Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nefnd dómsmálaráðherra lýkur endurskoðun á skaðabótalögunum
Ekkí ástæða til
að lagaákvæðin
verði afturvirk
ÞRIGGJA manna nefnd sem Þor-
steinn Pálsson, dómsmálaráðherra,
skipaði í febrúar til að endurskoða
skaðabótalögin, sem tóku gildi
þann 1. júlí 1993, hefur skilað áliti
sínu. Auk þess að endurskoða
margföldunarstuðul í 6. gr. lag-
anna var nefndinni einnig falið að
taka afstöðu til tveggja bréfa Auð-
ar Guðjónsdóttur, hjúkrunarfræð-
ings, til allshetjamefndar Alþingis
varðandi ungmenni sem slösuðust
fyrir gildistöku nýju laganna, en
áttu enn eftir óuppgerð skaðabóta-
mál þegar þau tóku gildi.
í bréfunum mæltist Auður til
þess að lögunum yrði breytt þann-
ig að þau ungmenni sem hlotið
höfðu meira en 50% örorku vegna
slysa sem þau lentu í fyrir 1. júlí
1993, og áttu enn eftir óuppgerð
skaðabótamál þegar lögin tóku
gildi, fengju skaðabætur sam-
kvæmt nýju lögunum.
Nefndin var skipuð þeim Gunn-
laugi Claessen, ríkislögmanni,
Guðmundi Skaftasyni, fyrrum
hæstaréttardómara, og Gesti
Jónssyni, hæstaréttarlögmanni.
Gestur tók ekki afstöðu í málinu
vegna skyldleika við Auði, en
Gunnlaugur og Guðmundur töldu
ekki rétt að breyta lögunum og
gera þau afturvirk á þennan hátt.
Þeir benda á að löggjafinn hafi
viðurkennt í nýju skaðabóta-
lögunum að börn og ungmenni
sem ekki voru á almennum vinnu-
markaði hefðu fengið fram að
gildistöku nýju skaðabótalaganna
of lágar bætur, sérstaklega í þeim
tilfellum sem örorkan var varan-
leg.
Þrátt fyrir þetta sé ekki hægt
að gera lögin afturvirk á þennan
hátt, það fæli í sér íþyngjandi aft-
urvirkni gagnvart bótagreiðend-
um. Auk þess mismunaði það þeim
sem slösuðust fyrir 1. júlí en voru
búnir að gera upp sín mál.
Klofin nefnd
Nefndin klofnaði í áliti sínu á
breytingu á margföldunarstuðlin-
um. Meirihlutinn, þeir Gunnlaugur
og Gestur, komust að þeirri niður-
stöðu að hækka bæri margföldun-
arstuðul í 1. mgr. 6. gr. laganna
úr 7,5 í 10. Þannig væri tryggt
að tjónþolar fengju fullar bætur
fyrir fjárhagslegt tjón sem þeir
yrðu fyrir. Guðmundur skilaði sér-
áliti þess efnis að ekki væri ástæða
til að breyta stuðlinum vegna þess
að skaðabótalögin skilgreindu upp
á nýtt hvað væru fullar bætur.
Nefndin áiítur einnig að sam-
ræma beri það lágmarksmiskastig
sem bætur greiðast fyrir við al-
mannatryggingalögin. Er mælt
með að þegar miskastig er minna
en 10% greiðist engar örorkubæt-
ur, en í lögunum er gert ráð fyrir
að þetta stig sé 15%. Almanna-
tryggingalögin gera ráð fyrir 10%
lágmarksmiskastigi.
Álit nefndarinnar verður nú
sent allsheijarnefnd Alþingis auk
þess sem Lögmannafélag Islands,
Samband íslenskra tryggingafé-
laga og Tryggingaeftirlitið fá það
til umsagnar.
Hekla segir upp
22 starfsmönnum
HEKLA hf. tilkynnti í gær um
uppsagnir 22 starfsmanna, launa-
lækkun stjórnenda og fækkun
deilda í fyrirtækinu. Ákveðið var
að grípa til þessara aðgerða til að
mæta samdrætti í sölu bíla, þunga-
vinnu- og bátavéla sem verið hefur
undanfarin ár og komið hefur
þungt niður á rekstrinum.
