann
vítaspyrnu frá Sigutjóni Kristjáns-
syni. Eftir þá markvörslu komust
Eyjamenn í hættulega skyndisókn
en náðu ekki að skora. Friðrik sýndi
stórkostlega markvörslu enn og
aftur á 67. mínútu, þegar hann
varði gott skot Arnars Grétarssonar
neðst niðri í vinstra horninu. Leikur-
inn dofnaði nokkuð eftir þessa
rispu, en Blikar náðu að bæta við
Kai
Diletto;
Opna Diletta
kvennamótib
verbur haldib á
Grafarholtsvelli
. júní
Leiknar verða 18 holur
með forqjöf í tveimur
forgjafaflokkum.
A-flokkur: forgjöf < 24
B-flokkur: forgjöf 25 - 36
Glæsileg verölaun verða
veitt fyrir þrjú efstu sætin í
hvorum flokki og fyrir
besta skor mótsins.
Aukaverðlaun verða fyrir
að vera næst holu ó 2.
og 6. braut vallarins.
Ræst verður út fró kl. 11:00.
Skróninq fer fram í
Golfverslun Sigurðar
Péturssonar í síma 682215.
Skróninq lýkur lauqardaqinn
4. júní kl. 16:00.
Þáttökugjald kr. 1,800,-
ATH! Framvísa skal félags- og
forgiafarskírteini þegar mætt
er til keppni.
marki eftir snöggt upphlaup flmm
mínútum fyrir leikslok.
Leikur Blika var lengst af sann-
færandi. Siguijón og Arnar léku
ágætlega á miðjunni og kantmenn-
irnir Kristófer og Jón Þórir áttu
góða spretti. Raspislav Lasorik var
þeirra besti maður, sýndi oft
skemmtilega takta. Friðrik Frið-
riksson markvörður Eyjamanna var
hins vegar besti maður vallarins og
sýndi þrívegis meistaralega mar-
kvörslu. Hermann Hreiðarsson lék
einnig ágætlega.
Ólafur Adolfsson, Haraldur Ingólfsson, ÍA.
Goran Micic, Lúðvík Jónasson, Ragnar
Gíslason, Stjörnunni. Atli Knútsson, Þor-
móður Egilsson, Óskar Hrafn Þorvalddson,
Hilmar Bjömsson og Rúnar Kristinsson,
KR. Karl Finnbogason, Jakob M. Jónharðs-
son, Gestur Gylfason og Marko Tanasic,
ÍBK. Hermann Hreiðarsson, ÍBV. Siguqón
Kristjánsson, Amar Grétarsson, Jón Þórir
Jónsson, Kristófer Sigurgeirsson, Raspislav
Lasorik, UBK. Lárus Orri Sigurðsson, Júl-
ius Tryggvason, Öm Viðar Amarson, Guð-
mundur Benediktsson, Þór. Helgi Sigurðs-
son, Ríkharður Daðason, Pétur Marteins-
son, Steinar Guðgeirsson, Fram.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Reuter
Kenny Smith hjá Houston er við öllu búinn, en Jeff Hornac er með boltann.
Houston sigraði
„ÉG er mjög ánægður með að vera kominn í úrslit í annað sinn,“
sagði Hakeem Olajuwon, miðherji Houston, eftir að hafa tryggt
sér sigur íVesturdeiidinni — vann Utah ífimmta leik liðanna,
94:83. Olajuwon, eini leikmaður liðsins sem lék einnig með fyrir
nfu árum er það komst si'ðast í úrslit, átti sannkallaðan stórleik.
„Það voru margir sem héldu að við kæmum í þennan leik ekki
rétt stefndir með 3:1 forystu. Við stjórnuðum leiknum frá upp-
hafi og þetta var aldrei spurning,11 sagði Oljauwon.
Olajuwon var allt í öllu. Hann
gerði 22 stig í leiknum, tók
10 fráköst, „blokkaði" 7 skot, átti
■■■^■■1 6 stoðsendingar og
Frá stal boltanum fjór-
Gunnari um sinnum. Robert
Valgeirssyni Horry var einnig
ÍBandarikjunum mjög góður f fyrri
hálfleik og gerði þá 17 stiga af 22
stigum sínum. Heimamenn náðu
strax yfírhöndinni í leiknum og
mest 26 stiga forskoti í upphafi
síðari hálfleiks. Utah náði að
minnka muninn niður í 8 stig, en
nær komust liðið ekki og 11 stiga
sigur Houston var í höfn.
Karl Malone var stigahæstur í
liði gestanna með 31 stig og 10
fráköst. „Þetta er búið hjá okkur
og ég óska Houston til hamingju,“
sagði Malone. Hann var spurður
um hvaða lið væri líklegast til að
vinna titilinn og svarið var þetta:
„Mér er alveg sama hvaða lið vinn-
ur. Ég ætla ekki að horfa á úrslita-
leikina þeir skipta mig engu máli
úr þessu,“ sagði Malone.
Houston hefur tvisvar áður leikið
til úrslita í NBA-deildinni og í bæði
skiptin gegn Boston, 1981 og 1986,
og tapaði í bæði skiptin. „Við lékum
fyrri hálfleikinn eins og við ætlum
að gera í úrslitaleikjunum. Við vor-
um ákveðnir í að leggja allt í þetta
í fyrri hálfleik og það gerðum við,“
sagði Rudy Tomjanovich, þjálfari
Houston.
