Morgunblaðið - 24.06.1994, Page 52
JieWiiát
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVlK
SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FOSTUDAGUR 24. JUNI1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
íslenskur tökumaður í lífshættu í írak
Tvær
árásir
vopnaðs
liðs
KONRÁÐ Jóhann Sigurðsson
kvikmyndatökumaður kom til Is-
lands fyrir tveimur dögum, eftir
að hafa unnið við tökur kúrd-
neskrar kvikmyndar í tæpar sex
^yikur við erfiðar aðstæður. Tökul-
iðið kom á svæðið á sama tíma og
átök brutust út milli tveggja stjóm-
málafylkinga í héraðinu Sulai-
manija, og komst í hann krappann
í þorpi um 100 kílómetra norður
af Sulaimanija. Tvívegis var reynt
að koma tökuliðinu fyrir kattarnef.
Vaknaði við skothríð
„Þremur dögum eftir að við kom-
um í þorpið var fyrsta árásin gerð
á okkur," segir Konráð Jóhann.
,_^Við höfðum þá hengt upp vegg-
spjöld með myndum af Saddam
Hussein fyrir tökurnar og líklegast
farið um einhverja heilaga staði,
óafvitandi. Mér var líka sagt að
stjórn Saddams Hussein greiddi
hverjum þeim sem dræpi Vestur-
landabúa 10 þúsund dollara, en al-
menn mánaðarlaun þarna em um
3-4 dollarar, þannig að freistingin
er mikil. Menn frá nærliggjandi
þorpum höfðu tekið sig saman um
að stöðva kvikmyndatökuna fyrir
fullt og allt, senniiega að drepa
okkur. Þeir læddust að svefnstað
okkar í skjóli nætur og vissu greini-
lega ekki að við höfðum varðmenn.
Eg vaknaði við skothríð og sá að
verðimir voru horfnir. Við héldum
Jtyrru fyrir innandyra, því átök vom
algeng þarna rétt við landamæri
írans, og töldum í fyrstu að þau
skýrðu skothvellina eða að einhveij-
ar fyllibyttur væm að þruma út í
loftið. Verðirnir komu aftur eftir
nokkra stund og sögðu okkur að
fara að sofa, en í morgunsárið var
okkur hins vegar sagt af árásinni
og að þeir hefðu stökkt hópnum á
brott.“
Með alvæpni
KONRÁÐ Jóhann alvopnaður ásamt einum lífverði sínum, sem
fylgdi honum meðan á tökum stóð, en aðrir lífverðir fengu
annars vegar matareitrun og voru hins vegar reknir.
Risalax á land eft-
ir langa viðureign
JÓN Hjartarson forstjóri og eigandi Húsgagnahallarinnar landaði í gær
25 punda nýrunnum hæng í Þverá í Borgarfirði og er það stærsti lax
sem veiðst hefur það sem af er þessu veiðitímabili. Er laxinn pundinu
þyngri heldur en lax sem veiddist í byijun mánaðar i Blöndu. Jón veiddi
laxinn í streng neðan Dranghyls á Skrögg, lúru númer 6, og stóð viður-
eignin yfir í sjö klukkustundir. „Laxar eru jafn misjafnir og mennirnir
þegar úthald er annars vegar. Þessi var íþróttamaður og um tíma hélt
ég satt að segja að mig brysti úthald til að ljúka leiknum," sagði Jón i
samtali við Morgunblaðið, skömmu eftir að laxinn var loks kominn á land.
Jón Ólafsson, veiðifélagi Jóns
Hjartarsonar, sagðist hafa litið á
klukkuna er nafni hans setti í lax-
inn. „Hún var 8.15 og þegar laxinn
var loks kominn á land var klukkan
korter yfir þijú. Þetta var ótrúlegt;
sjö klukkustundir og þó lét laxinn
illa allan tímann," sagði Jón Ólafs-
son. Veiðimaðurinn Jón Hjartarson
sagði, að laxinn hefði hagað sér eins
og stórum laxi sæmdi. „Hann barð-
ist skynsamlega og af fullri hörku.
Það var ekki að ég væri með eitt-
hvað veikar græjur að þetta tók svo
langan tíma. Ég tók vel á þessum
fiski allan tímann,“ sagði Jón.
Þótt stór sé, þá er þetta ekki
stærsti laxinn sem Jón Hjartarson
hefur veitt. „Sá stærsti var 26,5
punda fiskur sem ég fékk í Labrad-
or um árið,“ sagði Jón.
Fjármálaráðherra um óróa á lánsfjármarkaði
Aðallega innbyrðis
breytingar á vöxtum
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra telur að hækkuð ávöxtunarkrafa
húsbréfa og langtíma spariskírteina í gær muni ekki hafa neikvæð áhrif
á almenna vaxtaþróun. Það sé eðlilegt að meiri munur verði á vaxtakjör-
um lána eftir lánstíma en verið hefur. „Þótt vextir hækki á sumum skuld-
bindingum ættu þeir einnig að geta lækkað á öðrum, ekki síst skammtíma-
lánum.“
Seðlabankinn hækkaði í gær
kaupávöxtunarkröfu sína í húsbréf
og spariskírteini til lengri tíma um
0,23%. Kaupávöxtunarkrafa í 10 ára
spariskírteini hækkaði úr 4,82% í
5,05% og ávöxtunarkrafa húsbréfa
úr 4,97% í 5,2%, svo dæmi séu tek-
in. Verðbréfafyrirtækin fylgdu í kjöl-
farið og hækkuðu meðal annars
ávöxtunarkröfu sína í húsbréf í
5,30%. Seðlabankinn lækkaði hins
vegar lítillega ávöxtunarkröfu sína
í skammtímabréf. Þessar breytingar
ollu töluverðri ólgu á verðbréfamark-
aðinum í gær. Til dæmis voru við-
skipti með hlutdeildarskírteini í verð-
bréfasjóðum Kaupþings, Einingar-
bréf, stöðvuð um tíma þar til lægra
gengi hafði verið skráð.
