Morgunblaðið - 01.07.1994, Side 1
56 SÍÐUR B/C
146. TBL. 82. ÁRG. FÖSTUDAGUR1. JÚLÍ1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nýir ráðamenn
í Japan lítt fyrir
alþjóðahyggju
Tókíó. Daily Telegraph.
TOMIICHI Murayama leiðtogi japanska Sósíalistaflokksins, sem kjör-
inn var forsætisráðherra Japans í fyrradag, myndaði nýja ríkisstjóm
í gær. Athygli vekur að til helstu ráðherrastarfa hafa valist menn sem
kunnir eru fyrir einangrunarhyggju í efnahagsmálum og andstöðu við
aukna þátttöku Japana í alþjóðlegum aðgerðum utan heimalandsins.
í starf utanríkisráðherra og að-
stoðarforsætisráðherra vaidist Yohei
Kono leiðtogi Fijálslynda lýðræðis-
flokksins sem fékk 13 ráðherra af
20. Hann er andvígur þátttöku Jap-
ana í alþjóðlegum aðgerðum og er
sagður munu reyna að komast sem
mest hjá þátttöku í alþjóðlegum refs-
iaðgerðum gegn Norður-Kóreu.
Fyrsta aðgerð hans í embætti var
að hvetja til þess að deilan um kjarn-
orkuáætlun Norður-Kóreu yrði leyst
með friðsamlegum hætti.
Skipan Ryutaros Hashimotos í
starf viðskiptaráðherra var einnig
talin til marks um að samskipti Jap-
ana við aðrar þjóðir ættu eftir að
súrna. Hann er kunnur fyrir andúð
sína við að látið verði undan þrýst-
ingi Bandaríkjamanna í viðskipta-
málum og bæði hann og Masayoshi
Takemura ijármálaráðherra lögðust
opinberlega gegn því í fyrra að opn-
að y'rði fyrir innflutning á hrísgrjón-
um til Japans.
Reynslulaus
Reuter
.
Arafat
til Gaza
Gaza, Tel Aviv. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO), mun
ávarpa útifund í Gazaborg, þegar
hann heimsækir í fyrsta sinn sjálf-
stjórnarsvæði _ Palestínu í dag.
Öfgasinnaðir ísraelar hafa hótað
að efna til mótmæla og óeirða.
ísrael hóf í gær umfangsmestu
öryggisráðstafanir sem nokkru
sinni hafa verið gerðar í landinu,
til þess að gæta Arafats — sem
lengi var þjóðníðingur að áliti Ísra-
ela. A miðvikudag, skömmu eftir
að fregnir bárust af væntanlegri
heimsókn Arafats, hétu leiðtogar
ísraelskra landnema verðlaunum
hveijum þeim sem „næði“ Arafat.
---------* * *----
Balladur
neitar aðild
París. Reuter.
EDOUARD Balladur, forsætisráð-
herra Frakklands, neitaði því í gær
að Bernard Tapie hefði verið hand-
tekinn að undirlagi stjórnarinnar.
Áberandi aðgerðir lögreglunnar
hafa verið gagnrýndar harðlega.
Balladur sagði ekkert hæft í þeim
ásökunum að framið hefði verið
lögbrot er sími Tapies var hleraður.
■ Hrói höttur/17
Aður hetja,
nú smánar-
blettur
DIEGO Maradona er sakleysið
uppmálað á myndinni en fregnin
um að hann hefði fallið á Iyfja-
prófi eftir leik í heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu varð til þess
að hann féll af stalli sem þjóð-
hetja í heimalandinu. Gífurleg
reiði braust út í Argentínu í gær,
fólk flykktist út á götur og torg
til að láta reiði sína í Ijós. Afstað-
an til knattspyrnusnillingsins
breyttist því á einni nóttu;
í stað þjóðhetju er hann nú smán-
arblettur á þjóðinni.
■ Lyfjablanda/Bl
Murayama hefur enga reynslu af
setu í ríkisstjórn og kom kjör hans
mjög á óvart. í fyrstu umferð kosn-
inga á þingi fékk enginn frambjóð-
andi meirihluta en að lokum var
kosið milli hans og Toshiki Kaifu
fyrrverandi forsætisráðherra.
Murayama er lítt þekktur utan
heimalandsins. Eitt hans fyrsta verk
verður þó að sækja leiðtoga iðnveld-
anna sjö í Napólí í næstu viku. Þar
er búist við að hann muni eiga við-
ræður við Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta um viðskipti landanna sem eru
Japönum verulega í hag og hafa
leitt til mikillar gengislækkunar
Bandaríkjadollars gagnvart jap-
anska jeninu.
Sósíalistar fengu fimm ráðherra
og smáflokkurinn Sakigake tvo og
er Takemura annar þeirra. Einungis
ein kona situr í ríkisstjórn Muray-
ama en það er Makiko Tanaka vís-
inda- og tækniráðherra.