1.DEILD KARLA
Fj . leikja U J T Mörk Stig
KR 3 2 1 0 8: 1 7
IA 3 2 1 0 5: 1 7
IBK 3 1 2 0 6: 2 5
VALUR 3 1 2 0 3: 2 5
FH 3 1 1 1 1: 1 4
UBK 3 1 0 2 2: 9 3
FRAM 3 0 2 1 4: 5 2
ÞOR 3 0 2 1 3: 4 2
IBV 3 0 2 1 1:3 2
STJARNAN 3 0 1 2 0: 5 1
Forleikir í bikarkeppni karla
Ökkli-BÍ..........................2:3
■Eftir framlengingu. Staðan var 2:2 eftir
90 mínútur.
Smástund - Selfoss...............3:2
VíkingurÓ.-HK.....................0:2
4. deild B
Njarðvik - Ármann.................2:0
Hamar - Gk. Grindavíkur...........3:0
Æfingalandsleikir
Tel Aviv:
ísrael - Argentína...............0:3
- Gabriel Bastistuta 2, Claudio Caniggia.
Búkarest:
Rúmenía - Slóvenía...............0:0
15.000
Ósló:
Noregur - Darimörk...............2:1
Jahn Ivar Jakobsen (35.), Henning Berg
(45.) - Flemming Povisen (41.). 22.000
Eindhoven:
Iiolland - Ungverjaland..........7:1
Dennis Bergkamp (12., 90.), Bryan Roy
(17.), Koeman (23. vsp.), Gaston Taument
(46.), Frank Rijkaard (58., 78.) - Bela Illes
(9. vsp.) - 27.450
Siglingar
Fyrsta þriðjudagskeppni sumarsins á kjöl-
bátum fór fram sl. þriðjudag. Úrslit urðu:
Leiðréttur tími:
Sæstjaman....................... 45,41
Svala........................... 46,19
Evall......................... 49,14
Urta............................ 50,45
Mardöll......................... 50,57
ísold..........................1:06,00
Stjaman........................1:06,14
■Sjómannadagskeppnin fer fram á sunnu-
daginn á Kollafirði kl. 11.
Íshokkí
Stanley-bikarinn
New York Rangers - Vancouver.....2:3
■Staðan var jöfn 2:2 eftir venjulegan leik-
tima og því þurfti að framlengja. Greg
Adams gerði sigurmark Vancouver i fram-
lengingunni. Kirk Mclean, markvörður
Vancouver, varði 52 skot í leiknum og er
það aðeins í fjórða sinn í 60 ára sögu úrsli-
takeppninnar sem markvörður hefur varið
yfir 50 skot í leik. Staðan er 1:0 fyrir
Vancouver, en það lið sem fyrr vinnur 4
leiki verður meistari.
TEIMNIS
Opna franska
Atta manna úrslit karla:
Magnus Larsson (Svíþjóð) vann Hendrik
Dreekmann (Þýskal.) 3-6 6-7 (1-7) 7-6 (7-3)
6-0 6-1.
Alberto Berasategui (Spáni) vann 5-Goran
Ivanisevic (Króatíu) 6-4 6-3 6-3.
■ Berasategui og Larsson mætast f undan-
úrslitum á morgun sem og Jim Courier og
Sergi Bruguera. í dag leika i undanúrslitum
í einliðaleik kvenna Arantxa Sanchez Vic-
ario og Conchita Martinez annarsvegar, og
Steffi Graf og Mary Pierce hinsvegar.
Hjólreiðar
Ítalíumótið
Staðan eftir 11 leggi:
1. Evgeny Berzin (Rússl.).41:38.36 klst.
2. A.Cuevas (Frakkl.)..2.16 mín. á eftir
3. Gianni Bugno (ítal.)............2.32
4. Miguel Indurain (Spáni).........3.39
5. Marco Giovannetti (ítal.).......4.58
6. Francesco Casagrande (ítal.)....5.02
7. WladimirBelli (Ital.)...........5.24
8. Pavel Tonkov (Rússí.)...........6.09
9. Massimo Podenzana (ítal.).......6.25
10. Moreno Argentin (ítal.)........6.42
FELAGSLIF
Körfuboltakeppni
í Laugardalnum
Körfuboltakeppni verður haldin á vegum
Adidas-umboðsins, Sportmanna hf, í Laug-
ardalnum á laugardaginn, 4. júní. Um er
að ræða svokallaða „Streetball“-keppni eins
og fyrirtækið hélt í fyrra. Þátttökuiið geta
orðið allt að 200 og keppt verður í sex ald-
ursflokkum. f hveiju liði mega vera fjórir
leikmenn en þrír inná í einu; þrír mæta
þremur á eina körfu. Leikið er í 10 mínútur
eða upp í 30 stig.
Síðasti dagur til að skrá lið til þátttöku
er í dag, annað hvort á skrifstofu mótsins
í Laugardal eða i síma 682420. Þátttöku-
gjald er kr. 4.000 á lið. Sigurliði í flokki
drengja sem fæddir eru 1975- 78 gefst
kostur á að leika um sæti í Evrópukeppni
í Streetball, sem fram fer í Berlín í septem-
ber. Úrslit milli sigurvegara mótanna á
Selfossi, Akureyri, Reykjavík og í Borgar-
nesi fer fram við Hard Rock 13. ágúst nk.