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu,
segir í viðtaíi við Morgunblaðið í
dag að tap hafi verið á fyrirtækinu
á síðasta ári og fyrirsjáanlegt að
tap verði einnig á þessu ári. Veltan
hafí dregist saman, úr 3.713 millj-
ónum árið 1992 í 3.592 milljónir á
sl. ári og áætlað sé að hún verði
2.985 milljónir á þessu ári. „Eigna-
staða Heklu er hins vegar mjög
sterk. Þessi staða hefur gert það
að verkum að við höfum þolað tap
í rekstrinum en núna þurfum við
að snúa því við,“ segir hann.
Hækkun jensins erfið
Vandamál fyrirtækisins má
ekki síst rekja til þess að japanska
jenið hefur hækkað um rúm 50%
frá því í október 1992 á sama tíma
og gengi þýska marksins og sterl-
ingspundsins hefur haldist tiltölu-
lega stöðugt. Hækkun á gengi
jensins er t.d. um 7% frá síðustu
áramótum, að sögn Sigfúsar.
„Mitsubishi hefur þá stefnu að
selja sína bíla í japönskum jenum
en ekki í Evrópumyntum eins og
þeirra stærstu keppinautar hér á
landi. Okkar bílar eru því ekki
jafn samkeppnishæfir í verði og
hér áður þó verðlækkanir hafi
fengist hjá verksmiðjunni. Þær
hafa alls ekki vegið upp á móti
gengishækkunum jensins," sagði
Sigfús.
■ Áætlaður sparnaður/23
Bíódagar runnir upp
BÍÓDAGAR, kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, var frum-
sýnd í Stjörnubíói í gærkvöldi
að viðstöddu fullu húsi áhorf-
enda, þar á meðal öllum helstu
leikurum og öðrum aðstandend-
um myndai’innar, sem hér heils-
ast í upphafi sýningarinnar.
■ í fylgd með fuIlorðnum/6
Oddvitar meirihlutaflokkanna í Hafnarfirði kynna rekstrarstöðu bæjarsjóðs
Vandinn ekki leystur
nema á átta til tólf árum
Löggiltir endurskoðendur skila
heildarúttekt í lok ágúst
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
hefur samið við Löggilta endur-
skoðendur hf. um að gera heildar-
úttekt á stöðu bæjarsjóðs og eiga
þeir að skila niðurstöðu sinni í lok
ágúst. Magnús Þór Árnason, bæj-
arstjóri og oddviti Alþýðubanda-
lags í Hafnarfirði, segir að frá
því hann settist í bæjarstjórastól-
inn hafi komið í ljós að ýmis gögn
hafi ekki komist undir hendur
bæjarendurskoðanda. Oddvitar
meirihlutaflokkanna gera sér-
staka athugasemd við stöðu hús-
næðisnefndar Hafnarfjarðar.
Bæjarstjórnin hefur ennfremur
samþykkt að lækka taxta Raf-
veitu Hafnarfjarðar til jafns við
taxta Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur.
„Þessa fáu daga, sem ég hef
setið í stól bæjarstjóra, þá hef ég
rekist á skuldbindingar, sem er
að engu getið í reikningum bæjar-
ins. Eitt af því sem vakti athygli
mína var að í reikningum leigu-
íbúðasjóðs fyrir árið 1993 eru
keyptar leiguíbúðir fyrir 162 millj-
ónir. Fyrir hluta af þeim íbúðum
finn ég ekki neinar samþykktir,"
sagði Magnús Þór á blaðamanna-
fundi, sem oddvitar meirihluta-
flokkanna efndu til í gær.
Meirihluta ýmis takmörk sett
„Nú er svo komið að 87% af
skatttekjum bæjarins fara í rekst-
ur málaflokka án vaxtakostnaðar
en eðlilegt viðmiðunarhlutfall er
70%,“ sagði Magnús Gunnarsson,
forseti bæjarstjórnar og oddviti
Sjálfstæðisflokksins. „I viðbót
greiðir síðan bæjarsjóður 22% af
tekjum sínum í afborganir og vexti
lána og þessi niðurstaða í ársreikn-
ingi sýnir svo ekki verður um villst
að möguleikum nýs meirihluta í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru
ýmis takmörk sett og hans bíða
afar erfið viðfangsefni," sagði
hann.
Mikil skuldaaukning milli ára
Magnús Gunnarsson sagði að
skuldir milli áranna 1992 og 1993
hefðu aukist um 427,7 milljónir
og þá ætti eftir að taka tillit til
200 milljóna króna lántöku vegna
holræsagerðar og um 100 milljóna
króna lán, sem var flutt af bæjar-
sjóði yfir á leiguíbúðasjóð. Lán
bæjarsjóðs hefðu því aukist um
7-800 milljónir króna.