I öraggum
höndum
IBUAR Haiti hafa í hrönnum
reynt að flýja örbirgðina þar í
landi og lagt út á opið haf á
smákænum. Skip bandaríska
flotans hafa stöðvað siglingu
margra þeirra og siglt með
flóttamennina til flotastöðvar-
innar í Guantonamo-flóa á
Kúbu. Þar verður fólkið að bíða
þess að fá að flytjast til Banda-
ríkjanna en Bill Clinton forseti
hefur samþykkt að flóttamenn
frá Haiti fái að koma til lands-
ins. Á myndinni er haitískt
kornabarn í öruggum höndum
skipveija á dráttarbáti strand-
gæslunnar eftir volk á rúmsjó.
85% Breta telja Karl
prins hæfan sem konung*
BRESKUR almenningur
virðist ekki setja játningar
Karls prins um framhjá-
hald fyrir sig ef marka
má símakönnun sem gerð
var í gærmorgun í kjölfar
sýningar umdeilds sjón-
varpsþáttar um prinsinn.
Talið er að 15 milljónir
manna hafi fylgst með
þættinum, sem var um tveir og
hálfur tími að lengd, og virðist
almenningur alla jafna
sáttur við frammistöðu
prinsins. Af þeim 80.000
sem hringdu inn til ITV-
sjónvarpsstöðvarinnar í
gær, sögðust 85% telja að
^hann væri fyllilega hæfur
til að verða konungur.
Dálkahöfundar blaðanna
töldu hins vegar flestir að
hefði tekið óþarfa áhættu,
spurði Daily Mail á forsíðu
hvort prinsinn hefði enn einu sinni
sýnt dómgreindarskort.
Þá var dálkahöfundur The Daily
Telegraph óvæginn í umfjöllun
sinni um þáttinn og sagði m.a.:
„Hin stórfenglegu skartklæði voru
fáránleg, útskýringarnar inni-
haldslausar, afsakar.irnar ekki
bornar fram af heilum hug. Fram-
tíðarkonungi okkar, jafn ágætum
náunga og hann er, hefði verið
nær að láta þögnina tala fyrir sig.“
Nýtt herbragð Sea Shephard
A smákafbát
gegn hvalbátum
London. The Daily Telegraph.
NÁTTÚRVERNDARSAMTÖKIN
Sea Shepherd hyggjast nota nýtt
vopn í báráttunni við norsk og
japönsk hvalveiðiskip —
lítinn- kafbát. Báturinn
var byggður í Bretlandi
árið 1987, og tekur tvo
í áhöfn. Meðlimir í sam-
tökunum munu leggja
upp frá Ijmuiden í Hol-
landi í dag á skipi sínu,
sem heitir Hvalir að ei-
lífu, og var upphaflega
norskt rannsóknaskip, til
þess að trufla hrefnuveiðar Nprð-
manna.
Kafbáturinn verður hafður
með. Að sögn Pauls Watsons,
forkólfs samtakanna, nam kostn-
aður við kaup og útbúnað bátsins
sem svarar 8,4 milljónum ís-
lenskra króna. Megnið af kostn-
aðinum var greitt af hóteleiganda
í Las Vegas, hliðhollum málstað
samtakanna.
Geta „gatað“ hvalbáta
„[Báturinn] gerir okkur kleift
að komast inn í hafnir á laun til
árása á ólöglega hvalbáta," sagði
Watson. „Auk þess er báturinn
búinn vökvaknúnum flein sem við
gætum notað til þess að reka
bókstaflega gat á skrokk hval-
báts.“ Þá mætti nota bátinn til
rannsóknastarfa og kvik-
myndatöku.
Watson sagði að Sea
Shepherd liti á norska
hvalveiðimenn sem „sjó-
ræningja" sem væru að
bijóta lög. Á síðasta ári
hófu Norðmenn hvalveið-
ar, þrátt fyrir bann Al-
þjóða hvalveiðiráðsins.
Að sögn norsks embætt-
ismanns eru veiðar þeirra ekki
ólöglegar. „Við höfum fylgt regl-
um hvalveiðiráðsins út í ystu
æsar,“ sagði hann.
Búast við sjóhernum
Norsku hvalveiðibátarnir eru
mun minni en Hvalir að eilífu.
Sagðist Watson vænta þess að
þeir myndu hætta veiðum þegar
skip samtakanna kæmi á vett-
vang, en þó væri við því að búast
að norski sjóherinn eða strand-
gæslan reyndi að fara um borð í
Hvali að eilífu. „Ef þeir reyna það
þá munum við veijast þeim með
vatnsbyssum og öðrum ofbeldis-
lausum aðferðum,11 sagði Watson.
Sam Watson