Engin kollsteypa í vaxtamálum
Fjármálaráðherra var spurður
hvort þessi aukna ávöxtunarkrafa
væri til marks um að menn hefðu
gefist upp á vaxtalækkandi aðgerð-
um. Sagði hann svo alls ekki vera.
„Ég tel að þarna sé fyrst og fremst
um innbyrðis breytingar á vaxta-
kjörum að ræða,“ segir Friðrik.
■ Aukið framboð bréfa / 14
Bréf til Ólafs Gunnarssonar í Síðumúlafangelsi
Þrefaldur hagnaður verður
af næstu sendingu
VIÐ LEIT á konu, sem heimsótti
svonefndan höfuðpaur í stóra fíkni-
efnamálinu, Ólaf Gunnarsson, um
síðustu helgi fannst sendibréf til
hans, þar sem segir á þá leið að
hagnaður af næstu sendingu verði
^refaldur. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var bréfið ritað af
manni, sem hlaut dóm ásamt Ólafi
í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánu-
dag. Björn Halldórsson, lögreglufull-
trúi í fíkniefnadeild, staðfesti að
hann hefði bréfið undir höndum, en
kvaðst ekki vilja tjá sig um fram-
hald málsins.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins kom kona í heimsókn til
Bréfið fannst í nærklæðum
gestkomandi konu
Ólafs á laugardag. Ákveðið var að
leita á henni og þá kom í ljós að hún
hafði reynt að smygla til hans bréfí,
sem hún hafði falið í nærbuxum sín-
um.
Varla um tómata að ræða
I bréfínu voru skilaboð frá manni,
sem hlaut dóm í Héraðsdómi Reykja-
víkur á mánudag ásamt Ólafi og 13
öðrum, fyrir aðild að stóra fíkniefna-
málinu, en maður þessi hlaut einn
af vægari dómunum.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var efni bréfsins á þá
leið, að hagnaður af næstu sendingu
yrði þrefaldur. Ekki var tíundað hver
sendingin væri, hvaðan hún kæmi
eða hvenær, en einn viðmælenda
Morgunblaðsins kvaðst efast um að
konan hefði farið svo leynt með bréf-
ið ef um innflutning tómata væri að
ræða.
„Ég get staðfest að fangelsismála-
yfirvöld afhentu okkur bréf sem var
tekið af gesti Ólafs í Síðumúlafang-
elsinu á laugardag," sagði Björn
Halldórsson, lögreglufulltrúi fíkni-
efnadeildar, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Ég er hins vegar ekki
tilbúinn til að tjá mig frekar um
málið eða framhald þess á þessu
stigi.“
Ölafur Gunnarsson hefur setið í
Síðumúlafangelsi frá því í sept-
ember.
Morgunblaðið reyndi í gær að
hafa tal af Haraldi Johannessen,
forstjóra Fangelsismálastofnunar,
en tókst ekki þar sem hann er erlend-
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Kúluvarp-
arinn vann
hálandaleika
KÚLUVARPARINN og krafta-
karlinn Andrés Guðmundsson
sigraði á hálandaleikum í Skot-
landi í vikunni. Lagði hann sjö
keppinauta að velli í móti sem Jón
Páli Sigmarsson vann alloft.
Andrés keppir jöfnum höndum í
kúluvarpi og á kraftamótum.
„Eg er ekki langt frá því að
ná lágmarkinu í kúluvarpi til að
geta keppt á Evrópumeistaramót-
inu í fijáísum í ágúst. Ég æfi
kúluvarpið af kappi, en keppi í
kraftamótum á milli. I byijun júií
fer ég á mót í Finnlandi, þar sem
Gary Taylor, sterkasti maður
heims, verður meðal keppenda.
Mótið í Skotlandi var spenn-
andi, ég varð einu stigi á undan
Austurríkismanninn Manfred Hö-
berl, eftir að hafa leitt frá byrj-
un. Snerpan úr kúluvarpinu hjálp-
aði mér, nú er bara að vinna
kraftakarlana í Helsinki." sagði
Andrés.
—..-.».♦ •
Island valdi
A-riðilinn
ÍSLAND leikur í A-riðli heimsmeist-
aramótsins í handknattleik, sem
fram fer hér á landi í maí á næsta
ári, en dregið var í riðla við athöfn
í Laugardalshöll gærkvöldi.
24 þjóðir leika í HM og var þeim
skipt niður í fjóra sex liða riðla. Sam-
kvæmt reglum IHF fær gestgjafínn
að velja sér riðil. Eftir að dregið hafði
verið úr fimm styrkleikaflokkum af
sex í gærkvöldi valdi ísland sér A-rið-
il þar sem mótheijarnir verða Sviss,
Ungveijaland, Afríkuþjóð, Asíuþjóð
og Ameríkuþjóð.
■ Gátum ekki / B1