Magnús Þór sagði að komið
hafí fram hjá endurskoðanda
bæjarins að peningalegar eignir
í ársreikningum bæjarsjóðs séu
ofmetnar svo nemi tugum millj-
óna króna. Magnús Gunnarsson
sagði að bæjarsjóður þyrfti lík-
lega að leggja húsnæðisnefnd
bæjarins til um 100 milljónir
króna til þess að rekstur hennar
gæti talist eðlilegur. Hann sagði
fyrirséð að skuldir sjóðsins myndu
hækka í ár og sem ástæðu fyrir
því mætti meðal annars nefna að
gatnagerðarframkvæmdir í mið-
bæ Hafparfjarðar hafi verið vaná-
ætlaðar um meira en 100 milljón-
ir í rekstraráætlun bæjarins fyrir
árið 1994.
Magnús Gunnarsson sagði að
slæm lausafjárstaða bæjarins hafi
leitt til þess að ákveðið hafi verið
að skuldbreyta eldri lánum og taka
langtímalán á bæjarstjórnarfund-
inum á þriðjudaginn. Tilgangur
þess væri meðal annars að minnka
yfirdrátt bæjarsjóðs en hann hefði
hlaupið á bilinu 190 til 240 milijón-
ir. Hann sagði að vandi Hafnar-
fjarðarbæjar yrði ekki leystur
nema á 8 til 12 árum.
Kiwanishreyfingin
Eyjólfur
kjörinn
forsetaefni
Eyjólfur Sig-
urðsson bóka-
útgefandi var
kjörinn for-
setaefni Kiw-
anishreyf-
ingarinnar á
heimsþingi
sem nú stend-
ur yfir í New Orleans í Banda-
rikjunum. Eyjólfur starfar sem
viðtakandi forseti frá 1. október
en tekur við sem heimsforseti
1995-96.
Þingið sitja 15 þús. manns.
Kiwanisklúbbar í heiminum eru
8.650 og meðlimir 327 þús.
Nafnið Elsa-
bet fundið
LÍKUR eru á því að óskírð Harð-
ardóttir, sem við sögðum frá í
gær, fái að heita Elsabet í höfuð-
ið á móður sinni.
Morgunblaðinu barst í gær
bréf frá Friðrik Skúlasyni höf-
undi Espólín ættfræðiforritsins,
þar sem segir, að í manntali
1845 finnist ein Elsabet. Sam-
kvæmt vinnureglum manna-
nafnanefndar þarf að finnast
a.m.k. ein manneskja í manntali
1845 með nafn til þess að hægt
sé að telja hefð fyrir því.
Haildór Ármann Sigurðsson
formaður mannanafnanefndar
segir að nefndin muni taka mál-
ið upp, reynist þetta rétt.
Landsbanki
Sverrir
endurráðinn
Á fundi
bankaráðs
Landsbanka
Íslands í gær
var Sverrir
Hermannsson
bankastjóri
einróma end-
urráðinn
bankastjóri við Landsbankann
til næstu sex ára.
Sex ára ráðningartíma Sverris
var lokið og var staðan því aug-
lýst að nýju. Auk Sverris barst
umsókn frá Herði Ragnarssyni,
töl vu verkfræðingi.
Aftur eldri
s veitarstj ómir
ÚRSKURÐUR um ógildingu
sveitarstjórnarkosninga í Stykk-
ishólmi og á Hólmavík þýðir að
gömlu sveitarstjórnirnar taka á
ný við völdum í sveitarfélögun-
um. Bæjarstjóm Stykkishólms
hefur kært úrskurðinn til félags-
málaráðuneytisins.
Hárið
Uppselt á
hálftíma
MIÐAR á söngleikinn Hárið,
sem frumsýndur verður á
fimmtudag, seldust upp á hálf-
tíma en miðasala hófst í gær.
Ingvar H. Þórðarson, einn
aðstandenda sýningarinnar, seg-
ist ekki hafa búist við svo góðum
viðtökum. „Þetta kom skemmti-
lega á óvart," segir hann.
37 manns taka þátt í söng-
leiknum sem sýndur verður í
Operunni, auk 80 starfsmanna.